Morgunblaðið - 21.09.1966, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.09.1966, Qupperneq 24
24 MORGU NBLADID Miðvikudagur 11. «ept. 1966 ÚTVARP REYKJAVÍK AJLDARAFMÆLI orófessors Gjð mundar Hannessonar var 9. þ. m. Minntist Ríkisútvarpi'ð þess með klukkustundar dagskrárlið. Páll V; Kolka læknir flutti æviágrip Guðmundar, Vilhjálmur Þ. Gisla son útvarpsstjóri og Kristjan Eldjárn þjóðminjavörður lásj upp kafla úr ritum hans. Guð- mundur Hannesson læknir var ákaflega vel ritfær maður, skrir- aði fagurt mál og var skýr og ekorinyrtur í framsetningu þeirra mála er um fjallaði i hvert sinn. Hann leit ætíð á öll mál frá fleiri en einni hlið og ethugaði gaumgæfilega. Ég þekkti þennan ágætismann fra barnæsku minni, 'r hann var læk-nir í Skagafirði og mikiii vinur foreldra minna. Síðar varð hann læknir minn meðan hann stundaði íækningar hér í borg- inni. Má hiklaust telja hann . flokki merkustu manna samtíð- ar sinnar. Páll Kolka lýsti honum vd og rétt. Deila má um. hvorki ekki hefði mátt fá skemmtilegri kafla til upplesturs en þá, er fram voru bornir, en sá á völina sem á kvölina, þegar af mörgu og merkilegu er að taka. f þætti þeirra Brynju Bene- diktsdóttur og Hólmfríðar Gunn- arsdóttur 10. þ. m. áttu þær m. a. tai við Ævar Kvaran um íslenzKj tungu o. fl. Ævar Kvaran, leik- ari, leiklistarkennari og fyrirles- ari, meðal annars, er, sennilega einn þeirva manna, er nú flytja áheyrilegast og fegurst íslenzkt mál í útvarpi. Hann kann að lesa og hefnr hæfiieika til þess. Hann ta.að; um .sparibúning tungunn- er", sem hann nefndi svo og lagííi áherzlu á. að gott mál væri k»»>nt í öilum skólum landsino. Ég spyr: Er það ekki gert? Kvaran vill innleiða ho-fram- burð og afnema linmæli, en dó vill hann ekki að landshlutir leggi niður sín sérkenni í máli, svo sem norðlenzka k-hljóðið og vestfirzka a-hljóðið á undan ng (tangi). Ekki veit ég hvernig á að samríma þetta. Og þó, hugsan legt er það. — Kvaran krefst þess að þeir er stunda leiklist svo og útvarpsþulir. prestar og. aúðvitað, kennarar læri fagran framburð. Þetta er alveg rétt en því miður ekki ætíð farið eftir því. Þulir útvarps eiga t.d. ætíð að vera vel læsir. Nú eru sumir ágætir, en aðrir lakari. Þetta samtal við Ævar Kvaran var fræðandi og skemmtilegt. Þá töluðu þær um leikhúsmál í tilefni af því að leikhúsin erj nú að hefja starfsemi þessa dag ana. — Sagt var, að húsmæður hefðu helzt frið til að fá sér kaffi bolla og líta í blað eða bók á morgnana eftir kl. 9 er húsbónd- inn er farinn í vinnu. Margir hus bændur fara nú fyrr og ég hélt áð húsmæður hefðu. yfirleitt mjög annríkt á morgnana? — Um áramót ’68—’69 fá Sviar tvö- falda útvarpsskrá auk sjónvarps. Fróðlegt að vita það? f Rúss- landi á sunnudagurinn bráðum að verða hvildardagur, jæja. hafa Rússar aldrei hvílt sig síðan kommúnistar komust til valda? James Bond er ekki lengur' í tízku, annar kominn í staðinn, Cotton, held ég hann heiti. — Fjórða kona Maós tekur þátt í æskulýðsbyltingunm. Sagt tals- vert af kvennamálum einvalds- herrans. — Jú, mér þykir mikiu ljótara að drepa konur og börn, en þótt karlmenn stúti hver öðr- um, af hverju .... þetta konur. Líklega atavism? — Þátturinn var skemmtilegur þegar á alit er litið. Leikritið „Ókunn vídd“ eftir Harry Penson, þýtt af Magnúsi Torfa Ólafssyni, stjórnað af Jón- asi Jónassyni, leikið af afbragðs leikurum, var ágætt í sinni röð. Getur vel verið að í því felist mikill sannleikur. Prófessor dr. Rcihard Beck, sá góði íslandsvinur, flutti hjart- næma kveðju við brottför sína héðan. Hann og kona hans hafa dvalizt hér um stuttan tíma ■ sumar. Fáa betri syni og mál- svara mun land vort eiga er- lendis nú. Ættjarðarást hans er vafalaust sönn og fölskvalaus. þótt hann sé borgari í erlendu ríki. Heill og þökk fylgi þeim ágætu hjónum. Þátturinn Á náttmálum (Vé- steinn Ólason og Hjörtur Páls- son). Lesið var úr ferðabókum: Uno von Troil, Ebeneser Hender- son og Dufferin lávarður. Gami ir og góðir kunningjar í „spari- búningi", svo ég noti orð Ævars Kvaran. Færeyingar kváðu sinn grindadrápssöng. Kannske ein- hverjum hafi þótt gaman af því? Sigurjón Jóhannsson, ritstjóri frá Akureyri, talaði um daginn og veginn á mánudaginn. Talaði ryrst um kulda nyrðra, snjó á Vaðlaheiði og norðanhret. Mest ræddi hann um háska þann er þjóðinni í heild stafáði af of- þenslu byggðar hér við Faxaflóa þar sem nú býr yfir helmingur landsmanna. Fannst mér nokkur norðankaldj í ræðumanni og anda kalt á okkur „fyrir sunn- an“. „Litla þjóð, sem átt í vók að verjast, vertu ei við sjálfan þig að berjast“, sagði sá spa«.i maður Jón Magnússon skáld. Nóg er um það. Pétur Sigurðsson ritstjóri tal- aði um Chafterbury lávarð er uppi var á öndverðrj 19. öid og barðist alla ævi fyrir bættum kjörum verkaiýðs, einkum barna er voru látin þræla í kolanámum og verksmiðjum svo og bættri meðferð geðsjúkra. Þetta var holl og góð ræða, líkt og það, er Ævar Kvaran ræddi um Cuming ham hinn ameríska nýlega. Væri æskilegt að sem flestir hlustuðu á vel sagðár ævisögur göfugra manna, því það er mannbætandi. Áttræðisafmæli dr. Sigurðar Nordal var minnzt á viðeigandi hátt í Ríkisútvarpinu 16. þ. m. Prófessor Steingrímur J. Þor- steinsson flutti skörulegt og á- gætt ávarp og mælti m. a.: „Sig urður Nordal hefur haldið og heldur á lofti menntakyndli sem lýsir langt út í lönd og vermir og bjarmar í hugum íslendinga um ókomnar tíðir'1. — Þá lásu úr verkum Nordals Lárus Páls- son, frú Ólöf Nordal, Andres Björnsson, Kristján Eldjárn og dr. Sigurður Nordal sjálfur, er las snilldarlega þýðingu sína a kvæðinu Atlantis eftir Gustav Fröding. Ég held að dr. Sigurður hafi haft um tvennt að velja á unga aldri, verða, eins og hana varð, vísindamaður og skáld, eða aðeins skáld og hygg ég þá að hann hefði orðið fyrsti maður, ísienzkur, að hljóta Nóbelsverð- laun. En fyrir menningarlegt sjálfstæði vort eigum við íslend- ingar, vafalaust, engum núlif- andi nútíðarmannj meira að þakka en honum. Langa ævi hef ég verið að læra af honum og það geta margir sagt, lær’ðir og ■eikmenn. Enginn maður ritar jafn auðskilin vísindarit og skemmtileg, svo og um heimspeki og dulrúnir tilverunnar. — Dr. Gylfi Þ. Gíslason segir um hann í afmælisgrein: „Mesti vísinda- maður þjóðar sinnar fyrr og síð- ar í þeim fræðum sem ávallt hafa verið henni hjartfólgnast- ust, kunnastj maður veraldar á því sviði“. Og dr. Kristján Eid- járn segir, að naumast muni nokk ur maður, fyrr eða síðar, hafa komið með jafn staðgóða mennt- un hingað heim og Sigurður Nor- dal er hann tók við starfi, sem kennari. Þorsteinn Jónssoo. Reglusomur muður óskast til að keyra vörubifreið. Upplýsingar á skrifstofunni. H.F. Humor ATVINNA Röskur maður óskast til starfa í fiskbúð. Góð vinnuskilyrði. Uppiýsingar gefur Valgarð J. Ólafs- son í sima 12175. 3 LESBÓKBARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 stórum og fallegum eyr- um. Míkil hörmuna er að sjá þessa eyrnasnepla á þér, veslingur" ,.Ég er ánægður með þau eins og þau eru. En hvað hefur þú í pokan- um, gamli minn?“ „Pokinn er fuilur af silfUrkornum, sem ég var að tína. Ofan á þau lagði ég svo feita og fallega rottu. Kóngsdot:- irin verður glöð, að fá hana. til að naga“. „Hvaða kóngsdóttir?" „Skiptu þér ekki af því“, sagði tröllkarlinn. Hann sló til eyrunum og horfði illúðlega á karls- son. „Ég gæti með göldrum gert þig að svartri pöddu ef ég vildi", sagði hann. „En þú ert hvort sem er svo ljótur, að ljótari getur þú varla orðið. Ef þú hittir bræður mína. þá segðu þeim, að ég hafi farið upp í fjallið“. Og hann þrammaði af stað. „Vertu sæll, garnli" sagði karlsson. Hann sat einn eftir á steimnum og hlustaði á, hvernig brakaði og brast í trján- um. En hann var, nvergi smeykur. Nú kom annar tröllkarl í ljós með poka a baki. Það var hann St.óri- Trölli. Hann var allur ljótur og ógeðslegur en ljótust var samt löng, lafandi hakan, sem Jróst næstum niður við jörð. „Klafs, klufs, klafs. klufs“, stundi hann við hvert fótmál. „Gott kvöldið, trölli minn.“ sagði strákurinn. ,Hvaða álfur er þú“, sagði tröllið og studdist fram á hökuna. „Ég er enginn álfur, ég er drengur“, sagði karls- son. „Öllu má nafn gefa!“ sagði tröllið. „Það er ósköp að sjá, hvernig þú ert næstum hökulaus. Líttu á mína! Það er stór og falleg haka, finnst ber það ekkí? Ég er viss um, að kóngsdóttirin velur mig, bara vegna hökunn- ar. Ég get varla horft upp á þessa hökuómynd á þér, strákálfur" „Ég er ánægður með hana eins og hún er. En hvað hefur þú í pokan- um, karl minn?“ „Hann er fullur af gull- kornum, sem ég var að tína. Ofan á lagði ég stór- an og feitan frosk. Það verður gott fyrir kóngs- dótturina að nasla í hann“. „Hvaða kóngsdóttur?“ „Skiptu þér ekki af því“. sagði tröllið og gaf stráknum illt auga. „Hefur þú séð hann elzta bróður minn?“ „Sá ég víst“, sagði karlsson. „Hann bað að heilsa og fór heim í f jallið.“ „Mér er þá bezt að flýta mér“, sagði Stóri- Trölli. „Ef ég hefði betri tíma skyldi ég galdra að þú breyttist í kráku. En það er víst bezt að lofa þér að vera áfram svo ljótur sem þá ert“. Tröllkarlinn þrammaði áfram og það brakaði og brast í greinum og kvist- um þar sem hann fór. Ekki hafði karlsson lengi setið, þegar ennþá eitt tröll kom bröltandi með poka á baki. Hann vac bæði Ijótur og leiö- ur, en ljótast af öllu var þó langt og bogið nefið með vörtum og hárum. „Klafs, klufs, klafs, klufs“, skrölti í honum við hvert spor. „Gott kvöldið" trölli minn sagði karlsson. „Þvílíkt örverpi, sagði tröllið og nasaði út í loftið. „Ég er ekkert örverpi, ég er drengur", sagði karlsson. „Sér er nú líka hver mannaþefurinn“, sagði tröliið og fussaði. „Mikil hörmung er að sjá á þér nefómyndina, strákkind. Svona á ajmennilegt nef að vera! Ég er viss um, að kóngsdóttirin velur mig, þó ekki væri nema vegna nefsins. Ég hef nú aldrei fyrr séð svona andsyggðar nefstubb eins og þú hefur“. „Ég er ánægður með það eins og það er. „Hvað er í pokanum þín- um, karl minn?“ „Pokinn er fuilur af gimsteinum, sem ég var að tána. Ofan á er svo stór og feitur snákur. Hann er handa kóngs- dótturinni að gæða sér á“. „Hvaða kóngsdóttur?" „Nú sagði ég vist meira en skyldi“, sagði tröll- karlinn og leit illilega til stráksins. „Ekki vænti ég, að þú hafir séð bræð- ur mína?“ „Víst hitti ég þá og þeir báðu að heilsa þér. Báðir flýttu þeir sér upp í fjallið". „Þá er víst eins gott að hraða sér“. sagði Litli- Trölli. „Verst, að ég hef svona nauman tima. Annars skyidi ég með göldrum breyta þér i skötu. En þú verður lík- lega að halda áfram að vera svo ljótur, sem þú ert“. Og með það hlammaði tröllkarlinn af stað, en karlsson sat eftir. „Ævintýri", hugsaði hann. „Þetta fer vel af stað. Ef ég elti tröllkarl- ana gæti sitthvað skemmtilegt skeð“. Hann iæddist eins var- lega og hann gat á eftir Litla-Trölla. Það þaut draugalega í laufi og greinum. En stráksi lét sér hvergi bregða. í mesta myrkviði skóg- arins var höll risanna. Það var hátt fjall, grár bergkastali. Og langt inni í einum afhelli var kóngsdóttirin lokuð innL Það var fallega, litia kóngsdóttirin, sem hvarf, begar hún var að tína blóm í skóginum. Við einn vegginn voru svalir og þangað upp lágu tröppur, en uppi yfir svölunum var þakgluggi, og sást þar skínandi stjarna. Lagt var á borð fyrir kóngsdótturina, en aldrei var fyrir hana borið annað en andstyggi legur tröllamatur. Han vildi fyrr deyja en hún leggði sér rottur og froska til munns. Kóngsdóttirin þorði ekki að tala hátt, en hún hvíslaði aftur og aftur til sjörnunnar: „Koma álfarnir nú ekki bráðum? Koma þeir ekki bráðum? Einmitt í þeim svifum komu álfarnir i langri lest. Þeir svifu niður gegn um þakgluggann og kysstu kóngsdótturina á augu og kinnar. Og peir gáfu henni ber og avexti að borða og tóku loks andstyggilega tröilamat- inn og svifu á broit með hann. Litlu seinna marraði hurðin að afhellinum á hjörunum. Knak-kmrr heyrðist í henni. Gömul tröllskessa staulaðist inn. Hún var ljótari en allt sem ljótt er og með eins löng eyru og Gamu- Trölli, eins langa höku og Stóri-Trölli og eins langt nef og Litli-TrölJi. Framhald næst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.