Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 1
24 SIÐUR 54. árg. — 174. tbl. LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Úkyrrðin á Haiti — magnar ókyrrð forsefafjölskyfdunnar New York og Santo Domingo, 4. ágúst, AP, NTB. VAXANDI ókyrrð á Haiti hefur magnað fjölskylduerjur innan fjölskyldu Haiti-forseta, Francois Duvaliers, og orðið til þess að yfir hundrað manns hefur beð- izt hælis í sendiráðum erlendra ríkja í Port-au-France í höfuð- borg Haiti. Kona Duvaliers er nú stödd í Bvrópu »g dóttir hennar með henni oig fóru þær frá Haiti í júnílök. Nú er látinn í Port-au- Prince faðir frúarinnar, tengda- faðir forisistans, sem Duvalier hélt sem einskonar gisl meðan á ferð forsietafrúarinniar stæ'ði, og þykir ek/ki allt með feldu um fráfall hanis. Herma óstaðfestar fregnir, að teknir hafi verið af lífi 18 menn er gæta skyld.u tengdaföð- urins en daginn áður voru 213 menn handteknir í höfuð'borginni og útgöngubann sett þar á. í>á hefur og tengdasyni Duvaii er.s, Max Dominique, sem kvænt ur er elztu dóttur hans, og nú er staddiur erlendis, verið vikið úr hernum og skipað að snúa sem skjótast aftur heim að svara til saka fyrir meint sam- «r særi gegn forsetanum. Segir í ó- staðifestum fregnum að Duvialiier hafi ga.gnrýnt konu sína opinber- lega fyrir að hafa meinað sér að halda tengda-syninum eftir á Ha- iti. — Hong Kong: Fundið leynilegt sjúkrahús í storhýsi í borginni ÞESSA mynd tók ljósmyndari Mbl. Ólafur K. Magnússon suður á Seltjarnarnesi — í skreiðar- skemmu isbjarnarins, þar sem verið var að pakka skreið til útflutnings. Ghungking og Shanghai sögö nýjustu átakasvæðin í Kina Sjúkrahús i Wuhan full af særðum hermönnum Peking, Tókíó, 4. ágúst NTB-AP TÉKKNESKA fréttastofan CETEKA skýrir svo frá í dag, að nýjasta átakasvæðið í Kína sé borgin Chungking, höfuðstað ur Þjóðernissinna á árum heims Frumvarp um færeyskt flugfélog Thorshavn, 4. ágúst NTB | 1 DAG var lagt fyrir lögþing- ið í Færeyjum frumvarp, þar sem kveðið er á um stofnun I færeysks flugfélags og gert | ráð fyrir að ríkisfé, sem ætl- að hefur verið til stækkun- ar flugvaUarins gangi til flug I félagsins. Einkaaðilar hafa gengizt, fyrir stofnun flugfélagsins Flugsambands með hlutafé að 1 upphæð hiátt í fjórar millj-1 I Framhald á bls. 11 styrjaldarinnar síðari. Þar hafa andstæðingar Mao Tse-tungs haf ið sókn og beita vopnum, sem flutt hafa verið til þeirra frá Wuhan eftir Yangtze fljóti, um 1200 km. vegalengd. Meðal vopnanna eru fallbyssur, að því er fréttastofan segir. í Wuhan virðist öldurnar hafa lægt eftir átökin þar síð- ustu vikurnar, en útvarpið í Kanton sagði í dag, að sjúkra- hús í Wuhan væru öll full af særðum hermönnum. í ritstjórn argrein í Dagblaði Alþýðunnar segir ennfremur í dag, að and- stöðunni gegn Mao sé haldið áfram í Wuhan. CETEKA fréttastofan segir, að fregnir hafi borizt til Peking um, að bardagar hafi staðið yfir í nokkra daga í Chungking. Enn fremur hafa í dag borizt fregn- ir um átök í hafnarborginni Shanghai. Segir eftir blaðinu „Wen Huei-pao“ að andistæðing ar Maos hafi þeyst um götur borgarinnar, rænt og ruplað og haldið uppi barsmíðum á raiuð- um varðliðum. Þá berast fregn- ir um átök í borginni Hwainan í Anhwai héraði, sem liggur suður af Shantung-héraði, en þaðan hefur herinn fengið mik- ið atf nýliðum að undanförnu. Framlhald á bls. 11 Hong Kong, 4. ágúst, NTB YFIRVÖLD í Hong Kong gengu í gær hart fram gegn samtök- um kommúnista í borginni og var skipulögð mikil leit að bæki stöðvum þeirra í þremur stór- hýsum í Hong Kong. Leitin vaxð hin árangursríkasta, enda skipu- lögð sem tangarsókn lögregluliðs á þyrlum sem lentu á þökum stórhýsanma og hófu leitina það an. önnur sveit lögregluliðs hóf húsleitina eftir venjulegum leið- um. Meðal annars, sem þarna fannst, var leynilegt sjúkrahús, vel búið öllum tækjum og hið nýtízkulegasta í alla staði, og mikið safn vopna. Um 1000 manna lið úr lögreglu Hong Konig og hernum tóku þátt í aðgerðum þessum, sem sagðar eru ekki eiga sinn líka í sögu Hong Kong. Hófust þær með því að þyrlur berzka flug- hersins hófu sig til flugs af flug vélamóðurskipinu „Hermes“, sem liggur fyrir akkeri í höfn- inni í Hong Kong, samtímis því sem lögreglulið lagði til atlögu á jörðu niðri. Engin mótspyrna var veitt, en margt kom í leitirnar annað en það siem ætlað var og þá ekki sízt sjúkrahúsið, sem falið var vendilega bak við leynidyr á þriðju hæð í einu stórhýsanna. Þar var inni fyrir fullkomin Skurðstofa, nokkr,ar sjúkrastof- ur, lyfjabúð vel búin lyfjum og Framlhald á bls. 11 22 meiddust í Carevelle-þotu — er hún „datt" 1000 metra Rómaborg, 4. ágúist, AP. SVO bar við í kvöld, er Cara-' velle-þota hafði rétt farið yfir Mont Blanc, hæsta fjall Evrópu, að hún „datt“ um þúsund metra með þeim afleiðingum, að 22 menn meiddust meira eða minna. Flugvélin, sem var frá Air France var á leið frá París til Beirut. Er hún flamg yfir Alp- Framlhald á bls. 11 Fréttamenn sem ferðamenn Tóku upp klukkutíma sjónvarpsþátt í Kína New York, 4. ágúst (AP) TVEIMUR fréttamönnum frá bandarísku sjónvarps- og út- varpsstöðvasamsteypunni Col umbia Broadcasting System (CBS) hefur tekizt að ferð- ast um Kína og taka þar upp klukkutíma sjónvarpsþátt, sem sýndur verður í Banda- ríkjunum hinn 15. þessa mán aðar. Mennirnir tveir eru frétta- maðurinn Morley Safer frá Kanada og myndatökumaður inn John B. Peters, sem er brezkur. Fóru þeir með ferða mannahópi á vegum ferða- skrifstofu nokkurrar í París, og voru í Kina í þrjár vikur. Ferðuðuist þeir m.a. til Pek- ing, Canton, Shanghai, Sian, og Yenan. Safer segist eitt sinn hafa verið dreginn fyr- ir „byltingar-dóm“ í Shang- hai sakaður um að hafa drýgt „glæp gagnvart þjóð- inni“, en fljótlega verið lát- inn laus. Vegna „menningarbylting- arinnar" sagði Safer að flest söfn hafi verið lokuð, ®g fengu gestirnir þess í stað að heimsækja verksmiðjur og skóla, „og hvers betra getur fréttamaður óskað sér“, sagði Safer. Sjónvarpsþátturinn, sem sýndur verður 15. ágúst, nefn Fraimlhald á bls. 11 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.