Morgunblaðið - 21.09.1966, Page 25

Morgunblaðið - 21.09.1966, Page 25
Miðvikudagur 21. sept. 1966 MORGUNBLAÐIÐ 25 5 sek. kosta 1675 kr. Tillaga um auglýsingaverð Sjónvarpsins Hlöðubruni í Svarfaðardal ÍSLENZKA sjónvarpið hefur nú ákveðið í hvaða formi það mun taka auglýsingar og hvað þær kosta til að byrja með. Við þess ar ákvarðanir hefur verið höfð hliðsjón af auglýsingaregium og g jaldskrán: sjónvarpsstöðva í Evrópu, niiðað við viðtækja- fjölda. Þegar útsendingar íslenzks sjónvarps hefjast verða auglýs- ingatímar iveir á hverju kvöldi, 3 mínútur hvor um sig. Hinn fyrri verður að loknum fréttum kl. 20,27, en sá síoari á tímabil- inu milli kl. 21.00 og 22.00, eftir því sem stendur á dagskrá. Verð fyrir auglýsingar verður hið sama í báð-irr. auglýsingatímun- um. Gert er réð fyrir, að auglýsing ac veröi í tvenns konar formi, kyrrstæðar myndir, sem sýndar verða í 5 sekúndur og kvikmynd ir, sem tekur 7, 10, 20, 30, 45 og 60 sekúndur að syna. Fyrir 5 sekúnda kyrrstæða mynd skal auglýsandi greiða 1.675 krónur, fyrir 7 sekunda kvikmynd 2.175 krónur, fyrir 15 sekúnda kvik- mynd 4.250 krónur, tyrir 20 sek únda kvikmynd 5.260 krónur, fyrir 30 sekúnda kvikmynd 6.600 krónur, fyrir 45 sekúnda kvik- mynd 9.000 krónur og fyrir 60 sekúnda kvikmynd 12.000 krón- ur. Ef auglýsandi pantar sérstak- an tíma innan auglýsingatímans fyrir kvikmynd sína, skal hann greiða 20% hærra gjald, en ef hann pantar tíma fyrir eina eða fleiri aug'ýsmgar, en tekur ekki fram hvaða dag vikunnar aug- lýsingin skaJ birtast né í hvorum auglýsingaíimanum, heldur læt- ur auglýsinga'-krifstofu sjónvarps ins ráða því, fær hann 10% af- slátt. Ef auglýsandi auglýsir á — Álsamningur Framhald af bls. 2. milli álfélagsins og Swiss Al- uminium Limited, en gildistaka aðalsamningsins var háð undir- ritun þessara samninga auk gildistöku lánssamningsins miili Alþjóðabankans og Landsvirkjun ar, sem undirritaður var hinn 14. þ.m. Lánssamningurinn tók gildi hinn 20. þ.m. og hlaut þá aðalsamningurinn fullnaðargildi samkvæmt gildistökuákvæði sínu svo og fylgisamningur hans. — Óspektir Framhald af bls. 1 Tlm 200 hermenn og 1000 leíreglumenn höfðu tekið sér stöðu á strætum þeim, sem drottningin og fylgdarlið hennar ók um, og lenti þeim saman við 50 hollenzka „bitn- ikka", sem kalla sig „Provos" — æskuna — og gefa m.a. út sitt eigið vikublað. Voru nokkrir æskumannanna hand- teknir. Andrúmsloftið við setningu þingsins var spennt, enda voru fjarverandi hinir fimm fulltrúar „Friðarsinnaða sós- íaiista“, sem krefjast lýðveld- is og settu sig frá öndverðu á móti giftingu Beatrix krón- prinsessu og Klaus prins. í ræðu sinni við þingsetningu ræddi Hollandsdrottning vax- andi afbrot æskunnar í land- inu. Yfirvöld í HoIIandi gerast nú æ áhyggjufyllri yfir starf- semi „provos“-æskunnar, sem svo mjög hafði sig í frammi á götum Haag í dag. Sl. mánu dag gerði hollenzka lögregl- an húsleit í bækistöðvum þess arar hreyfingar og gerði þá upptækt fimmtudagsupplag vikublaðs hennar, sem meðal annars efnis, innihélt mynd- skreytta grein er þótti móðg- andi i garð konungsfjölskyld- unnar. ári fyrir 100.000,00 til 500.000,00 fær hann 5% afslátt eftir árið, en auglýsi hann fynr meira en 500 þúsund krúnur fær hahn 10% af slátt eftir árið. Frakkar hefja flugferðir til Kína Peking 20. september NTB. BOEINGÞOTA frá franska flugfélaginu Air France lenti í dag á flugvellinum í Shanghai, og opnaði þar með fyrstu flug- leið vestræns flugfélags til Kína. Frakkar og Kínverjar undir- rituðu með sér loftferðasamning 1. júní sl. og er þar gert ráð fyr- ir, að Air France fljúgi einu sinni í viku milli Parísar og Shanghai. Á flugvellinum í Shanghai tóku á móti flugvélinni fulltrúar kínversku stjórnarinnar, fuiltrú ar frá kínverska loftferðaeftir- litinu og sendiherra Frakka í Peking hr. Lucien Paye. Önnur flugfélög, sem hafa fastar áætlunarferðir til Kína eru sovézka flugfélagið Aeroflot, flugfélag N-Kóreu, ríkisflugfélag ið í Kambódíu og „Pakistan International Airlines". FINNAR og Danir léku lands- leik um he'.g’na. í A-leik land- anna, sem fram for í Helsinki, sigruðu Finnai með 2 mörkum gegn 1. Danir skoruðu fyrsta markið eftir 13 mín., en eftir að bakverði Finna tókst að jafna náði finnska liðið góðum tökum á leiknum og unnu verðskuldað an sigur. í Osló kepptu sama dag Svíar og Norðmenn og unnu Svíar 4:2. Finnar eru nú efstir í keppni Norðurlandanna fjögurra í ár — og hafa einnig forystu í keppni landanna, sem nær yfir 4 ára tímabil. - S.Þ. Framh. af bls. 1 leggja áherzhi á stuðning sinn við samtökin á þessum tímum tví sýnis í sögu beirra. Meðal ann- arra háttsettra st.iórnmálamanna á þinginu má nefna Gromykó, ut anríkisráðl.pria Sovétríkjanna. Dean Ru.sk utanríkisráðherra Bandaríkjanna og auk þess um 50 utanríkiscáðherra annarra að ildarríkja, sem þegar eru komn- ir, en búizt er við mörgum öðr- um, þ.á.m. utanrikisráðherrum Frakklands og Bretlands. Orð- rómur er uin að Johnson Banda- ríkjaforset.i :nnm ávarpa þingið. FANFANI, utanríkisráðherra ít- alíu og fráfarandi forseti Alls- herjarþingsins, sagði í setningar- ræðu sinni, að vonirnar um frið, sem fram komu á síðasta Alls- herjarþingi, hefðu því miður ekki orðið að veruleika. Hann beindi tilmælum sínum til U Thant, að hann gæfi kost á sér til endur- kjörs, og sagði að aðildarrikjun- um bæri skylda til að sameinast um að leysa fjárhagsvandræði samtakanna, og að víkka starfs- svið þeirra, þannig að það næði um allan heim. Hann sagði „Þetta er ekki gerlegt án alheimsgrund- vallar“. og átti hann þar bersýni- lega við Kínverska alþýðulýð- veldið, sem 'eins og kunnugt er hefur enn ekki fengið inngöngu í samtökin. Hinn nýkjörni forseti Alls- herjarþingsins tók í ræðu sinni undir ummæli Fanfanis. Hann beindi þeim tilmælum til þing- fulltrúa að þeir leituðu til hans hvenær, sem hugsanlegt væri að hið hlutlausa embætti forseta mætti verða til að auka sam- eiginlegan skilning á málunum og stuðla að einingu um þau. í lok ræðu sinnar lagði forset- inn til að Guyana yrði tekið í samtökin, sem 118. aðildarríki. Var tillagan einróma samþykkt I og sendinefnd Guyana því næst i vísað til sætis. Búist er við að | Indónesía verði 119. aðildarríkið. en sem kunnugt er sagði hún sig úr samtökunum á sl. ári, en hefur nú látið í ljós ósk um að gerast aðili á nýjan leik. ELDTJR kom upp í heyi í f jár- | húshlöðu að bænum Ingvörum í Svarfaðardal kl. 3.30 aðfara- \ nótt þriðjudags sl. 250 hestar af heyi voru i hlöðunni og brann um þriðjungur heysins. Slökkviliðið á Dalvík var kallað á vettvang um nóttina og kom .það á staðinn eftir 15 mínútur. Tók slökkviliðið um 2 klukkutíma að ráða niðurlög- um eldsins. Tafði það nokkuð störf þess, að veður var slæmt. hvass suðvestan, og auk þess var vatn takmarkað. Urðu slökkviliðsmenn að stífla upp tvo lækni til að ráða bót á vatns skortinum. Þrátt fyrir þessa erfiðleika tókst að ,bjarga mikl- um hluta heysins og verja nýja viðbyggingu við fjárhúsið, en þak hlöðunnar féll ekki í elds- voðanum. - íþróttir Framhald af bls. 30 er 1. deiidar liðin koma í keppn ina. Átta lið eru þá eftir og kom ust ísfirðingar og Fram í úr- slitakeppnina ásamt 1. deildar- liðunum. Þróttur vann ísafjörð með 4:2 eftir alljafnan leik. ísfirðingar munu ekki hafa haft sitt sterk- asta lið þar sem einhverjir leik- manna þeirra komust ekki til Reykjavíkur í tæka tíð vegna tafa á flugsamgöngum. Fram ki.mst í 8 liða keppnina eftir sigut yfir FH 4:2. Um helgina foru fram úrslita leikir í 3. og 5. flokki íslands- 'mótsins. Fram vann FH í 5. fl. með 2:1 og er þetta þriðji leikur inn sem liðm nafa leikið til að fá úrslit. í 3. fl. vann Fram lið ÍBK með 2:1 eftir framlengdan leik og var orðið all skuggsynt er úrslita- markið var skorað. Bóndinn að Ingvörum er Stein grímur Eiðsson. — Bikarkeppnin Framhald af bls. 30 sveitinni er boðið til keppninn- ar að kostnaðarlausu fyrir stjórn Frjálsíþróttasambands íslands. _ Stjórn FRÍ hefur staðfest þátt töku sína, en jafnframt hafa Norðmenn dregið lið sitt til baica í karlagreinunum vegna annarar landskeppni, sem fer fram dag- | ana 20. og 21 september við Finu 1 land og fer sú keppni fram í Oslo. íslenzka sveitin er skipuð 3 keppendum og einn þeirra Kjart an Guðjónsson er nú staddur í V- Berlín við tannlæknanám. Hann mun sameinast sveitinni 1 Kaupmannahöfn. ísl. keppend- urnir eru: Valþjörn Þorláksson K. R. Kjartan Guðjónsson K. R. Ólafur Gúðmundsson K. R. Fararstjóri er Örn Eiðsson, formaður laganefndar FRÍ. Þjálfari liðsins er BenediKt Jakobsson. Eins og kunnugt er þá fékk Valbjörn Þorláksson smá togn- un í landskeppni við Austur Þjóð verja í ágúst s. 1. Eftir umsöga læknis var talið að tognun þessi myndi ekki há Valbirni í keppni á EM og að sögn Valbjörns sjálfs fann hann ekkert tii í fætinum þegar farið var til Budapest, en tognunin tók sig upp í 100 metra hlaupi tugþrautarinnar, og var þar með lokið keppni Val- bjarnar á EM Stjórn FRÍ hefur fylgst með æfingum Valbjarnar síðan hann kom heim frá EM og hefur hann tekið þátt í ýmsum kastkeppn- um, þar sem árangur hans er með því bezta sem hann hefur náð í viðkomandi greinum. Þá ákvað stjórn FRÍ að Valbjörn skyldi hlaupa 100 metra grind- arhlaup, áður en hann yrði val- inn til þessarar keppni. Valbjörn hljóp þessar greinar í gærkveldi, og náði tilskildum lágmörkum. I keppninni eru reiknuð sam- anlögð stig tveggja fyrstu manna frá hverju landi. íslenzka sveit- in fer utan 22. þ .m. Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu JAMES BOND •*—r — ->f • Eftii IAN FLEMING James Bond IV m FLEIMNC ORAWING BY JOHN McLUSKY w — Hérna áttu að dveljast, James Sé — 3 daga? Það verða 30 dalir hr. Bond. þig seinna. Herbergi 49. Felix kom um kvöldið með fregnir um hvað hann hefði orðið áskynja uxn best flokksins. Allt virðist ganga sinn vana gang hjá þorpurunum, nema hvað ótti og vonzka ríkir yfir hvarfi eins af félögunum, sem fór á veiðar. — Það er eins og ég hef alltaf sagt, hann er til einskis nýtur, seg- ir Álfur fokreiður. Hann getur ekki einu sinni veitt í matinn. — Ef hann kemur tómhentur heim dreg ég við hann matarskamtinn næst í vikurnar, segir Álfur ógnandi, við vit- um ekkí ennþá, hversu lengi við þurfum að halda hér kyrru íyrir........Á því augnabliki..........birtist skipstjórina vopnaður stórri kylfu. — Þið ættuð að draga við hann matarskammtinn svo ið um munar, þvi hann hefur vísað okkur leiðina til ykkar, segir skipstjórinn sigri lirósandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.