Morgunblaðið - 26.04.1967, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1967.
11
Vorgeir Ihsen skólastj.
í HafnarfirÖi fimmfugur
f FAÐMI hárra fjalla og
þröngra fjarða Vestfjarðakjálk-
ans fæddist þeim hjónum Lovísu
Kristjánsdóttur og Ibsen Guð-
mundssyni bátaformanni á Suð-
ureyri í Súgandafirði myndar-
legt sveinbarn fyrir réttum fimm
tíu árum. Þessi efnilegi sonur
hinna vestfirzku hjóna var eng-
inn annar en Þorgeir Ibsen, sem
nú er skólastjóri Lækjarskóla í
Hafnarfirði. Þongeir hefur nú á
annan áratug gegnt störfum
skólastjóra við barnaskólann við
Lækinn við góðan orðstír.
Ungur að árum hóf Þorgeir
störf við bátaútgerð föður síns
á æskustöðvunum. Hefði hann
hann vafalaust fljótlega orðið
dugandi skipstjóri, eins og hann
átti kyn til, ef hann hefði valið
sér sjómennsku að ævistarfi.
En snernma beindist hugur
Þorgeirs til mennta, enda naut
hann leiðsagnar landskunnra
fræðara, þar sem voru
Friðrik Hjartar skólastjóri og
séra Halldór Kolbeins, sem um
árabil var sóknarprestur að
Stað í Súgandafirði. Friðrik
Hjartar, hinn valinkunni skóla-
maður, var skólastjóri barna-
skólans á Suðureyri í meira en
tvo áratugi, og naut þorgeir leið
sagnar hans öll námsár sín í
barnaskóla. Almennar gagnfræða
greinar las Þorgeir hjá séra Hall
dóri Kol'beins, en af þeim meeta
kennimanni fór það orð, að allir
sem nytu leiðsagnar hans sem
kennara, væru öruggir um góðan
árangur í framhaldsnámi.
Þorgeir Ibsen hafði þvi hlotið
trausta undirstöðuþekkingu, þeg
ar hann hóf nám sitt í Kennara-
skólanum fyrir rúmlega 30 árum.
Sá, er þetta ritar, fékk þá á-
nægju að kynnast honum sem
bekkjarbróður í þrjú ár auk síð-
ari kynna sem skólastjóra und-
anfarin 12 ár. í skóla var Þor-
geir jafnan glaður og reifur og
hrókur alls fagnaðar.
Þorgeir hefur jafnan haft mik
ið yndi af góðum bókmenntum,
bæði bundnu og óbundnu máli.
Ævar Kvaran hefur almennt
F rainsagnarnámskeið
í Reykjavík í maímánuði. Kennt verður: radd-
beiting, framburður, framsögn, upplestur á bundnu
máli og óbundnu og ræðuflutningur.
Upplýsingar í síma 34710.
Nýkomið:
Rokokko sófasett,
vönduð — falleg.
PS: Sænsku tinnastól-
amir eru komnir.
Pantanir óskast sótt-
ar.
Kristján Siggeirsson hf.
Laugavegi 13 — Sími 13879.
Bifreiðaeigendur
á Suðurnesjum
Stillum ljós bifreiða með fullkomnustu
tækjum. Opið virka daga kl. 7.30 til kl. 12
fyrir hádegi og kl. 1 til kl. 7 eftir há-
degi, nema laugardaga kl. 9 til kl. 12 fyr-
ir hádegi. Félagar F.Í.B. fá afslátt gegn
framvísun skírteinis.
Bifreiðaverkstæði Sérleyfisbifreiða Kefla-
víkur, Vesturbraut 12 — Sími 1782.
Nú ervandinn leystur
Verið ávallt með vel greitt hár.
Nýkomið mikið úrval af HÁRTOPPUM.
Austurstræti 7 — Sími 17201.
Þegar á námsárunum gætti þessa
áhuga hans mikið, og þótti hann
því jafnan sjálfkjörinn í ritnefnd
skólablaðis Kennaraskólans. Nám
ið í skólanum veittist Þorgeiri
mjög létt, og náði hann jafnan
góðum árangrL
Að loknu.námi í Kennaraskól-
anum, hóf Þorgeir þegar kennslu
starf í Borgarfirði og tveim ár-
um síðar á AkranesL en þar
kenndi hann í sex ár, einkum
við barnaskólann, en einnig sem
stundakennari við framihalds-
skóla, bæði gagnfræðaskóla og
iðnskóla.
Veturinn 1944 — 1945 dvaldist
Þorgeir í Bandaríkjunum við
framhaldsnám í ensku og upp-
eldisfræði við St. Olaf College í
Minnesota. Einnig tók hann þar
vestra þátt í námskeiði fyrir
framihaldsskólakennara við
Columbiaháskóla í New Vork.
Þorgeir hafði því aflað sér
haldgóðrar menntunar og starfs
reynslu, er hann varð skólastjóri
1947, fýrst við barna- og mið-
skólann í Stykkishólmi og átta
árum síðar við Barnaskóla Hafn
arfjarðar, sem nú nefnist Lækjar
skóli, eftir að barnaskólarniT í
Haifnarfirði urðu tveir.
Sem toennari og skólastjóri hef
ur Þorgeir jafnan notið óskiptrar
hylli nemenda sinna og þeirra
kennara, er undir hans stjórn
hafa starfað. Nemendum sinum
hefur hann ekki aðeins verið
holiur fræðari, heldur einnig
vinur og félagi, sem jafnan var
reiðuibúinn að veita þeim góð ráð.
Þá hefur Þorgeir ekki síður
reynzt kennurum þeim, sean
starfað hafa undir hans stjórn,
góður félagi og ráðgj-afL Mun
þeim öllum bera saman um að
réttlátari og umburðarlyndari
yfirmann gætu þeir varla kosið
sér.
Þorgeir Ibsen hefur mikið látið
íþróttir og íþróttamál til sin taka.
Auk þess sem hann hefur um
tíma toennt íþróttir, hefur hann
verið formaður íþróttaibandalaga
bæði á Akranesi og í HafnarfirðL
Ein af uppáhaldsiþróttum Þor-
geirs er badminton, sem hann
hefur iðkað mikið. Árið 1952
varð hann ásamt fyrri konu
sinni, HöLlu Árnadóttur, íslands-
meistari í tvenndarkeppni í þess
ari íþróttagrein.
Einnig hefur Þorgeir tekið mik
inn þátt í almennum félagsmál-
um, verið í stjórn bókasafna,
bæði í Stykkishólmi og Hafnar-
firðL auk þess sem hann hefur
verið í stjórn málfundafélagsins
Magna í Hafnarfirði og fleiri fé-
laga.
Þorgeir Ibsen er tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Halla Árna-
dóttir frá Akranesi, og eignuðust
þau þrjú börn. Þau Halla slitu
samvistum fyrir um fjórtán ár-
um. — Núverandi kona Þorgeirs
er Ebba Lárusdóttir frá Stykkis
hólmi. Eiga þau glæsilegt heim-
ili við öldutún í Hafnarfirði og
tvö myndarleg börn.
Ég sendi Þorgeiri Ibsen skóla-v
stjóra beztu hamingjuóskir í til-t
efni fimmtugsafmælisins. Megi
hann ásamt fjölskyldu sinni njóta
gæfu og gengis á ókomnum ævi-
árum.
Ólafur S. Magnússon.
Bíll óskast
Óska eftir að kaupa bíl með góðum kjör-
um, gæti tekið 1—2 böm til dvalar í sveit
til lengri eða skemmri tíma upp í kaupin.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 15.
maí, merkt: „Bíll — sveit 2331.“
Opinber stofnun
vill ráða skrifstofustúlku helzt frá 1. maí.
Laun samkvæmt 11. launaflokki ríkis-
starfsmanna. Þær sem áhuga hafa á að
kynna sér starfið sendi upplýsingar um
menntun og fyrri störf, merkt: „Ritari
2017“ til afgreiðslu Morgunblaðsins.
Svartir
búningar
nýkomnir
UERZLUNIN
m
Kaupmenn og kaupfélög
*
Urval
Kjóla-, pilsa- og blússuefni
fyrirliggjandi.
Kr. Þorvaldsson og Co. heildverxlun
Grettisgötu 6 — Símar 24730 og 24478.