Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1967
17
- KVIKMYNDIR
Fraimjhald bl. 16.
að orðlengja það, að þau taka
sér sumarbústað á leigu úti við
sjó, þar sem þau rækta með sér
dásemdaríkt líf, iðka sundíþrótt-
ir af kappi og sýna hvort öðru
blíðuhót. Það skyggir þó nokkuð
á gleðina, að samvizkuófétið er
að angra Holmen annað kastið,
hann þykist glöggt finna, að
hann elski'konu sína, og þó geld
ur hann Veru jáyrði, er hún spyr
hann, hvort hann elski sig.
Var það kanski hugsanlegt,
að hann elskaði tvær konur sam
tímis? Þegar þau hjúin halda
svo heimleiðis eftir skammvinn-
ar sælustundir, hvílir skuggi
óvissu og tilfinningatogstreita
yfir för þeirra.....
Þótt þráðurinn sé aðeins laus-
lega rakinn hér og ekki til enda,
má ljóst vera, að hér er ekkert
nýtt viðfangsefni á ferðinni. Það
er hið sígilda efni í flestum
meiriháttar skáldskap og kvik-
miyndum, ástalífið, sem tekið er
til meðhöndlunar. — Ég hefi því
miður ekki lesið skáldsögu þá
eftir Sigurd Hoel, sem myndin
er gerð eftir, og get því ekki gert
þar neinn samanburð, né borið
um, hve trúverðuglega sögu-
þræðinum er fylgt. En í mynd-
inni virðast ekki koína fram
neinar nýjar uppgötvanir eða
djarfar, nýstárlegar ályktanir
um ástalíf fólks, og er það
kanski varla von, efnið er trú-
lega langt til „tæmt“. — Kjark-
mönniuim í ástasöfcum mun efciki
finnast miyndin úr hófi fram
djörf, en mat manna í þeim efn-
um er annars svo einstaklings-
bundið, að þar er erfitt að kveða
upp dóma með öruggri stoð í
velsæmiskennd almennings.
Við gerð myndarinnar hefur
þeirri aðferð verið beitt óvenju-
mikið að senda kvikmyndavél-
Einkaumboð fyrir:
HStAflíD & SÖJSfJER AB
—flLBORurr
Útvegum liringstiga
frá Svíþjóð með
stuttum fyrirvara.
Hagstætt verð,
Ieitið upplýsinga og
verðtilboða.
HVERFISGÖTU 42 REYKJAVÍK <. SÍMI 1 81 11
ina aftur í tímann og láta hana
sýna upprifjanir Holmens lækn-
is á liðnum tíma. Þótt þessi að-
ferð geti verið góðra gjalda verð
að vissu marki — og eigi ekki
illa við þessa mynd, þar sem
samvizka læknisins flögrar tíð-
um aftur í tímann „í leit að lið-
inni ævi“ — þá er hún vandmeð
farin og getur verið svolítið
þreytandi sé hún ofnotuð. Og ég
er ekki frá því, að í þessari mynd
sé henni óþarflega mikið beitt.
Annars fæ ég ekki betur séð
en mynd þessi sé tæknilega vel
gerð og leikur allgóður. — Það
er nýnæmi að fá hingað norska
mynd, þær eru sjaldséðar hér í
kvikmyndahúsum. Mun þó þessi
frændþjóð okkar hafa framleitt
talsvert af athyglisverðum kvik
myndum, þótt aðstaða hennar í
þeim sökum sé auðvitað allt önn
ur og lakari en stórþjóðanna. —
Kannski við leitum fordæma hjá
henni, þegar við förum að reisa
íslenzk kvikmyndaver? En það
er nú eitt brýnasta verkefni
þeirra, sem forgöngu hafa um
framkvæmdir í íslenzkum menn
ingarmálum, að gera draum
bjartsýnna kvikmyndaáhuga-
manna hérlendra um íslenzkt
kvikmyndaver að veruleika.
Bókasafnið í Hafnarfirði
óskar að ráða aðstoðarbókavörð til 1 árs frá 1.
september n.k. Umsóknarfrestur er til 20 þ.m.
Uppl. hjá bókaverði.
Bæjar- og héraðsbókasafnið í Hafnarfirði.
íbúð með
húsgögnum óskast
Fimm manna amerísk fjölskylda óskar eftir íbúð
strax í Reykjavik, Kópavogi eða Hafnarfirði.
Leigutími er eitt ár. íbúðin þarf að vera búin öll-
um nauðsynlegum húsgögnum og tækjum með 3—4
uppbúnum svefnherbergjum.
Skrifleg tilboð merkt: „íbúð 881“ sendist Morgun-
blaðinu fyrir 18. ágúst n.k.
Lokað um
verzlunarmannahelgina
IHótmæli gegn
Bretum í Biafra
Lagos, 2. ágúst — NTB—AP ___
EFNT hefur verið til mótmæla-
aðgerða gegn Bretum í Port
Harcourt aðalhafnarborg Biafra,
austurhéraðs Nígeriu er sagt
hefur sig úr lögum við sam-
bandsstjórnina í Lagos. í fyrra
dag tilkynnti stjórnin í Biafra,
að hún hefði þjóðnýtt mann-
virki olíufélaganna Shell og BP,
þar sem þau hefðu ekki greitt
henni skatta.
Gowon hershöfðingi, forseti
herforingjastjórnarinnar í Lag-
os, tilkynnti í dag, að Chukw-
uma Nzeogwu majór, einn af for
sprökkum byltingarinnar í Ní-
geríu í janúar í fyrra, sem féll
er hann stjórnaði uppreisnar-
mönnum frá Biafra í viðureign
við stjórnarhersveitir um 35 km.
frá Enugu, höfuðborg Biafra, í
síðustu viku, fengi virðulega út-
för. Hálfbróðir Ojukuwu of-
unsta, leiðtoga uppreisnarmanna
Tom Bigger að nafni, féll einn-
ig í bardögunum.
1 Moskvu undirrituðu fulltrú-
ar Nígeriu og Sovétríkjanna
samning um menningar og sam
skipti í dag, og er þar með tal-
ið að Rússar muni láta af hlut-
leysi sínu gagnvart atburðun-
um í Nígeríu. Stjórnin í Lagos
neitar því, að Anthony Ena-
horo upplýsingamálaráðherra,
sem undirritaði samninginn,
hafi beðið Rússa um vopn og
hergögn.
i j: rríi 4 .ror.i :irvt in'i vrm
BURT MEÐ BLEIUÞVOTTINN MEÐ
BABETTE
barnableium
BABETTE eru silkimjúkar barna-bleiur, sem aðeins eru not-
aðar einu sinní hver bleia.
BABETTE barna-bleiur eru með ytra býrði úr óofnu taui og
kjarna úr mýksta sellulósavatti.
BABETTE barria-bleiur eru meðhöndlaðar með og hafa í
sér gerladrepandi efni og hindra því sserindi.
beztarjyrir barnið!
BABETTE barna-bléiur GETA EKKI molnað (vegna tau-
umslagsins utan um alla bleiuna).
BABETTE barna-bleiur eru beztar fyrir barn yðar-
losnið við erfiðan og tímafrekan bleiuþvott.