Morgunblaðið - 23.09.1966, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 23. scpt. 1966
Vanmetnar kosningar
Eflir Joseph Aísop
EFTIRFARANDI grein er
þýdd úr N. Y. Herald Tribune
og er eftir einn fremsta smá-
dálkahöfund í Bandarikjun-
um, Joseph Alsop. Aisop var
staddur í Vietnam, er kosn-
ingarnar þar fóru fram og
fjallar greinin um úrslit
þeirra. Þykir Mbi. rétt að gefa
lesendum sínum kost á að
kynnast viðhorfum þessa
mikilsmetna manns.
Nha Trang, Vietnam —
Hugsanlegt er að hin mikla
þátttaka í kosningunum í
Vietnam sé vanmetin í Banda
ríkjunum. Þessi mikla kjör-
sókn kollvarpar öllum spá-
dómum og gerir hleypidóma-
fullt fólk í Bandaríkjunum og
hér í Vietnam hlægilegt,
þannig að hætt er við að það
reyni eftir megni að gera lít-
ið úr kosningasigrinum.
Fyrsta atriðið, sem taka ber
tillit til, er að kosningar hér
voru stórkostlega og jafnvel
furðulega vel heppnaðar. Hin
mikla kjörsókn, meira en við
bandarískar kosningar, fór
langt fram úr öllum vonum.
Ennfremur ber að athuga, að
allir þeir sem kusu, gerðu það
þrátt fyrir grimmúðlegar hót
anir Viet Cong, sem gerðu
það ljóst í áróðrinum gegn
kosningunum, að þeir litu á
það sem hroðalegan glæp, ef
fólk neytti atkvæðisréttar
síns.
Andstæðingar stefnu John-
sons forseta ættu nú að skoða
hug sinn, því að þeir hafa
oftlega látið að því liggja, að
mikill meirihluti S-Vietnam-
ísku þjóðarinnar styddi leyni
lega hina svonefndu Þjóð-
frelsishreifingu.
Hinar nýafstöðnu kosn-
ingar sanna þvert á móti, að
Viet Cong er einmitt það sem
þeir virðast vera, lítill vopn-
aður meirihluti, sem reynir
með valdbeitmgu að hrifsa
völdin af fólki, sem alls ekki
vill með þau hafa. Að svo
mæltu, og það er hlægilegt að
enn skuli vera þörf á að segja
þessa hluti, er spurningin
augljós. Hvað skal næst til
bragðs taka? Hér í Nha
Trang, aðalstöðvum annarar
herheildarinnar, er þessi
spurning orðin sérlega knýj-
andi. Á þessu svæði er styrj-
öldin einu til tveim stigum
á undan styrjaldarganginum
í öðrum hlutum landsins.
Mikilvægustu herdeildir óvin
arins hafa verið hraktar yfir
landamærin til Kambódíu, og
komast þaðan aðeins í minni
háttar árásarferðir inn í Viet-
nam. Allar hersveitir komm-
únista, að 4 undanteknum,
sem staðsettar eru í Kam-
bódíu, eru nú aðþrengdar
sökum matvælaskorts og það
sem verra er, malaría hrjáir
þær mjög. Allar þessar her-
sveitir reyna af fremsta
megni að forðast að lenda í
Joseph Alsop.
bardögum, og margar þeirra
hafa klofnað niður í smærri
herflokka.
Það sem framundan er nú,
eru timamót í styrjaldarað-
gerðunum, þar sem hættan
af aðalherstyrk Viet Cong
mun minnka til mikilla
muna, en þetta nýja stig hef-
ur í för með sér langvarandi
og þreytandi starf, sem er að
elta uppi og útrýma Viet
Cong, herdeild fyrir herdeild.
Samtímis þessu verður þjóðin
að þróast stjórnmálalega,
löngu áður en síðasta orustan
verður háð.
Slík þróun myndi verða
erfið í hvaða landi sem væri,
en hún verður enn erfiðari í
Vietnam af tveim aðalástæð-
um, sem aimenningur í
Bandaríkjunum hefur mjög
takamarkaðan skilning á. Sú
fyrri á sér rætur að rekja til
nýlendusögu þjóðarinnar.
Þjóðin í Vietnam kom fyrst
fram á sjónarsvið sögunnar,
sem hernumin og undirokuð
þjóð, og það tók hana næst-
um 1000 ár að velta sér und-
an oki Kínverja, og jafnvel
eftir það, bar menning henn-
ar svo mikin blæ nýlendu-
kúgunarinnar, að hin sjálf-
stæða stjórn landsins losnaði
aldrei við kínversk áhrif.
Þannig voru aðstæður, er
Frakkar komu og rituðu 2.
kapitula í nýlendusögu Viet-
nam. Af þessu má sjá, að for-
tíð landsins býður upp á lítið
hráefni, sem nota mætti til
að byggja á nýtizkulega og
stöðuga ríkisstjórn.
Þjóðin í Vietnam hefur með
nýafstöðnum kosningum haf-
izt handa um þetta mikilvæga
verkefni, en erfiðleikarnir
blasa þegar við landsmönn-
um. Sérhvert stöðugt stjórnar
kerfi byggist ætíð á sterkustu
oflum í hverju þjóðfélagi, og
sem stendur er herinn sterk
asta aflið í Vietnam, en allur
þorri almennings vill losna
undan herstjórn.
Hver endirinn verður er
engu hægt að spá um. Manni
finnst líklegt, að gera verði
margar tilraunir á alllöngu
tímabili, áður en þjóðinni
tekst að koma sér upp stjórn-
unarkerfi, sem allir una við.
Á meðan slíkt kerfi er ekki
fundið, ættu Bandaríkja-
menn að reyna að venja sig
við hið ruglingslega stjórn-
málaástand sem ríkir í Viet-
nam, en ekki láta það valda
sér of miklum áhyggjum.
Sú staðreynd, að Vietnam
er eitt af auðugustu löndum
Asíu, hlýtur að reiknast sera
plús í stjórnmálajöfnunni, þó
að hún komi ef til vill ekki i
veg fyrir tímabundna ringul-
reið. Einnig ber að athuga að
mikill iðnaður er í landinu
og þjóðin er hugrökk og vel
gefin. Þótt undarlegt megi
virðast, hefur landið auðgazt
mjög af styrjöldinni, bæði
með uppbyggingu öflugs og
nýtízkulegs efnahagskerfis,
og tæknilegri þjálfun mikils
fjölda landsmanna.
Jafnvel á næsta „stigi
„stjórnmálalegrar styrjaldar“
eins og Ky forsætisráðherra
kallar styrjöldina, hlýtur á
einhvern hátt að vera hægt
að nýta náttúruauðævi lands-
ins og þau auðævi, sem
styrjöldin hefur skapað, til
að liðka fyrir stjórnmála-
þróunínni.
Það sem mest ríður nú á,
er þolinmæði og þá sérstak-
lega meðal víetnamisku þjóð-
arinnar þar til henni tekst að
finna sína eigin leið, eins og
Kóreumenn hafa þegar fund-
ið.
• •
„Oruggur akstur“ stofn-
aður á Austfjörðum
..l
ÞETTA ER
Bezt qö auglýsa
i MorgunbJaðmu
N Ý L E G A var haldinn
á vegum Samvinnutrygginga í
hinu nýja félagsheimili Vala-
skjálf á Egilsstóðum, stofnfund-
ur klúbbsins Öruggur akstur, á
Austfjörðum. Var hann sóttur af
bifreiðastjórum víðsvegar af
Héraði og neðan af Fjörðum.
Fundarstjóri var Guðmundur
Magnússon, oddviti þeirra Egils-
staða-manna, en fundarritari
Magnús Einarsson tryggingafull-
fulltrúi.
Mættir voru frá aðalskrif-
stofu Samvinnutrygginga í
Reykjavík, þeir Gunnar Sigurðs-
son forstöðumaður afgreiðslu —
sem afhenti nýjar viðurkenning-
ar fyrirtækisins fyrir öruggan
akstur — og Baldvin Þ. Krist-
jánsson félagsmálafulltrúi, sem
flutti framsöguerindi um um-
ferðaröryggismál. Umræður
urðu miklar, og að þeim loknum
var kiúbburinn stofnaður með
samhljóða atkvæðum allra fund-
armanna, lög samþykkt og stjórn
kosin. Skipa hana þessir menn:
Marinó Sigurbjörnsson, verzl-
unarstjóri, Reyðarfirði, formað'-
ur; Vilberg Lárusson, Egilsstöð-
um, ritari og Bergur Ólason vél-
virki, sama stað, meðstjórnandi.
Varastjórn skipa: Ólafur Jens-
son bóndi, Umðavatni; Bene-
dikt Guðnason ökukennari og
bóndi, Ásgarði og Sveinn Sören-
son, bifreiðastjóri, Eskifirði.
í fundinum ríkti mikill áhugi
fyrir framtíðarstarfsemi klúbbs
ins, og verkefni til að sinna talin
ærin. í fundarlok var sameigin-
inleg kaffidrykkja í boði Sam-
vinnutrygginga, og að síðustu
var sýnd sænsk umferðarlit-
kvikmynd: „Vit og vilji“, sem
umferðarslysavarnafélagið í Sví-
þjóð hefir látið gera.
(Fréttatilkynning frá Sam-
vinnutryggingum).
... .
Ryðfríir slálvaskar
af mörgum stærðum og gerðum.
Einnig góð BI ÖNDUNARTÆKI.
HAGSTÆTT VERÐ.
Smiðjubúðin
við Háteigsveg — Sími 21222.
77/ sölu
2ja herb. íbúð við Þórsgötu.
2ja herb. ibúð í Norðurmýri.
2ja herb. íbúð við Kleppsveg.
3ja herb. ibúð við Leifsgötu.
3ja herb. íbúð við Skipasund,
bílskúr.
3ja herb. íbúð við Sogaveg.
Stórar svalir.
4ra herb. íbúð við Mosgerði.
Mjög gott verð.
5 herb. íbúð við Laugarnes-
veg.
7 herb. íbúð við Skeiðarvog.
Einbýlishús
9 herb. einbýlishús við Lang
holtsveg.
Fallegt einbýlishús við Hábæ.
Hagstæðir greiðsluskilmál-
ar.
Einbýlishús við Hjallaveg.
Glæsileg íbúðarhæð á Mel-
unum.
Kópavogur
tírval af íbúðum og einbýlis-
húsum.
Hafnarfjörður
Húseign í Miðbænum.
Verzlun
Til sölu verzlun á góðum stað
í borginni.
Steinn Jónsson hdl.
lögfræðistofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli.
Símar 19090 og 14951.
Heimasinu sölumanns 16515.
Fiskihátar til sölu
10—12 lesta vélbátur, með
ýmsum veiðarfærum.
17 lesta vélbátur.
26 lesta vélbátur.
30 lesta vélbátur.
36 lesta vélbátur.
40 lesta véibátur, nýuppbyggð
ur.
46 lesta vélbátur.
53 lesta vélbátur.
60 lesta vélbátur í úrvals-
ástandi, með togveiðarfær-
um, línuveiðarfærum og 10
trossum af þorskanetum
með öllu tilheyrandi.
75 lesta vélbátur.
80 lesta vélbátur.
100 lesta og 110 lesta nýlegur.
110 lesta stálfiskibátur.
200 lesta sildveiðiskip.
Kristjáns Eiríkssonar, hrl
Laugavegi 27.
Sími 14226
TIL SÖLU:
7 herbergja
mjög skemmtilegt raðhús
á tveimur hæðum, nieð inn
byggðum bilskúr. Nú til-
búið undir tréverk og máln-
ingu, í góðu hverfi í Reykja
vík (5 svefnherb., stór).
Einbýlishús, 6 herb. við Silf-
urtún. Nýuppsteypt og púss
að bæði utan og innan, og
málað að utan. Ekki kominn
hiti né tvöfalt gler. Gott
verð. Greiðslumöguleikar
að greiða útborgun á rúm-
lega hálfu ári
Þríbýlishús á góðum stað í
Vesturbænum (timburhús),
með eins herb., 3ja herb. og
4ra herb. íbúðum L Allt
laust strax.
2ja herb. íbúðir í Vestur- og
Austurbænum.
3ja herb. jarðhæð við Laugar
ásveg. Laus strax.
3ja herb .hæð við Óðinsgötu,
í góðu standi. Sérinngang-
ur, sérhiti. Verð um 700 þús.
Útborgun nú um 200 þús. og
200 þús. eftir 6 mánuði.
4ra herb. hæðir við Stóra-
gerði, Eskihlíð, Álfheima.
5 herb. hæðir við Ásgarð, —
Grænuhlíð, Dragaveg, Kvist
haga.
6 herb. hæðir við Fellsmúla,
Háaleitisbraut, Hringbraut.
6 herb. raðhús í góðu standi,
við Langholtsveg. Bílskúr.
Einbýlishús, 7 herb. við
Smáragötu.
Höfum kaupendur að góðum
eignum að öllum stærðum.
Finar Sigurðssnn hdl
Ingólfjstræti 4. Sími 1676£
Kvöldsími milli 7 og 8: 35993.
Til sölu
Eins, 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb.
íbúðir víðsvegar um borg-
ina, Kópavogi og Akranesi.
Einbýlishús víðsvegar um
borgina.
2ja, 3ja og 5 herb. íbúðir, til-
búnar undir tréverk og
málningu 1 borgarlandi.
Lúxus einbýlishús á Seltjarn-
arnesi.
FASTEIGNASALAN OG
VERÐBRÉFAVIÐSKPTIN
Oðinsgata 4. Simi 15005
Kvöldsími 20806.