Morgunblaðið - 10.03.1967, Page 5

Morgunblaðið - 10.03.1967, Page 5
MOR-GUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1967. 5 : ■ Inga, Jóhann og Sveinn. (Lj >sm. Ól. K. M.) Mest gaman að heyra hláturinn í fullorðna fólkinu Yngstu leikararnir í „Kubb og Stubb" heimsækja Morgunblaðið BARNALEIKRITIÐ Kubb ur og Stubbur eftir Þóri S. GuSbergson hefur verið sj'nt í Iðnó frá því um mánaðamót desember- janúar. Hefur verið upp- selt á hverja sýningu og leikritinu verið vel tekið bæði af börnum sem full- orðnum. Morgunblaðið fékk einn daginn heim- sókn af þrem börnum, sem í leikritinu leika, þeim Ingu Dóru Björnsdóttur, 14 ára, Sveini Árnasyni, 15 ára, og Jóhanni Guðnasyni, 14 ára. Þessi börn leika öll stór hlutverk í leikrit- inu, Inga leikur Lilju, sem er systir Smára, sem Sveinn leikur. Þau Lilja og Smári eru systkin, börn „Pabba og Mömmu“, sem búa í sveitinni. Jóhann leikur frænda þeirra syst- kina, sem Láki heitir og er úr Reykjavík. Láki dvelst hjá frændsystkinum sín- um, þegar leikurinn gerist. — Kubbur og Stutobur, hverjir eru það? — Það eru flækingar, segja börnin. Þeir eru leiknir af Borgari Garðarsyni og Kjart- ani Ragnarssyni. Þeir eru að- alleikararnir í leikritinu. — En ykkar hlutverk eru líka stór? — Já, og við leikum öll jafnmikið. Við erum inni á sviðinu alltaf nema í öðrum þætti. Við spyrjum börnin, hvort þau hafi leikið áður. — Nei, ekki opinberlega, bara á skemmtunum í skól- anum. (Börnin eru'nemendur í Hlíðarskólanum, þar sem Þórir, höf. leikritsins, kennir þeim islenzku). — Finnst ykkur erfitt að leika? — Nei, það var erfitt á með an verið var að æfa, en nú er það ekkert erfitt lengur, bara gaman. Við spyrjum, þau, hvort þau haíi í hyggju að gerast leik- arar „þegar þau eru orðin stór“. Herramennirnir segjast lítið vita um það enn sem komið er, en Inga segir að það geti vel verið. Hún er nú í leiklistarskóla Brynju Bene- diktsdóttur, sem sl. haust hóf leiklistarkennslu. — Hvað finnst ykkur skemmtilegast í sambandi við flutning leiksins? — Það er mest gaman að því, sem gerist út í sal, segir Sveinn. Það er svo gaman að heyra hláturinn í fullorðna fólkinu, það hlær mest. — En hlægja ekki börnin líka? — Jú, börnin hlægja þegar eitthvað sérstakt kemur fyrir, segir Jóhann, en fullorðna fólkið skemmtir sér konung- lega allan tímann. — Eruð þið yngstu leikar- arnir í leikritinu? — Já, af þeim sem leika eittihvað. Yngri krakkar en við, úr ballettskóla, koma fram sem álfar. — Er ekki tímafrekt fyrir ykkur að leika svona með skólanum? — Nei, það tekur engan táma frá náminu. Meira að segja þegar æfingarnar voru sem mestar, lærði maður bezt. Tímaþröngin gerði, að maður varð að nota hverja mínútu. — Hvað er leikritið sýnt oft í viku? — Fyrst þrisvar i viku, siðar tvisvar, en nú ekki npma einu sinni um helgar og það hefur allt- af verið uppselt. — Hvað stendur leikurinn lengi yfir? — í tvo tíma. — Hefur eitthvað sérstakt gerst meðan á sýningu stóð? Börnin hugsa sig nú um stutta stund, síðan segir Inga: Einu sinni rifnuðu buxurnar niður um Kubb, sem þá fór allur hjá sér, og áhorfendur ráku upp skellihlátur. — Krakkarnir kölluðu þá „HANN ER MEÐ GAT Á RASSINUM, HANN BR MEÐ GAT Á RASSINUM, segir Jóhann. — Hafa ekki undirtektir verið mjög góðar? — Jú, segja börnin öll í kór. Þær hafa verið mjög góðar. — Stundum meira að segja truflandi, segir Sveinn. Og þessi skemmitilegu börn kveðja okkur hérna á Morg- untolaðinu, halda heim, þar sem skólabækurnar bíða þeirra, og á laugardaginn (11. marz) eiga þau að leika aft- ur. iwœm? Sérverzlun til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu sérverzlun við fjölfarna götu í Miðbænum. Miklir möguleikar fyrir mann er vill skapa sér sjálfstæða atvinnu. Tilboð merkt: „Sérverzlun — 8950“ leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 15. marz n.k. !------------------------- Rýmingarsala — húsgögn Seljum með MIKLUM AFSLÆTTI næstu daga SÓFASETT með 3ja og 4ra sæta sófum. SVEFNBEKKI, STAKA STÓLA, SVEFNSTÓLA og fleira. HVERFISGÖTU 7 4. BÓLSTRARINN Bólstruð Ritari óskast í Landspítalanum er laus staða læknaritara. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf, ásamt upplýsingum um, hvenær viðkomandi geti hafið störf, óskast sendar skrifstofu ríkisspitalanna, Klapparstíg 29, fyrir 20. marz n.k. Reykjavík, 9. marz 1967. Skrifstofa rikisspítalanna. Skyndisala 10 til 50% afsláttur af öllum vörum næstu daga. Teipna og drengjaúlpur 1 til 10 ára. Telpnakjólar 1—14 ára. Telpnablússur, telpna- og drengjanáttföt og m. fl. Barnafataverzlunin LÓAN LAUGAVEGI 20 B. (Gengið inn frá Klapparstíg móti Hamborg). ALLT MEÐ EIMSKIP A NÆSTUNNI ferma skip vor til íslands sem hér segir: ANTWERPEN: Bakkafoss 16. marz. Seeadler 25. marz. Mánafoss 4. ápríl. ** HAMBURG: Goðafoss 13. marz. Bakkafoss 20. marz ** Skógafoss 22. marz. Askja 30. marz. Goðafoss 11. apríl. Bakkafoss 17. apríl. ** Skógafoss 20. apríL ROTTERDAM: Marietje Böhmer 16. marz** Askja 28. marz. Goðafoss 7. apríl. Bakkafoss 15. apríl. ** Skógafoss 17. april. LEITH: Gullfoss 17. marz. Gulifoss 7. apríl. LONDON: Mánafoss 10. marz. ** Marietja Böhmer 20. marz. Seeadler 28. marz. Mánafoss 7. apríl ** HULL: Skip 13. marz. ** Marietje Böhmer 23. marz. Seeadler 31. marz. Mánafoss 10. apríl. ** NEW YORK: Brúarfoss 17. apríl. Tungufoss 31. marz. * Selfoss 14. apríl. Brúarfoss 28. apríl. GAUTABORG: Fjallfoss 20. marz. ** Reykjafoss 12. apríl. Fjallfoss 26. apríl ** KAUPMANNAHÖFN: Reykjafoss 14. marz ** Gullfoss 15. marz. Gullfoss 5. apríl. Fjallfoss 24. apríl. ** KRISTIANSAND: Fjallfoss 21. marz. ** Reykjafoss 13. aprí. Fjallfoss 27. apríl. ** BERGEN: Fjallfoss 22. marz. ** Fjallfoss 29. apríl. ** KOTKA Dettifoss 14. marz. Lagarfoss um 13. apríl. VENTSPILS: Dettifoss 11. marz. Lagarfoss um 7. apríl. GDYNIA: Rannö 20. marz. Lagarfoss um 5. april. * Skipið losar á öllum aðal- höfnum Reykjavík, ísa- firði, Akureyri og Reyðar- firði. ** Skipið losar á öllum aðal- höfnum auk þess í Vest- mannaeyjum, Siglufirði, Húsavík, Seyðisfirði og Norðfirði. Skip, sem ekki eru merkt með stjörnu losa í Reykja- vík. ALLTMEÐ EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.