Morgunblaðið - 23.06.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.06.1967, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967. > \ "Úitgefatidi: Framkvæmdastjóri: ÍRitstjómr: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: 'Ritstjórn og afgreiðsla: Auglýsingar: í lausasölu: Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá. Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími 10-100. Aðalstræti 6. Sími 2i2-4J80. 7.00 eintakið. á mánuði innanlands. HEIMSÓKN BRANDTS anríkisráðherra Vestur- Þýzkalands, Willy Brandt hefuir að undaniförnu flerðazt um Norðuriönd og kenvur hingað til lands í dag. Heim- sókn hins vestur-þýzka utan- ríkisráðherra er fslendingum fagnaðarefni, enda hafa sam- skipti okkar við Vestur-Þjóð- verja í menn inga rlegum og viðsikiptalegum efnum verið mjög náin á undanförnum ár- um. Saga Vestur-Þýzkalands frá stríðslokum hefur vakið bæði undrun og aðdáun um heim allan. Úr rústum heims- styrjaldarinnar síðari hefur risið nýtt lýðræðisríki og vel- ferðarþjóðfélag, sem er Vest- ur-Þjóðverjum til sóma. í þessa tæpa tvo áratugi hefur einnig verið stormasamt um Vestur-Þýzkaland, því að vöxtur þess og viðgangur hefur lengi verið þyrnir í augum Sovétríkjanna og annarra kommúnistaríkja. Þessara ára verður ekki minnzt án þess að nefna Kon rad Adeuauer, hinn mifcil- hæfa leiðtoga, sem veitti Vest ur-Þj óðver j um örugga og trausta forustu á hinum erfiðu uppbyggingarárum eftir stríðið. Willy Brandt, sem nú gegnir utanríkisráðherraem- bætti Vestur-Þýzkalands, hef- ur flestum öðrum mönnum fremur, orðið tákn baráttu Vestur-Þjóðverja gegn ásókn kommúnista vegna fyrra Starfs síns, sem borgarstjóri Vestur-Berlínar á örlagarík- um tímum. Hann var eins konar fóstursonur Emst Reuters, sem var borgarstjóri Vestur-Berlínar fyrstu árin eftir stríð og er óhætt að full- yrða, að hann var með gagn- merkustu mönnum sinnar samtíðar. Því merki sem Reuter hóf á loft hefur Willy Brandt haldið hátt. Úr sögu BerMnar minnast menn örlagaríkra atburða, eins og loftbrúarinnar miMU, þegar Rússar ætluðu að svelta Vestur-Beríínarbúa inni og menn minnast einnig uppreisnar verkamannanna í Austur-Beríín 17. júní 1953, sem var barin niður af so- vézkum herjum. Einn eftirminnilegasti við- burður í sögu Vestur-Berlín- ar síðustu ára er vafalaust heimsókn John F. Kennedys, þáverandi Bandaríkjaforseta í júní 1963, þegar nær tvær milljónir Berlínarbúa þyrpt- ust út á götumar til þess að hylla hinn unga leiðtoga vest rænna lýðræðisþjóða og orð hans af svölum ráðhússins í Beríín óma enn í eyrum beirra, sem á þau hlustuðu: „Allir frjálsir menn í heim- inum í dag eru borgarar Ber Mnar og þess vegna er ég sem frjáls maður, stoltur yífir að geta sagt: „Ich bin ein Berliner.“ Willy Brandt hefur ásamt Kiesinger kanslara og öðmm vestur-þýzkum ráðamönnum markað nýja utanríkisstefnu á s.l. ári, sem miðar að bættri sambúð við Austur-Evrópu Þegar hefur sá árangur náðzt, að stjómmálasamband hefur verið upp tekið við Rúmeníu og þessi nýja stefna hefur valdið mikilli ringul- reið meðal Austur-Evrópu- þjóðanna, sem alls ekki em á einu máli um hvemig bregðast skuli við henni. Til- gangurinn með ferð Willy Brandts til Norðuríanda nú er einmitt sá, að kanna viö- horf Norðurlandaþjóðanna til nánari samvinnu Austur- og Vestur-Evrópuríkja og hann mun vafalaust komast að raim um, að fullur vilji er fyrir hendi hjá þeim til þess að stuðla að slíkri sam- vinnu. LÍNUVEIÐAR VIÐ GRÆNLAND k ð uindanförnu hafa tveir bátar frá Patreksfirði og einn eða tveir aðrir bát- ar stundað línuveiðar við Austur-Grænland með þeim árangri að þeir hafa mok- fiskað og fluftt til vinnslu- stöðva á Vestfjörðum mjög góðan fisfc. Hér er um að ræða mjög afhygiisverða tiiraun, sem ástæða er til að vekja athygM á. Bátar þeseir eru um og yfir 200 tn. að Stærð eða sam bærilietgir við minni síldar- báta eins og þeir gerast nú. Munurinn er sá einn að þeir hafa frystigeyimsilu um borð fyrir beitu en slíkum frysiti- igeymslum mun vera bægt að boma fyrir í flestuim stóru síldarbátunum okfcar. Á sama tíma og síldveiðar hafa gengið mjög vel undan- farin ár hlefiur mjög dregið úr hráefnisötflun til frysti- húsanna og sérstafclega bef- ur dregið úr liínuveiðum. Tilraunir Vestfirðinganna sýna, að hægt er að nýta síldarbátana með góðum 'árangri til Mnuveiða á þeim árstímum, sem síldveiði er engíin eða takmörkuð og mundi það vissulega bæta mjög úr hráefinisskorti frysti húsanna ef fleiri stórir bátar fýlgdu fordæmd hinna vest- firzJku báta. Ekki er minnst um vert að línufiskurinn sem veiðiist við Austur- Ást í framboði EFTIR JEAN SPRAIN WILSON NEW YORK, (Associated Press). — Þegar ástin sigrar allt, og Louis Abolafia veröur forseti Bandaríkjanna, skipa eftirtaldir sennilega ráðu- neytið: Atómskáldið Allen Ginsberg, sem ástamálaráð- herra, Timothy Leary, sem matvæla- og deyfilyfjaráð- herra og sjónvarpsskemmti- krafturinn Johnny Carson ráð herra lífsgleðinnar, — ef hann þá vill taka að sér em- bættið. Það verðúr enginn hermála ráðherra: Reyndar er mögiu- legt að Pentagon verði gert að risavöxnu listasafni. Ef þér ekki vitið það — og það gerið þér sennilega ekki — er Louis Abolafia 25 ára gamall listmálari í New York, sem kveðst ætla að vinna for setakosningarnar 1908 með Ást—List—Fegurð að kjör- orðum. Þetta segir hann. Stuðningsmenn hans halda því fram, að 2500 kjósendur hafi skrifað nafn hans á kjör- seðilinn í ríkisstjórakosning- unum í New York 1966 — og þetta segja þeir, að sé aðeins byrjunin á vaxandi fylgi ungs fólks við „alheims ástina.“ Snúum okkur nú að fram- tíðaráætlunum hans: Undir stjórnarfari ástarinnar munu mæður — í stað þess að jag- ast í krökkunum sínum — beina orkunni til allskonar þjóðlegra fegrunarstarfa. Og æskan — í stað, þess að mis- þyrma götnlum mönnum í skemmtigörðum — mun upp- lifa þá ánægju, sem er sam- fara því að mála, stunda tón- listarnám, eða krota djarfar bókmenntir í skrifblokkir sín- ar. Abolafia, sem lét taka af sér áróðursmyndir, íklæddur engu nema derbýhatti, sem settur var á hernaðarlega mikilvægan stað, segist ör- ugglega ætla að láta til skar- ar skríða 1968. Hinir áköfu stuðningsmenn hans eru þess fullvissir, að ungir kjósendur muni koma honum inn í Hvíta húsið. Flokkur hans er að svipast um eftir röskum og snotrum kvenmanni til að bjóða sig fram með honum sem vara- forsetaefni. „Kannski finnum við slikan frambjóðanda á al- heimsmótinu 1 Washington eftir nokkrar vikur,“ sagði Rem Dolinsky, 38 ára gamall vefnaðarvöruframleiðandi og fylgismaður hins nýja flokks. Abolafia veitti viðtal um daginn, og kom þjótandi laf- móður á umsömdum tíma. Hann hlammaði sér niður í stól og virtist dauðþreyttur á hópum fólk, sem kom til að óska honum heilla og hrista höndina á honum. „Ég er feginn, að ég var ekki í skykkjunni minni í dag, því að þá hefði ferðin orðið verri.“ Hann gaf frá sér písl- arvottsstunu. Þegar hann á annað borð klæðist meiru en derbýhatti fleygir hann yfir herðar sér annarri af tveim skykkjum, sem eru bryddaðar gulli eða silfri, undir henni er hann í þröngum dökkum fötum. Þannig lítur hann út með sitt silkimjúka skegg og hin gulu, dapurlegu augu eins og ein- hver blendingur af Abe Lin- coln og Batam. Þótt hann fæddist ekki í bjálkakofa, tókst Abolafia að fara rétt að ráði sínu, pólitískt séð, og er sonur fátækra foreldra, sem bjuggu í leiguhúsnæði í Vest urbænum á Manhattan. Þegar hann var tíu ára gam- all uppgötvaði félagsmála- ráðunautur nokkur hina list- rænu hæfileika hans og út- vegaði honum hinn fyrsta af þeim mörgu námsstyrkjum, sem hann hefur hlotið, þar á meðal einn mjög eftirsóttan við Safn nútímalistar. Árið 1964 höfðu augu Abola fias opnazt fyrir afstöðu safns ins til nútímamálaralistar, og þetta kom honum til að smygla inn og hengja upp olíumálaverk eftir sig við hlið ina á styttu Rodins „Hug- suðinn“ í Málverkasafni New York-borgar. Eftir að hann slapp úr fangelsinu bar hann áróðursspjöld fyrir utan safn- ið. Þessar aðgerðir, segir hann, hleyptu af stokkunum neðanjarðarhreyfingu innan bandarískrar listar og al- heimsendurreisnarstefnu. Samt var hann enn ekki fyllilega ánægður tveim ár- um síðar, og til að vekja at- hygli á sveltandi listamönn- um fór hann í 18 daga hung- urverkfall. Það kynnii að hafa staðið lengur, en „ . . . starfs- menn safnsins höfðu samband við mig og sannfærðu mig um, að ég gæti gert meira gagn lifandi en dauður.“ Um fylgjendur ástarstefn- unnar segir Aboiafia* „Við njótum lífsins. Sumt fólk heldur að þetta standi í ein- hverju sambandi við kynlíf. En kynlíf er allt annar hlut- ur. Það er ekki endilega falið í stefnu minni.“ Stundum koma þessir fundir eða mót stuðnings- manna hans alleinkennilega fyrir sjónir. Á maraþonsam- komu í Greewich Village, sem stóð í 72 stundir, voru blind- andi ljósaleiftur, ærandi gít- arar og þátttakendur dönsuðu óþreytandi í hringi. Og bananar. Bananar voru seldir í anddyrinu og heilir klasar af þeirn voru bornir um sviðið í skrúðgöngu. Banaæta gat selt hýðið fyrir krónu, eða eftir rétta meðhöndlun, reykt það til að komast í vímu. Samt ætlar Louis Abolafia að láta vera að taka afstöðu til eiturlyfja. Hann er hvorki með þeim eða móti. Hann lítur hálfgerðu hornauga ósk flokksins um að hafa LSD meistarann Timothy Leary í ráðuneytinu. Eftir að hann er kominn til Hvíta hússins hyggst Abolafia breyta Bandaríkjunum í land, þar sem menn elska náunga sinn og stunda fagra iðju. Síðan ætlar hann að ferðast mikið erlendis og dáleiða með ást afganginn af þessum heimi, þar sem peningar virð- ast vera aðalatriðið. Hver verður forsetafrú? „Ég verð að gera eittlhvað í því máli,“ sagði hinn ógifti frambjóðandi hugsandi. „En það verður mín einkabar- átta.“ Bridge AÐALFUNDUR Bridgesam- bands íslands var haldinn í Domus Medica þann 13. júní. Á aðalfundinum voru mœttir full trúar frá bridgefélögunum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnar- firði og Keflavík. Forseti sambandsins, Friðrik Karlsson og gjaldkeri, Kristjana Steingrímsdóttir, fluttu skýrslu stjórnarinnar. Var hagur sam- bandsins góður á s.l. ári. Góð þátttaka var í öllum mótum, sem gengizt var fyrir og m. a. haldið fjölmennasta íslandsmótið til þessa. Nú er unnið að því að senda sveit til keppni á Evrópumeist- aramótið í Dublin í haust, en þangað mun fara sveit Halls Símonarsonar, íslandsmeistarar árið 1967. Á næsta ári eru einnig mikil verkefni fyrir höndum, þar sem er ,Norðurlandamótið í Sví- þjóð og Olympíumótið í Frakk- landi. Þá kom fram mikill hugur hjá stjórn sambandsins og þing- fulltrúum þess efnis, að reynt yrði að festa kaup á húsnæði fyrir samtökin. Fyrrverandi forseti sambands- ins, Sigurjón Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs á þinginoi og fræði sambandinu að gjöf inn- bundið í 11 bindi öll spil, sagnir og úrslit á Norðurlandamótinu í Reykjavík á s.l. ári. Auk þess færði hann sambandinu að gjöf myndaalbúm með myndum frá Norðurlandamótinu. Voru hon- um færðar miklar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Stjórn sambandsins var endur- kjörin, en hana skipa: Forseti: Friðrik Karlsson, varaforseti: Ragnar Þorsteinsson, gjaldkeri: Kristjana Steingríms- dóttir, ritari: Sigurður Helgason, sem öll eru frá Reykjavík. Með- stjórnendur voru kosnir: Gestur Auðunsson, Keflavík, Þorsteinn Laufdal, Reykjavík og Mikael Jónsson, Akureyri. -----♦♦♦------- f FRÉTT í Mbl. 14. júní sl. um nýtízkulegan skutttogara, Cassino H-398 frá Bull, í Reykja víkurlhöfn stóð, að afli hans f fjórum veiðiferðum hefði verið 817 tonn en átti að vera 1817 tonn. Þetta leiðréttist hér með. -----♦♦♦:—7 Dæmdir fyrir rán í Jerúsalem Jerúsalem, 20. júní, NTB. — Herréttur dæmdi í gær tvo óbreytta borgara ísraelska I tveggja og þriggja mánaða fang- elsi fyrir rán og rupl í gamla borgarhluta Jerúsalem. Græitland er afbragðs hr'á-1 liendingar gælti þess að við- afurða á erilenduim vefit- efni en milkilu slkiptir að íis- | halida gæðum íslenzfkra firíc- I varagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.