Morgunblaðið - 26.04.1967, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Sauðárkróki, 25. apríl.
ÞAÐ bar við um ellefuleytið
að kvöldi fyrra laugardags,
þá er bóndinn að Daufá, Lýt-
ingsstaðahreppi í Skagafirði,
Valgeir Guðjónsson, var á
leið til Sauðárkróks, að hann
sá dráttarvél á hvolfi við veg
inn skammt frá Borgará. Val-
geir sá þegar að maður lá
undir vélinni og reyndist sá
vera Björn Ólafsson bóndi
Krithóli. Svo lánlega vildi
til, að Valgeir var á vöru-
bíl með moksturstækjum og
gat á svipstundu lyft vélinni
ofan af manninum, sem þá
virtist látinn.
Valgeir komst í síma á
næsta bæ og tilkynnti hér-
aðslækninum á Sauðárkróki
um atburðinn en hélt síðan
áleiðis til Sauðárkróks með
hinn slasaða mann. Þegar á
sjúkrahúsið kom reyndist
maðurinn á lífi, en komst
ekki til fulirar meðvitundar
fyrr en árla næsta dags.
Björn hafði meiðzt nokkuð
á handlegg, þó ekki brotn-
að. Lá hann næstu daga á
sjúkrahúsinu, en er nú far-
inn heim til sín.
Talið er að Valgeir hafi
komið á s lysstaðinn aðeins
örfáum mínútum eftir að
dráttárvélinni hvolfdi. — jón.
Góðar
togarasölur
TOGARINN Egill Skallagríms-
son seldi í Hull í fyrradag, 3.401
kit fyrir 19288 pund.
í gær seldi togarinn Harð-
bakur 3.261 kit fyrir 17639
pund.
Þessi mynd er tekin í fyrradag af rústum Fiskimjölsverksm iðjunnar í Vestmannaeyjum. Ljósm. Torfi Haraldsson.
Tjónið í fiskimjölsverk-
smiðjunni 20 milljónir?
MATSMENN frá tryggingafé-
lögunum sem Fiskmjölsverk-
smiðjan í Vestmannaeyjum, sem
brann aðfaranótt mánudags, er
tryggð hjá, komu til Vestmanna
eyja í fyrrakvöld. Vnnnu þeir
að matsgerð í allan gærdag, en
Engar horfnr
á somkomnlagi
KL. níu I gærkvöldi hófst sátta-
fundur í deilu apótekara og
lyfjafræðinga stóð hajnn enn yfir
er blaðið fór í prentun. Voru þá
engar horfur á að til samkomu-
lags drægi.
MATO-floti
í heimsókn
í D A G eru væntanleg til
Reykjavíkur 4 herskip úr
Atlantshafsflota NATO. —
Tvö skipanna eru frá
Bandaríkjunum, eitt frá
Hollandi og eitt er frá Bret
landi. Munu skipin hafa
nokkurra daga viðdvöl í
Reykjavík. .
úrslita er ekki að vænta af rann-
sókn þeirra fyrr en síðar.
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri
Fiskimjölsverksimiðjunnar sagði
í viðtali við Mbl. í gær, að mats
mennirnir væru þrír, tveir frá
Tryggingamiðstöðinni og einn
kunnáttumaður véla, sem rann-
saka mun skemmdir á tækjaút-
búnaði. Taldi Þorsteinn, að
dregizt gæti að lokaniðurstöður
fengjust. Verksmiðjan er nú
óstarfhæf, þar eð allar vogir og
kvarnir voru staðsettar í mjöl-
geymslunum. Þegar ný slík tæki
hefðu fengizt, sagði Þorsteinn,
að verksmiðjunni væri ekkert
að vanbúnaði og mundi hún þá
hefja starfsemi að nýju.
Maður sem þekkir til reksturs
mjölverksmiðja sagði Mbl. að
900 lestir af loðnumjöli, slíku
sem brann í Vestmannaeyjum,
væru metnar á um 5 milljónir
króna. Taldi hann að með mjöli,
húsum, vélum og áhöldum hefði
orðið þarna um 20 milljón
króna tjón.
Frá brunanum í Vestmanna eyjum aðfaranótt mánudags.
Vonast til að Finnar
kaupi sama síldarmagn
í GÆR var skýrt frá þvi bér f
blaðinu samkvæmt fréttum frá
NTB, að Finnar hefðu neitað að
veita viðtöku 19 þúsund tunnum
af sild vegna þess, að 20 til 30
þúsund tunnur af þeirri síld, sem
þeir hafa fengið, væru af léleg-
um gæðaflokki. Mbl. sneri sér í
gær til aðalræðismanns fslands
í Finnlandi, K. Juurantos, sem nú
U tanríkisráðherrafundur N orð urlanda:
Loftleiðamálið, Grikkland og
Vietnam til umræðu á fundinum
FUNDUR utanríkisráðherra
Norðurlanda hófst að Hótel
Sögu í Reykjavík í gær og
mun standa í tvo daga. Á
fundinum í gær vakti Emil
Jónsson utanríkisráðherra
máls á Loftleiðamálinu og
benti á ýmsar hugsanlegar
leiðir til lausnar því máli. —
Ráðherrarnir munu hins veg-
ar hafa orðið sammála um að
kunngera ekki á þessu stigi,
í hverju tillögurnar eru fólgn
ar. Fundinn sitja utanrikis-
ráðherrar allra Norðurland-
anna nema Danmerkur, en
af hálfu Dana sækir fundinn
Hans Splvhpj ráðherra. Auk
ráðherranna sitja fundinn
fimm fulltrúar frá Dan-
mörku, Finnlandi og fslandi,
hverju landi um sig, en sex
frá Svíþjóð og Noregi.
í viðtali við Morgunblaðið
sagði Emil Jónsson utanríkisráð-
herra m.a. við upphaf fundarins,
að fundurinn nú væri einn hinna
venjulegu funda utanríkisráð-
herra Norðurlanda, sem haldnir
væru tvisvar á ári. Á þessum
fundum væri rætt um þau mál,
sem efst væru á baugi á alþjóða-
Framihald á bls. 31.
er hér staddur og spurffi hann
hvaff hæft væri í þessari frétt
NTB.
Juuranto sagði, að það væri
rangt að Finnar hefðu neitað að
'veita viðtöku 19 þúsund tunnum
af íslandssíld. Aðeins væri um
'að ræða 5.500 tunnur, sem ekki
'hefðu enn verið afhentar kaup-
endum. Hann sagði ennfremur,
að skemmdir hefðu ekki komið
í ljós í síldinni fyrr en seint
í haust, en í mörgum síldartunn-
um hefði verið bæði skemmd og
óskemmd síld.
Juuranto sagði að lokum, að
það væri von allra aðila, að
þessi mál leystust farsællega.
’Hann væri nú að ræða um vænt-
anlega síldarsölusamninga hér og
vonaðist til að sama magn ís-
‘landssíldar jrrði keypt til Finn-
lands á þessu ári og verið hefur.
Hann kvað þó of snemmt að full-
yrða um það fyrr en rætt hefði
verið endanlega við síldarkaup-
endur í Finnlandi.