Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967.
17
Frá aðalfundi Arki-
tektafélags íslands
AÐALFUNDUR lélagsins var
haldinn í lok janúar sl.
Fór þá fram stjórnarkjör og
fráfarandi stjórn gerði grein
fyrir starfi síðasta árs og helztu
verkefnum félagsins.
Á síðasta starfsári var stofn-
aður Lífeyrissjóður Arkitektafé-
lags íslands, þótt enn sé félagið
fámennt. Er lífeyrissjóður þessi
byggður upp á all nýstárlegan
hátt og var það verk unnið af
Þóri Bergssyni, tryggingafræð-
ing, en til ráðuneytis stjórninni
voru einnig lögfræðingur félags-
ins, Guðmundur Ingvi Sigurðs-
son og Kr. Guðmundur Guð-
mundsson, tryggingafræðingur.
Er t.d. í fyrsta sinn hér á landi
gefinn möguleiki á sjúkratrygg-
ingu.
Unnið hefur verið að því, að
fá starfssvið arkitekta betur skil
greint og starfsheitið virt.
Er all undarlegt ástand þeirra
mála hér á landi. Starfsheitið er
lögverndað síðan árið 1936 og
geta þeir einir borið það, sem
ráðherra hefir veitt leyfi til þess,
og hafa lokið prófi frá háskóla,
sem er viðurkenndur af alþjóða-
samtökum arkitekta og Arki-
tektafélagi íslands. Starfssvið
arkitekta er aftur á móti ekkert
verndað, og er þetta líklega ein
af mjög fáum starfsgreinum,
sem ekki njóta lagaverndar hér.
Er þetta enn furðulegra, er hugs
að er til þess, hvert verksvið
arktitekta í raun og veru er.
Arkitektar eiga að forma og
mynda allt okkar daglega um-
hverfi. I>eir hafa stundað nám
frá 5 og upp í 10 ár við háskóla
til að geta, á sem hagnkvæmast-
an og fegurstan hátt, teiknað hús
okkar og híbýli, skipulagt bæja-
hverfi eða heilar borgir, hjálpað
okkur við efnisval og fram-
kvæmd bygginga' og verða oft
að umskapa náttúrunna um-
hverfis okkur.
Arkitektinn hefir þannig hönd
í bagga með formun alls þess
umhverfis, er við verðum að
hrærast í, allt okkar jarðneska
líf.
Þetta starf er talið nær ölllum
fært án fullkominnar menntun-
ar eða reynslu, þótt undaríegt
megi virðast, en mjög nákvæm
og ströng lög eru til um það,
hverjir megi klippa hár á höfði
okkar, eða mála forstofunna, og
hverja menntun slíkir skuli hafa.
Er það þó stærstur liður í
menningarsvip hverrar þjóðar,
hvernig hún byggir upp borgir
sínar og byggð, og skapar þegn-
um sínum fagurt og hagkvæmt
umhverfi.
Meginstarf félagsins er því og
verður, að skapa skilning al-
mennings og stjórnarvalda á
mikilvægi starfsgreinar okkar og
stöðugt að vera á verði, að
hvergi slaki félagsmenn á kröf-
um þeim til sjálfs sín, er starfs-
heitið ber í sér.
Var á aðalfundinum gerð sam-
þykkt um, að fela menntamála-
nefnd félagsins, að kanna mögu
leika á því, að komið yrði á fót
starfsréttindaprófi fyrir arki-
tekta hér.
Yrðu þá allir arkitektar, er
heim koma að loknu námi, að
starfa hér á landi í minnst t.d.
eitt ár og ganga á námsskeið í
byggingalögum og reglum lands
ins. Einnig yrðu fluttir fyrirlestr
ar af færustu mönnum, um sér-
kenni íslenzkrar veðráttu, bygg-
ingahætti landsmanna nú og til
forna o.s.frv. Yrði síðan að lokn-
um þessum tíma próf, er veitti
mönnum full starfsréttindi.
Telur félagið að námsskeið
sem þetta og kynningar- og
reynslutími, myndi enn frekar
tryggja hæfni þeirra, er bera
arkitektheitið, til að leysa hvers
kyns verkefni innan starfssviðs
þeirra hér á landi, og vekja
traust á stéttinni.
Félagið hefur um nokkur ár
rekið byggingaþjónustu í húsa-
kynnum sínum að Laugavegi 26.
Sýna þar ýmis framleiðslu- og
innflutningsfyrirtæki bygginga-
vörur og heimilistæki.
Starfsmaður félagsins, Ólafur
Jensson sér einnig um rekstur
byggingaþjónustunnar og gefur
hann upplýsingar um byggingar-
efni, leiðbeinir fólki í vali og
leitar tilboða fyrir arkitekta.
Geta þeir, sem eru í bygginga-
hugleiðingum og þeir, sem í
byggingaframkvæmdum standa,
séð þarna á einum stað mikið úr
val byggingaefna og heimilis-
tækja, og aflað sér um leið ým-
issa upplýsinga. Er það von fé-
lagsins að bæði fyrirtæki og al-
menningur mæti þessu starfi
með skilningi, og noti sér þessa
þjónustu til fullnustu;
Gunnlaugur Halldórsson hefir
verið formaður Byggingaþjónust
unnar frá upphafi og var aðal
hvaðamaður að stofnun hennar.
Með honum í stjórn eru Gunn-
laugur Pálsson og Skúli H.
Norðdahl.
Arkitektum hefir fjölgað mjög
nú síðustu ár og eru félagar í A.
í. nú 48, en voru aðeins 25 árið
1957.
Félagið varð 30 ára á sl. ári
og er nú mikill hugur í félags-
mönnum að koma upp eigin hús-
næði, á hentugum stað, yfir
Byggingaþjónustuna, og aðra
starfsemi félagsins. Treystum við
nú á borgaryfirvöldin um að-
stoð við útvegun lóðar á góðum
stað fyrir slíka starfsemi.
Stjórnarkjör fór fram á aðal-
fundi félagsins, eins og áðúr get-
ur. Manfreð Vilhjálmsson for-
maður félagsins og Þorvaldur
S. Þorvaldsson ritari höfðu starf-
að í stjórn félagsins í tvö ár og
gengu því úr stjórn. En gjald-
kerinn Vilhjálmur Hjálmarsson
var kjörinn á síðasta ári til
tveggja ára.
í stjórn Arkitektafélags Is-
lands sitja nú:
Guðmundnur Þór Pálsson for-
maður.
Ólafur Sigurðsson ritari.
Vilhjálmur Hjálmarsson gjald
keri, og sjálfkjörinn sem með-
stjórnandi, fráfarandi formaður
Manfreð Vilhjálmsson.
Eins og komið hefur fram í
fréttum hefur ríkið keypt Við-
eyjarstofu og nánasta umhverfi
af landi Viðeyjar og er ráðgert
að bjarga þesssum menningar-
verðmætum snarlega.
Fagna arkitektar þessu fram-
taki og óska allri þjóðinni til
hamingju með að hafa eignazt
aftur eitthvert merkasta hús,
sem nú stendur hér á landi, bæði
vegna aldurs síns, sögulegra og
arkitektóniskra verðmæta.
Þ. S. Þ.
Hjúkrunarkona óskast
að sjúkradeild Hrafnistu. — Upplýsingar í síma
30230 og 36380 milli kl. 10 — 12 og 1 — 3.
Veljið yöur
VALIANT 1967
PLYMOUTH VALIANT 1967 er glæsilegur
bíll, útbúinn öllum fullkomnasta öryggis-
útbúnaði sem völ er á.
PLYMOUTII VALIANT er óskadraumur
ökumanna sökum gæða og glæsileika.
PLYMOUTH VALIANT er til afgreiðslu
strax í þrem mismunandi gerðum.
VALIANT er emersíki bíllinn sem farið
hefur sigurför um Evrópu.
Veljið yður VALIANT 1967 fyrir vorið.
Chrysler-umboðið Vökull hf.
Hringbraut 121, Sími 10600.
jnn Rafmagnstalkn
Höfum fyrirliggjandi
200 — 400 — 500 og 1000 kg.
rafmagnstalíur
Útvegum stærri talíur með
stuttum fyrirvara.
Laugavegi 15,
sími 1-16-20
og 1.33-33
Toyota crown
Tryggið yður Toyota.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
WILT0N
AXMINSTER
WILT0N
AXMINSTER
WILTON
AXMINSTER
WILT0N
AXMINSTER
WILT0N
AXMINSTER
G0LFTEPPAGER1IIN
H
JOST
SKÚLAGÖTU 51, SIMÍ 23570
40% afsláttur af Barbí-fötum Mikið úrval
Aðalstræti — Nóatúni — Grensásvegi