Morgunblaðið - 23.06.1967, Page 3

Morgunblaðið - 23.06.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967. 3 Tel óhjákvæmilegt aö fastafulltrúinn hjá NATO hafi búsetu í Brússel Talað við Henrik Sv. Bjömsson sendiherra HEINRjIK Sv. Bjömsson, sendiherra íslands í París og fastafulltrúi íslands hjá NATO, er nú staddur hér á landi. Kom HenriJc hingað frá Luxembourg, en þar sat hann utanríkisráð- herrafund NATO fyrir ís- land, ásamt Agnari Kl. Jóns- syni, í forföllum utanríkis- ráðherra. Átti Mbl. stutt við- tal við Henrik og spurðist þá fyrst fyrir um utanríkisráð- herrafundinn: — Fundurinn var haldinn á þriðjudag og miðvikudag í liðinni viku, sagði Henrik, og voru á honum ræ'dd nokk- ur málefni m. a. ástandið í Austurlöndum nær. Það snertir að vísu ekki NATO neitt sérstaklega, en þetta er óneitanlega mál sem marga varðar, og eðlilegt er að á fundum NATO séu heims- málin rædd. Á fundinum í Luxembourg voru ýmsir ráð- herrar, sem nú sitja auka- fund Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Stefna NATO í máli þessu er í höfuðatriðum sú, að reynt verði að draga úr spennu og vígbúnaðar- kapphlaupi og að reynt verði að finna á máli þessu varan- lega lausn. — Haldið þér að afstaða De Gaulle til þessara mála hafi komið á óvart? — Það er oft erfitt að sjá afstöðu De Gaulle fyrir. Hinsvegar var það ljóst þegar átökin byrjuðu, að afstaða Frakka var breytt frá því sem áður var. Lögðu þeir nú mikla áherzlu á að gæta ýtrasta hlutleysis í deilunni. — Voru málefni Grikklands nokkuð rædd á fundinum? — Það vár ekki gert, enda telja Grikkir það sitt innan- ríkimál og mundu ekki kæra sig um að það yrði rætt á þessum vettvangi. Skapar ekki brottflutn- ingur aðalstöðva NATO frá París, erfiðari aðstöðu fyrir ísland? — Hún gerir það náttúr- lega fyrir allar þjóðir, hvað kostnaðarhliðinni viðvíkur, og þá alveg sérstaklega fyrir okkur. Herstöðvarnar voru fluttar s.l. vor til Briissel og í okt. í haust verða svo skrif- stofurnar fluttar. Verður það óhjákvæmilegt fyrir ísland að skipa fastafulltrúa með búsetu í Belgíu, og sennilegt má þá telja að sá maður verði jafnframt sendiherra íslands í Belgíu. — Telur þú, að ákvörðun Frakka um að fá aðalstöðvar NATO fluttar, hafi veikt að- stöðu NATO? — Það gerði hún náttúr- lega að einhverju leyti, og skapaði örðugleika, sem nú virðist að mestu að séu yfir- stignir. Samfara flutningum aðalstöðvanna á svo að fara fram endurskipulafning bandalagsins og hefur til þess starfs verið skipuð nefnd, sem væntanlega mun skila áliti fyrir næsta ráðherrafund bandalagsins, sem haldin verð ur í desember. — Og afstaða annara ríkja til ákvörðunar Frakka? — Hún lýsir sér bezt í sam- eiginlegri yfirlýsingu, er for- sætisráðherrar hinna 14 landanna gáfu út strax eftir hana. Ég held að sú samstaða hafi haldizt fullkomlega síð- an. — Hve margir íslendingar hafa búsetu í París? — í París munu eiga fasta búsetu milli þrjátíu og fjöru- tíu Islendingar, ef námsmenn eru meðtaldir. Það eru nokkr- ar fjölskyldur tengdar sendi- ráðinu, nókkrar konur eru giftar Frökkum og nokkrir karlmenn starfa þar við stofnanir eða fyrirtæki. — Virðist þér fara í vöxt, að íslenzkir námsmenn sæki háskóla í Frakklandi? — Já, ég held, að það fari heldur vaxandL Það er frek- ar dýrt að stunda náms í París, en aftur á mótá hefur verið unnt að útvega mörgum stúdentum húsnæði á stú- koma svo á ferðalögum sínum til borgarinnar vita hvar þá dentagörðum og það munar töluvert miklu fyrir þá. — Halda íslendingar í París hópinn? — Þeir halda nokkuð mikið hópinn og hittast á ákveðnum stað á kvöldin. Þeir, sem viðskipti fslands og Frakk- lands? — Á þeim eru nokkrar hömiur, sem stafa af toll- vernd Efnahagsbandalagsins. Af þessum sökum hefur dreg ið úr útflutningi á frystum fiski frá íslandi til Frakk- lands. Aftur á móti virðist svo, að útflutningur Frakka •til íslands færi vaxandi. — Heldur þú, að innganga Breta og Norðmanna í Efna- hagsbandalagið mundi leiða af sér erfiðari viðskiptaað- -'■íj-í ... Am,. , . fe * Henrik Sv. Björnsson og frú er að hitta og koma í heim- sókn. — Leita íslenzkir ferða- menn oft liðsinnis sendiráðs- ins? — Það kemur stundum fyrir að svo sé. Ekki mundi ég þó segja, að það væri oft. Ferðamannahópar, sem ferð- ast með ferðaskrifstofum vit- um við lítið um, þar sem allt ferðalagið er skipulagt fyrir- fram. Svo er líka töluvert um það, að Frakkar komi í sendi- ráðið og leiti upplýsinga um ísland, hvort heldur þeir hyggja á viðskipti eða ferða- lög hingað. — Hvað er að segja um stöðu fslendinga á Frakk- landsmarkaði? — Um þetta er ekki svo gott að segja. Tíminn verður að skera hór úr. Ekki er það ólíklegt. Annars er ég þeirr- ar skoðunax, að það geti liðið nokkur tími, áður en af því verður, að Bretar og Norð- menn fái aðild að bandalag- inu. — Og að lokum Henrik? — Ekkert nema það, að við ætlum að dvelja hér í sumar- leyfi okkar. Við reynum yfir leitt að komast til íslands, þegar tækifæri gefst. Teljum við það bæði nauðsynlegt og ánægjulegL Farmannaverkfallið í TILEFNI af yfiriýsingu Farmanna- og fisMimanna- isam'bands Islainds um bann við ver'kfalli vélistjóra, stýri- manna og loftgkeytamanna, sneri Mongunblaðið sér tii Björgvins Sigurðssonar fram kvæmdastjóra Vinnuveit- enidasambands íslands og spurði hann állits á efni henn Strassbourg, 21. júm. NTB. WALTER Hallstein, forseti Efnahagsbandalags Evrópu, sem innan tíðar lætur af því starfi, sagði í ræðu í dag, að stofnun Efnahagsbandalags Evrópu hefði orðið til þess að styrjöld væri nú óhugsandi í Vestur-Evrópu. Haiilistein hélt ræðu sína á Bvr ópuíþinginu og er það sögð hans síðasta ræða í embætti fonseta. sem hanm lætur af eftir u.þ.b. viku. Haft er eftir góðuim heiim- ar. Svar Björgvins var á þá leið, að frásögn farmanna á ganigii þessara miála væri mjög einhLiða og vaifaisöm heimild. En þar sem málið í h-eild hefði venið afhent hlutliausum aðila til úrskurð ar, teldi hann ekki rétt né heppilegt að ræða það frexc- ar að avo stöddu. il'duitn, að hann hafi ætlað að filytja þessa ræðu á fundi æðstu manna aðildarníkja EBE í Róm í síðustu viiku, en de Ga-ulle, for- seti, hafi komið í veg fyrir, að hún yrði fHutt. Forsetinn sagði meðal annars, að þingmenn EBE-landanna gætu verið ánægðir með þamn áramgur, sem hefði náðst á liðnu ári. Bfnaiha'gsbandaliagið hefði þega.r náð geysimiklum árangri — en þó væri margt ógert TaiMi hann það ölluim aðildarrikjun- um i hag, að komið yrði á lagig- irnar óháðu, ábyrgu, evrópsku máligagni, sam gæti verið vett- vangiur hinna ýmsu skoðana var andi bandalagið ag þjóðar- hagsmuma einstakra aðildar- rilkja þess. En erfiðusitu vandamálin, sem bandalagið ætti fyrir höndum, taldi Hallstein umsóknir Bnet- ilands, Danmerkur og írlamds um aðild að því og bvaitti hann til þess, að atlt yrði gert, sem í mannlegu valdi stæði til þess að ná samkiomulaigi um mál þeirra. Hallstein varaði við Iþjóðernisrembingi og þjóðhaigs- legri eigingirni oig sagði æsikileg ast, að sem flest riki Evrópu fengju aðilid að bandala,ginu — þó þannig, að það veikti ekki byggingu þess. -----♦♦♦------- Eldur í trésmíða- verkstæði b Kopavogi SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt út kl. 22.15 í gærkvöldi að Nýbýla- vegi 6 í Kópavogi, en þar hafði komið upp eldur í trésmíða- verkstæði. Elidurinm var í litlu herbergi, þar sem rafmagnstafla var og vax hann allmagnaðiur og mik- ill reykur er slökfcviliðið kom á vettvanig. Fljótlega tókst að ráða nið- urlögum eldsins ag hefur sllökkvisitarfið tekið tæpan kil-ukkuitíma. Allmiklar skemmdir urðu i herberginu á ýmsium varningL ------♦♦♦-------- STUTTU MÁLI London, 22. júní — AP BREZKA flugfélagiið BOAC tilkynnti í dag að það ihefði samþykkt skýrslu japanskra yfirvalda varðandi flugslys- ið í marz 1966, er eim af þot- um félagsins Boeing 707 rakst á Fuji-fjall með þeiim afleið- ingum að 124 farþegar og flugliðar létu lífið. f japönsku skýrslumni segir að miklar og óvenjulegar lofttruflanir hafi valdið slysinu. 19 líflátnir á Haiti Santo Domingo, 20. júní — AP. Kaupsýslumaður einn, sem ný- lega er kominn frá Haiti til Dominikanska lýðveldisins, hefur skýrt svo fré því, að sl. mánuð hafi 19 Haitibúar verið teknir af lífi fyrir glæpsamlega and- stöðu við stjórn Francois Duvali- er, forseta. Maðurinn, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að í Haiti sé nú allt kyrrt á yfir- borðinu, en undir niðri mikil spenna. Stríð í Vestur Evrópu óhugsandi vegna EBE segir Walter Hallstein, sem lætur aí störíum STAKSTEIEVAR Skoðanakannanir og úrslit kosninga Menn hafa að vonum veK mjög fyrir sér úrslitum þing- kosninganna, helztu ' orsökum þeirra og hvernig einstakir kjósendahópar hafi skipzt milll flokkanna. Hverjar orsakir liggja til fylgistaps Sjálfstæðiæ flokksins í Reykjavík, til fylgis- aukningar Alþýðuflokksins, stöðvunar Framsóknarflokksins, hvaða kjósendur aðrir en kjós- endur Alþbl. greiddu I-listanum atkv. o. sv. frv. Allt eru þetta spurningar, sem leitað er svara við þessa dagana en ólíklegt er að menn komist að nokkrum skynsamlegum niðurstöðum með an ekki liggja til grundvallar þeim neinar ákveðnar rann- sóknir eða skoðanakannanir. Skoðanakannanir eru mikilvæg- ar fyrir stjórnmálaflokka bæðl til þess að kanna viðhorf kjós- enda til einstakra mála fyrir kosningar og ekki siður til þess að komast að raun um ástæður fylgisaukningar eða fylgistaps að kosningum loknum. Einhverj- ar tilraunir hafa verið gerðar með skoðanakannanir hér á landi en þær hafa verið á mjög takmörkuðum sviðum. Erlendis eru skoðanakannanir fyrir löngu orðnar nauðsynlegt tæki í stjórnmálabaráttunni og þótt reynslan hafi sýnt að þær hafl ef til vill vafasamt gildi að því er varðar að segja fyrir nm hvert straumarnir liggja í kosn- ingabaráttunni er þó ljóst að engin leið er að skilgreina kosn ingaúrslit til hlítar án aðstoðar þeirra. Almennt gildi En skoðanakannanir hafa að sjálfsögðu almennara gildi en einungis það að segja fyrir nm orsakir kosningaúrslita. Þær geta verið þýðingarmikið tæki fyrir ríkisstjórnir til þess að fylgjast með viðbrögðum fólks- ins í landinu við einstökum stefnumáium og aðgerðum ríkisvaldsins og þær geta í höfuð dráttum gefið til kynna hvert almenningsálitið í landinu er til einstakra mála. Þess vegna er það alvarlegt íhugunarefni hvort ekki sé nú tímabært að koma með einhverjum hætti upp stofnun, sem annast slíkar skoð- anakannanir. Veikefni fyrir blöðin? Víða erlendis hafa einstök dagblöð eða vikublöð komið á fót stofnunum sem annast skoð- anakannanir eða eru í nánum tengsium við slíkar stofnanir. Spyrja má, hvort hér geti verið um að ræða verkefni fyrir dag- blöðin hér á landi með einhverri þátttöku ríkisvaldsins eða annars opinbers eða hálf- opinbers aðila. Það kann að vera nokkrum erfiðleikum bundið vegna þess að islenzku dagblöð- in eru flest gefin út af stjórn- málaflokkunum eða í nánum tengslum við þá og því er hugs- anlegt að ýmiskonar hagsmuna- árekstur þeirra í milli gæti tor- vcldað störf slíkrar stofnunar. Sjálfsagt eru margar leiðir til þess að koma slíkum stofnunum á fót meðal annars sú að fá við- urkennda erlenda stofnun t. d. á Norðurlöndum til þess að setja á stofn slíka starfsemi hér á iandi. Alla vega virðist ljóst sem fyrr segir að tímabært sé orðið að koma siikri stofnun á fót hér á landi og væri æskilegt að fyrrnefndir aðilar sem og aðrir, sem áhuga hafa á þessu máli taki það til athugunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.