Morgunblaðið - 23.03.1967, Page 3

Morgunblaðið - 23.03.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967. s EFTIR JÓN HNEFIL AÐALSTEINSSON. I. SÓLSKINSDAGARNIR eru bjartir í Helsingfors í byrjuð- um ágúst. En blaðamaðurinn hefur um annað að hugsa en fegurð dagsins, því að hér þarf að tak mörg viðtöl á skömm- rni tima og á miklu veltur, að þau misheppnist ekki. Eitt viðtalið er að sumu leyti kvíð vænlegast. Það er viðtal við rektor háskólans, Edwin Lin- komies. Kvíðinn stafar af þvi, hve sérstæða og reynsluríka sögu þessi maður á að baki. Hér kynni að vera efni í merki legt viðtal, en hvers má spyrja? Hvað er óhætt að færa I tal við þennan mann? Æviatriði Linkomies rektors, sem ég er að kynna mér áð- ur en ég tek viðtalið, eru 1 ■tuttu máli þessi: Hann er fæddur 1894. Lagði stund á rómönsk mál ftg varði doktors ritgerð 1923. Varð sama ár prófessor í Helsingfors og vara rektor 1932 til 1945. Sat á þingi 1933 til 1945 fyrir Hægri flokkinn og gegndi forsætis- ráðherraembætti í rúmt ár 1943 til 1944. í forsætisráð- herratíð sinni hafnaði Linkom ies amerísku tilboði um samn- inga á milli Finnlands og Rúss lands og sleit samningum við Rússa. Eftir stríðið var hann dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi samkvæmt lögum um stríðsábyrgð, en veitt sakar- uppgjöf 1948. Erik Juuranto, þáverandi ræðismaður, hafði boðið tii há degisverðar með nokkrum þeirrá, sem ég átti að hafa við- töl við og ég er að hugleiða þetta mál á meðan við bíðum eftir því að gestirnir birtist. Juuranto hefur sagt mér, að ■rtyrjöldin við Rússa sé Finn- um enn mjög viðkvæmt mál, og skyldi hún þá ekki vera viðkvæmt mál þeim stjórn- málamanninum, sem harðast varð úti að stríðslokum? Ég hefi ekki gert það upp við mig hvers skuli spyrja, er Lin komies gengur í salinn, mynd- arlegur maður, virðulegur 1 fasi með gáfuleg augu og hlý- legan svip. Talið berst fyrst að íslandi og Finnlandi, þess- um útvörðum norrænnar menningar, það er rætt um Eddurnar og Kalevala. Lin- komies lýsir því, hvernig hann hafi á unga aldri hrifizt af islenzkum fornbókmennt- um og þeirri heiðríkju, sem þær birti. Þannig þokar viðtal- inu fram, margt fróðlegt og skemmtilegt er látið í ljós, en spurningin um stjórnmálin og styrjöldina er ekki borin upp. Þegar staðið er upp frá borð um og menn hverfa aftur til starfa sinna, atvikast það ein- hvern veginn, að Linkomies verður mér samferða frá veit ingahúsinu. Eftir skamman spöl komum við að Háskólan- um, sem var lokaður um þess- ar mundir, en Limkomies bauðst til að sýna hann. Og á annan klukkutima gengum við um sali og ganga Háskólans i fylgd rektors, sem allan tím- ann sagði frá, upplýsti og út- skýrði. Dyravörður Háskólans gekk á undan og opnaði allar dyr. Hann hafði misst annan handlegginn í stríðinu og þurfti þess vegna að snúa sér í hring í hvert skipti sem hann opnaði og lokaði. Við gengum um sali þar sem myndir af öllum fyrrverandi prófessor- um og dósentum prýða veggi, við fórum tvær hæðir niður í jörðina þar sem bækur eru geymdar í öryggisskyni, ef til sprengjuárásar kæmi, og við fórum undir götuna yfir í nýbyggingu Háskólans. Þegar ég kvaddi Linkomies fjrrir ut- an Háskólann, var mér ljóst að ég hafði lifað eftirminnileg- an dag og kynnzt ógleymanleg um manni, en ég var þá enn engu nær um viðhorf hans til stríðsins og stjórnmálanna. n. Þremur árum síðar, í júlílok 1960, var Norræna menningar- málanefndin á fundi hér i Reykjavik. Formaður nefndar innar var Edwin Linkomies og ég var sendur til viðtals við hann. Hann fagnaði mér eins og gömlum vini og við byrjuð- ’um viðtal um svipuð efni og 3 árum fyrr. En nú voru ný viðhorf í málinu, því að nú hafði rætzt áratuga draumur Linkomies að koma til íslands. Hann hafði verið á Þingvöll- um og sagði, að það hefði ver- ið sér ógleymanleg reynsla. Mér var enn 1 huga spurn- ingin, sem ég bar aldrei upp í Helsingfors, og þegar við höfð um ræðzt við nokkra stund spurði ég, eins nærfærnislega og ég gat, hvort honum væri Háseti óskast á Andvara RE 101. Upplýsingar 1 síma 33428. á móti skapi að minnast á stjórnmálaafskipti sín og við- horf sín til þeirra? Vingjarnlegt viðmót Linkom ies breyttist ekki við þessa spurningu mína og hann svar- aði henni af jafnmikilli hlut- lægni og að því er virtist með jafn rólegu geði og þegar hann ræddi um Eddurnar og Kale- vala. Hann sagði mér, að stjórnmálaafskiptum sínum væri að fullu lokið, hann hefði ekki komið nærri þeim málum eftir 1945. Síðan bætti hann við þessum orðum: — Um stjórnmálaþátttöku mína er annars að segja, að ég varð hart úti eftir stríð- ið, en ég hef aldrei séð eftir þeim afskiptum, sem ég hef haft af stjórnmálum. Það má ekki vanmeta gildi stjórnmál- anna, en ef til vill hefur eng- inn maður meiri möguleika á því að vinna landi sinu gagn en stjórnmálamaðurinn. Það er oft talað um það í Finn- landi, að það sé eitthyað ó- hreint við stjórnmálin, en þar er ég á annarri skoðun. Hver sá, sem heldur lýðræðislegar hugsjónir í heiðri, hlýtur að sjá, að stjórnmálastörf og stjórnmálamenn þjóna háleit- um markmiðum. III. Enn berast fréttir um neim- inn með undarlegu móti. 1 f ágústbyrjun 1964 var ég á lei8 frá Eskifirði til Djúpavog*. Skammt fyrir innan Reyðar- fjörð tók ég tvær stúlkur upp í bílinn, sem voru á leið ttt Egilsstaða. Þetta reyndust vera finnskar stúdínur og þær sögðu mér það í fréttum, aS Linkomies hefði látizt þá um veturinn. Á leiðinni suður Breiðdal og Berufjarðarströnd um kvöidið varð mér tíðhugs að til þessa eftirminnilegasta persónuleika, sem ég hafði kynnzt á blaðamannsferli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.