Morgunblaðið - 21.09.1966, Side 10
10
MORGUNBLADID
Miðvikudagtu 11. «sept. 1966
FYRIR svO sem 30—35 árum
var Keflavík fámennt og fátæk-
legt fiskiþorp, fátt um þau lífs-
þægindi, sem fólkið í dag á við
að búa, og kann vart að meta
sem skyldi, því yngri kynslóðin
þekkir ekki eða man það, sem
áður var þó skammt sé umliðið.
Þá voru húsin fá og smá, flest
timburhús, klædd bárujárni,
hituð með kolaofnum, og eldað
á kolaeldavélum. Mikil fram-
för þóttu þegar olíuvélar —
tví- og þríkveikjur — komu og
kolakyntar miðstöðvar voru
lagðar. Þá komu kolaskip til
Keflavíkur og í fjörunni sást
ekki spýta, því allt var notað
til eldsneytis. Það tók langan
Keflavík séð úr lofti. Ilöfnin fremst á myndinni.
kippi, sem Keflavík tekur —
frá fátæku fiskiþorpi til fjórða
stærsta bæjar landsins.
A síðustu 10 árum voru
byggðar hér 622 íbúðir, sem
samtals voru 220,219 tenings-
metrar. Göturnar breikka og
lengjast. Malbikaðar hafa ver-
ið 3500 metrar og í sumar
verða malbikaðir 2000 metrar,
og undirbyggðar hafa verið
4000 metrar sem tilbúnar eru
undir malbikun, eftir því sem
henta þykir. Gangstéttir eru nú
lagðar meðfram bæði fullbún
um götum og ófullbúnum og
er lengd gangstétta orðin
margir kílómetrar.
Þannig heldur Keflavík á-
fram að svara kröfum tímans
á öllum sviðum. Vatnsveitan
hefur verið tvöfölduð og út-
hverfunum tryggt nægjanlegt
vatn, skólpleiðslur stækkaðar
og auknar — og það sem ef til
vill er mest um vert, er að
nú eru hús ekki byggð nema
við fullbúnar götur, undir var
anlegt slitlag; en áður fyrr
var aðeins iátinn ofaníburður
yfir moldina, sem aldrei var
er framfarabær
Keflavík
KJgi S. segir fréltir frá Kejla-
vík úr fortíð og nútsð
Skólavegurinn, sem nú verður malbikaðui.
tíma að fylla öskutunnu því
jafnvel askan var margnotuð
til brennslu. Vatnið var sótt í
brunna með dönskum vatns-
póstum, og vatnsberagrindin
nauðsynlegt heimilistæki. Göt-
urnar voru mjóir malarstigir,
enda farartækin ekki svo stór
eða hraðfara eins og nú. Götu-
kantarnir hlaðnir svo nálægt
hver öðrum, sem frekast var
unnt þvi færri malarskóflur
þurfti þá til ofaníburðar. Djúp-
ar holur og hólar gerðu um-
ferðina hægari og hættulausa,
en oft var erfitt að skrönglast
með kola- og saltbílinn um
þessar mjóu götur. Samgöngur
. við umheiminn voru af skorn-
um skammti, vörubílar fluttu
soðmatinn til Reykjavíkur og
nokkrar nauðsynjar til baka.
Fólksflutningar fóru þá fram í
svokölluðum „hálfkössum“ og
voru farþegar sóttir heim og
skilað á áfangastað og sóttir og
skilað aftur, gegn vægu gjaldi
— tveim krónum eða svo. Ferð-
in tók 2% tíma og stundum
meira, en nú ganga 40—60
manna hraðbílar milli Kefla-
víkur og Reykjavíkur á tveggja
klukkustunda fresti, og eru 50
mínútur á leiðinni og gjaldið
30 sinnum hærra að krónutölu.
Á þessum árum var í þorp-
inu stór og góður barnaskóli,
á sína vísu, sem byggður var
1911 og kirkja byggð 1914 með
prestsetri að Útskálum. Nú er
verið að stækka kirkjuna og
prestur situr í Keflavík.
Upphaf Keflavíkur er fyrst
að finna í sambandi við verzl-
unarstríðið og síðan einokunar-
verzlun Dana — og tróna hér
ennþá húseignir H.P. Duus, þó
hrörnandi séu mjög, og týni
tölunni óðum. Duus hætti verzl
un sinni og útgerð 1920 og eftir
það er landaeign og húsakost-
ur Duusverzlunarinnar leigður
ýmsum, og að lokum selt til
félags einstaklinga, því þá hafði
Keflavíkurhreppur ekki efni á
að kaupa, enda þótt eigninni
fylgdi helmingur þess lands,
sem Keflavíkurbær stendur á.
Þáverandi ráðamenn sáu ekki
fyrir þensluna sem skapaðist af
síðari heimsstyrjöldinni. — Nú
verður vafalítið að kaupa land-
ið á jafnmarga milljónatugi,
eins og hundruð þúsundanna
voru í þá tíð.
Útgerð, fiskveiðar og stækk
andi skip, hefur alla tíð verið
burðarásinn í vexti og við-
gangi Keflavíkur og er svo
enn í dag. Þegar ég kem til
Keflavíkur fyrir eitthvað . um
35 árum, voru hafnarskilyrði
fiskibátanna mjög erfið og lé-
leg. Bátarnir lágu fyrir fest-
ur úti á víkinni og höfðu tvær
hallabryggjur — Miðbryggjuna
og Básinn — til að losa afl-
ann við, og var þar oft þröngt
og erfitt athafnasvæði, einkum
í norðanátt.
Miðbryggjan var aðalathafna
svæðið, enda voru þar í kring
söltunar- og verkunarstaðirnir
flestir. Innbyrðis óeining kom
lengi vel í veg fyrir upphaf
varanlegrar hafnargerðar, þar
til hinn mikli bjartsýnis- og
framfaramaður, Óskar Halldórs
son, hóf hafnarbyggingu við
Vatnsnes, af miklum vanefnum
þá. »■
Hafnarmál Keflavíkur er
löng og merkileg saga út af
fyrir sig og verður drepið á
nokkra þætti hennar hér síðar.
Áður fyrr var allur Reykjanes-
Barnaskólinn í Keflavík. Skrúógaioumm og 17. júni stong
in l'remst a myudniiii
Sjúkrahúsið í Kcflavík.
skaiginn, vestan Vogastapa,
einn hreppur — Rosmhvalanes
hreppur. Árið 1908 er Kefla-
víkurhrepp skipt útúr, ásamt
Njarðvíkum og verða þá til
Gerða- og Miðneshreppur —
síðar er svo Njarðvíkurhrepp
ur myndaður og skilinn frá
Keflavík, fyrir áhrif þröng-
sýnna manna, en Keflavík og
Njarðvík eru landfræðilega og
skynsamlega einn og sami
staðurinn.
Keflavíkurhöfn gengur svo
kaupum og sölum og að síð-
ustu selur Keflavíkurhreppur
eignahluta sinn í höfninni og
notar 415 þúsund til að kaupa
togara, sem kostaði 5 milljónir
að losna við síðar. Þá varð til
Landshöfn Keflavík—Njarðvík.
Milljónatugum hefur verið var
ið til byggingar Njarðvíkur-
hafnar, en þangað koma láir
bátar, því það vantar meiri
sjó í höfnina. Bjarni Einarsson
framkvæmdamaður, er að
byggja þar dráttarbraut fyrir
stóra báta og hafði dýpkunar
skipið Grettir í allt sumar til
að reyna að grafa rás að braut
til friðar Allt þetta varðandi
gatnagerð eru skynsamlegar
framkvæmdir í vaxandi bæ, þó
þær séu kostnaðarsamar ver-
andi kynslóð.
Nú er eðlilega verið að
stækka skólana, bæði barna- og
gagnfræðaskólann. Barnaskóla-
húsið nýja, sem byggt var fyrir
nokkrum árum, er nú orðið of
lítið og viðbygging, hafin við
það. Á síðasta skólaári voru
yfir 1200 nemendur í barna-
og gagnfræðaskólanum, auk
þess voru 130 nemendur við
Tónlistarskólann og 80 nemend-
ur við Iðnskólann, starfsemi
Æskulýðsráðs í nýja Tómstund
arheimili var mikið sótt, og
hefur gefið góða raun.
Félagslíf er með miklum
blóma, þó áður fyrr ætti það
örðugt uppdráttar. Mér telst
svo til að í Keflavík séu yfir
60 félög með jafnmörgum stefnu
skrám. Við höfum hér ágætan
karlakór og kvennakór — lúðra
sveitir, tvær Bítlasveitir, með
gítar og græjur spretta upp,
eftir því sem hárið vex.
Íþróttalífið er með nokkrum
Gömul mynd af Miðbryggjunni.
inni fyrir stærri báta. Efrafail
er orðið þrem vertíðum eítir
áætlun með að byggja bryggj-
urnar í Njarðvík, á meðan
Keflavík bíður eftir nauðsyn-
legri fyrirgreiðslu.
Nóg um þetta að sinni. Tæki-
færi kunna að gefast síðar.
Keflavík er vaxandi bær.
Við þurfum ekki að líta 30
ár til baka til að sjá. Þá tjör-
blóma — handboltastúlkur og
sundgarpár geta sér góðan orð-
stír, yngstu flokkarnir í knatt-
spyrnu feta trúlega í fótspor
Islandsmeistaranna frá Ketla-
vík.
Bæjarfélagið hefur stutt vel
að íþróttalifinu og er nú 1
byggingu fullkominn grasvöll-
ur með öllu tilheyrandi og
gamla malarvellinum vel við-
Framhald á bls. lð