Morgunblaðið - 23.05.1967, Page 1
32 SIÐUR
54. árg. — 112. tbl.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Egypzk skriðdrekahersveit á Austureyðimörkinni á iedð til herbækistöðvanna við landamæri Xsraels og Egyptalands á Sinai-
skaganum. Myndin er tekin á laugardag sl. — (AP).
Egyptar fjölga enn herliði
sínu í Sinai
Flest Arabaríkin kalla út varalið
— U Tbant á leið til Kairo
New York, Jerúsalem, Kairó,
22. maí. — (AP-NTB) —
U THANT, aðalritari SÞ, fer
frá New York til Kairó í
kvöld til að ræða við egypzka
ráðamenn um möguleikana
á því, að gæzlusveitir SÞ fái
á ný herstöðvar sínar á
landamærum Egyptalands og
ísraels, en samkvæmt kröfu
Egypta voru gæzlusveitirnar
fluttar frá Sinai-skaðanum í
fyrri viku. U Thant mun hitta
að máli Nasser forseta ara-
bíska Sambandslýðveldisins
og Mahmoud Riad utanríkis-
ráðherra. U Thant tjáði frétta
mönnum í New York í dag,
að hann mundi ekki heim-
sækja ísrael né neitt annað
Arabaríki utan Egyptaland í
þessari ferð. Hann vildi ekki
ræða ástandið fyrir botni
Miðjarðarhafs, en sendi á
laugardag öryggisráðinu
skýrslu þar sem sagði, að
ástandið þar væri alvarlegra
en nokkru sinni síðan Súez-
stríðinu lauk. Við þessa
skýrslu kvaðst hann engu
hafa að bæta.
ísrael hefur farið þess á leit
við Bandaríkjastjórn, að hún
endurtaki fyrri yfirlýsingu sínar
þess efnis, að hún muni ekki
láta yfirgang Araba á landa-
mærum ísraels viðgangast.
Bandaríkin hafa neitað að verða
við þessari beiðni, a.m.k. fyrst
um sinn. Heimildarmenn segja,
að þetta þýði ekki, að Bandarík-
in hafi hætt stuðningi sínum við
ísrael, heldur þýði neitunin, að
Bandaríkin vilji ekki hindra til-
raunir alþjóðlegra aðila til að
reyna að koma á friði fyrir
botni Miðjarðarhafs.
I ræðu, sem forsætisráðherra
ísraels, Levi Eshkol, hélt á þingi
í Jerúsalem í dag, sagði hann, að
ef Egyptar fækkuðu í herliði
sínu við landamæri ísraels
mundu ísraelsstjórn gera slíkt
hið sama. Eshkol fordæmdi
harðlega hermdarverk, sem
framin eru gegn sérhverju landi,
sem er meðlimur í Sameinuðu
þjóðunum. Sagði hann, að ísrael
hefði sýnt mikla sjálfsstjórn og
rósemi gagnvart hermdarverk-
um Sýrlendinga í Israel, en er
gripið hefði verið tii allra stjórn-
málalegra ráðstafana án árang-
urs, væri Ísraelsríki til þess
neytt, að grípa til áhrifaríkari
aðgerða. Hermdarverkin verða
æ tíðari og umfangsmeiri, sagði
forsætisráðherrann, og mér
finnst nauðsynlegt að gera Sýr-
landi það Ijóst, að við munum
Framh. á bls. 31
Utgöngubann í Hong Kong
— eftir óeirðir 11. daginn í röð. Sendi-
manni brezku stjórnarinnar í Skanghai
vísað frá Kína
Hong Kong, 22. maí AP-NTB
YFIRVÖLDIN í Hong Kong
hafa fyrirskipað útgöngubann í
borginni frá sólsetri til sólar-
uppkomu. Var gripið til þessa
ráðs eftir að komið hafði til al-
varlegra átaka í borgnni, ellefta
daginn í röð. Skotvopni var
beitt í átökunum í dag, í fyrsta
sinn. — Leynilögreglumaður
Vopnahlé hafið í Vietnam
IM-Vietnam rauf það á fyrstu minútunum
Saigon, 22. maí. AP—NTB
GENGIÐ er í gildi sólarhrings-
vopnahléð, sem Bandarikjamenn
gera í Vietnaín í tilefni fæð-
ingardags Buddha 23. mai, en
Viet Cong lýsti því yfir fyrir
nokkru, að hreyfingin mundi fyr
ir sitt leyti gera 48 stunda vopna
hlé í sama tilf. Einungis tveim-
nr mínútum eftir að vopnalhléð
var gengið í gildi í S-Vietnam
rufu hermenn N-Vietnamstjórn-
ar það og réðust á herd. Banda-
ríkjamanna á miðhálendinu suð
nr atf hlutlausa beltinu. En sam-
tímis hættu hardagar í hlutlausa
beltinu, og bandarískair hersveit
ir sem þar eru staddar haifa til-
kynnt, að engin vopnaviðskipti
befðu orðið siðan vopnahléið
gekk í gildi. f árás N-Vietnama
á miðhálendi S-Vietnam féllu
15 Bandaríkjanaenn og 50 her-
■nenn Hanoi-stjómarinnar. Hinir
cáðarnefndu réðust á bandarísku
heldeildina með eldflaugum og heimsins, að endir yrði bund-
sprengjuvorpum.
í bardögunum í hlutlausa belt
ónu hafa, síðan Bandaríkjamenn
igerðu þar inrás í fyrri viku, fall
ið 648 skæruliðar Viet Cong en
36 voru teknir höndum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá aðal-
bækistöðvum Bandaríkjamanna
á Saigon féllu þar 83 Bandaríkja
anenn og 500 særðust.
Hanoi-útvarpið tikynntd í dag,
,að flugvélar N-Vietnam hefðu
skotið niður 6 bandarískar or-
ustuvélar þann daginn.
Johnson Bandaríkjaforseti
hvatti í deg leiðtoga N-Vietnam
•til að fallast á friðarumleitanir.
í yfirlýsingu, sem forsetinn gaf
út í tilefni minningardags fall-
Anna hermanna, sem er 30. maí
nk. Sagði hann, að það væri ósk
ibandarísku þjóðarinnar og alls
inn á hin blóðugu átök í Viet-
skaut á hóp manna, seim varpaði
sýru og plastpokum með benzíni
í á lögreglumenn. Einn Kín-
verji særðist og var fluttur í
sjúkrahús. Fyrir hádegi í dag
höfðu 54 menn verið handtekn-
ir. Þá hefur verið tilkynnt, að
opinberar samkomur megi ekki
halda nema með leyfi stjórnar-
valdanna.
Átökin breiddust í dag frá
iðnaðarsvæðinu Kowloon til
borgarhlutans á Hong Kong
eyju sjálfri og beittu lögreglu-
menn bæði táragasi og kyllum
til að halda óeirðarseggjum í
skefjum. Alvarlegastar urðu
óeirðirnar við Hilton-hótelið en
í opinberri yfirlýsingu segir, að
þær hafi verið vandlega undir-
búnar og margir þátttakenda,
þar á meðal margar konur, hafi
Framhald á bls. 3.
- segir „Hagblað
Alþýðunnar46
Peking, 22. maí — AP-NTB
MÁLGAGN kínverska kommún
istaflokksins, „Dagblað Alþýð-
unnar“ hefur staðfest í forystu-
grein að viða um landið hafi
komið til blóðugra átaka, sem
jafnt hermenn sem óbreyttir
borgarar hafi átt aðild að. Blað
ið skorar á íbúa landsins að
binda enda á þessi átök, sem
farið hafi vaxandi að undan-
förnu, ella verði ríkisstjórnin að
grípa til harðra ráðstafana.
Áður hafði komið fram í AP-
fréttum frá Tokíó, að blóðug
átök hefðu orðið í Szechwan-
héraði, um hundrað manns beð-
ið bana og sjö hundruð særzt.
f héraði þessu hefur andstaðan
gegn stuðningsmönnum Maos
verið hvað hörðust og hefur áð-
ur komið fram á veggspjöldum
í Peking, að um fcíu þúsund
manns hafi fallið í átökum I
tveimur stærstu borgunum þar,
Chengtu og Ipin.
Þá hafði Moskvuútvairpið sagt
eftir japönskum heimildum, að
andstæðingar varðliðanna og
Maos í Heilunkiang ættu nú 1
fullkomnu stríði. Þar hefðu
nokkur hundruð þúsund verka-
menn tekið mikilvæga borg úr
höndum sextíuþúsund stuðnings
manna Maos. Væru atburðir
þessir hiniir alvarlegustu í Kíiva
frá því menningarbyltingin
hófst.
Að sögn NTB-fréttastofunnar
kemur fram í fyrrgreindii grein
Dagblaðs Alþýðunnar, að átökin
í landinu séu ýmist milli and-
stæðinga og stuðningsmanna
Maos eða innbyrðis átök hinna
ýmsu hópa stuðningsmanna
hans. Að sögn blaðsins hafa
bæði Mao og Lin Piao, land-
Framhald á bls. 3.
Bruni í
Brussel
Brussel, 22, maí , AP.
STÓRBRUNI varð í verzlun
í hjarta höfuðborgar Belgíu
í dag. Um 10 manns fórust í
brunanum en milli 40—50 1
voru fluttir á sjúkrahús, marg
ir með alvarleg brunasár.
Allmargra er enn saknað úr
brunanum. Eldsupptökin eru
ókunn.
Pasternaks minnst í Kreml
Moskvu, 22. maí — NTB
BORIS Pasternak og Anna
Achmatova voru heiðruð
með einnar mínútu þögn á
fyrsta sovézka rithöfunda-
þinginu á þessu ári. Þingið
hófst í Moskvu í dag.
Rósemi og varfærni ein-
kenndi ræður rithöfundanna
í dag og sérstök áherzla var
lögð á hlutverk flokksins í
bókmenntunum. Um 500 sov-
ézkir rithöfundar komu til
þingsins, m.a. Michael Sjolo-
kov og Leonid Leonov. Ráð-
stefnan fer fram í þinghöll-
inni í Kreml. Við opnun
þingsins voru viðstaddir
Kosygin forsætisráðherra,
Bresnjev, aðalritari sovézka
kommúnistaflokksins, Pod-
gorny, forseti Sovétríkjanna
og margir aðrir framámenn
í sovézkum stjórnmálum.
Alls 27 þjóðlönd sendu sendi-
nefndir á þingið, m.a. Finn-
land og Svíþjóð.
Varfærni og íhugun ein-
kenndi einnig kosningar á
forsetum þingsins, sem urðu
Alexander Tvardovskij og
Andirei Vosnesenskij.
í Mosikvu er álitið að þetta
þing verði friðsamara en aðr
ar ráðstefnur Sovétrithöf-
unda fram til þessa.