Morgunblaðið - 10.03.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
•g kr. a,50 á ekinn km.
SENDUM
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftirlokonsimi 40381
1-44-44
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 3116ö.
LITLA
bílaleigan
Insólfsstrseti 11.
Hagstætt leiguirjald.
Bensín innifaliö í leigugjaldi.
Sími 14970
BILALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f ,—-+-»mtuu.r/KA0t
IpÆÍLeff&F
BAUOARARSTlG 31 SlVII 22022
snuufl TÍMA 2CflC FYBHHtFN
22-1-75
Hópferðabilar
ullar staerðir
Fjaðrir, fjaðrablöð. bljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
j margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Uufavefl 168. — Simi 2418*.
GÓLFTEPH
WILTON
TEPPADREGLAK
TEPPALAGNIK
EFTIR MÁU
iLauöavegi 31 - Simi 11822.
★ Lýsið
Fávís skrifar:
„Kæri VTvakandi.
í Morgunblaðinu 28. febrúar
er grein frá Flatabúa um verð-
hækkun á lýsL Virðist Flata-
búi draga í efa að um réttmæta
hækkun sé að ræða. Svargrein
frá Lýsi H.F. birtist svo í Vel-
vakandagrein L marz. >ar
segir svo: ,Jtom í ljós að gæð-
um lýsisins hrakaði svo í 323
gramma umbúðum að síðustu
5-—6 skeiðarnar voru tæpast
neyzluhæfar vegna þráa ef að-
eins var tekin ein skeið á dag“.
Þetta hef ég ekki heyrt einn
einasta lýsisnotanda kvarta um
og hefi ég þó selt sama fólkinu
lýsi aftur og aftur undanfarin
ár. Er þetta ekki full bráðlát
„betri“ þjónusta við fólkið?
Því ekki að gefa neytendum
nægan tíma til þess að kynna
sér geymsluþol lýsins og bera
svo fram sínar kvartanir og
óskir til úrbóta ef þeim fannst
ástæða til?
Verðhækkun lýsisins er úr
(325 grömm á kr. 15,00) 4,6
aurum grammið í (220 grömm á
kr. 15,00) 6,8 aura grammið eða
48% auk þess eru umbúðir
ekki teknar til baka nú eins og
áður. Raunveruleg hækkun á
lýsinu verða því yfir 50%.
Þetta er lítt skiljanlegt og
mjög leiðinlegt fyrirbrigði sér-
staklega þegar upplýst er að
hækkun þessi stafar ekki af
hækkun hráefnis eða hækkuð-
um vinnulaunum heldur aðeins
vegna dýrari umbúða. Er þetta
að verða tákn tímanna að
leggja meira upp úr umbúðum
en innihaldi.
Góðskáldið Steingrímur TTior
steinsson stórskáld okkar ís-
lendinga sagði: „heldur leirugt
geí mér gull en gyUtan leir“.
Fávís.“
Jafnir fyrir
lögunum
Hannas Jónsson skrifar:
„Ég má brjóta lögin eins
og hinir“, sagði vinur minn,
smákaupmaður, er lögreglan
heimsótti hann., Þessi vinur
minn hafði galopna búðina og
verzlaði af fullri orku, rétt eins
og stéttarbróðir hans ofar við
götuna hefir á hverju kvöldi
fram á nótt, jafnvel á sunnu-
dögum líka. Vitanlega var vin-
ur minn ekki sektaður frekar
en þeir sem gera eins, eða trolla
í landhelgi, þó báðir séu að
stela frá þjóðfélaginu og með-
bræðrum sinum.
Ég hefi jafnvel heyrt, að helj-
armikil sjálfsafgreiðslubúð, sem
nær væri að nefna þjófagUdru,
sé nýlega stofnuð með hvers-
konar matvörur í þéttbýlu
hverfi. Og það í algeru óleyfL
Enginn segir neitt.
TU hvers er borgarstjómin
að setja lög um lokun sölubúða,
ef hverjum ágjörnum frekju-
gikki liðst að brjóta þau, og
með ósvifni líðst að ná tU sín
viðskiptum, sem öðrum ber?
Og því er lögreglunni ekki falið
að halda uppi lögum og reglu
skilyrðislaust, og án aUra und-
anbragða?
Þetta kvöldhokur er kölluð
þjónusta, en tUgangurinn er að
ginna peninga út úr hrekk-
lausu fólki og óþroskuðum
unglingum. Það er engin þörf
fyrir kvöldverzlunina. Ef ein-
hver gleymir að kaupa nauð-
synjar, ber hann sjálfur ábyrgð
á þvL Hann gleymir því ekki
næsta dag.
AUir gera kröfur um styttan
vinnudag, verkamenn niður í
44 tima, jafnvel 40, skrifstofu-
menn í 38, og embættismenn í
35 tíma. En sömu menn vilja
láta smákaupmenn vinna tvö-
faldan vinnutíma, það þykir
sanngjarnt. Og þó þekki ég það
af reynslu, að smákaupmaður-
inn ber ekki meira úr býtum
í árslaun, heldur en vel settur
verkamaður, eða meðal iðnað-
armaður. Ég hefi 60 ára reynslu
sem verzlunarmaður, og veit
hvað ég er að segja.
Og nú er óhætt fyrir alla al-
þýðu að sýna ítrustu gætni.
Kreppan er byrjuð og atvinnu-
leysi í aðsigi. Langvinnt kulda-
tímabil er hafið, með hörkum
og fiskileysi, er því fylgir. Við
búum á íslandL
Allir þegnarnir bera ábyrgð
á þjóðfélaginu, að allir séu
jafnir fyrir lögunum, og lögum
og regluxn sé hlýtL Ég efa ekki
vilja lögreglunnar til að gera
skyldu sína, en borgarstjórnin
á líka að gera sína skyldu,
koma lagi á kvöldverzlunar for-
smánina.
Hannes Jónsson.“
Mannbroddar
Frá Akureyri er skrifað:
„Velvakandi góður.
Þegar ég áðan heyrði aðvör-
un lögreglunnar í Reykjavík til
gangandi fólks um að fara nú
varlega í hálkunni, datt mér i
hug, að hér áður fyrr, eða fyrir
40 til 50 árum var hálkan
ekkert vandamál. Þá áttu
flestir mannbrodda. Ég reikna
með, að mannbroddar hafi
einnig verið notaðir í Reykja-
vík í þá daga, svo að þú þekkir
þá sjálfsagt. — Nú, eftir að búið
er að malbika flestar götur hjá
ykkur er útilokað að nota mann
brodda. En enginn vafi er á, að
lítill vandi væri að breyta þeim
þannig, að þeir hvorki rispuðu
malbikið eða væru óþægilégir
til göngu. — Nú er ekki sjálf-
sagt, að þetta tæki, sem menn
spenntu neðan á skóna eða
festu á sólana, sé með broddum,
heldur að það stemmi við hálk-
unnL
Viltu nú ekki gera mér þann
greiða að stinga þessu að ein-
hverjum hugvitsömum iðnaðar-
manni og fá hann til að fara að
gera tilraunir með þetta, og svo
hefja framleiðslu á ódýru tæki
til að forða mönnum frá að bein
brjóta sig vegna hálku eða ísi-
ingar. — Kannske er hægt að
framleiða plast eða gúmmiplöt-
ur það stamar, að þær dygðu 1
hálkurtni spenntar neðan á
skóna. —
Það er ekki vafi á að margar
einfaldar leiðir eru út úr þess-
um hálku vandræðum. Það þarf
bara að fara að gera tilraunir
með þetta, og ekki vantar ykk-
ur hálkuna til tilraunanna, eft-
ir því sem heyrzt hefir í út-
varpinu í vetur.
Jafnvel mætti hugsa sér að
framleiddar yrðu sérstakar
hálku-skóhlífar.
Með vinsemd,
D. T.“
Skrifstofuhúsnæði
350—450 ferm. skrifstofuhúsnæði óskast
til kaups. Þarf að vera laust sem fyrst.
Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 16. þ.m.
merkt: „Teiknistofur — 8952“.
Til sölu
Höfum verið beðnir að selja Daf-bifreiðar
árg. ’64—’66. — Upplýsingar í síma 24000.
O. Johnson & Kaaber hf.
Sætúni 8, Reykjavík.
Húsgögn —
Innréttingar
Hin margeftirspurðu skrifborð úr tekk
fyrir unglinga og námsfólk eru nú fyrir-
liggjandi aftur. Einnig sjáum við um
fyrirkomulag og smíði í íbúðir fyrir ein-
staklinga og húsbyggjendur.
ATH.: Valið efni — vönduð vinna.
G. Skúlason & HlíÖberg hf.
Þóroddsstöðum.
Vagnar
Pallstærð 8x155 cm.
Mjög hentugir fyrir frystihús og
fiskverkunarstöðvar.
Blikksmiðja Ágústar GuÖjónssonar
Keflavík — Sími 1861.