Morgunblaðið - 10.03.1967, Side 1

Morgunblaðið - 10.03.1967, Side 1
54. árg. — 57. tbl. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins 4. þotuslysið á tæpri viku — 125 hafa farizt Urbana, Ofhio, 9. marz. — AP-NTB. — BANDARÍSK þota a£ gerð- inni DC-9 frá flugfélaginu TWA fórst í Urbana, Ohio, í dag og með henni allir sem í henni voru, 21 farþegi og 4 manna áhöfn. Er þetta fjórða þotuslysið á tæpri viku, en um síðustu helgi fórst DC-8 þota í Líberíu og Convair- þota 50 mílur frá staðnum, sem slysið varð á í dag. Þá Kanadíska strandferðaskipiö Fort Lauzon hefur setið fast viö bryggju í höfninni í Montreal, Kanada, undanfarinn hálfan mánuð vegna ísa, eins og sjá má á mynd þessari. Miklar vetr- arhörkur hafa verið á þessum slóðum að undanförnu, og sigi- ingar oft stöðvast algjörlega. Krupp í kiöggum Essen, 9. marz. NTB. LJÓST er nú að fjárthagsvand- ræði Krupp-sams.teypunnar eru meiri en talið var í fyrstu. Eins og áður hefur verið sagt frá í fréttum hefur v-þýzka stjórnin nú gengið í ábyrgð fyrir 300 milljón marka láni samsteypunni til handa, en nú er Krupp að reyna að semja við yfirvöld í Westfalen um viðbótartryggingu að upphæð 150 milljónir marka. fórst önnur Convair-þota í Pakistan í fyrradag. — Alls hafa farizt 125 manns í þess- um flugslysum, en 30 kom- ust lífs af í Líberíuslysinu. Þotan var á leið frá New York til Chicago og átti að millilenda í Pittsburg, Dayton og Harris- borg. Ekki er vitað um orsakir slyssins, en mjög fáir sjónarvott- ar voru að því. Kona nokkur sem býr nálægt slysstaðnum sagðist hafa heyrt hávaða eins og um jarðskjálfta væri að ræða, en vélin hrapaði til jarðar um hálfa mílu frá heimili hennar. Sjúkraliðsmenn, sem komu á staðinn skömmu seinna sögðu að enginn hefði komizt lífs af, en lík og brot úr flugvélinni voru dreifð yfir 4 mílna svæði. Þotur af gerðinni DC-9 eru yfirleitt notaðar á styttri flugleiðum og geta flutt 70 farþega. Tiltölulega stutt er síðan þær voru teknar í notkun. Uppreisnarti!- raun á Miö-Jövu Djakarta 9. marz AP-NT9B. BL.ÓÐHG átök urðu í olíubæn- um Blora á Mið-Jövu er komm- únistar í bænum gerðu uppreisn artilraun, 80 uppreisnarmenn féllu og margir stjórnarher- manna áður en uppreisnarmenn voru yfirbugaðir. Foringi upp- erisnarmanna var Embah Suro Bjarni Benediktsson, forsœtisrádherra í merkri ræðu á Alþingi í gœr: Ahrif okkar í alþj.málum byggjast á eigin athöfnum — Að við virðum alþjóðalög og rétt — Lýðrœðisþjóðir bundnar í bandalag til verndar friði — Atlantshafsbandalagið hefur skapað bstri friðarhorfur og því ber að efla það I f ÍARLEGRI og merkri ræöu, sem Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra flutti á Alþingi í gær sagði hann m.a.: Við íslendingar eigum að láta alþjóðamál til okkar taka. Við eigum að reyna að hafa áhrif á stórveldin eftir því sem við getum. En það er á, að galli millistríðsáranna fyrst og fremst von til þess, frá 1918-1939 hefði verið sá, ef við sjálfir gerum okkur að lýðræðisríkin höfðu ekki grein fyrir okkar eigin skyld- víðsýni og dug til þess að um, ef við bregðumst henni hafa bandalag sín á milli. Það ekki og ef við gætum þess sjálfir í okkar athöfnum að koma þannig fram, að virða alþjóðalög og rétt og hafa í þeim efnum fagurt fordæmi fyrir þeim sem stærri eru“. | Þá benti forsætisráðherra Atök í Kanton -170 falla Mao-sinnar í Peking sameinast Hong Kong og Peking, 9. marz IIM 170 manns eru sagðir hafa fallið í átökum sem urðu i fyrri viku borginni Fat Shan, um 160 km. suðvestan Kanton, milli rauðra varðliða og opinberra embættismanna í borginni. Frétt in er höfð eftir Hong Kong- biaðinu „China Mail“, sem gef- jð er út á ensku og segir þar að mikið hafi verið um her- fiutninga undanfarið í og um- hverfis Kanton og oft slegið þar í brýnu en miklu mest átök hafi orðið þar sl. föstudag. Dagblaðið byggir frétt sína á frásögnum ferðalanga sem kom iö hafa til Hong Kong frá hér- aðinu umhverfis Kanton. Segja þeir að mestu átökin hafi orðið á föstudag í fyrri viku, er 2000 rauðir varðliðar lögðu til at- lögu gegn aðalstöðvum komm- únistafloksins í Fat Shan, þar sem 600 manns voru að vinnu. Fréttaspjöld sem hengd voru upp í borginni daginn eftir sögðu að 170 manns hefðu fallið í átök unum. Annað blað í Hong Kong, hlynnt þjóðernissinnum, sagði í dag að yfir 50 rauðir varðlið- ar hafi farizt í sprengingu sem varð í höfuðstöðvum varðlið- anna í nágrenni Kanton í fyrra mánuði. „Parísarkommúnin" fallin. Fregnir frá Peking herma að ný nefnd hafi verið skipuð sem fara á með mál þau er falin voru „Parísarkommúninni" sem stofnuð var þar fyrir þrem ur vikum og hefur nú verið leyst þar upp. Á hin nýskipaða nefnd að hafa samvinnu við ör- yggisnefnd hersins, sem fer með 1 öryggismál í borginni og við ' settan borgarstjóra Peking, Wu Te, sem við tók að Peng Chen, þeim er rauður varðliðarnir viku úr embætti svo sem sagt var frá í fréttum þá. Svo virð- Framhald á bls. 24 Bjarni Benediktsson er til að forðast þá ógæfu, sem seinni heimstyrjöldin var og Hitler og Stalin hleyptu á stað, að lýðræðis- þjóðirnar og þar með Islend- ingar eru bundnir í bandalag til þess að vernda friðinn, sagði Bjarni Benediktsson. Á Framhá bls. 2ll andartrúarmaður, sem sagðist búa yfir dulrænum hæfileikum sem gerðu það að verkum að byssukúlur ynnu ekki á sér. Suro var fyrstur uppreisnar- manna skotinn til bana. Atburð- ur þessi átti sér stað fyrir fjór- um dögum. Þingið í Jakarta hélt í dag áfram umræðum sínum um mála Súkarnós forseta. Varð for setinn fyrir hörðum árásum og er mikill meirihluti þingmanna hlynntur tillögu um að svifta forsetann völdum þegar í stað og höfða mál á hendur honum vegna þátttöku hans í uppreisn- artilraun kommúnista 1965. Að- alstjórnendur hersins í landinú vilja hinsvegar að forsetinn haldi áfram embætti sínu að nafninu til og án valda, sem hann hefur nú haldið í 22 ár. Miklar æsing- ar eru meðal stúdenta í Dja- karta og stúdentar utan af lands byggðinni flykkjast til borgar- innar eftir að þingið hóf að fjalla um mál forsetans. Óttast er að til alvarlegra ó- eirða kunni að koma í Djakarta ef þingið samþykkir ekki að svifta Súkarnó völdum, en stúd- entar hafa verið hörðustu haturs menn hans. Auk’nn stuðnlngui v!3 lundkúnuðinn Kaupmannahöfn, 9. marz NTB. FULLTRÚAR dönsku landbun- aðarsamtakanna hafa nú hafið viðræður við ríkisstjórnina um aukinn stuðning hins opinbera við landbúnaðinn. Framlag ríkis ins er nú 360 milljónir danskra króna, og talið er að landbún- aðarsamtökin óski eftir að það verði hækkað í 600 millj. Kröfum samtakanna fylgja samanburðarskýrslur, sem sýna að meðaltekjur dansks bónda eru um 24.500 krónur á ári, en | meðal verkamannatekjur um kr. 29.000. Við framlengingu kjara- samninga verkamanna fá 400 þúsund verkamenn samtals á næstu tveimur árum um 800 milljón króna kaupthækkanir. Með það í huga þykir fulltrúum landbúnaðarins sanngjarnt að 150 þúsund bændur fái um 300 milljón króna kjarabætur á sama tíma. %

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.