Morgunblaðið - 30.10.1966, Qupperneq 3
Sunnudagur 30. olct. t066
MORGU N BLAÐIÐ
3
EFTIR EIIMAR SIGLRDSSOIM
ÚR VERINII
Reykjavík
l>að hefur verið heldur tregt
hjá dragnótabátunum, þó kom
Valur með 8 lestir af kola síð-
ari hluta vikunnar. Dragnótin
er ekki leyfð lengur en fram að
mánaðamótum, nema leyfin
verði framlengd.
Einn togbátur, Smári, kom
inn í vikunni með 18 lestir af
karfa, sem hann fékk vesiur af
Jökli og er ágætur afli.
Handfærabátarnir eru enn
íyrir austan í ufsanum.
Ásbjörn kom með 146 lestir
af síld í vikunni, fór hún öll í
írystingu og þótti góð.
Allir togararnir veiða nú fyrir
erlendan markað og koma rétt
aðeins við í Reykjavík á útleið
til þess að setja í land menn og
stanza þá aðeins í 2 tíma og
þegar þeir koma úr söluferð til
þess að taka ís og Dúa sig í nýja
veiðiferð. Stoppa 'peir bá í 1—2
sólarhringa. Togararnir hafa
haldið sig mest út af Vestfjörð-
um og Jökli. Afli hefur verið
tregur, en þó hefur hann eitt-
hvað glæðst síðustu daga. Hafa
skipin yfirleitt verið með afla
öðru hvoru megin við 150 lest-
ir.
Þessir togarar seldu erlendis
í vikunni: Surprise 93 tonn DM.
90.120, Jupiter 114 tonn DM.
89.053 og Þormóður Goði 138
tonn DM. 108.500.
Vestmannaeyjar
Sjór er nú eingöngu stundað-
ur á trollbátuni og nokkrum litl
um trillum, sem róa með línu.
Enginn af stætrri vélbátunum
rær með línu. Afli er tregur og
heldur lítill áhugi fyrir sjó-
sókn. Þó kom Heimaskagi með
14 lestir af trollfiski á laugar-
daginn, og þykir það gott eftir
því sem um er að gera.
Tveir bátar komu með síld að
austan í vikunni, Gjafar með
1550 tunnur og Ófeigur með 300
tunnur. Var þetta ágæt síld, og
fór hún öll til frystingar. Var
nýting góð, um 80%. Verðið er
2 krónur kg. Fóru bátarnir strax
austur aftur, er þeir höfðu los-
að. Nokkrir bátar höfðu komið
áður með síld til frystingar, og
má búast við, að það færist held
ur í aukana, einkum þegar hann
er að gróa upp og séð er fyrir
frátök, eða að einhver tregða
er á löndun eystra. Það er mik-
ill munur á verðinu í frystir.gu
og bræðslu.
Akranes
4 bátar eru gerðir út 4 línu
og einn á troll. Afli hefur verið
algengast 4—114 lest í róðri, þó
komst Keilir upp í 514 lest einn
daginn í vikunni. Menn eru yfir
leitt upp á fast kaup, um 13
þúsund krónur fyrir róðurinn
alls. Ná endarnir ekki saman
með þessum aflabrögðum. Þurfa
helzt að fást 6—7 lestir í róðri.
Keflavík
Norðanstrekkingur var íram-
an af vikunni, og kippti þá úr
með róðra. Afli á línuna var
414—514 lest í róðri, helming-
urinn ýsa.
Afli hjá troll- og dragnótabát
um var tregur framan af vik-
unni, en betri, er á leið, komst
einn daginn upp í 8—10 lestir
á bát, svo að segja eingöngu
frekar smá ýsa.
Sandgerði
7 bátar róa með línu frá Sand-
gerði og hefur aflinn verið 5—
514 lest í róðri á 36 stampa. Þó
fékk einn báturinn í einum róðr
inum 814 lest, vai hann austar-
lega á Selvogsbankanum, svo að
styttra var til Eyja en Grinda-
víkur, þar sem hann lagði upp
aflann.
Hraðfrystihús Gerðabátanna
gerir út 4 báta á línu og vinnur
fiskinn fyrir Ameríkumarkað.
Eru mennirnir ráðnir upp á hlut,
en beitt er í akkorði, og eru
greiddar 127 krónur fyrir stamp
inn.
Þorskur er heldur að glæðast
í aflanum.
2 bátar eru með troll, og hef-
ur verið tregt hjá þeim.
Línuveiðar
Margur sjð- og útgerðarmaður
inn lagði við hlustirnar, þegar
Eggert Þorsteinsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra, skýrði frá
því í vikunni á umræðufundi í
útvarpinu, að ríkisstjórnin hefði
ákveðið að nota þær 10 milljónir
króna, sem eftir væru af þeim
20 millj. króna, sem ætlaðar eru
á fjárlögum til þess að bæta upp
fiskverðið, til þess að jafna
þeim niður sem verðuppbót á
línufisk í haust fram að ára-
mótum. Þá 3 mánuði, sem upp-
bótin á að gilda, veiddust í
fyrir um 20.000 lestir af fiski
á línu, svo að þetta gæti numið
um 50 aur. á kg. í stað 25 aura,
sem nú er, auk 25 aura frá fisk
kaupendunum.
Það er trúlegt, að þetta örvi
línu útgerð, og gæti það gefið
vonir um, að greidd yrði 1 króna
í uppbætur á línufisk úr ríkis-
sjóði á næsta ári. Væri það
áreiðanlega þörf ráðstöfun, sem
hleypt gæti nýju lifi í línuút
gerð, og veitti ekki af. Segja
má, að menn hafi verið algjör-
lega hættir að gera út á línu hér
á SuðvesturlandL
Hamrafellið
Stærsta skip íslenzka flotans.
Hamrafellið, hefur verið selt úr
landi. Það var stórhugur á bak
við kaupin á þessu skipi fyrir
10 árum. fslendingar voru
hreyknir af að eignast olíuflutn-
ingaskip á alþjóðamælikvarða.
Að vísu var þetta ekki skip á
borð við þau, sem stærst gerð-
ust þá og langt í frá og þeim
mun síður eins og þau gerast
nú, en þetta var engu að síður
stórt á okkar vísu og hentaði
þörfum okkar vel.
Sæmilega gekk í upphafi og
nokkur fyrstu árin með útgerð
skipsins, en svo tók að síga á
ógæfuhliðina, eða b-.mnig hefur
þetta komið fyrir sjónir almenn
ings. Einhver átök voru milli
eigendanna ,og ríkisstjórnarinn-
ar um sérstaka fyrirgreiðslu í
Sr. Jón Aubuns, dómpróf.:
Hvílck; í!agur
SJOVATRYGGT
ERUELIRYGGT
SIMI11700
SJOVATRYGGINGARFELAGISLANDS K
„Hvíldardagurinn v a r ð t i I
mannsins vegna en maðurinn
eigi vegna hvíldardagsins ‘. sagði
Jesús, þegar hann hafði hneyksl-
að Gyðingana með því að brjóta
eitt allra helgasta fyrirmæli
þeirra, fyrirmæli um hvíldar-
dagshelgina.
Naumast mun trúarleg erfða-
venja hafa staðið fastari fótum
í nokkru landi, en hvíldardags-
haldið með Gyðingum. Fyrir-
mælin um hvað mátti gera og
hvað ekki gera á þeim degi, voru
svo flókin og smásmuguleg, að
ótrúlegt er nútímamönnum.
Víða mátti sjá á þessum fyrir
mælum fingraför hræsninnar, en
gegn henni háði Jesús baráttu,
sem entist honum ævilangt. Um-
mæli hans um helgihaldið vöktu
sumum furðu og hneyksluðu
sambandi við flutninga á olíu
frá Sovétríkjunum, sem endaði
með því, að ríkisstjórnin neit-
aði að styrkja þessa flutninga.
Það er vonlaust fyrir hvern sem
er að ætla að keppa á frjálsum
markaði við ríkisrekstur, og á
því á hinn vestræni heimur eftir
að fá að þreifa æ betur, eftir
því sem fram líða stundir. Sam
keppni hinna sósíalistísku ríkja
verður nú vart víða í sigling-
um. Samt var ekki hægt að ætl-
azt til þess, að ríkið styrkti
útgerð Hamrafellsins, ríkið get-
ur ekki skattlagt borgarana til
þess að styrkja alla hluti. Það
er engu að síður geigvænlegt að
hugsa til þess, að lönd geti náð
einokunaraðstöðu með því að
bjóða þjónustu, vörur eða hvað
sem er undir sannvirði, og þegar
aðstöðunni er náð, haldið henni
til frambúðar.
En því gat Hamrafellið ekki
haslað sér völl í hinum stóra
heimi? Norðmenn hafa mestar
gjaldeyristekjur af siglingum
sínum, og svo er um margar
aðrar siglingaþjóðir, eins og
Dani og Hollendinga. Af hverju
hafa Islendingar ekki getað rutt
sér braut á þessu sviði eins og
í loftinu og frosna fiskinum í
Bandaríkjunum. Ástæðunnar er
að leita í hinum gífurlega kostn-
aði við útgerð skipa á íslandi.
Þau eru alls ekki samkeppnis-
fær við erlend skip. Við erum
orðin þátttakendur að meira eða
minna leyti í heimsviðskiptun-
um, og stöndumst við ekki þá
samkeppni, er okkur stjakað til
hliðar. Það er ekki þörf fyrir
okkur eins og dæmin um Hamra
fellið og togarana okkar sýna.
Það verða erlend olíuflutninga-
skip, sem fullnægja þörfum okk
Framh. á bls. 25.
aðra. í öllu ætlaði þessi Nasarei
að verða þjóð sinni skaðræðis-
maður, — sögðu menn — vitan-
lega hlyti frjálslyndi hans að
fæða af sér virðingarleysi fyrir ,
gömlum og góðum siðum og
steypa þeim í glötun, sem honum
fylgdu!
Þessi þáttur baráttusögu Jesú
er einn kapítulinn í hinni miklu
bók um baráttu andans gegn
bókstafnum, baráttu frjálsra
anda gegn ofríki gamalla hleypi-
dóma. Þeirri baráttu mun seint
verða lokið.
En hvað kemur hún mér við
og þér þessi gamla saga um átök
austur í löndum. Hver blaðsíða
í baráttusögu frjálsrar hugsunar
á jörðu varðar mig og þig. Ofar
öðrum, sem þeirri baráttu börS-
ust, gnæfir myndin hans, sem
reis gegn hvíldardagshræsninni
á Gyðingalandi fyrir 19 öldum. ,
En hversvegna var hann að
berjast? Hversvegna er honum
svo annt um hvíldardaginn, að
hann leggur til þessarar baráttu?
Er ekki hugsanlegt, að að heim
an, frá Nasaret, hafi hann átt
úr foreldrahúsunum hvíldardags-
minningar, sem honum voru svo
hugstæðar, svo heilagar, að hon-
um vaknar í huga heilög reiði,
þegar hann kynnist hjá þeim,
sem átt að vera leiðtogar, herfi-
legri misnotkun hvíldardagshelg-
arinnar?
Jesús átti vafalaust mikilhæfa
móður, miklu dásamlegri í sínum
háleita einfaldleika en himna-
drottningin er, sem rómverskir
menn tigna og klæða skrúð-
klæðum fáránlegra helgisagna,-
Og í foreldrahúsunum hefir hann
vafalaust orðið fyrir sterkum
trúaráhrifum. Frá hinni einlægu,
hræsnislausu guðrækni í æsku-
heimilinu hefi£ hann átt minn-
ingar um hvíldardaginn, sem
voru honum svo heilagar, að
honum svall móður, þegar hann
sá meðferð Gyðingakirkjunnar á
þessum dýrðlega degi, „degi
Drottins“.
Helga Weisshappel
sýndi í Helsingfors
LISTAKONAN Helga Weiss-
happel, opnaði sýningu á 35
myndum í „Gallery Pinx“ í Hel-
sinki, þann 17. sept. 1966.
Sýningunni var mjög vel tek-
ið. Meðal gesta var forsetafrú
Finnlands, frú Kekkonen.
Sýningin stóð í 12 daga og sáu
hana 5000 manns. Fjórar myndir
seldust.
Sýningin fór áfram til Kaup-
mannahafnar, þar sem opnun var
þann 8. okt. Meðal gesta þar voru
íslenzku Ambassadorhjónin frú
Vala og Gunnar Thoroddsen. Sýn
ingin er í det „Blá Atelier“ og
verður í 12 daga. Sýningunni var
vel tekið og vinaleg blaðaum-
mæli.
Listakonan tekur þessar mund
'ir þátt í mjög stórri samsýningu
í Empir* State Building, sem
heitir National Art Show og
stendur yfir í 3 mánuðL
Hvernig er komið hvíldardags-
helginni hjá okkur?
Hér þarf ekki að kalla á spá-
mann með logandi guðmóði til
að berjast gegn hræsni eða
fjötrum, sem helgihaldið fellir á
menn. Við þurfum ekki að stynja
undan oki óttans við að brjóta
helgidagalöggjöfina. Það er ekki
svo mikið eftir af henni hér og
ekki gengið svo hart eftir því,
að þeim slitrum hennar, sem
eftir eru, sé hlýtt.
Og samt þarf hér spámann. ?
Við þurfum mann, gæddan
logandi guðmóði, hræsnislausri
og hleypidómalausri trúaralvöru,
til að minna okkur á, hvernig
við förum með hvíldardaginn, til
að minna okkur á, hvernig mjög
hnígur til þeirrar áttar, að
svipta hann öllu trúarinnihaldi,
gera hann að hvíldardegi frá
vinnu aðeins, án þess ein helgi-
stund setji á hann nokkurn svip.
Er líf þitt svo auðugt, að þú
megir við því að svipta sunnu-
daginn helgiklæðunum og gera
hann að sviplausum degi, sem í
engu ber af öðrum dögum, nema
hvað þú lætur eftir þér að hvíl-
ast frá störfum, njóta einhverra
dægrastyttinga og borða betri *
mat en á virkum dögum?
Vantar þig ekki lífsfögnuð,
einhverja upphafningu hjarta
þíns, einhverja gleði, sem virku
dagarnir veita þér ekki?
Hvernig ver þú sunnudeginum
þínum? hvers missir þú í, ef hið
heilaga færist þér fjær, unz það
hverfur?
í þessu máli er margt, sem
mig langar enn að fá að spjalla
við þig um. Ég vona að fá tæki-
* færi til þess síðar.