Morgunblaðið - 24.06.1967, Síða 8

Morgunblaðið - 24.06.1967, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNl 1967. - FERÐASPJALL Prarrthald af bls. 12. ástæða til að beita sér fyrir einliverjuim framkvæmdum á þessum stað? Það var komið glaða sólskin er ég kom að Skálholti. Ég stóð hugfanginn á kirkju- tröppunum, umvafinn helgi staðarins og dýrð náttúrunn- ar. Svo sannarlega vissi sá hinn mæti maður, er gaf þennan stað Guðs kristni, hvað hann vair að gera. í krinig um mig stóðu nokkrir Vestur-íslendingar, komnir «m langan veg til að sjá land feðra sinna. í úrhellinu í Reykjavík um morgunin höfðu sumir þeirra verið á báðum áttum um hvort þeir ættu að leggja út í svona veð ur, en þá sagði ég þeim að ef við legðum aldrei af stað í rigningu á íslandi, sérstak- Iega á Suðurlandi, myndum við missa af mörgum góðu.n ferðum. Ég hefi víst sjaldan mælt spámannlegri orð. Nú hafði þetta fólk séð með eig- in augum hversu furðuleg- um svipbreytingum þetta draumaland þeirra gat tekið á einni dagsstund og að frá- sagnir þeirra, sem eitt sinn áttu þar heima, voru ekki ýkjur einar. Mér er nær að halda að sumum þeirra hafi fundizt þessi dagur einn, næg umbun fyrir alla fyrirhöfn og fjárútlát. Úr sólskininu gengum við inn í kirkjuna. Hið ytra finnst mér hún nokkuð þung, en hið innra eru hún fagurt guðshús, þó kann ég aldrei vel við stól- ana. Ég skal viðurkenna að myndin yfir altarinu hreif mig ekki við fyrstu sýn, en nú er ég búinn að átta mig á því hvað hún er mikið lista- verk. Ferðin niður Skeið og Flóa í glitrandi vestansól var hin fegursta, en því miður hvíldi enn þokuhjúpur yfir Heklu og Suðurjöklum. Sel- fossbær tók á mióti mér, ný- þveginn, í heiðríkju kvölds- ins. Það var galsi í Hvítá en mildur blámi yfir Ingólfs- fjalli. Þetta kvöld sá ég það mjög greinilega hve yfirbragð sveitakauptúnanna er ólíkt því, sem sjávarplássin hafa. Ég fékk mér kaffi á Hótel Selfossi og gladdist yfir því að þar hafa salarkynni verið færð í nýjan og betri bún- ing. f friðsæld vorkvöldsins hélt ég svo áfram yfir Hell- isheiði til höfuðstaðarins. Á Kambabrún stóð ég og horfði á lágsveitirnar í grænum klæðum, glitraðar vötnum. Skelfing finnst manni sjávar- þorpin hafa nauma fótfestu, þarna frammi á yztu nöf fyrir opnu hafi. Þó hafa þau þraukað þar um aldir. Svína hraunið skartaði sínum feg- ursta mosafeldi og uppi á Vífilsfelli var hesturinn hans Kjarvals enn á sínum stað, hafði ekki þokast ögn upp úr storkunni frá því að ég sá hann síðast. Svo birtist höf- uðborgin, sundin og Esjan og ég hafði yfir vísuna hans Stephans G. Stephanssonax: Falla hlés í faðminn út firðir nesjagrænir. Náttklædd Esjan ofanlút er að lesa bænir. í Reykjavík var annríki kosninganna að ljúka, ég rétt hafði það af að komast inn 1 mína kjördeild. Við skulum öll vona að þeir, sem þjóðin trúði fyrir æðstu völdum þennan dag, fari nærfærnum höndum um landið okkar, sem enn einu sinni hafði gef- ið mér ógleymanlegan dag. -----♦♦♦------- - GAMLIR Framhald af bls. 10. Ég gleymi þessu fólki aldreL Forsætisráðherrann ykkar, dr. Bjarni Benediktsson tók líka á móti okkur, og skemmti okkur konunglega, hann er mikill höfð- ingi. Mér fannst ég endilega hafa séð hann áður svo að ég spurði hann hvort hann hefði ekki ver- ið borgarstjóri Reykjavíkur um það leyti sem ég var hér síðast. Og hann svaraði játandi. Ég hefi farið dálítið á gamlar vígstöðv- ar núna, m. a. heimsótt ritstjórn- arskrifstofur Hvíta Fálkans, ég var ritstjóri hans meðan ég var hér. Og ég er allsstaðar að hitta vini. Það er hringt til mín mörg- um sinnum á dag, og ég fæ senda ótal gjafapakka. Þetta er dá- samlegt fólk, ég gleymi því aldreL August Borleis var yfirmaður herprestanna á Islandi meðan hann var hér. „Við vorum þó nokkuð margir héma klerkarnir, líklega um 150. Við vorum dreifðir út um allt landið. Sjálfur messaði ég alltaf í Dómkirkjunni á sunnudögum og á þaðan margar góðar minn- ingar. Ég þekkti vel Sigurgeir Sigurðsson, biskupinn ykkar þá, fór með honum nokkrum sinnum þegar hann var að vísitera. Þannig kynntist ég mörgum prestum á landsbyggðinni. Það voru þó ekki náin kynni því að við stóðum stutt við á hverjum stað. En það var bæði lærdóms- ríkt og ánægjulegt Og það var gott að hafa íslenzka vini til að rabba við, og gleyma stríðinu með. Það var heldur ekki alltaf gott að fá botn í fréttir sem bárust af því. Sem dæmi get ég nefnt þér að þegar við fórum hingað með skipi, var ég líklega eini maðurinn fyrir utan yfir- menn, sem vissi hvert við vorum að halda. Það var allt yfirfullt- af leyndarmálum. En ferðin gekk vel og við misstum ekkert skip úr lestinni. Við vorum heppnir. Ég man vel eftir því þegar Goðafoss var skotinn í kaf. Þeir stoppuðu til að taka upp menn af öðru skipi sem einnig hafði verið skotið í kaf. Kafbáturinn beið rétt þar hjá. Þeir vissu að þeir voru að setja sig í mikla hættu en gátu ekki látið meðbræður sína farast án þess að gera tilraun til að bjarga þeim. Jafnvel þótt það kostaði þá sjálfa lífið. „Hver var minnisstæðasta VERÐIÐ BRUN BRENNIÐ EKKI NOTIÐ COPPERTONE IMY SEIMDIIMG KOMIIM smTimijnii Nýtt úrval af hollenzkum terylenekápum, ullarfrökkum og rúskinnskápum Bernharð Laxdal KJÖRGARÐI. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM AF HVERJU krefst Guð þess, að við beygjum kné og tilbiðjum hann? MENN tilbiðja ekki Gmð af 'því, að hann krefjist þess, heldur vegna þess, að þeir finna til lotningar og undrunar frammi fyrir honum. Gliluan er áskapað að viðurkenna hið volduga og sýna virðingu því, sem æðra er en vi'ð. En guðstilbeiðsla ristir dýpra en þetta. Kristinn maður er gagntekinn tiiiheiðsil'U og elsku til Guðs. Fagnaðar- og undrunartiifinning knýr hann á kné í návist hans. Að eðli til er maðurinn hreýkirm og sjálfumgílað- ur. Það er því brot sannrar vizfeu að þefekja þann, sem æðstur er í aiheimi og beygja kné sín fyrir hon- um. Ef við komumst í þau spor að viðurkenna eng- an okkur æðri, virða efekert vald og brjóta aldrei odd af oflæti okkar, þá höfum við vissulega hrap- að niður á sama stig og Skepnurnar. Frá upphafi vega hafa þeir menn tignað Guð, sem eygt hafa brot af hátign hans, efeki af því einu, að hann krefjist þess, heldur miklu fremur af því að þeir vita ósjálfrátt, að honum ber lotning og heið- ur og dýrð. guðsþjónustan sam þér hélduð hér?“ „Það er ekki gott að segja. Þær eru margar sem ég man vel. Líklega er það minningar- athöfnin um Roosevelt, forseta, Ég var hérna uppi þegar hann dó og hélt athöfnina í Dóm- kirkjunni. Þar var allt troð- fullt og m. a. viðstaddur forseti fslands. Það var áhrifarík og minnisstæð stund. Ég vildi geta þess að lokum að ég ok kona mín höfum haft mikla ánægju af komunni hingað og ég veit að svo er um hina. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hjartan- lega fyrir hlýjar móttökur. Haag, 22. júní — NTB HOLLENZKA þingið sam- þykkti í dag áætlun stjórnar- innar um að veita skipasmíða stöðvum í landinu rekstrar- lán með lágum vöxtum til þess að gera þeim kleyft að mæta samkeppni erlendra skipasmíðastöðva. Mun ríkis- stjórnin lána skipasmíðaiðn- aðinum sem svara 660 millj- ónum ísl. kr. næsitu 18 mán- uðii. f staðinn verða skipa- smiðastöðvarnar að koma á nánari samvinnu sín á milli og taka í notkun nýtízkulegrl tækniútbúnað. Danskar vindsængur I árs ábyrgð UnMsmtdur á ískMR fyrir TNE BAWLPLUG Cð. LTO., LndM, Engfaurfl; Jobn Llndsay, Austurstrastl 14, BEYKJAVÍL SÍml 15783

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.