Morgunblaðið - 21.09.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.09.1966, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 21. sept. 1961 Glæsilegir sundsprett- ir sænska gestsins MC " 'WJ'-WÍV// ./// ' ' S -Y Y"S Y'-'. •'A-'-'Y'SiV~YrYS'..-" V, „SS,'^"'.S";""'/S';- , , ,'./SS'YA."■' '■ <■ '//■■'■'" ív / ' '/"<///.s'/rs/xs,- '//'SS'S-'S"■■ I SÆNSKI sundgarpurinn Ingvar Erikson — einn af beztu flug- sunds- og skriðsundsmönnum heimsins — var þátttakandi á móti SSÍ og SRR í Sundhöllinni í gærkvöldi. Að sjálfsögðu sigraði hann með yfirburðum í sínum keppnisgreinum og sýndi áhorf- endum (sárafáum að vísu) og sundfólki glæsilega spretti. Erikson vanii 100 m skriðsund á 55,8 sek. Þar var’ð Davíð Vai- garðsson annar á 59,0. Guðm. Gislason 3. á 59,6 og á sama tíma synti Guðm. Þ. Harðarson Æ, sem nýkominn er heim frá æfing um í Bandaríkjunum, sem hafa skapað mikiai framfarir hjá honum og eiga án efa eftir að koma vel i ljós í vetur. í flugsundinu sigraði Erikson á 1:00,4 mín. Þar varð Davíð annar á 1.04,0. Guðm. Gíslason 3. á 1:05,5 og Guðm Harðarson á 1:06,9. Sundsprettir Svíans voru stór glæsilegir og lærdómsríkir. Sigurvegarar í öðrum greinum mótsins voru: 100 m baksund kvenna: Matth. Guðmundsd. Á 1:21,6. 100 m bringusund drengja: Ólafur Einarsson Æ 1:21,7. 200 m bringusund karla: Árni Þ. Kristjánsson SH 2:50,9. 100 m skriðsund stúlkna: Hrafnhl. Kristjánsd. Á 1:10,5. 50 m bringusund kvenna: Matthildur Guímundsd. Á 39,9. 50 m skriðsund drengja: Hall- dór Valdimarsson HSÞ 28,2. og vakti hann mikla athygli, og er þar mikið efni á ferð. «$. 100 m fjórsund telpna: Sigrún Siggeirsd. Á 1:23.2. __ 4x50 m fjórsund kvenna: Sveit Ármanns 2:29,0. Patterson rotaði Cooper FLOYD Patterson og Henry Cooper hinn enski háðu hnefa- æikakeppni í Wembley-höllinni í gærkveldi. Patterson sigraði á rothöggi er 2 mín. og 20 sek. voru af 4. lotu. Áður hafði Cooper tvívegis legið í gólfinu en risið á fætur og haldið áfram. Stjóm og formaður framkvæmdanefndar. Frá vinstri: Jón Guðmundsson, Sævar Gunnarsson, Páli Halldórsson, formaður, Hafliði Guðmundsson, Sigtryggur Júlíusson, form framkvæmda- nefndar og Ólafur Stefánsson. Sjá frétt neðar á síðunni. Valbjörn, Kjartan og Ólafur í 4 landa tugþrautarkeppni Hefst I Svíþjóð á laugardag Á ársþingi frjálsíþróttasam- banda Norðurlanda, sem haldið var hér á landi í fyrra haust var ákveðið a'ð ísland tæki þáct í 4 landa landskeppni í tugþraut Guðmundur Gíslason og Erikson. (Ljósm. Sveinn Þorm) ásamt Noregi, Danmörk og Sví- þjóð. Árlega hafa Norðmenn og Svíar haft landskeppni sín á milli í tugþrauc, fimmtarþraut kvenna og mara- þonhlaupi og var ákveðið að þessi keppni skyldi nú fara fram í Olofström í Svíþjóð, sem er bær um 100 km. norðaustur af Malmö. Var Dönum og íslend- ingum boðin þátttaka í þessa n keppni á umræddu ársiþingi hér í Reykjavík. Fyrirkomulag keppninna- skyldi vera sú að þátttökuþjóð- ir þreiddu ferðakostnað allan til keppninnar en Svíar greiddu uppihaldskostnaðinn. Þegar FRÍ hélt hér 3ja landa landskeppni í tugþraut með Sví- Innanfélagsmót KR FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD KR heldur innanfélagsmot á morgun, fimmtudag kl. 17.30. Keppt verð- ur í 5000 m hlaupi, 10000 m hl., 100 m hlaupi, langstökki, 800 m hlaupi, stangarstökki. um og Norðmönnum 1964, sem íslendingar sigruðu glæsilega, bauð forma'ður Sænska frjáls- íþróttasambandsins Niels Car,- ius til endurgjaldskeppni 1 Sví- þjóð. Nú hefur sænska sambana ið staðfest þetta boð fyrir fá- einum dögum, þannig að íslensku Framhald á bls 25 Biborbeppnin — og yngri flokkornir Á SUNNJI'AGINN fór fram leikur í Bikarkeppni KSÍ milli ísfirðinga og Þróttar — og var það 1. leikurinn í 4. umferð, þá Framhald á bls 25 jlngi Þorsteins- son formaður dómnefndor í Oslo FYRIR nokkru barzt Inga ( Þorsteinssvni, lormanni Frjálsi íþróttasambands íslands" beiðni frá Norska frjálsíþrótta I sambandinu að hann tæki að | sér að vera formaður yfirdóm | nefndar í landskeppni Noregs] og Finnlands, sem fer fram íl Osló nk. þriðjudag og mið- ( vikudag. Það er venja í landskeppn- um erlendis að formaður yfir( dómnefndar sé frá einhverjuJ öðru landi en, sem háir keppn ] ina. Þetta er í fyrsta skipti, sem íslenzkur frjálsíþróttadómari fær slíka beiðni. Ingi hefur átt sæti í yfirdómnefndum í milliríkiakeppnum, sem ís- lendingar bafa háð hér á landi og í Norcgi. Hann hefur al- þjóðadómarai éttindi. Nýr golfvöllur á Akureyri Fyrsta skóflustungan tekin Helgi Skúlason, augnlæknir, tók fyrstu skólfustunguna á nýja golfvellinum á Akureyri. AKUREYRI, 19. sept. — Fram- kvæmdir hófust á laugardaginn við nýjan golfvöll, sem Golf- sér upp. Fyrirhugaður golfvöll- klúbbur Akureyrar hyggst koma ur er í landi býlisins Jaðars of- an við Akureyri. Bæjarstjórn Akureyrar hefur boðið Golf- klúbbnum landið í skiptum fyr- ir núverandi völl við Þórunnar- stræti og auk þess stutt klúbb- inn fjárhagslega til að búa um sig á hinum nýja stað. Júlíus Sólnes, verkfræðingur, hefur gert uppdrátt að vellinum í samráði við skipulagsstjóra ríkisins og Magnús Guðmunds- son, golfmeistara, sem jafnframt mun hafa umsjón með þeim framkvæmdum, sem unnið verð- ur að í haust. Uppdrátturinn gerir ráð fyrir 18 holu velli á um 80 ha. lands. Hluti vallarins verður jafnframt almenningsgarður með gangstíg- um og trjágróðri. Gert er rað fyrir að völlurinn fullgerður muni kosta 4-5 millj. króna. Samið hefur verið við Brjót sf. um alla vélavinnu. Framkvæmdum verður hraðað eftir föngum við gerð nyrðri helmings vallarins. Og mun hann fullgerður eftir 3-4 ár. Hitt fer eftir fjármagni og aðstæðurn hvenær tekst að ljúka við syðri helminginn. Stutt athöfn fór fram á hinu nýja golfsvæði á laugardaginn. Formaður klúbbsins, Páll Hall- dórsson flutti ávarp að viðstödd- um mörgum félögum klúbbsins, en bað síðan Helga Skúlason, augnlækni, einn af stofnendum hans að stinga fyrsta hnausinn. Síðan tók stórvirk mokstursvél Brjóts sf. til starfa við jarð- vinnsluna. — Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.