Morgunblaðið - 18.11.1966, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.11.1966, Blaðsíða 22
22 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 18. nóv. 1966 í Deildartungu 80 ára aftur gamla slóð“ Sigurbjörg „Göngum FYRIR rúmlega hálfri öld, eða nánar til tekið fimmtíu og þrem- ur árum, bar gest að garði á stór- býlinu Deildartungu í Reyk- holtsdal. Það var skagfirzk heimasaeta, sem hér var á ferð. Þetta var að vorlagi, tíma grósku og gróanda í náttúru íands vors. Borgarfjarðarhérað, sem er fagurt og kostaríkt, fagn aði komu hinnar ungu konu, tók henni opnum örmum og bauð hana velkomna í hinn vir'ðulega húsfreyjusess í Deildártungu. Það barst með vorblæniim frá manni til manns, að hér hefði góðan gest að garði borið, og það hugboð festi rætur, að héraðið mundi um langan aldur búa að dugnaði, mannkostum og gjörfu- leik þessarar gáfuðu manndóms konu. Þessi kona er Sigurbjörg Björnsdóttir, ekkja Jóns Hannes- sonar í Deildartungu, en hún fyllir í dag áttatíu ára líféskeið sitt. Sigurbjörg fór ung til náms á Hvítárbakkaskólann, alþýðu menntasetrið, sem hinn kunni fræðsiufrömuður Sigurður Þór- ólfsson hafði komið þar á fót. Sigurður gaf út um þessar mundir tímaritið „Plógur.“ Birti hann meðal annars í riti þessu ritgerðir nemenda í skóla sínum, þekra er honum þótti skara fram úr um gáfur og námshæfni. Sigurbjörg fyRti þennan flokk. Samtímis því sem Sigurbjörg var í Hvítárbakkaskólanum, var Jótn Hannesson, sem þá stóð fyr- ir búi móður sinnar, Vigdísar Jónsdóttur í Deildartungu, nem- andi á Bændaskólanum á Hvann eyri. Gott samstarf var ríkjandi milli skólastjóra þessara mennta setra hóraðsins, sem meðai ann- ars kom fram í því, að í skólun- um var á víxl efnt til sfcemmti- funda fyrir nemendurna. Á þess- um fundum hófust kynni þeirra Jóns og Sigurbjargar. Þau kynni leiddu saman hugi þeirra, og var þar með rá'ðin sú rún, að svo skyldi háttað um framtíðarbú- setu og lífsstarf Sigurbjargar, sem að framan getur. Hið fyrrgreinda vor hófu þau Jón og Sigurbjörg búskap í Deildartungu. Sæti Vigdísar, móður Jóns, var vandfyllt. Hafði þessi mikla rausnarkona gegnit þar húsmóðurstörfum um ára- tuga skeið með miklum mynd- ar- og höfðingsbnag. En sú varð raunin á, að merki Vigdísar í bústjórn og heimilisgæzlu var vol á lofti ha'ldið í hendi Sig- urbjargar. Hlutverkinu, sem henni féll þarna í skaut, gerði hún góð skii. Búskapur hinna ungu hjóna í Deildartunngu stefndi ört til vaxtar og þroska. Gestrisni og greiðasemi hélzt í hendur vi'ð þessa þróun. Jón gerðiat brátt mikilvirkur og stórhuga athafna maður og kjörinn til forystu um framfana- og menningarmál í héraði. Slaknaði aldrei á þeim þræði meðan heika hans og krafitar leyfðu. Allir vissu, að í þessum störf- um var Jón ekki einn að verki. Við hlið 'hans stóð kona, sem í hvívetna kynti glóð manndóms og menningar og var síkvikur aflgjafi í þeim manndómsafrek- um, sem ma’ður hennar hafði ungur markað á skjöld sinn og vann óslitið að alla sína lífstíð. Deildartunguheimilið var menn- ingarmiðstöð í héraði og tákn þeirrar þróunar í þjóðlífi voru, sem þá var gengin í garð. Við suðurhílið íbúðarhússins í Deildartungu hafði verið gróð- ursett lítíð reyniviðartré. Það vildi ekki láta sitt eftir liggja í því að sýn\ þann mátt grósku og vaxtar, sem þama hafði hasl- að sér völl. Það óx og dafnaði, breiddi lim sitt meðfram allri húshliðinni og teygði vaxtar- sprota sína hátt til lofts langt upp fyrir þak og ris þessarar gömJu og myndariegu bygging- ar. Þrátt fyrir miklar búsannir á þessu stóra heimili, sem aldrei var slegið slöku við, mikla gesta- komu og uppeldi átta barna þeirra hjóna vannst Sigurbjörgu tími til að sinna margháttuðum félagsmálastörfium í sveit sinni og héraði. í hugarheimi henn- ar var hátt tid lofits og vítt til veggja og verkefnin til fé- lagslegra umbóta blöstu hvar- vetna við. Ríkur áhugi fyrir því að göfugar hugsjónir á þessu sviði gætu orði'ð að veruleika, knúði fast á og jók það skrið- inn til samstarfs og átaka um þessi hugðarmál hennar. Hafði Sigurbjörg um það forystu, að jafnan skyldi í starfisaðferðum gætt naunsæis, því greind henn- ar og lífsreynsla hafði fært henni heim sanninn um það, að þessi aðferð tryggði öðru betur heppileg og farsæl málalok. Á starfssviði Sigurbjargar í for- ystusæti í Kvenfélagi Reykholts- dalshrepps og féiagssamtökum borgfirzíkra kvenna hefir æði margt áiunnizt, sem leitt hefir til framfara og sannra umbóta. Hér hafa margir og traustir starfskrafitar komið fram á sjón- arsviðið, sem hvorki spara tíma né fyrirhöfn þegar á þanf að halda. Starfsemi borgfirzkra kvenna er skýr vottur þess, hverju má til vegar koma, þar sem góður félagsandi ríkir. Þar er fórnfýsin ávallt á reiðum höndum. Sigurbjörg átti ríkan þátt i stofnun Húsmæðraskólans á Varmalandi og hefir ávallt verið í stjórn hans. Það varð Ihlut- skipti Vigdísar, dóttur hennar, að móta starfsemi þessarar menningarstofnunar. Fórst henni þetta úr hendi méð afbrigðum vei. Hefir Vigdís án alls efa átt í því starfi hauk í horni þar sem móðir hennar er. Vigdís stjórnaði skólanum áratugsskeið með mikilli röggsemi. Hún lét þar af störfum, þegar hún tók við fonstöðu Húsmæðrakennara- skóians í Reykjavík af Helgu Sigurðardóttur. Mér, sem þessar línur rita, er alveg sérstaklega ljúft að minn- Peking, 10. nóv. NTB. • 1 dag var haldið hátíðlegt í Peking eins árs afmæli hinnar „miklu menningarbyltingar alþýð unnar“. Fóru eitthvað á aðra milljón Rauðra varðliða akandi um torgið Tienan-men, én þar stóðu á palli þeir Mao Tse-tung leiðtogi kínverskra kommúnista, Lin Piao, landvarnaráðherra og fleiri ráðamenn kínverskir. Enda þótt undirbúningur menn ingarbyltingarinnar hafi hafizt þegar haustið 1064 og ýmsar ráðstafanir verið gerðar í sam- bandi við hana veturinn 1064 —’65, er svo litið á í Pelsing, sem hún hafi raunverulega hafizt 10. nóv. 1065 með árásargrein í dagblöðum í Shanghai á leikrit eftir varaborgarstjóra Peking, Wu Han að nafni. Leikritið fjall aði um sögulegt efni, kínverskt — en kommúnistaflokksleiðtog- arnir litu svo á, að þar væri dulbúin árás á Mao Tse-tung og flokkinn. Erlendum fréttamönnum var ekki boðið að vera við hátíða- höldin í Peking í dag, en talið er, að þetta hafi verið síðasta skrúðfylking Rauðu varðliðanna í bráð. Borgaryfirvöldin hafa sagt, að óhugsandi sé að sjá Rauðu varðliðunum utan af landi fyrir mat og húsnæði í vetur. ast áttatíu ára afimælis þessarar gagnmerku konu. Við Jón í Deildartungu, vinur minn og frændi, áttuin að bafci langt sam- starf er hann lézt. Við þau störf dvaldi ég stundum lang tímum saman á heimili þeirra hjóna og festi þar rætur eins og gestkomandi maður bezt getur gert. Það var ánægjulegt að dvelja í Deildartungu. Dugnað- urinn og abhafnasemin hélzt í hendur við gla'ðværð og létt- leika í lund, en þetta mótaði þann ánægjulega heimilisbrag, sem þarna ríkti. Það gat ekki farið fram hjá neinum, sem í Deildartungu dvaldi, hve ríkur var þáttur húsfreyjunnar í þeim anda, sem sveif þar yf.ir vötn- unum. Ennþá stendur gamla íveru- húsið í Deildartungu óhaggað, þótt eigi hafi verið búið í þvi uiu skeið. Synir þeirra hjóna tveir, sem nú búa í Deildartungu, og feta dyggilega í fótspor foreldra sinna um búsfcaparháttu, hafa báðir reist sér íbúðarthús í nú- tímastíl. En áldrei kem ég svo að Deildartungu, að ég ekki líti inn í gamla húsið. Það innlit vekur ævinlega hjá mér ljúfar endurminningar um þær stundir sem ég dvaldi þar. Það verða áreíðanlega margir, sem minnast Sigurbjargar i Deildartungu í dag og er ég einn þeirra, sem árna henni allra heilla og blessunar á þessum tímamótum í ævi hermar. Pétur Ottesen. Það hefur þegar reynzt mjög erfitt; þeir hafa búið um sig í öllum skólum borgarinnar, —■ skólatorgum og í gömlum höll- um. Skrúðfykingin í dag var farin akandi — í vörubílum, sem óku í beinni línu, hver með 50 varð- liða á palli. Höfðu þeir uppi slag- orðaspjöld, þar sem sums staðar mátti lesa ,að varðliðarnir hefðu neitað að fara úr borginni fyrr en þeir hefðu fengið að hylla Mao Tse-tung einu sinni enn. Á sjálfa vörubílana var letrað: „Við munum verja Mao, jafnvel þótt það kosti okkur lífið“. Þúsundir varðliðanna voru frá héruðunum Sinkiang, sem liggur að Sovét- ríkjunum, og Innri Mongólíu, sem liggur að lýðveldinu Ytri- Mongólíu, þar sem áhrifa Sovét- manna eru sterkari en Kínverja. „Dagblað alþýðunnar" í Pek- ing hefur beint þeim tilmælum til verkamanna og bænda, að láta ekki menningarbyltinguna hafa áhrif á starf sitt. „Þa<5 er allt í lagi að loka skólum til þess að nemendurnir geti unnið að menningarbyltingimni, ea námur, iðnaðarfyrirtæki og land- búnaðarfyrirtækin verða að halda starfsemi sinni og fram- leiðslu áfram óskertri", segir í blaðinu. Konan mín GUÐLAUG ÞORKELSDÓTTIR Ásgarði, andaðist í Landsspítalanum miðvikudaginn 16. þ.m. Kveðjuathöfn verður gerð frá Fossvogskirkju, laugar- daginn 19. þ.m. kl. 10,30, og verður útvarpað. Auðunn Auðunsson. Móðir okkar ÞURÍÐUR SIGMUNDSDÓTTIR áður til heimilis Njálsgötu 55, lézt að Hrafnistu þann 16. þessa mánaðar. Bræðumir. Bróðir minn SVEINN SVEINSSON frá Felli, andaðist 17. þ.m. í sjúkrahúsi ísafjarðar. — Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd vandamanna. Valgerður Sveinsdóttir. Eiginkona mín og móðir okkar GUÐRÍÐUR NIKULÁSDÓTTIR Skerseyrarvegi 3, Ólafsfirði, andaðist 17. þ. m. í St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Ólafur Guðmundsson og dætur. Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir JÓN GUÐMUNDSSON húsgagnasmíðameistari, Sóltúni 4, Keflavík, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 19. þ.m. kl. 1,30 e.h. — Þeim sem vildu minnast þess látna er bent á líknarstofnanir. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Guðný Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Brynjar Jónsson, Pálmi Jónsson, Sesselja Jónsdóttir, Guðmundur Einarsson, Vilborg Guðmundsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir. Þökkum sýndan vinarhug við andlát og jarðarför HELGU ÞORBERGSDÓTTUR frá Krossi. Vandamenn. Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér hluttekningu við andlát og útför eiginmanns míns HARÐAR SNÆVARS SÆMUNDSSONAR fyrrum hárskerameistara. Sérstaklega þakka ég séra Birni Jónssyni, Brynleifi Jóhannessyni og frú Sunnubraut 40 Keflavík fyrir þá vinsemd og virðingu er þau sýndu minningu hins látna. Bið ég ykkur öllum Guðs blessunar. Fyrir mína hönd, sona, foreldra, tengdaforeldra og systkina. Guðrún Jóhannesdóttir. Beztu þakkir til allra vina og vandamanna fyrir stór- gjafir, skeyti og heimsóknir vegna 50 ára afmælis míns 14. þ. m. — Guð blessi ykkur öll. Valgarður L. Jónsson, Eystra-Miðfelli. Innilegar þakkir flyjum við ykkur öllum, sem glödduð okkur með svo margvíslegum hætti á 50 ára hjúskap- arafmæli okkar hinn 11. nóvember. Guð blessi ykkur öll. Jónína Kristjánsdóttir, Gísli Guðbjartsson Sunnuvegi 15. 1 árs afmæfi menn- ingarbyltingarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.