Morgunblaðið - 04.12.1966, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.12.1966, Qupperneq 1
56 slður (Tvö blöð) •3. árgangur 279. tbl. — Sunnudagur 4. desember 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins Öeirðir í Macao Brennd skjöl landstjóraembættisins Átök milli lögreglu og stuðnings- Kanzlarar Vestur-Þýzkalands: Kiesinger fyrir miðju en sitt til ar hans í kanzlaraembættinu Adenauer og Erhard. hvorrar handar fyrirrennar- Valdabreytingar í Kína Liu Shao Chi setur ofan Eelgrad, 3. desember, — AP — TÖLUVERÐAR breytingar eru sagðar hafa orðið á valda- hlutfalli æðstu manna Kína veldis, án þess að það hafi ver- ið tilkynnt opinberlega. Hefur júgóslavneska fréttastof an Tanjug það eftir fréttaritara eínum í Peking að Liu Shao Chi, Kínaforseti, hafi verið leyst ur frá ýmsum embættum sem hann áður hafði á hendi ásamt forsetaembættinu og hafi hann þar með sett töluvert ofan. Fréttaritari Tanjug ber fyrir þessu tilkynningaspjöld Rauðu varðliðanna sem hengd voru upp á götum úti í Shangai, en þar sagði að Kínaforseti hefði á ellefta þingi miðstjórnar kín- Verska kommúnistaflokksins, sem haldinn var í ágúst sl. verið leystur undan ýmsum embættis skyldum sínum. Ekki var nánar frá þessu skýrt, en það er mál manna að Liu Shao Chi muni nú ekki lengur vera forseti land- varnarráðsins og muni mestu hafa ráðið um það Lin Piao mar skálkur, sem nú eflist æ meir til valda í Kína. Þá sagði og í frétt Tanjug að nafn Liu Shao Chi hafi ekki birzt á ýmsum skjölum og til- kynningum nýverið þar sem ætla mætti að það myndi standa og er talið renna stoðum und- ir fyrrgreinda frétt. >að er mál manna að nú muni von tölu- verðra breytinga á valdahlut- falli æðstu manna í Kína er Kínaforseti hefur sett svo ofan. Wilson og Smith reyna til þrautar Gíbraltar og London, 3. desember NTB. HINUM háleynilegu viðræðum forsætisráðherranna Harold Wil- eons og Ian Smiths um borð í beitiskipinu „Tiger á Miðjarðar- hafi er enn ekki lokið, en um annað í sambandi við þessar síð- nstu viðræður þeirra var lítið vitað. Markmið viðræðnanna er að finna lausn á Rhodesiudeil- unni, en ekkert hefur síazt út, hvað forsætisráðherrunum hefur farið á milli og þarf að leita alla leið aftur til hinna leynilegu við- ræðna milli leiðtoga banda- manna í síðustu heimstyrjöld til þess að finna jafn eindreginn þagnarmúr um mikilvægar Þyilur bjnrga 18 fiskimönnum ' Tokyo AP. TVÆR rússneskar þyrlur björg- uðu á laugardaginn átján af tuttugu og þremur fiskimönnum, eftir að togari sem þeir voru á Btrandaði. Sovézk og japönsk •kip höfðu áður gert tilraunir til að bjarga mönnunum, en tókst ekki vegna þess hve slæmt var i sjó. stjórnmálaviðræður. í stuttri tilkynningu frá skrif- stofu Wilsons í London var skýrt frá því í nótt, að forsætisráð- herrarnir hefðu lokið viðræðum sínum á miðnætti aðfaranótt laugardagsins og myndu halda þeim áfram um morguninn. í fregn frá Moskvu segir að Rauðu varðliðarnir hafi mis- þyrmt syni eins af stofnendum kínverska kommúnistaflokksins, og var pilturinn svo illa hald- inn að hann gat sig hvergi hreyft. Nokkrir fleiri meiddust þegar þeir voru að reyna að bjarga honum. Tass-fréttastofan hermir að Li Pao-Hua formaður Framhald á bls. 31 manna kommúnista Macao, 3. desember. — AP YFIRVÖLD í Macao, hafnar- borg þeirri á Kínaströnd er enn telst nýlenda Portúgala, hafa nú sett þar útgöngu- bann frá og með kl. sex að staðartíma að afloknum mikl um óeirðum sem þar urðu í morgun og stóðu fram eftir degi. Óeirðir þessar urðu er kín- verskir stuðningsmenn kommúnista fóru fjölmenna mótmælagöngu til ráðhúss borgarinnar í morgun, réðust þar til inngöngu þrátt fyrir andspyrnu lögregluvarða við dyrnar, rifu niður af veggj- um myndir landstjóra Portú- gala fyrr á tímum og hentu út á götu ásamt bóka- og Skjalasafni landstjóræmibætt isins og lögðu eld í Lögreglulið var sent á vett- vang en mátti sán lítils gegn miúgnum og urðu margir illa úti í átökunum og sömuleiðis marg- ir lögreglu'bílar, er óeirðarsegg- ir skeyttu skapi sánu á þeim iika. Táragasi var dreift yfir Framhald á bls. 31. arnir allir dánir Pittsburg, 3. des. NTB. • FIMMBURARNIR — alN stúlkubörn — sem fædd- ust í Pittsburg sl. laugardag eru allir látnir. Létust f jórar telpnanna f jórum sólarhring- um eftir að þær fæddust og hin fimmta í gærkveldi. Frá sjómannaverkfallinu í Perú, fiskiskipin bundin við bryggju og aðgerðarlausir sjómennirn- ir ræða ástand og horfur. Nærri 500 milljón króna tap á verkfalli sjómanna í Perú Sjómenn reyna í fyrsta sinn að fá kjara- samninga við útgerðarmenn Lima, Perú, 2. des. — (AP) VERKFALL það, sem lam að hefur allan hinn þýðingar mikla fiskiðnað Perú, er nú komið á annan mánuð, og hafa samningsumleitanir eng an árangur borið. Um 20 þúsund fiskimenn, sem stunda veiðar við strend- ur Perú, lögðu niður vinnu í lok október, og kröfðust þess að aflaverðlaun þeirra yrðu hækkuð úr 80 í 115 soles af hverju tonni (þ.e. úr 130 krónum í kr. 186). Neit- uðu útgerðarmenn að greiða þessa hækkun. Ríkisstjórnin skarst í mál- ið og lagði til að aflaverð- laun sjómanna yrðu hækk- uð um 22 soles (kr. 35.-) á tonn. Þesari málamiðlun neit uðu bæði sjómenn og útgerð- armenn. Telja kunnugir að verkfallinu verði haldið áfram í að minnsta kosti viku enn. Sjómenn benda á að þeim hafi verið greiddir 80 soles í aflaverðlaun undanfarin tíu ár, og kominn sé tími til að hækka þau. Útgerðarmenn segja að allur hagnaður hafi runnið beint í að endurnýja skipakostinn og til að bæta útbúnað skipanna, sem hafi svo aftur aukið aflann, og þar með tekjur fiskimann- anna. Talsmenn fiskiðnaðar- ins segja að iðnaðurinn hafi tapað rúmlega 300 milljón soles (kr. 486 milljónir) á verkfallinu. Auk hækkaðra aflaverð- launa krefjast sjómenn einn- ig 3.000 soles lágmarkslauna á mánuði (kr. 4.860,-). Hafa sjómennirnir aldrei gert neina samninga um kaup og kjör við atvinnurekendur, og reyna það nú í fyrsta skipti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.