Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 11
MUKGUNBLAÖIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967. 11 JrSCHAUB-LORENZ sjónvarpstæki VESTUR-ÞÝZK 23”, 25”, 27”. Verð frá kr. 14.400.00. — 1 árs ábyrgð. GELLIR Garðastræti 11. .•jy.y.y.y.y &&&•* Lf-:xn um ráðamðnnum, svo að okk- ar tími er á enda.. Áður en Hermann Höcherl stendur upp og kveður okkur broshýr með handabandl; segir hann: „Já, eitt er víst, ég er búinn að lofa svo miklu hér á íslandi, að ég verð rekinn úr vinn- unni, þegar ég kem heim.“ Hvað um það? Þegar spilin voru stokkuð upp í vestur- þýzkum stjórnmálum sl. haust og ný ríkisstjórn mynduð, máttu margir ráðherranna sjá eftir embættum sínum í hend ur nýjum mönnum. Hermann Höcherl er áfram landbúnaðar ráðherra. RÁDNINGASTOFA HUÓMIISTARMANNA Oðinsgotu 7 — Sími 20255 Opið mónud.-fimmtud. 2-7, föstud.-laugard. 2-5 Hermann Höcherl á blaðam annafundinum um borð í Pos- eydon í Reykjavíkurhöfn sL haust. spurninga, ég elska slikar spurningar. Ég kann alltaf vel við blaðamenn." Kunnur fyrir hnyttin tilsvör. 1 heimalandi sínu er hann þekktuir fyrir hnyttin og ófeim in tilsvör og það er greinilegt, að hann hefur fullan hug á að standast okkur blaðamönnun- um snúning, ef fram ko.ua ó- þægilegar spurningar. Flestar varða spurningar okkar fisk- sölumál og lendingarleyfi fyr- ir íslenzkar flugvélar í Þýzka- landi. Þessum spurningura avarar ráðhenann svo hratt, að Bjarni Guðmundsson blaða- fulltrúi, sem er túlkur, á fultt í fangi með að þýða jafnóðum, það sem ráðherrann segir og þar að auki er hin bajerska mállýzka ráðherrans mjög sterk og ekki bætir það úr •kák. Hið sérstæða við Hermann Höcherl er, hve framkoma hans og persónuleiki er frá- brugðin því, sem álíta mætti af stöðu hans og ferlL Hann er lögfræðingur að mennt og var um ske'ð héraðsdómaxi og síð an málflutningsmaður. í heim atyrjöldinni var hann stór- akotaliðsmaður á austurvígs- atöðvunum. Þegar hann var kjörinn þingmaður á vestur- þýzka sambandsþingið 1953 var hann lftt þekktur maður jafnvel í Bajaralandi sjálfu, en vegna atorku og úrræðasnilli komst hann fljótt í hóp áhrifa mestu þingmanna. Árið 1957 varð hann formaður þing- flokks CSU, en svo kallast 1 daglegu tali flokksdeild kristi- legra demókrata í Bajara- landi. Stappar nærri, að telja megi CSU sjálfstæðan flokk. Ráðherra varð Höcherl fyrst 1961, þá innanríkisráðherra og hefur verið ráðherra síðan, lengst af sem landbúnaðarráð herra. Hermann Höcherl virðist hvorki líkjast málflutnings- manni, stórskotaliðsmanni né ráðherra. Hann líkist framar öðru bónda og það ef til vill ekki að ástæðulausu, enda leyna fæstir uppruna sínum. Hann er af bændafólki kom- inn, fæddur 1912 og ólst upp 1 smáþorpinu Brennberg um 30 km. frá Regensburg í Baj- aralandi. Hann er og stoltur af uppruna sínum eins og flestir Bajarar eru. Faðir fjögurra barna, sem ÖU eru uppkomin og þegar orðinn afi, er hann aagður una sér hvað bezt í fjölskylduhópi á heimili sínu tem ar í Brennberg, æsku- stöðvum hans og klæðist þá ekki ósjaldan hinum sérstæða búningi Bajaranna. Það kemur einnig greinilega fram í viðræðum okkar blaða mannanna við Höcherl, að hann er landbúnaðarmálum kunnugastur. Við hinar mörgu spurningar okkar um fisksölu- mál og lendingarleyfi fyrir flugvélar, snýr hann sér oft tU hinna þýzku sendimanna, sem með honum hafa komið og ráð færir sig við þá. Það líður að lokum blaða- mannafundarins. Flestir erum við blaðamennirnir ánægðir með þann fróðleik, sem við höfum orðið vísarL Hinn vest- ur-þýzki ráðherra á að fara í kvöldverðarboð með íslenzk Hver stund með Camel léttir lund!“ Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN Ein mest selda sígarettan í heiminum. MADE IN U.SA. 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.