Morgunblaðið - 28.01.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, -i •s BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM SÍM' 1-44-44 \mium Hverfisgrötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingólfsstræti 11. Ha«stætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Hópferðabílar allar stærðlr Símar 37400 og 34307. Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga. Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gorðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. • Grallarasöngur Maður, sem kallar sig „einn af mörgum“, skrifar: „Úlfaþytur nokkur hefur orðið um erindi Andrésar Krist jánssonar, ritstjóra. Nokkuð hefur borið á því, að menn hafa snúið út úr orðum hans og reynt að (þyrla upp moki- viðri. Slíkt er oft háttur þeirra, sem vita, að þeirra eigin mál- staður er veikur. Hvers vegna má ekki halda sig að kjarna málsins? Það er á vitorði allra, að kirkjan hef- ur orðið viðskila við fólkið. Hún virðist ekki eiga djúp ítök í hug manna yfirleitt, og menn láta sig málefni hennar litlu skipta. Það er augljós stað- reynd, að henni hefur ekki tek izt að laga sig eftir smekk nú- tímamannsins. A. K. minnist á góðan, frjáls- legan söng sígildra sálma og laga og einnig nýja sálma og ný lög sem atriði, er myndu falla fólki vel í geð. Hann amast við hneigðinni til grall- arasöngs og einnig við íburði í messuskrúða. Nú vita allir ís- lendingar, að þetta tvennt eru ný fyrirbæri í íslenzkri messu- gerð. Hitt mun og vera á vit- orði flestna, a'ð sJikt er ekki llík- legt til að vekja andlegan áhuga fslendinga. Kirkjan á vitanlega að þjóna fólkinu í heild og hafa áhrif á hug ungra og gamalla. Góð húsmóðir miðar ekki mat- argerð sína fyrst og fremst við það, sem henni sjálfri þykir gott, heldur við smekk þeirra, er við borð hennar sitja. Skyldi ekki sama meginreglan stand- ast, þegar um andlega fæðu er að ræða? Ekki skildi ég orð A. K. svo, að hann væri að deila á guð- fræðistúdentana , þótt honum geðjaðist ekki að því, sem þeir voru látnir syngja. Slíkt er út- úrsnúningur. Almenningur, sem htýtt hefiur á passíusálmana í útvarpinu undanfarin ár, hefur ekki deilt á söngraddir þeirra, er kyrjað hafa passíusálmana undir grallaralögum. En fólk hefur lokað fyrir tæki sín til þess að losna við söng, sem því þykir með afbrigðum leiðinleg- ur og stundum misst af lestri sálmsins fyrir bragðið. „Ungu mennirnir, sem sungu með hljómi sins tíma, voru prestar kvöldsins", segir A. K. — Þ. e. þeir náðu til fólksins. FÉLAGSLÍF KR-ingar, skiðafólk! Farið verður í skálann laugardaginn 28. þ.m. kl. 13,00 og kl. 18,00 og sunnudaginn kl. 10,30. Gott skíðafæri og lyfta í gangi. Selt verður: Pylsur, gos, heitar súpur, kaffi og kökur. Stjórnin. Aðalfundur Fimleikafélags Hafnarfjarð- ar verður haldinn í Sjálfstæð- ishúsinu í Hafnarfirði þriðju- daginn 31. janúar n.k. Dag- skrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Stjórnin. hinir ekkL Þeir menn, sem kirkjusálm- um stjórna, hljóta að hafa áhuga á því að ná til fólksins. Það útheimtir að sjálfsögðu nokkra athugun og auðmýkt. Þeir þurfa að læra að skoða málið frá sjónarmiði hins aðil- ans og ekki einungis frá sínu eigin. Vera má að tiltölulega fáir kveði sér opinlberlega hljióðs um þetta mál, en eitt er víst: í meginatriðum túlkuðu orð A. K. hug fjöldans. Kirkjan og þeir, sem málum hennar stjórna, ættu að fagna því að kynnast skoðun fjöldans. Al- menningur kann að meta það, sem er blátt áfram og látlaust, laust við yfirlæti og tildur". • Óskabarnið Sjónvarpið St. D. skrifar: „Fvrir meira en hálfri öld var Eimskipafélag íslands tíð- um nefnt óskabarn þjóðarinn- ar, og var það rétt nefnt. Nú er íslenzka sjónvarpið tíð um nefnt svo, a.m.k. af þeim, er af eldlegum móði hafa bar- izt fyrir sjónvarpið, síðan fyrst það komst á dagskrá. Minnir baráttu-hiti þessara áhuga- manna á heitustu ræður for- ystumanna íslendinga í sjálf- stæðismáli þjóðarinnar, áður fyrr, þó óliku sé saman að jafna, m. k. að áliti okkar eldri mannanna. Og svo var mikill áhugi forgöngumanna sjón- varpsins og trúarkraftur í túlk- un málsins, að þeir kváðu komu sjónvarpsins stórkostlegasta sáluhjálparatriði fyrir þjóðina, er eygja mætti, svo að ekki mætti dragast ári lengur að byggja hér sjónvarpsstöð, þ.e.as. segja fyrir þéttbýlið á Suðvest urlandi, lengra náði áætlunin ekki í bili. Um fjárhagshliðina var lítið rætt á byrjunarstigi málsins, þó að enginn peningur væri handbær til framkvæmdanna, nema nokkur upphæð tolltekna af móttökutækjum, er keypt höfðu verið vegna Keflavíkur- sjónvarpsins. Treysta mátti, að þessar tekjur ykjust verulega, en hlutu þó að hrökkva skammt í þann kostnað, er standast þurfti. Engin leið þótti að bíða eðlilegan undirbúningstíma og eftir eðlilegri þróun málsins, svo sem nágranna-þjóðir vorar gerðu, — yfirbygginguna varð að reisa undan grunninum, aiinars „misstum við af stræt- isvagninum". Vita mátti þegar í byrjun, að fólkið í strjálbýl- inu, norðan heiða, vestan og austan fjalla, vildi ekki og gæti ekki beðið eftir, að þess sálu- hjálp yrði skömmtuð í margra ára áföngum. í upphafi skal endirinn skoða: Fjárhagsgrunninn þurfti að tryggja, áður en hafizt var handa um þetta risa-fyrirtæki. fslenzka sjónvarpið er með öllu því, sem því fylgir og fylgja ber: aðalstöð með skrifstofum og starfsfólki, nú yfir 30 manns og tvöfaldast brátt, fjöldi end- urvarpsstöðva um allar byggð- ir miiili ihárra fjalCa, í þröngum fjörðum og djúpum dölum, svo og viðtökutæki á 60—70 þús- und heimili, þegar í fyrstu lotu, — meira fjárfestingarfyrirtæki en nokkru sinni hefur verið til stofnað á landi hér. Og þetta er gert í miðri glímu við verð- bólgudrauginn. Um þetta tjóar ekki að fást. Við íslendingar hikum aldrei við smá-torfærur á fjármálasviðinu, og ef hand- bært fé skortir, þá er einfaldast að taka lán. Það hefur þó til þessa ekki verið hygginna manna háttur að taka stórfelld lán, nema til arðgaefra fyrir- tækja, en tímarnir breytast. Þegar fyrir síðustu jól var sam þykkt heimild fyrir sjónvarpið að taka að láni kr. 25 millj. til brýnustu þarfa. Sumir þing- menn töldu þörfina vera minnst kr. 100 millj., og er það sönnu nær. Það er hægt að bæta við seinna. Stofnkostnaðaráætlun virð- ist vera í molum. Fyrstu áætl- anir fyrir einu ári eru einskis nýtar, t. d. var þá afnotagjald- ið áætlað á ári kr. 15 sundruð, en hefur nú verið ákveðið 2400 krónur og þykir of lítið. Senni- lega verður fjárfestingin í stöðv um og viðtökutækjum minnst kr. 2500—3000 millj. Eru þá talin 60—70 þúsund viðtæki, og meðalverð þeirra h. u. b. kr. 30 þús. Segja má, að hver einstakl ingur sé sjálfráður um tækja- kaup, en þetta verður ekki svo auðveldlega aðskilið, þvi að til- vera sjónvarpsins og tekjur þess byggist á notendafjöldan- um, og það grundvallað á þjón ustu við þá. Allt þetta er fjár- festing, sem þjóðin öll verður undir að rísa, og kemur svo fram i auknum kaupkröfum allra stétta. Þó margir játi nú, að komast hefði mátt framhjá mörgum erfiðleikum, ef undirbúnings- tími að stofnum 'sjónvarpsins hefði verið t. d. þremur árum lengri, þá verður nú engu breytt um það. Fólkið í öllum byggðum landsins verður að fá jafna aðstöðu til sjónvarpsins. Kröfum fólksins verður að sinna án undandráttar, þó að til þess þurfi að taka ný og stærri lán. Vel ber að athuga, að jafnvægi í byggðum landsins raskist ekki meir en orðið er, og gera þarf enn betur en stöðva flóttann úr strjálbýlinu. Því verður að varast allt, er veitir einu byggðalagi betri að- stöðu en öðru til hvers konar lífsþæginda, sem menn kjósa sér. Annars er hættan, að strjál býlingar axli skinn sin og leiti þangað, sem eldarnir brenna skærar. Takmarkið á að vera spá skáldsins: Sveitirnar fyll- ast, akrar hylja móa. Fjár-hagserfiðleikar sjón- varpsins verða vafalaust yfir- stignir á næstu tímum og bætt fyrir bráðlætis-syndir, þegar lengri tímar líða. Öllum fjár- málaflækjum er ofar, að þetta glæsilega tæknitæki verði ein- göngu notað í þágu sannrar menningar, en þar með teljast skemmtiþættir, er þjóna sak- lausri gleðihneið manna. • Ágætar helgi- stundir Margir hafa skrifað um fyrstu göngu sjónvarpsins og dásama í einu og öllu vöxt og viðgang iþess. Fer það sem um önnur óskabörn, ást hylur lýti, þó að til séu. Annars má undir- strika flest það, er sagt hefur verið um ágæti sjónvarpsþátt- anna, er fluttir hafa verið til þessa, en þó hefðu sumir þeirra verið betur ósýndir. En flestir þættirnir voru ágætir, svo sem helgistundirnar, og reyndar um allar íslenzku myndirnar má segja hið sama, en algjör mis- tök að flytja sumar erlendu myndirnar. Sú hætta vofir yfir, þegar útsendingar-dögum verð ur fjölgað eins og ákvarðað er, að þá verði, vegna fátæktar á innlendum myndum og úrvals- efni erlendu, dagskráin fyllt með miður hollu efni, svo sem glæpamyndum og gömlum stríðsfréttum, eins og þegar hefur komið fyrir. Hernaðar- og hryllingsmyndir á alls ekki að sýna við arinn íslenzkra heimila. Flestir munu hafa hrifizt, er biskup íslands vígði kapellu sjónvarpsins. Biskupixm bað þess, að þessi glæsilega stofnun og undratækni yrði ætið og eia vörðungu notuð í þjónustu göf- ugra málefna — sannrar menn- ingar. Undir þá bæn hljóta állir vel hugsandi og heilskyggnir menn að taka heilshugar. Eink- unnarorð sjónvarpsins skulu vera: Einungis bezta, göfgandi efni. Það má ekki bregðast, Vonandi verður stjórn íslenzka sjónvarpsins minnug orða og bæna biskupsins. St. D # Sjónvarpið á Selfossi Selfossi, 22/1. 1967. Kæri Velvakandi. Viltu vera svo góður að birta bréf þetta fyrir mig? Forrráða- menn íslenzka sjónvarpsins: Er það rétt, sem við álítum hér á Selfossi, að það sé Eyrbekking- um að kenna, hve illa er hugs- að um endurvarpsstöðina hjá þeim? Útsendingar hefjast oft- ast þaðan 2 tímum fyrir dag- skrá og standa yfir til mið- nættist t. d. 18. janúar var 3 tíma dagskrá kl. 20.44 — 23.00, en útsending frá Eyranbakka stóð yifir í 6 tima eða frá k'L 18.00 — 24.00. Er einhver ein- ræðisfrú eða herra á Eyrar- bakka, sem á að sjá um endur- varpsstöðina, eða er hún e. t. v. í sambandi við klukku, sem er stillt á ákveðinn tíma? Ef það skyldi nú vera það rétta, þá umfram allt fáið ykkur klukku, sem hægt er að stilla á korter fyrir og eftir dagskrá og ein- hverja mannveru, sem getur séð um að hún gangi rétt. Við, sem vorum vön að horfa á Suð- urnesjasjónvarpið, viljum fá að halda því áfram, t. d. að sjá síðustu mynd þaðan, sem byrj- ar kl. 24.15, einmitt þegar ís- lenzka dagskráin er búin, en það getum við ekki nú, því að endurvarpsstöðin tekur alveg fyrir aðrar útsendingar. E. t. v. álítið þið í höfuðborginni eða á Eyrarbakka okkur Selfossbúa svo seinvirka, að við þurfum tvo tíma til að snúa við einum takka á sjónvarpi, en ég get fullvissað ykkur um, að við teljum okkur geta afkastað því á styttri tíma, og þó að ís- lenzka stillimyndin sé falleg og frábærlega vel valin, getum við vel verið án hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.