Morgunblaðið - 23.09.1966, Page 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
217. tbl. — Föstudagur 23. september 1966.
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Skjaldbreið seld
brezku fyrirtœki
Söluverð 20.500 pund
f GÆR var undirritaöur hér í
Reykjavík sölusamningur milli
Skipaútgerðar ríkisins og Sea
Service Shipping Co. Ltd. um
sölu á strandferðaskipinu Skjald
breið. Söluverð skipsins er
£ 20.500 eða 2,46 milljónir ís-
lenzkra króna, og mun skipið
afhent um eða fyrir næstu
helgi.
Hinir brezku kaupendur, sem
keypt hafa skipið munu ætla að
nota það til þjónustustarfsemi á
Norðursjó í þágu olíufélaga. Mun
skipið hentugt til þeirrar starf-
semi, þar eð það hefur töluverða
lyftigetu, 10 tonn, og eins mun
farþegarými skipsins koma að
góðum notum við þessa þjón-
ustustarfsemi.
Mbl. hafði tal af Guðjóni Teits
syni, forstjóra Ríkisskips og
sagði hann að erfitt hefði verið
að fá kaupanda að skipinu, þar
eð það er smíðað til mjög sér-
stakrar notkunar og lítil eftir-
spurn er eftir slíkum skipum á
heimsmarkaðinum. Skipið hefði
verið smíðað í Greenock í Skot-
landi fyrir 18 árum og hefði þá
hentað vel til strandferðasigl-
inga, þar eð þá var mikið um
hafnleysur við ísland. Nú hins
vegar, er ástand hafna hefur
batnað svo mjög er ekki lengur
hentugt að reka skipið.
Skjaldbreið er systurskip
Framhald á bls. 25.
Ráðstefna lækna
um lyf gegn gigt
Á MORGUN (laugardag) kl.
2 e.h., verður læknaráðstefna í
DÓMUS MEDICA, hin fyrsta
sinnar tegundar hér á landi. Ráð-
stefnan er haldin á vegum Gigt-
sjúkdómafélags íslenzkra lækna
og Merck, Sharp & Dohme
Seldi í
Bremerhaven
AKRANESI, 22. sept. — Togar-
inn Víkingur frá Akranesi seldi
í Bremerhaven hinn 20. sl.
rúmar 170 lestir fyrir 133.800
mörk. Aflinn var mestmegnis
karfi, veiddur á heimamiðum.
— HJÞ.
Nederland. Þrír erlendir gestir
flytja erindi á ráðstefnunni, en
það eru þeir:
Dr. F. Dudley Hart., M.D.,
F.R.CrP. frá Westminster hos-
pital London.
Professor dr. med. Erik Káss
frá Oslo Sanitetsforenings Rev-
matismesykehus, Noregi,
Dr. med. I. Rossel frá Fysiurg-
isk Hospital, Hornbæk, Dan-
mörku.
Fyrirlesararnir munu ræða um
reynzlu sína í sambandi við
notkun gigtarlyfsins INÐOCID
(Indomethacin).
Að fyrirlestrunum loknum
verða frjálsar umræður.
Haukur Þórðarson læknir, for
maður Gigtsjúkdómafélagsins
mun stjórna ráðstefnunni.
í\
íiR/EKLftND
FTÖKeuR
-r
Alþingi kvatt
saman 10. okt.
HANDHAFAR valds forseta ís-
lands hafa samkvæmt tillögu for-
sætisráðherra kvatt reglulegt Al-
þingi 1966 til fundar mánudag-
inn 10. október 1966 og fer þing-
setning fram að lokinni guðs-
þjónustu í dómkirkjunni, er hefst
kl. 13.30.
(Frétt frá forsætisráðuneytinu).
M.H.
settur
á morgun 1
Menntaskólinn við Hamra- '
1 hlíð verður settur í fyrsta I
’ sinn laugardaginn 24. sept-
ember kl. 11 árdegis.
fsbrjóturinn Atka í Wiedem annsfirði og björgunariiiokkur-
inn við flugvélarflakið, um 12 km. uppi í jöklinum.
Aðstæður erfiðar við
flakið á Grænlandsjökli
Komið með nokkur lík fil Reykjavíkur
S
BANDARISKI ísbrjóturinn Atka
kom til Wiedemannfjarðar 4
Austur Grænlandi á miðviku-
dagsmorgun eftir ágæta ferð.
Var þá strax hafizt handa um
að finna flakið af P2W flugvéi-
inni af Keflavíkurflugvelli, sem
fórst 1962 með 12 mönnum. Fann
þyrla flakið uppi á jöklinum um
12 km. frá staðnum, þar sem
Iskipið er og gat setzt þar. Var það
Tilraunaútsending ísl. sjón>
varpsins súst í fyrrakvöld
dreift á stóru svæði. Voru settar
upp bú’ðir um 200 m. frá flak-
inu og eru þar 15 björgunar-
menn, þar á meðal Islendingarn-
Framhald á bls 25
Athöfnin fer fram í húsa-,
/ kynnum skólans, en fyrsta
T áfanga byggingarinnar er nú
um það bil lokið, þótt eftir
sé að ganga frá ýmsu.
Þess er vænzt, að þeir nem
endur, sem skólinn hefur
veitt viðtöku og staddir eru
í borginni, verði viðstaddir.
og eru þeir beðnir að koma
tímanlega.
Kennsla í skólanum mun
hefjast um næstu mánaðamót.
og eru nemendur boðaðir í
skólann til viðtals föstudag
30. september kl. 9 árdegis.
Fornmannagröf fannst
í Eiðaþinghá
— og leifar af kumli skammt frá
Var verið oð reyna endurvarpssendinn,
en útsendingin nábi óvart augum
sjónvarpseigenda
SJÓNVARPSEIGENDUR, s e m
eiga heima í nágrenni Vatnsenda-
hæðar, fengu í fyrrakvöld nasa-
þefinn af dagskrá íslenzka sjón-
Ekið á mann-
lausa blla
MIKIL brögð eru á því að ekið
sé utan í kyrrsiæðar og mann-
lausar bifreiðir í Reykjavík, og
að skaðvaldurinn aki á brott án
þess að tilkynna áreksturinn lil
eigenda hinna mannlausu bif-
reiða. Umferðadeild rannsóknar-
lögreglunnar hefur beðið Mbl.
að auglýsa eftir vitnum að þrem-
pr slikum árekstrum, sem urðu
nú fyrir skömmu.
Hinn 19. þ.m. var ekið á bif-
reiðina R-19215, þar sem hún
stóð á móts við húsið Ármúla 12.
Framhald á bls. 25.
varpsins. Uppgötvuðu þeir sem
stilltu tæki sín á stillimynd ís-
lenzka sjónvarpsins, að þar fór þá
fram nær fullkomin útsending.
Gafst þeim m. a. kostur á að sjá
erlent fréttayfirlit, teiknimynd,
íslenzkan skemmtiþátt, þátt frá
Landsmóti skáta á Hreðavatni,
tízkusýningu og alllanga kvik-
mynd eftir franska meistarann
Renoir.
Stjórnendur útsendinganna
höfðu á hinn bóginn ekki hug-
mynd um að dagskráin næði
augum sjónvarpseigenda í borg-
inni, því að hér var aðeins um
tilraunaútsendingu að ræða. Voru
tæknimenn Landsímans að reyna
sendinn, sem á í framtíðinni að
endurvarpa sjónvarpsefninu, og
í GÆRDAG um fjögurleytið
var lögreglunni tilkynnt að
menn væru að skjóta á Seltjarn-
arnesi, skammt frá Ráðagerði.
Er lögreglan kom é staðinn voru
mennirnir á bak og burt og sást
hvergi til þeirra.
töldu sig hafa gengið þannig frá
hlutunum, að útsendingarnar
ættu hvergi að sjást.
Að því er Pétur Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins,
tjáði Mbl. í gær, hófst útsending-
in kl. 8. Um ieið og fregnir bár-
ust um að útsendingar þessar
sæust í bænum var þeim hætt,
og gerðar viðeigandi ráðstafanir
til þess að slíkt endurtaki sig
ekki. „Það er því öruggt", sagði
Pétur“ að næstu tilraunaútsend-
ingar okkar munu ekki sjást um
borgina.
FORNMANN AGROF fannst í
vor á OrmsstÖðum í Eiðaþinghá
og í sumar fór Kristján Eldjárn
þangað og rannsakaði hana.
Þarna er grafinn eldri maður
að fornum sið, að því er Kris;j-
án tjáði okkur og gröfin frá 10.
öld. Var hún ágætlega vahðveitt
f gröfinni var heilleg beina-
grind úr manni og hjá honum
lá öxi, hnífkuti og fáein mef
þ. e. lóð af metaskálum. Segir
Kristján að þetta sé ákaflega
venjuleg fornmannagröf og ekx-
ert þar sem komi á óvart.
Gröfin er ofan við túnið á
Ormsstöðum. Þórhallur bóndi
Helgason og synir hans fund i
hana í flagi, sem jarðýta hafði
bylt við. Gerðu þeir aðvart og
stöldruðu við, þar til fornminja-
vörður hafði athugað staðinn.
í sömu ferðinni skoðaði Kristj
án Eldjárn kumlleifar á Drar.t-
halastö’ðum í Hjaltastaðaþingha.
Höfðu fundizt þar leyfar af forn
um kumlum í flagi. Segir Kristj
án að þarna hafi aðeins verið
fáein mannabein og ekki hægt
að átta sig á kumlinu að öðru
leyti.
Svifflugsafrek í Eyjafirði
Akureyri 22. september.
HÚNN SNÆDAL, formað-
ur Svifflugfélags Akureyrar
vann það afrek í gærkvöldi
að fljúga svifflugu yíir 50
km. vegalengd, en það er eitt
af skilyrðum þess að fá hið
svokallaða silfur-C eða af-
reksstig í svifflugi. Hann
flaug frá Melgerðismelum í
Eyjafirði til Grenivíkur eða
tæplega 53 km. og er það í
fyrsta sinn, sem tekst að svífa
svo langt hér í Eyjatirði.
Kalla má, að Húnn hafi „fund
ið“ þessa leið, en fram að
þessu hefur það staðið svif-
flugu hér fyrir þrifum, að
skilyrði hafa verið talin
bresta til verulegra afreka
vegna staðhátta.
Ég náði tali af Húni í dag
og bað hann að segja mér
ferðasöguna í stórum drátt-
um.
— Ég var dreginn upp af
Melunum kl. 18.15 með að-
stoð bíls og sleppti tauginni
í 280 m hæð, ákveðinn
reyna yfirlandsflug eins og
við köllum það með atbema
suðyestanáttarinnar. Ég lækk
aði fljótlega aftur um 100 m.
en þá náði ég í uppstreymi
r rámhald á bls. 25