Morgunblaðið - 04.08.1967, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1M7
- 45.000 MENN
Framhald af bls. 1
dollara hærri en gert var ráð
fyrir í upphafi. Upphaflega var
ákveðið að verja 75 milljörðum
dollara til landvarna, en skatta-
hækkanirnar munu færa ríkis-
sjóði 6.3 milljarða dollara á yfir
standandi fjárhagsári og meira
á næsta ári.
Johnson sagði, að ef .skatta-
hækkanirnar yrðu ekki sam-
þykktar mundi það hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir öryggi
landsins og heilbrigði í efnahags
málum, verðbólga mundi aukazt,
lánavextir mundu hækka og
þrengt yrði að peningamarkaðn-
um, byrðunum vegna Vietnam-
stríðsins yrði óréttlátlega skipt
og greiðslujöfnuðurinn mundi
versna.
Frambjóðendur vilja samninga
• í Suður-Vietnam hófu tveir
borgaralegir frambjóðendur í
forsetakosningunum, sem fram
eiga að fara 3, september, kosn-
ingabaráttuna í dag með þ”ví að
hvetja til beinna samningavið-
ræðna við stjórnina í Hanoi.
Þessi forsetaefni, Tran Van
Huong, fyrrum forsætisráðherra
og Phan Khac Suu, fyrrum for-
seti, eru skæðustu keppinautar
Nguyen Van Thieu, forseta í for-
setakosningunum, og telja samn
inga við Hanoi eina ráðið tii að
binda enda í styrjöldina.
Tíu óbreyttir borgarar eru í
framboði gegn Thieu og Nguyen
Cao Ky, forsætisráðherra, sem
er varaforsetaefni hans. Jafn-
hliða forsetakosningunum verða
kjörnir 60 meðlimir fyrstu öld-
ungadeildar landsins, og eru
frambjóðendur 480. Um 5.5 millj
manna hafa rétt til að greiða
atkvæði í kosningunum, sem að-
allega munu snúast um félags-
legar umbætur, aðgerðir gegn
spillingu og aðgerðir til hjálpar
þeim, sem harðast hafa orðið
úti vegna stríðsins.
• Tilkynnt var í Saigon í dag,
að bandáríska beitiskipið „St.
Paul“ hefði orðið fyrir sprengj-
um Norður-Vietnammanna, er
það gerði árás á járnbrautar-
stöð við Chong Phu í Norður-
Vietnam. Lítið tjón varð á beiti-
skipinu, en nokkrar fallbyssur
löskuðust eða eyðilögðust.
Bandarískar flugvélar gerðu í
gær harðar árásir á orkuver og
járnbrautarstöð 60 km norðan
við Hanoi og eldflaugastöðvar
23 km. norð-austan við Hai-
phong. Ein bandarísk flugvél var
skotin niður.
Snemma í morgun réðust Viet
cong-menn á hafnarmannvirki
13 km. suð-austan við Saigon,
felldu 27 bandaríska hermen í
og eyðilögðu 140.000 lítra af
benzíni.
• Mannfall Bandaríkjamanna í
síðustu viku var minna en það
hefur verið í nokkurri annarri
viku síðan í febrúar. 114 féllu
og 893 særðust. Um 1.339 Viet-
cong-menn féllu.
- STALÍN
Framihald af bls. 1
sem helstríð hans stóð yfir í
marz-mánuði 1953. Segir hún
að hann hafi verið tólf klukku
stundir að kafna og andlit
hans hafi orðið svart ásýnd-
um. Hafi hann liðið hræði-
legar þjáningar, áður en hann
Ioks lézt. Hún segir ennfrem-
ur, að allt hafi verið gert, sem
hægt var til að bjarga hon-
um, en allt hafi komið fyrir
ekki. Sjálfur hafi hann ef-
laust flýtt fyrir dauða sínum,
þvi að hann hafi óttazt að
læknar mundu gera samsæri
um að ráða hann af dögum
og því ekki leyft neinum fær-
um læknum að koma til sín
í nokkra mánuði áður en
hann lézt. „Hann tók töflur
og joð öðru hverju, segir
Svetlana — og daginn áður
en hann fékk heilablóðfall
tók hann sér gufubað, sem
enginn læknir hefði leyft hon
um eins og heilsu hans var
háttað.
• Svetlana segir, að hjarta
sitt hafi ætlað að bresta af
kærleika og sorg við að sjá
hann kveljast svo undir and-
látið. „Mér fannst ég hafa
verið einskis virði sem dótt-
ir og á engan hátt geta hjálp-
að þessari einmana sál, þess-
um aldna O'g sjúka manni,
sem var forsmáður og aleinn
á sínum mikla valdastóli",
segir hún.
Olga Franklin segir, að and
stæðingum Sovétríkjanna
verði tæpast mikil pólitísk
gleði að lesa frásögn Svet-
lönu. Allar persónur komi
þar fram í ljósi virðingar, þar
sé rætt um menn hugrekki,
hugsjóna og þolgæði. Hún
segir m.a. frá Nikita Krúsjeff
og Nikolai Bulganin, sem
grétu, er faðir hennar Jézt
og tóku hana í fang sér t.jl
þess að hugga hana.
Stalín er í augum Svetlönu
fyrst og fremst „faðir“
stundum þó óendanlega
grimmur, en hún segir einn-
ig að hann hafi verið maður,
sem ekki kunni að drepa. Um
þá getgátu, að Stalín hafi
myrt móður hennar segir
Svetlana. „Hversu auðvelt og
einfalt málið væri, ef svo
hefði verið“ og hún staðhæf-
ir, að hann hafi aldrei drepið
neinn utan hauka og héra —
og ekki einu sinni vitað al-
mennilega hvernig fara átti
að því.
Sem dæmi um grimmd
hans og hörku tilgreinir hún
hins vegar nokkur dæmi, t.d.
er hann löðrungaði hana fyr
ir að hafa, þá 17 ára, orðið
ástfangin af miðaldra leik-
ritaskáldi, sem var Gyðingur.
Ennfremur er sonur hans
elzti, Yasha, reyndi að fyrir-
fara sér eftir að hjónaband
hans hafði farið út um þúf-
ur. Hann særðist en dó ekki
og faðir hans var ofsareiður
yfir þessu tiltæki hans.
Hún segir einnig frá þeirri
andstyggð, er faðir hennar
hafði á ilmvötnum — „ég get
ekki andað hér inni“ .hafði
hann sagt. Og hann hafði ver
ið gramur yfir því, að sjá
eiginkonur og dætur ráða-
mannanna í Kreml ganga í
erlendum fatnaði.
Hún segir líka, að hann hafi
óttazt mannfjölda og haft and
styggð á heimskingjum. Hann
var hræddur við að fara út
því þá mundi „múgurinn
koma og klappa og standa og
klappa með opna munnana —
þessir heimskingjai “ hafði
hann sagt einhverju sin íi.
Olga Franklin segir, að bók
in geti tæpast gert rússner.c-
um yfirvöldum gramt í geði
— það væri þá helzt»hversu
opinskátt Svetlana ræðir um
ástamál sín, því að Rússum
sé lítt um það gefið að tala
frjálslega um ásti- og kýn-
ferðismál.
- RÓÐRA- OG
Framhald af bls. 5.
2—8 síðdegis og gildir hið sama
í Kópavogi.
Starfsdagar klúbbsins eru ráð-
gerðir mánudaga, miðvikudaga
og föstudaiga á kvöldin frá kl. 6
og fram um 10 og á sunnudögium
frá kl. 2—6.
Þeir félagar töldu að bátakost-
ur klúbbsins væri nú þegar
næigur fyrir 70—80 manns.
Nú í sumar og haust verður
jetta nokk'urskonar reynslu- og
undirbúningstími, svo og vetur-
inn til smíða og föndurs, en meg
instarfsemin geti svo hafizt af
fullum krafti með næsta sumri.
Það lá vel á þeim Æskulýðs-
ráðsmönnum er þeir ýttu einum
af farkostum sínum á flot, sem
bæði má sigla, róa og knýja með
utanborðsvél og þeir voru aug-
sýnilega bjartsýnir á að þetta
yrði til gagns og skemmtunar
fyrir marga af okkar yngri borg-
urum.
Farfugla-
ferðir um
helgina
FARFUGLAR ráðgera tvær ferð
ir um Verzlunarmannahelgina.
Farið verður í Þórsmörk á f<j*tu-
dagskvötd kl. 8 og á l'augardag
kl. 2 e.h.
Hin ferðin er um Fjallabaks-
veg nyrðri í Eldigjá. Verður ekið
auistur í Eldgjá L laugardag og
divalið um kyrrt í gjánni og hún
skoðuð á sunnudaginn. Kom;ð
í bæinn á mánudagstovöld.
IÞá verður sumarleyfisferð h|á
Farfuglum 1:2.—19. ágúst. Farið
verður í Öræfasveit og mark-
verðustu staðir þar skoðaðir.
Síðan verður ekið um Suður-
sveit og Mýrar til Hornafjarðar.
Flogið verður báðar leiðir.
ITOLSK VAÐSTIGVEL
I TÍZKLLITUIU
IMÝTT URVAL
• MUNIÐ AÐ TAKA MEÐ í SUMARLEYFIÐ • j,™-/.. xu,. fi
• ÓVENJULEGA SPENNANDI SAKAMÁLASÖGUR •
• ENGINN LEGGUR ÞÆR FRÁ SÉR ÓLESNAR
[HEFNDARINNAR
■iqne ^
í tf*!! • f' • HEIMSFRÆGIR HÖFUNDAR
'ff,. •.
V
FÆST í ÖLLUM BÓKSÖLUSTÖÐUM
ÞÓRSÚTGÁFAN.
líönduð hústjöld
frá Vestur - Evrópu
Athugiö að til eru margar gerðir
og gæðaflokkar hústjalda.
Fullkomin viðgerðarþjónusta
á staðnum.
Sportvöruverzlun Kristins Benediktssonar, Oðinsgötu 1
HVERT SEM ÞÉR FARIÐ
HVAR SEM ÞÉR ERUÐ -
Hafið ætíð FERÐABAR
trá EVER-WEAR með yður
SKOÐIÐ FERÐABARINA HJÁ:
HERRADEIL P. & Ó. TÓBAKSVERZLUN TÓMASAR HERRAHÚSIÐ
AUSTURSTRÆTI 14 LAUGAVEGI 62. - Aðalstræti 4.
LAUGAVEGI 95
The EXECUTAIR^ 880,
The
TYPEWRITEt
BAR,