Morgunblaðið - 01.11.1966, Side 25

Morgunblaðið - 01.11.1966, Side 25
Þriðjudagur 1. nóv. 1968 MOHGUNBLAÐIÐ 25 — Forsætisráðherra I Framh. af bls. 3. lenzka deildin er miklu minnst. Forstöðumaður safnsins sagðist hvað eftir annað hafa leitað til íslenzkra iistamanna, en þeir virt list tómlátir um málið, og fáar myndir eftir íslenzka listamenn þar til sýnis. liögreglukór o. fl. ! Að lokum minntist forsætisráð herra á, að sænskur lögreglukór sem hingað hefði komið, hefði sungið í veizlu, sem Erlander hefði haldið þeim hjónum; vildu þeir þannig að kveðjur frá þeim bærust með þakklæti fyrir kom- una hingað. Einnig höfðu þau gaman af að heimsækja sænska Dagblaðið sem auðvitað er með miklu stærra sniði en tíðkast hjá okkur. Þó gat forsætisráðherra þess að miðað við fólksfjölda væru blöð hér jafnvel útbreiddari en í Sví- þjóð. * Loks gat hann þess að í há degisverðarboði hjá landshöfð- ingjanum í Málmey hefði honura verið skýrt frá því að í undir- búningi væri keppni um minnis- | um og sum hafa orðið að hætta, merki Ayrir framan Folketshús og vegna þess að þau standast ekki — Minning Framhald af bls. 23 hans, sem í engu voru greiddar, hafi verið öllu fleiri en hinar, er goldnar voru. — Menningarstarf í fámennum og fátækum sveitar- félögum hefir aldrei verið gróða- vegur, en oft þakkað og metið af greindu fólki og góðgjörnu, þó að heimskan og öfundin hafi jafnan horn í síðu þeirra, sem meira hafa til brunns að bera en allur fjöldinn. Það er gott að minnast starfa Páls Erlendssonar, en þó er enn betra að minnast mannsins Bjálfs. Hann var öllum hlýr og góður og þó beztur þeim, er um sárt áttu að binda. Heimili þeirra Hólmfríðar á Þrastarstöðum var ekki einungis friðarskjól börnum þeirra og foreldrum hennar. Þar áttum einnig við, bróður- og systurbörn þeirra, okkar annað heimili. Þrastarstaðir voru okk- ur sumarland og draumaland. Þangað var sælt að láta sig dreyma á dimmum vetrarkvöld- tun, en þó tók veruleikinn á sumrin hinum glæstustu draum- tun fram. — Á hnakknefinu fyrir framan Pál Erendsson fór ég mína fyrstu för án foreldra- fylgdar. Jafnvel það sæti varð hægindi. Og mér finnst einhvem veginn, að alltaf hafi verið sól- skin á Þrastarstöðum. — Það voru fleiri en ættingjar þeirra hjóna, sem athvarf áttu í birt- unni og hlýjunni á heimili þeirra. Umkomulausir og fátækir áttu þar skjól og griðastað um lengri eða skemmri tíma, og vandalaus- an dreng, Þaldur Hólm Helga- son, nú bónda á Páfastöðum í Skagafirði, ólu þau upp, sem eigið barn værL ' Páll Erlendsson var óvenju fróður maður. Engan þekkti ég margspakari og ættvísari. Og ég hygg, að hann hafi verið flest- um mönnum ættræknarL Alla tíð hafði ég það á tilfinningunni, að hann fylgdist með því, hvernig okkur frændum hans vegnaði, þó að oft væri vik milli vina. Og alltaf . fannst mér að því hvatning og styrkur að vita af hlýhug hans og mildi og finna gleði hans, ef mér tókst að vinna verk mín svo, að honum þætti sómi að. Fyrir það og allt annað ber nú að þakka, er hann hefir farið þá för, sem okkar bíður allra. Fagur var hann og bjartur, hásumardagurinn góði, er við Páll Erlendsson létum hesta okk- ar fara fetið á Hofsárbökkum. Hlý var hún og mild, röddin, sem þá lauk upp undrum lífs og lands fyrir fákænum kaupstaðardreng. Sú stund verður aldrei þökkuð, «em vert væri. Svo er um allt líf Páls Erlendssonar. Við fáum aldrei fullþakkað að hafa átt slíkan dreng að samferðamanni og vini. Ólafur Haukur Árnasou. mundi íslendingum boðin þátt- taka í þessari samkeppni. Hanðrit Þá bar á góma handrit, sem geymd eru í Svíþjóð, og af því tilefni var forsætisráðherra spurður um greinina sem birtist í Kvöldberlingi og skýrt er frá annars staðar í Morgunblaðinu í dag. Hann svaraði á þessa lund: Ég sá þessa grein í flugvélinni á leiðinni heim. Ef ég skil rétt, þá var ætlunin að ljóstra upp ein- hverju leyndarmáli — en blaðið segir þó, að Gylfi Þ. Gíslason hafi látið birta þetta sama leyndarmál 1961! Þeir menn, sem hafa látið skrifa þetta, hafa meira af öðru en skilningi á því máli, sem þarna er um að ræða. Augljóst er að reynt er með þessum skrifum að vekja tortryggni og halda henni vakandi meðan málið er í hæstarétti og næstu vikur á eftir — og svo einnig að æsa Is- lendinga upp. En bezt er að halda jafnvægi í þessu máli nú ekki síður en hingað til. Þá var hann spurður hvort uggur væri í Erlander eftir kosn- ingarnar, og svaraði hann því til að jafnaðarmenn viðurkenndu, að þeir hefðu beðið ósigur. Veltu þeir nú mjög fyrir sér, af hverju þessi ósigur stafaði, en líklega væru margar ástæður fyrir hon- um. Aðspurður benti hann á, að Norðmenn hefðu áður fyrr verið haldnir mikilli tortryggni í garð aðildcir að EFTA en Svíar aftur á móti bjartsýnir ,en nú hafa Norðmenn skipt um skoðun á þessu máli, því aðildin hefði orð- ið lyftistöng norskum iðnaði þvert á móti því sem þeir hefðu búizt við. Norðmenn hafa þann- ig fengið góða markaði í Svíþjóð fyrir iðnaðarvörur sínar. Fyrir kosningarnar hefðu ver- ið uppi bollaleggingar um, að Erlander yrði að draga sig í hlé fyrir aldurs sakir. Nú væri við- urkennt af öllum, að hann yrði að sitia áfram sem forystumaður Jafnaðarmannaflokksins. í beinu framhaldi af því sem fyrr greinir um iðnaðinn, gat forsætisráð- herra þess síðar á blaðamanna- fundinum, að enda þótt mikil efnahagsvelmegun ríkti í Sví- þjóð og þeir stæðu sig vel í aug- um annarra þjóða, þá ættu ýmiss fyrirtæki þar í miklum erfiðleik- samkeppnina. Hefur þetta skap- að nokkra ókyrrð inn á við. Há vinnulaun Auk þess telja Svíar að þeir hafi orðið að glíma við miklar verðhækkanir, en þeir hafa reynt að mæta þeim með því að auka framleiðnina og hækka laun á þann hátt. Ea ekki er hægt að hækka laun takmarkalaust með þessu móti, svo að ýmsir erfiðleik ar hafa skotið upp kollinum. For sætisráðherra sagði að bent hefði verið á, að ein af ástæðunum fyr ir blaðadauðanum í Svíþjóð væri sú, hve há vinnulaunin væru, og af þeim sökum gætu blöðin ekki borið sig. í framhaldi af umræðunum um blöðin gat forsætisráðherra þess, að ýmsum þætti einkennilegt að stærsti flokkur Svíþjóðar, sem hefði á bak við sig um helming kjósenda, hefði aðeins við eitt kvöldblað að styðjast. En hann bætti því við, að margvíslegt efni, sem áður hefði verið í dag- blöðum, bæði áróðurs- og upp- lýsingaefni, væri nú komið inn í útvarp og sjónvarp. Almennir stjórnmálafundir eru að verða úr sögunni vegna sjónvarps og út- varps og benti dr. Bjarni Bene- diktsson á, að svipuð þróun ætti sér einnig stað hér á landi, og mætti geta þess að almennir stjórnmálafundir vektu ekki sömu athygli nú og áður var. -- XXX ----- Að lokum kom það fram á fundinum að Erlander teldi að dregið hefði úr væringum í heim- inum og ástandið færi batnandi. Land eins og Svíþjóð vill að því vinna og miðast stefna þess í þá átt, sagði dr. Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra, að lokum. Blaiburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Faxaskjól Lyngha^l Kleifarvegur Ásvallagata Skerjafjörður sunnan flugvallar Sörlaskjól Austiu-brún Talið við afgreiðsluna síini 22480. — Ásgríms Framhald af bls. 17 Þetta er náttúran okkar og hún er óendanleg í breytileik sín- um. Augljóst er, að Ásgrímur Jóns son hefur haft mikil áhrif á yngri málara íslands. Hann kynnir liststefnur síðari tíma evrópsks málaraskóla á eyjunni sinni. Síðan segir Estvad, að Ásgrím ur hafi allt tii elliáranna verið hinn leitandi listamaður. — Handritin Framhald af bls. 2. Gíslasonar skyldi ekki vera send utanríkisráðuneytinu af sendi- ráði Danmerkur í Reykjavík. Ástæðuna til þess, að slíkt var ekki gert, telur Kvöldberlingur vera þá, að þingnefndin hafi ekki mátt fá að vita um dansk-ís- lenzkan ráðherrafund, sem Bjarne Poulson ræ’ði um í bréfi til Jörgen Jörgensen í apríl 1961. Um þennan fund sögðu utanrik- isráðuneytið og kennslumálaráðu neytið við þingnefndina, að hér yrði svo að líta á, að þetta hafi verið eitt hinna svokölluðu til- failandi tækifærissamtala. Fundur í Finnlandi Kvöldberlingur heldur áfram: „En Gylfi veit, hvers konar fundur þetta var. Þetta var samn ingafundur, sem Jörgen Jörgen- sen bauð honum til eftir að þeir tveir höfðu rætt um handrita- afhendinguna á norrænum menn tamálaráðherrafundi í Finnlandi. Hér var rætt um hina upphaf- legu kröfu íslendinga um að fá allt það, sem rita'ð hefur verið af fslendingum að undanskildum sögum Danakonunga, ásamt rit- um, sem til Danmerkur voru kom in frá Noregi. Til þessa hafði Jörgensen boðið verulega miklu minna. Því vísaði ísland á bug á þeim forsendum, að engin ís- lenzk ríkisstjórn gæti nokkru sinni fallizt á slíka lausn, og raunar væri sá íslenzkur stjórn- málamaður til, sem mæla mundi með slku. Þessu næst bað Jörg- en Jörgensen Gíslason um að fara með sér til Kaupmannahafn ar til þess að ræða við fleiii danska ráðherra. — Rytgaard. Umrnæli menntamálaráðhernt Morgunblaðfð sneri sér í gær til Gylfa Þ. Gíslasonar, mennta- málaráðherra, og spurði hvað hann vildi segja um fyrrnefnda frétt. Ráðherrann svaraði: „Ég hef það eitt um þessi skrif að segja, að tilgangur þeirra sést bezt á því, að látið er að því liggja, að tímaritsheftið með grein minni hafi verið tekið úr umferð. Út af fyrir sig þætti mér vænt um, ef hefti'ð væri upp selt, en svo er ekki“. — Kinverjar Framhald af bls. 19 í hljóði. Að því loknu sagði Sara Lidman, að þetta mál væri örð- ugt viðfangs, er bezt væri að fólki'ð talaði fyrst saman sjálft, síðan væri rétt að tala við stjórn- arvöld landsins, en þau gætu svo talað við stjórnina í Washington. Þá var spurt um loftárásir Bandaríkjamanna á sjúkrahús 1 Norðurvíetnam. Sagði Sara Lid- man, að hún hefði séð eitt sjúkra hús, sem hefði verið gereyðilagt í loftárás. Nú skildi túlkurinn ekki og innti nánar eftir: — Það var gereyðilagt (total förstört), sagði skáldið. — Það var mjög stórt, sagði leikkonan og brosti út í salinn. JAMES BOND — >f- Eítii IAN FLEMING James Bond BY IAN FLEMING DRAWIN6 BY JOHN MclUSXY Twousu tue samssteks HAP WOUMPED ERMIB CU8EO. MS MAMASEP TO SWIMG UlS CAB SUDPEMLV IMTO A SIDS TU8MIMG-I JUMP6P0UTAS Mfi |JBT" Þótt glæpamönnunum hafi tekizt að særa Cureo gat hann sveigt bílnum skyndi lega út í útskot. Ég stökk út um leið og hann stanzaði. Ég skaut í sífellu á Sedaninn um leið og hann sveigði fyrir beygjuna á eftir JÚMBÖ IT OFF THB BQAP, CEASHSP A Tees. AMP BUEST IMTQ FLAMES/ okkur. Hann þaut út af veginum, skall á tré og eldur gaus upp í honum. Teiknari: J. M O R A Sjóliðinn leggur frá sér vopnið og seg- ir: — Ég gefst upp allavega skilyrðis- laust: — Þetta er svo ótrúlegt, að það getur varla verið rétt, segir Júmbó sem nú er forvitinn eftir að fá að vita hvaö hefur fengið hann til að skipta um skoð- un . . . . — Herra, segir sjóliðinn, það getur ver ið að ég sé þorpari, en vanþakklátur er ég ekki. Þér og vinir yðar hafa platað mig minna en mínir eigin vinir, og mun ég ekki sætta mig við að þeir geri yður mein. — Og ef þér seljið mig í hendur lög- reglunni ásamt Álfi, þá er það ekki nema réttlátt: — Um það getum við rætt seinna, segir nú Júmbó, en fyrst ætia ég að skjóta þessu eina skoti úr byssunni svo að það valdi ekki slysi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.