Morgunblaðið - 23.03.1967, Page 7

Morgunblaðið - 23.03.1967, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR ». MARZ 1967. 7 SUIMIMUFERÐIR til sólarlanda Vinsœíar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum Margra ára reynsla og ótvírœðar vinsœldir tryggja farþegum okkar snurðulaust ferðalag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ór í röð hafa farið sömu ferðimar, viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. ' Á síðasta ári komu yfir 1500 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Við auglýsum sjaldan, því ónægðir viðs kiptavinir komnir heim úr vel heppnuð- um og skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 2. júlí — 16. júlí — 30. júlí — 13. ágúst — 27. ágúst — 3. sept. — 17. sept. 12 dagar — Verð kr. 11.800.— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborg- um Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. M illjónaborgin London, tilkomumikil og sögu- fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill- andi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívoli og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð he fir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. í fyrra voru farnar fimm slíkar ferðir og komust færri en vildu. Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjörnss on og Gunnar Eyjólfsson. Parls — R'marlönd — Sviss Brottför 18. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 17.650.0«. 1 Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt 1 sjö ár, og jafnan við miklar vinsældhr, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endu rminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar 1 borg fegurðar og gleði sólríka sumarda ga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið f skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið flúgandi til Rínarlanda, og dvalið fjóra daga við Rín í Riidesheim, ein um frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vínhátíðin", þar sem drottningin er krýnd. Farið er I ökuferðir um Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtilegum farþega skipum. — Fararstjóri: Jón Helgason. Edinborgarháfiðin Brottför 26. ágúst. — 7 daga ferð. Verð kr. 7.210,00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara all- margir árlega, enda er Edinborgarhátíðin m ikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þees sem Edinborg er mjög fögur borg og ánægjul egt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikarL ítalia — sepfembersól Brottför S. september. — 21 dagur. — Verð kr. 21.300,00. Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum: Feneyjum, hinni „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Umferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz, hin fagra höfuðborg listanna á miðöldum Ítalíu. Róm er u helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ökuferðir um fegurstu byggðir Ítalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu MicheÞ angelo (63 þús. smál að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið hekn með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. ' ítalia og Spánn Brottför 23. september. — 21 dagur. — Verð k r. 24.860,00. Þessl óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn fyrir 2 árum og aftur í fyrra, fullskipuð og komust færri en vildu. Hefir fólki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði Italfu og Spáni í einni og sömu ferðinni. Flog ið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar og dvalið þar í nokkra daga, til Napoli og all a leið til Sorrento. Frá Napoli er síðan siglt með glæsilegu hafskipi til Spánar. Þaðan er ekið til Torremolinos, baðstrandarbæjarins fræga á Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er flogið til Madrid og að dvöl lokinni þar er flogið til London og höfð þar tveggja daga viðdvöl. — Fararstjóri: Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. — Verð kr. 23.700,00. Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt I þessum vinsælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austur- landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar I fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökkum Nilar. Frá Kairo er flogið til Jerusale m, dvalið í firnrn daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöL ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. j Heimssýningin i Montreal og New York Brottfarardagar: 11. mai — 27. júlí og 14. sept 14 dagar kr. 12.800. Heimssýningarárið er kjörið til að heimsækj a Ameríku. Við fljúgum í þotum Pan Americaa til New York og þaðan til Montreal þar se m dvalið er eina viku, heimssýningin skoðuð og litið á náttúruundur Kanada. Síðan dvalið aðra viku í New York, þar sem fólki gefst kostur á marks konar skemmtun og ferð til W ashington. í ferðinni 27. júlí gefst kostur á að heimsækja íslendingabyggðir í Manitoba, Wi nnipeg og vera á hátíðahöldum íslendinga- dagsins að Gimli. — Fararstjórar: Jón Helgason og Guðni Þórðarson. (Uppselt er í ferðina 11. maí). Ferbaskrifstofan Mallorka — London Brottfarardagar: 25. maí — 8. júní — 22. júni — 6. júlí — — 20. júlí — 3. ágúst — 17. ágúst — 31. ágúst 14. sept. — 28. sept. — Verð frá kr. 9.600. Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- aældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanlegu kjör vegna þess að Skrifstofan semur um fyrir rúmelega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum báðstrandarhótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frá miðri höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferða- mannastaðurinn I Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist. Sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í London. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímurn og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum í þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara til Kaupmannahafnar til að komst ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. Islenzkiar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bezta, Fararstjóri: Njörður P. Njarðvik. Kaupmannahöfn (Hamborg) Edinborg 10. september. — 10. dagar. — Verð kr. 6.900,00. Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra. Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til ferðarinnar. Dvalið í hinni glaðværðu Kaupmannahöfn, skiroppið í tvo daga til Hamborgr og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með 1 fyrra. Fararstjórar: Geir Aðils og Guðni Þórðarson. I SUNNUFERÐUM eru elngöngu notuð góð hótel. Flogið Iengstu leiðimar og eklð eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það era ferðir, sem fólk getur treyst og síðast en ekki sizL — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hótel okkar á Mallorca. Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070. SUNIMA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.