Morgunblaðið - 03.05.1967, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1967.
KaffisaEa til ágoða fyrir
nýtt færeyskt sjó-
mannaheimili
EINS og skýrt heíur verið frá
1 fréttum blaðsins, eru nú uppi
ráðagerðir um það, að færeyska
íjómannatrúboðið kaupi lóð fyr-
ir nýtt sjómannaheimili Færey-
inga hér við höfnina. Þar sem
heimilið stendur nú er aðeins
um að ræða bráðabirgðalóð fyr-
ir það og hafa borgaryfirvöldin
gert færeyska sjómannatrúboð-
inu aðvart um að húsið verði
að víkja er fram líða stundir.
Stjórn Sjómannatrúboðsins hef-
ur nú á hendi lóð undir nýtt
sjómannaheimili á lóð vestur
við Nýlendugötu. Vonast Fær-
eyingar til að þeir geti ráðist
í að kaupa lóðina og reisa þar
sem fyrst nýtt og stærra heim-
ili — steinsteypt hús, þar sem
hægt verður að veita hinum
fjölmörgu Færeyingum er hing
að koma til starfa aukna fyrir-
greiðslu og aðstoð. Til ágóða fyr
ir hið nýja sjómannaheimili
verður á morgun, uppstigning-
ardag, kaffisala daglangt í Sjó-
mannaheimilinu við Skúlagötu.
Kaffiveitingar hefjast kl. 2.30 og
opið verður til klukkan 23. Voru
færeyskar konur hér í Reykja-
vík og nágrenni önnum kafnar
í gær við kökubakstur. Vonast
Færeyingar til þess að margir
muni leggja leið sína í Sjó-
mannaheimilið og fá sér hress-
andi kaffibolla og stuðla á þann
hátt að því að hið nýja fær-
eyska sjómannaheimili rísi af
grunni í Reykjavík.
5. þing Æ.S.Í.
5. ÞING Æskulýðssamibands fs-
lands var haldið í Þjóðleikhús-
kjallaranum um helgina. __
Fráfarandi formaður Örlygur
Geirsson setti þingið* og drap á
nokkur þau mál sem fyrir því
lágu.
Menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason heiðraði þingið með
nærveru sinni. í ávarpi sem
hann flutti, veik hann að
nauðsyn þess að í landinu væri
atyrk æskulýðsforysta, og
minnti í því sambandi á það hlut
verk sem ÆSÍ gegnir og þá starf_
möguleika sem sambandinu eru
fyrir hendi,
Að lokinni setningu vo”u
atarfsmenn þingsins _ kjörnir:
forsetar þeir Ingi B. Árælsson
og Einar Hannesson og ritarar
þeir Pétur Sveinbjarnarson og
Hrafn Magnússon.
Því næst voru fluttar skýrslur
stjórnar og reikningar sam-
bandsins útskýrðir. Sérstaka
skýrslu flutti Ólafur Egilsson
lögfræðingur um Æskulýðslög-
gjöfina, en hann átti sæti, sem
fulltrúi ÆSÍ, í nefnd þeirri er
samdi lagafrumvarpið. Skýrsl-
anna verður getið nánar síðar.
Umræður um skýrslux urðu
nokkrar en þingfundi frestað kl.
17.45, og störfu þá fastanefndir
þingsins svo og á sunnudags-
morguninn.
Kl. 13.30 á sunnudag var þing-
fundi svo framhaldið. Haldið var
áfram umræðum um skýrslur og
voru því næst lögð fram nefndar
álit. Framsögumen nefnda voru
þessir: Félagsmálanefnd: Ragn-
ar Kjartansson, Laganefnd:
Svavar Gestsson, Allsherjar- og
fjárhagsnefnd: Örlygur Geirsson
og nefnd Alþjóðlegra samskipta:
Ingi B. Ársælsson. Sam-
þykkt var sérstakt ávarp til
íslenzku þjóðarinnar um endur-
skipulagningu þjóðhátíðarhaids
og breyttan þjóðbúning. Er það
birt á öðrum stað í blaðinu.
Síðasti liður þingsins var
ávarp hins nýkjörna formanns,
Ragnars Kjartanssonar. Þakkaði
hann mönnum góða þingsetu og
vonaði að 'hinni nýkjörnu stjórn
mætti auðnast að koma í fram-
kvæmd öllum þeim mörgu mál-
um, sem þingið hefði gert álykt-
un um.
Fulltrúar brezkra skipa
smíðast. í heimsókn
SEX FULLTRÚAR brezkra
akipasmíðastöðva eru í heimsókn
hér á landi til að kanna grund-
völl fyrir frekari viðskiptum
milli íslands og Bretlands. Á
fundi með fréttamönnum sagði
forystumaður hópsins J. G. BeU
að undanfarin ár hefði þeim
skipum fækkíjð tsöðugt, sem
Bretar smiðuðu fyrir okkur, flest
okkar skip væru fengin frá
Noregi eða Vestur-Þýzkalandi.
Hann sagði að þeir byggjust
okki við að fara héðan með neina
oamninga upp á vasann, slikt
teki lengri tíma, en erindi þeirra
væri fyrst og fremst að kynna
oér þarfir íslendinga og sjá hvað
þeir gætu gert til að bæta úr
þeim. í þeim tilgangi myndu þeir
m.a. ræða við viðskiptamálaráð-
herra, GyLfa Þ. Gíslason, sjávar-
útvegsmálaráðherra Eggert G.
Þorsteinsson, og svo stjórnendur
helztu skipafélaga og útgerðar-
fyrirtækja. AðaHega myndu þeir
þó kanna grundvöll fyrir sölu
fiskiskipa hingað t.d. skuttogara,
en gætu þó lagt á ráðin um kaup
hverskonar skipa, enda væru
þeir hér á vegum 42 brezkra
skipasmíðastöðva. Hvað greiðslu
skilmála snerti hefðu þeir gert
samanburð á sínum og greiðslu-
skHmálum ýmissa annarra landa
og gætu bóðið alveg jafn hag-
stæð kjör. Fulltrúarnir munu
halda utan aftur á föstudag.
Sýning Norræna listbandalags-
ins opnuð í Stokkhólmi
Olíumynd eftir Kristján Davíðsson á sýningunni í StokkhólmL
S. L. FIMMTUDAG var opnuð f
Stokkhólmi Norræn listsýning,
sem Norræna listbandalagið
(Nordisk Kunstforbund) stendur
fyrir. Á sýningunni verða 14 ís-
lenzkir Ustamenn, 11 listmálarar
og 3 myndhöggvarar, samtals
um 60 listaverk.
Með sýningunni í Stokkhólmi
heldur Norræna listbandalagið
upp á 20 ára starfsafmæli sitt,
en það var stofnað 1945 af Sví-
um, en tók hinsvegar ekki til
starfa fyrr en 1947. Hefur banda
lagið á þessum 20 árum gengisl
fyrir Norrænum samsýningum á
tveggja ára fresti á Norðurlönd-
unum til skiptis. Auk sýninga
á Norðurlöndum hefur það geng
izt fvrir Norrænum samsýning-
um í Þýzkalandi og á Ítalíu.
Sýningin í Stokkhólmi var
opnuð við hátíðlega athöfn á
fimmtudag og flutti Valtýr Pét-
ursson aðalræðuna. Fórust Valtý
m.a. orð á þessa leið:
Annað hvert ár heldúr Norr-
æna Hstbandalagið sýningu í
einu hinna Norrænu landa. Á
þennan hátt reynir það, að safna
saman og sýna það sem er að ger
ast í list hvers lands fyrir sig,
og gefa þannig listamönnum og
almenningi tækifæri til að kynn
ast því. Þetta hefur mjög mikla
þýðingu fyrir Ibúa Norður-
Vaitýr Pétursson listmálarí.
landa, og ekki síður mikla þýð-
ingu fyrir sjálfa listamennina.
Menn dæma gjarnan þjóðir út
frá menningu þeirra, og svo
lengi sem menn þekkja ekki tH
menningarlífs þjóðar, þekkja
þeir ekki hin eiginlegu kjör
hennar. Listin er án efa stór þátt
ur í menningarlífi hverrar þjóð-
ar. Þess vegna er mikið atriði að
almenningur fái tækifæri til
þess að kynnast því sem unnið
hefur verið í norrænni list, bæði
fyrr og nú. Siikt getur skapað
skilning, vináttu og virðingu
milli manna, bæði innan og utan
við norræna samvinnu. Það er
vel hægt að segja það, að Norr-
æna listbandalagið hafi unnið
að þeirfi hugmynd að skapa lista
heild á Norðurlöndunum, þar
sem minnsta þjóðin hefux sama
rétt og sú stærsta, og þar sem
listagildið væri í öndvegi, óháð
stjórnmálum og veldi peninga.
Þeir íslenzku listamenn er
sýna á sýningunni eru listmál-
ararnir: Svavar Guðnason,
Kristján Davíðsson, Jón Engil-
berts, Jóhannes Jóhannesson,
Þorvaldur Skúlason, Valtýr Pét-
ursson, Steinþór Sigurðsson,
Elríkur Smith, Benedikt Gunn-
arsson, Hjörleifur Sigurðsson og
Hafsteinn Austmann og mynd-
höggvararnir Jón Gunnar Árna-
son, Jón Benediktsson og Gunn-
fríður Jónsdóttir.
Karlakór Selfoss
Karlakór Selfoss heldur
söngskemmtanir
Selfossi, 2. maí.
KARLAKÓR Selfoss heldur
samsöng í Selfossbíói n.k.
fimmtudagskvöld, uppstigningar
dag kl. 21.00. Stjórnandi kórs-
ins er nú Einar Sigurðsson.
Á söngskrá eru 20 lög eftir
innlenda og erlenda höfunda.
Einar Sturluson óperusöngvari
og Hjalti Þórðarson skrifstofu-
stjóri syngja einsöng með kórn-
um.
Einar Sturluson og sðngstjór-
inn hafa þjálfað kórinn í vet-
ur, en söngmennirnir eru 29 að
tölu.
Þetta er annað árið í röð,
sem Karlakór Selfoss heldur
sjálfstæða samsöngva, en hann
er ungur að árum, aðeins rúm-
lega tveggja ára.
Fyrirhugað er aS endurtaka
samsönginn í félagsheimilinu á
Flúðum á föstudagskvöld 5. maí
og í Aratungu á sunnudagskvöld
ið 7. maí, og munu samsöngv-
amir hefjast á báðum stöðun-
um kl. 21.30. I ráði er að kór-
inn syngi víðar á Suðurlandi á
næstunni.
Undirleik á þessum samsöngv
um kórsins annast Jakobína
Axeisdóttir úr Reykjavík.
T. 3.
Veizlukoffi í
Skátoheimilinu
SUNNUDAGINN 7. maí n.k.
gengst nemendasamband Hús-
mæðraskólans að Löngumýrt,
fyrir kaffisölu í Skátaheimilina
til ágóða fyrir starfsemi sína.
1964 voru liðin 20 ár frá stofnun
húsmæðraskólans og var þá öll-
um fyrrverandi nemendum b< feið
til veizlufagnaðar þar á staðn-
um. Voru þá gerð drög að stofn
um sambandsins.
Stofnfundur var svo haldinn
17. maí 1965. Markmið félagsina
er að efla kunningsskap og vin-
áttu meðal aUra þeirra er stund-
að hafa nám við Húsmæðraskól-
ann að Löngumýri í Skagafirði,
og vinna eftir megni að hagsimun-
um skólans. Stjórn félagisin*
skipa: Arndfe Magnúsdóttir, for
maðuir, Guðlaug Hraunifjöra,
gjaldkeri, Sigríður Steingríms-
dóttir, ritari og meðstjórnendur
eru Lovísa Hannesdóttir og Sig-
ríður Jóhannesdóttir.
Fiugskýli brennur
Kaupmannahöfn, 28 apríl
(NTB).
ÞRJÁR flugvélar eyðilögðust 1
gær þegar flugskýli .Scanavia-
tion A/S“ á Kaupmannahafmar-
flugvelli brann til kaldra kola.
Flugskýlið var úr timbri og var#
aielda á svipstundu. Byggðu
Þjóðverjar skýii þetta á heima-
styrjaldarárunum síðari.