Morgunblaðið - 26.04.1967, Side 19

Morgunblaðið - 26.04.1967, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1967. 19 - RÆÐA MAGNÚSAR Frarnh. af bls. 14 eiginlegra framkvæmda ríkis og sveitarfélaga. Síðasta átakið í því efni er hin nýja skólakostn- aðarlöggjöf, sem bætir mjög að- stöðu strjálbýlisins til að sam- einast um heimavistarskóla, þar eð ríkissjóður greiðir hér eftir allan kostnað við byggingu heimavista. Jafnframt ákveða lögin miklu hraðari greiðslu kostnaðarhluta ríkissjóðs í skóla- byggingum almennt, þar eð skylt er að greiða framlagið jafnóðum og byggingu miðar áfram. Á þetta í senn að geta gert bygg- ingarnar ódýrari og verið sveit- arfélögunum til mikilla þæginda. Sett hafa verið lög, er skylda ríkið til að greiða kostnaðar- hluta sinn í sjúkrahúsabygging- um á tilteknu árabili, en líklegt er, að þau ákvæði þurfi að taka til frekari endurskoðunar. Þá má lofes geta löggjafarinnar um lánasjóð sveitarfélaga, sem nú er að hefja starfsemi sína og er þegar á fyrsta ári ætlað nokk- urt fé til þess sjóðs úr fram- kvæmdasjóði. Hafnargerðirnar eru meðal erfiðustu viðfangsefna margra sveitarfélaga. Til þeirra firam- kvæmda á ríkissjóður vangoldn- ar verulegar fjárhæðir, en engu að síður hefir ríkisvaldið einnig é þessu sviði veitt sveitarfélög- unum síðustu árin mjög aukna aðstoð, þar eð hafnargerðirnar hafa verið teknar inn í fram- kvæmdaáætlun ríkisins sjálfs og fjár til þeirra aflað innan ramma fjáröflunaráætlunar ríkisstjórn- arinnar. Hefir þetta ekki sízt haft mikla þýðingu fyrir hin minni sveitarfélög, sem oft hafa átt í miklum erfiðleikum með fjáröflun til hafnargerða sinna. Það hefir lengi verið Ijóst, að nauðsynlegar hafnargerðir væru mörgum sveitarfélögum alger- ’lega ofviða nema til kæmi aukin aðstoð ríkissjóðs. Hefir afleið- ingin orðið sú, að vanskilaskuld- ir hafa í verulegum mæli fallið á ríkisábyrgðasjóð. Er slíkt á- stand óviðunandi og raunar iniðurdrepandi fyrir viðkomandi sveitarstjórnir. Með nýsettum hafnarlögum er stórt spor stigið «1 lagfæringar á þessu ástandi, þar sem kostnaðarhluti rikis- sjóðs í hinum erfiðari hafnar- gerðum er aukinn mjög veru- lega og hafnabótasjóður jafn- framt efldur í því skyni að geta hlaupið undir bagga í sérstök- nm erfiðleikum, þótt því miður næðist ekki samstaða um að tryggja hafnabótasjóði þann tekjuauka, er frumvarpið gerði ráð fyrir. Ætti með þessum um- 'bótum að vera auðið að upp- ræta vanskilin á ríkisábyrgða- lánunum. Veittar eru árlega rikisábyrgð ir í stórum stíl til að greiða fyr- ir fjáröflun til margvíslegra þjóð nytjaframkvæmda. Því miður voru ríkisábyrgðir oft veittar af lítilli varfærni og þess hugsunar háttar var mjög farið að gæta að ekkert væri við það að at- huga að láta skuldina lenda á ríkissjóði. Var enda afleiðingin orðin sú, að fyrir nokkrum ár- um voru útgjöld ríkissjóðs vegna ríkisábyrgða komnar yfir 100 millj. kr. árlega og hækkuðu geigvænlega ár frá ári. Varð •uðvrtað að innlheimta þetta fé •f skattborgurunum. Með lög- iinum run ríkisábyrgðir og ríkis- ábyrgðasjóð var stigið heilla- •por til úrbóta á þessu sviði, enda hefir ástandið í þessum efnum nú batnað ár frá ári þannig að hrein útgjöld ríkis- sjóðs vegna ríkisábyrgða urðu ekki nema 35 millj. á sl. ári. Auðvitað snerust Framsóknar- menn hatrammlega gegn þess- um ráðstöfunum, enda höfðu þeir manna mest átt sök á óreið- unni, þótt þeir nú, er þeir sjá hinn góða árangur breyttra Btarfshátta, hafi gersamlega snú- ið við blaðinu og reyni að ásaka ríkisstjórnina fyrir að ganga ekki nógu rösklega fram í inn- heimtu ríkisábyrgðavanskila. Framkvæmdaáætlanlr — nýtt spor í stjórn efnahagsmála Með gerð framkvæmdaáætlana er stigið nýtt spor í stjórn ís- lenzkra efnahagsmála. Fyrsta framkvæmdaáætlun var gerð 1962 og var til fjögurra ára sem rammaáætlun, en síðan hefur árlega verið fyllt út í þann ramma með sérstakri fram- kvæmdaáætlun fyrir hvert ár. Þetta áætlunartímabil er nú lið- ið og hefi ég gert á Alþingi mjög rækilega grein fyrir niðurstöð- um þessa tímabils varðandi fram kvæmdir, og það væri allt of langt mál hér að fara að gera framkvæmdaáætlunina að um- ræðuefni. Unnið er að undirbún- ingi framkvæmdaáætlunar fyrir næstu fjögur ár. Þykir eðlilegt, að það falli í hlut væntanlegrar ríkisstjórnar að binda endahnút- inn á þá áætlun, og var því val- inn sá kostur að gera sérstaka áætlun fyrir árið 1967, og hefur sú áætlun þegar verið ákveðin og grein fyrir henni gerð. Til þess að það valdi ekki misskiln- ingi, þá er nauðsynlegt að leggja á það rika áherzlu, að þessi áætlanagerð á ekkert skylt við sósialisma, heldur er þar annars vegar um að ræða fjár- öflun til opinberra sjóða, sem fyrst og fremst veita stofnlán til uppbyggingar atvinnuveganna og hins vegar fjáröflun til ein- stakra framkvæmda á vegum ríkisins, sem eðli málsins sam- kvæmt eru á þess vegum, en ekki er af ýmsum ástæðum auð- ið eða eðlilegt að verja sama ár fé til að fullu úr ríkissjóði. Þessi vinnubrögð hafa reynzt mjög vel og er nauðsynlegt að út- færa þessa áætlanagerð meira, þannig að hún nái einnig til framkvæmda sveitarfélaganna. Ennfremur þyrfti að vera auðið að gera sér grein fyrir fjárfest- ingarfyrirætlunum einkaaðila. Að vísu er þetta gert að tölu- verðu leyti í sambandi við fjár- 'festingalánasjóðina, en þó er allt af töluvert af framkvæmdum, sem liggja utan þeirra ramma. Er æskilegt að geta fyrirfram fylgzt sem allra bezt með fjár- festingarframkvæmdum til þess að geta í tæka tíð hafizt handa, ef um ofþenslu virðist ætla að verða að ræða. Okkur er sagt af ihálfu Framsóknarmanna, að eitt meginatriðið í hinni leiðinni, sé að það eigi að raða framkvæmd- um, en þó án þess að taka upp höft. Með framkvæmdaáætl- anagerð ríkisins og starfi Efna- hagstofnunarinnar er í fyrsta sinn gerð kerfisbundin tilraun til þess að gera sér grein fyrir framkvæmdum í þjóðfélaginu fyrirfram og með sérstökum fjáröflunaraðgerðum að stuðla að því, að þær framkvæmdir sitji fyrir um fjármagn, sem brýnust nauðsyn er að komist í framkvæmd. Eigi að útfæra þessa röðun framkvæmda lengra en gert hefur verið í tíð núver- andi ríkisstjórnar, þá er það úti- lokað nema grípa til beinna ríkis afskipta og hafta þannig að sé eitthyað að baki þeim fullyrð- ingum Framsóknarmanna að á þessu sviði þurfi nýja stefnu, þá hljóta þeir að eiga við fjárfest- ingarhöft, með öllu því fargani, sem af þeim leiddi á sínum tíma, Svipmynd af Landsfundi. spillingu og margvíslegri rang- sleitni. Höft, sem fullyrða má, miðað við fengna reynslu, að munu leiða af sér meira tjón en gagn fyrir þjóðfélagið. Framkvæmdaáætlanir fyrir einstaka landshluta Til viðbótar þessari almennu áætlanagerð um framkvæmdir í landinu, hefur ríkisstjórnin haf- izt handa um að láta gera sér- stakar framkvæmdaáætlanir fyr ir einstaka landshluta, með það í huga, að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Hafa byggðajafn vægismálin fyrst í tíð þessarar ríkisstjórnar verið tekin föstum tökum og reynt að leggja grund- völl að skipulagsbundnum vinnu brögðum á þessu sviði. Reynslan undanfarin ár, hefur ótvírætt leitt í ljós, að það er alls ekki nóg, að stuðla að nægri atvinnu fyrir fólkið víðs vegar um land- ið, því að bætt efnahagsafkoma leiðir beinlínis af sér auknar kröfur um aukin þægindi á öðr- um sviðum, bæði félagslega og menningarlega. Varðandi at- vinnuuppbyggingu víðs vegar um landið, hafa samgöngurnar einnig grundvallarþýðingu, þann ig að hér er um fjöllþætt vanda- mál að ræða. Fyrsta áætlunin á þessu sviði, sem hrundið hefur verið í framkvæmd, er sam- gönguáætlun Vestfjarða, sem þegar hefur skilað miklum ár- angri. Og rammaáætlun hefur einnig verið gerð um atvinnu- uppbyggingu þess landshluta. Vegna langvinns aflabrests fyrir Norðurlandi, hefur verið við verulega atvinnuörðugleika að striða þar á ýmsum stöðum síð- ustu árin, og í sambandi við kjarasamninga við verkalýðsfé- lögin á Norðurlandi og Austur- landi 1965 var ákveðið að hefj- ast handa um gerð framkvæmda áætlunar fyrir Norðurland og hefur af fullum krafti verið unnið að þeirri áætlun síðan. Jafnóðum og einstakir þættir hennar hafa verið tilbúnir, hefur Atvinnujöfnunarsjóður fengið þá til hliðsjónar, við ákvörðun 'lánveitinga á því svæði. Vitan- lega er slík áætlanagerð mikið verk og skiptir miklu máli, að það sé vandlega unnið. Mun þvi enn taka nokkurn tíma að ljúka heildaráætlun fyrir Norðurland, en það er fyrsta byggðajafn- vægisáætlun hér á landi, sem algjörlega er unnin af islenzkum sérfræðingum. Hygg ég að ótvi- rætt megi fullyrða, að þeir sóu vel til þess færir,, og Efnaha-gs stofnunin hafi bæði á þessu sviði og mörgum öðrum sannað tilveru rétt sinn og hæfileika þeirra manna, sem þar vinna. Með til- komu Atvinnujöfnunarsjóðs, hef ir reynzt auðið að stuðla að hyggðajafnvægisframkvæmdum i miklu stærri stíl en áður, og verður unnið að því að breikka þann grundvöll, eftir því sem framkvæmdaáætlanir liggja fyr- ir. Atvinnujöfnunarsjóði hefur til frambúðar verið tryggður ör- uggur tekjustofn, þar sem eru skattgreiðslur álbræðslunnar og auk þess hefur sjóðurinn víðtæk- auðið reynist að afla fjár til ým- issa þátta í framkvæmdaáætlun- um þessum, svo sem varð með samgönguáætlun Vestfjarða. Til- koma Atvinnujöfnunarsjóðs og gerð framkvæmdaáætlana fyrir hina ýmsu landshluta, er enn ein staðfesting á því, hversu hald- lausar eru þær ásakanir, að allar framkvæmdir hér á landi hafi verið látnar þróast skipulags- og kerfislaust. Efling stofnlánasjóðanna f sambandi við efnahagsþróun ina og uppbyggingu atvinnulífs- ins, er að sjálfsögðu nauðsynlegt að treysta sem bezt stofnfjárlána sjóði atvinnuveganna og í þeim efnum hafa stórátök verið gerð á síðustu árum. Munu flestir einna helzt harma það nú, að slík átök skuli ekki hafa verið gerð fyrir löngu. Fyrsta mikil- væga framkvæmdin á þessu sviði, var endurskipulagning stofnlánasjóða landbúnaðarins, sem síðustu árin hefur lagt grundvöll að fjárfestingalánveit- ingum til landbúnaðarins, sem gersamlega hefðu verið óhugs- andi að óbreyttu kerfi. Hefðu þeir menn, sem lengst af hafa viljað láta télja sig sérstaka vini landbúnaðarins, haft frumkvæði um slíka endurskipulagningu þessara lánastofnana, meðan þeir réðu þeim málum, þá hefði verið auðið að veita nú enn hærri lán til fjárfestingar í sveitum. Fisk- veiðasjóður íslands hefur verið byggður upp af sjávarútvegin- um sjálfum, en útvegsmenn hafa jafnan haft skilning á því, að það þjónaði þeirra hagsmunum að leggja fé til þess sjóðs. Ríkis- sjóður leggur nú verulegt fram- lag til Fiskveiðasjóðs árlega á móti framlagi sjávarútvegsins og á síðastliðnu ári var gerð grund- vallarbreyting á stofnlánakerfi sjávarútvegsins, með sameiningu Stofnlánadeildar og Fiskveiða- sjóðs. Þá hefur og síðustu árin orðið gerbylting í starfsemi Iðn- lánasjóðs og fjáröflun til hans, bæði með hækkun ríkisframlags og framlags frá iðnaðinum sjálf- um. Ennfremur hefur verið sett- ur á laggirnar sérstakur lána- sjóður sveitarfélaga, ferðamála- sjóður og síðast Stofnlánadeild verzlunarfyrirtækja, en til upp- byggingar og fjárfestingar í verzlun hefur hingað til enginn sjóður lánað neitt. Með löggjöf inni um framkvæmdasjóð, hefur síðan endahnúturinn verið bund inn á kerfisbundna uppbyggingu lánasjóða atvinnuveganna, en framkvæmdasjóðurinn á að ann- ast mdligöngu um fjáraflun vegna framkvæmdaáætlunar rík kins ár hvert, þ. á m. til um ræddra stofnlánasjóða, og gæta þess, að fjárfestingarféð, sem til ráðstöfunar er á hverjum tíma, sé sem hagkvæmast notað fyrir þjóðfélagið. Þessar ráðstafanir allar hafa grundvallarþýðingu fyrir efnahags- og fjármálakcrfi þjóðarinnar. Góð afkoma ríkissjóðs forsenda verðstöðvunar. Á árinu ÍÐ'SS var verulegur greiðsluafgangur hjá ríkissjóði hliðar 100 millj. kr. til þess a® mæta vænbanlegum áiföllum. Skjótt kom í ljós, að þessi ráð- stöfun hafði verið skynsamleg, því að þegar á árinu 1965 varð mikill greiðsluhalli hjá ríkissjóðl eða um 250 millj. kr., og þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir, sem þeg- ar voru gerðar á því ári, til þesa að bæta afkomu ríkissjóðs, varð enn greiðsluhalli á árinu 1965, sem nam rúmum 90 millj. kr. Árið 1966 hefur afkoma ríkis- sjóðs hins vegar orðið betri en nokkru sinni áður og greiðslu- afgangur rikissjóðs orðið 474 millj. kr. Þessi mjög hagstæða afkoma ríkissjóðs hefur gert mögulegt að greiða að fullu rekstrarhalla áranna 1964 og 1965, ef notaðar eru einnig þær 100 millj. kr., sem geymdar voru frá árinu 1963. Er því aftur kom- ið jafnvægi á í viðskiptum ríkis- sjóðs og Seðlabankans, en það er hin brýnasta nauðsyn á þenslutímum, að ekki sé um greiðsluhalla að ræða hjá rikis- sjóði. Til þess að menn geri sér . enn betri grein fyrir því, hversu mikilvæga þýðingu góð afkoma ríkissjóðs hefur fyrir efnahags- kerfið í heild og fyrir atvinnu- vegina, má á það benda, að á sl. ári námu lánveitingar banka- anna, þrátt fyrir allar kvartanir um ófullkomin lán, yfir 200 millj. kr. meiri upphæð en öll aukning innlána var á sama tíma. Þessi óeðlilega útlánaaukn- ing bankanna, hefði getað haft mjög alvarleg áhrif í efnahags- kerfinu, ef ekki hefði komið til mótvægis hin mjög góða afkoma ríkssjóðs. Hin góða afkoma ríkis- sjóðs á síðastliðnu ári, hefur ?ví beinlínis valdið því, að bankakerfinu reyndist auðið það ár að verja til atvinnuveganna mun meira fé en ella hefði verið auðið að gera. Má því ekki van- meta þýðingu þess, að góð af- koma sé hjá ríkissjóði. Ekki siður er það þó mikilvægt, að þessi góða afkoma rikissjóðs á síðast liðnu ári er blátt áfram forsenda þeirrar verðstöðvunar- stefnu, sem rikisstjómin nú hef- ur markað og á áreiðanlega al- menningshylli, samhliða því, að orðið hefur að hækka niður- greiðslur um hundruð milljóna, til þess að halda verðlagi í skefj- um, þá hefur verðfall útflutn- ingsframleiðslunnar valdið því, að til viðbótar hefur ríkið orðið að Ieggja fram álíka fjárhæð til stuðnings sjávarútveginum. Hefði einhvem tíma þótt í frá- sögu færandi, ef auðið hefði ver- ið að gera slíkar tvíhliða ráð- stafanir, er námu svo stórkost- legum fjárhæðum, án þess að þurfa að grípa til neinnar nýrrar skattáiagningar. ar lántökuheimildir. Má ætla aðog var þá ákveðið að leggja til Aukið athafnafrelsi og frjáls verzlun. Aukið athafnafrelsi og frjáls verzlun hefur verið eitt höfuð- einkenni viðreisnartímabilsins, og hefur hvort tveggja átt sinn stóra þátt í að bæta lífskjör þjóðarinnar. En grundvöllur þessara mikilvægu framfara, er ákveðin stefna í peningamálum, fjármálum ríkissins og efna- hagsmálum almennt. Er nauð- synlegt að leggja á þetta ríka áherzlu vegna þess einmitt, að á þessu sviði er mjög reynt að villa um fyrir mönnum. Frelsi í athöfnum og viðskiptum konwi ekki af sjálfu sér, það þekkjum við af langri reynslu, hafta og vandræða. Þegar núverandi stjórnarstefna var mörkuð, þá var traust þjóðarinnar erlend- is þrotið og lán með eðlilegum hætti var hvergi auðið að fá. Vegna skynsamlegra efnahags- ráðstafana 1960, tókst að fá stuðning alþjóðlegra fjármála- stofnana til þess að koma á frjálsum viðskiptum í landinu og auknu athafnafrelsi. Arangur þessarar stefnu varð sem menn höfðu vonað, þannig að á skömmum tíma tókst að endur- greiða öll þau gjaldeyrislán, sem fengin voru í sambandi við þessar aðgerðir, síðan hefur smám sáman verið byggður upp gjaldeyrisvarasjóður, sem nú nemur um 2000 millj. kr. Surntr láta séf að vísu fátt um finnast þennan sjóð og gera jafnvel til- Framh. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.