Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1967 Alan Williams: PLÁTSKEGGUR um eftir sjúkrabílnum, þangað til hann gaf upp öndina. Neil fór út til að tala við lækn inn, og hann var eins og mátt- laus og ráðalaus og langaði mest til að fara að gráta. Hann gekk framhjá blaðakróknum, þar sem allt var fullt af frönskum tíma- ritum, en rauðar holdtægjur sá- ust á milli krumpaðra blaðanna. Sölustúlkan lá undir borðinu. Hann vildi ekki líta á hana. í hálfrökkrinu úti fyrir voru engi spretturnar teknar til starfa. Fjórði hluti. MORBINGJARNIR 1. kafli. Hann hellti í tvö glös úr flösku af Hine, alveg eins og hann hafði gert fyrir einum sólar- hring, en þá var það fyrir njósn arann Charles Pol, allsnakinn, sem var að slæða talkúmdufti a gólfteppið. í þetta sinn var það fyrir Anne-Marie og hann gat heyrt buslið í henni innan úr baðherberginu. Rauði kjóllinn hennar lá á stól, ataður í kalki og for. Hann var að hugsa með sér, að þarna væri hinn fullkomni gest gjafi: hlutlaus, meinlaus og veitti báðum aðilum góðgjörðir. Hann sat á rúminu og starði á bera fæturna á sér. Hann hafði sett skóna sína út fyrir, handa Araba þjóninum að hreinsa. Þeir höfðu atazt allir út í blóði. Hann sveið í hörundið í sól- inni, bakið á honum var marið og hann verkjaði í það, og hann þarfnaðist mjög að fá eitthvað að drekka. Hann reyndi að hugsa ekki um van Loon. Þau höfðu beðið í Casino þangað til sjúkra vagninn kom til þess að flytja líkið í borgarspítalann, og síð- an hafði hann ekið Anne-Marie hingað í Simca-bílnum. Hún hafði grátið hljóðlega alla leið- ina, meðan tunglið kom á loft og þaut í pálmunum. Þau voru komin leiðar sinar, rétt fyrir útgöngubannið, því hafði verið frestað til klukkan níu, til þess að koma í veg fyrir uppþot í sam bandi við sprenginguna í Casino. Fréttirnar höfðu þegar borizt út um alla borgina, og stórir hópar fólks höfðu safnazt saman, sem æddu um strætin og biðu þess, að eitthvað sögulegt gerðist. En ekkert hafði gerzt. Farandverð- irnir og CRS-hermenn ihöfðu fengið einhvern liðsauka, götu- virkin stóðu uppi, eftir sem áð- ur, smávægilegar skothríðar heyrðust í útborgunum, og fregn barst um það, að tveir ofurstar úr varnarliðinu hefðu verið hand teknir. Fjórða nótt uppreisnarinnar leið rólega. Neil hafði tekið inn meðala- skammtinn sinn af konjaki, og beið eftir Anne-Marie. Hann hafði pantað tvö símtöl við London: annað til blaðsins síns, til þess að skýra frá sprenging- unni, hitt til Caroline, sem átti ekki að koma fyrr en eftir mið- nætti, í þeirri trú, að þá yrði hún komin heim frá einhverjum skemmtistaðnum. Honum fannst það að vera nú að hringja til hennar, væri algjör óþarfi og 27 eigingirni, en hann þurfti að tala við einhvern — einhvern, sem væri nógu langt frá þessu blóð- baði og vitfirringu. Hann vissi að Caroline var treystandi til að segja eitthvað algjörlega mark- laust og þýðingarlaust við hann, en það var þó skárra en að hlusta á allan óhemjuskapinn og kveinið í forstjóra Casino, eða jafnvel að hlusta á Anne-Marie. Heimskan í Caroline var eitt- hvað svo hressandi. Anne-Marie kom nú út úr bað herberginu, í baðslopp og sett- ist við hliðina á honum á.rúm- ið, en þó ekki of fast upp að honum. Hann rétti henni konj- aksglasið og hún tók við því, án þess að líta á hann, og svipurinn á henni var rólegur og hreinn og rétt eins og gagnsær. Eftir ofurlitla þögn, sagði hún í hálf- um hljóðum: — Ég ætti ekki að vera hérna. — Þú getur ekki verið innan götuvirkjanna, hvort sem er, sagði hann, — við getum feng- ið einhvern kaldan mat hérna. Þeir hafa ágæta kjúklinga og salat. Og við getum fengið eina flösku af víni. Hún kinkaði kolli en leit enn ekki á hann. — Ég vil drekka mig fulla! sagði 'hún, — í baðinu þvoði ég mér allri þrisvar, en það var eins og ekkert gagn væri í því. Hún leit.nú á hann, en það var enginn ofsi íaugna- ráðinu: — Þú ert ekki hrifinn af Leynihernum, er það? Þú veizt ekki raunveiulegan til- gang hans, eða hvað hann ætlazt fyrir? Glasið hennar var næst- um orðið tómt og hann bætti í það. Hún hélt áfram: — Get- urðu hugsað þér þá ævi, sem við eigum hérna? í fimm ár hef- ur stjórnin sagt okkur, að við værum frönsk — að hún skuili verja þetta land. En svo kemur hún einn góðan veðurdag og segir okkur, að þeir ætli að af- henda okkur mönnum eins og Ali La Joconde og árum hans. Getutðu hugsað þér, hvernig okkur er innanbrjósts, og hvern ig okkar kjör verða, þegar sá maður er kominn til valda? Hann leit niður á fæturna á sér, og vissi ekki hvað hann ætti að segja, og hún hélt áfram: — Þú ert ekki hrifinn af okkur, er það? Þú hefur víst sama álit á okkur og allir aðrir? Hann leit á hana og hleypti brúnum. — í morgun drápu ykk ar menn gamlan mann með tré- fót, úti fyrir hótelinu. Geturðu hugsað þér, hvernig slíkt orkar á okkur? Hvernig er hægt að vera hrifinn af fólki, sem hegð- ar sér svona? — Hann hefur senniilega ver- ið njósnari hjá Arabahernum. — Æ, guð minn góður! Hann seldi vindlinga, sér til lífsviður- væris. — Það gera margír njósnarar. Það er eitt af þeirra uppáhalds- brögðum. Þeir finna gamla menr. með tréfót og senda þá út af örk inni til þess að njósna um okk- ur. Hann sagði ekkert — hann nennti ekki lengur að vera að stæla um þetta. að virtist hvort sem var vera algjörlega þýðing- arlaust — eitthvað var í sorg- legu ólagi í þessu iandi, og það var ekki á hans valdi að bæta neitt úr því. Hann hafði aðeins áhyggjur af því, að sér skyldi finnast hann hafa samúð með Anne-Marie og félögum hennar, á einhvern óskiljanlegan hátt. Hann fór að velta því fyrir sér, hvort sá hópur mundi fá jafn gestrisnislegnar móttökur í Eng- landi. Han reyndi að hugsa sér 2—3—4—5—6 og' 7 mm gler fyrirliggjandi. Einnig gróðurhúsagler, hamrað gler og öryggisgler. Eggert Kristjánsson & Co. hf. Hafnarstræti 5. — Sími 11400. — Mér tókst að lokum að finna stæði fyrir bilinn. En hvernig var myndin annars? ef Pip og Morin lautinant tækju sér gistingu í Dorchester og sæju gamlan vindlngasala drepinn við h 'idyrnar hjá sér. Hann hellti aftur í glasið og hún renndi hendinni eftir rúm- ábreiðunni og snerti hans hönd með svölum fingrunum. — Reyndu að skilja þetta, sagði hún. •— Ég var uppailin i ka- þólskri trú. Faðir minn var ekki innfæddur hér, heldur kom hann frá Frakklandi. Hann var ágætis maður. Hann var mjög trúaður og var vanur að fara í kirkju á hverjum sunnudegi. Það var þegar ég var lítil. Svo var hann drepinn og móðir mín giftist aftur. Stjúpi minn er sterkur og hugrakkur maður, en hann er ekkert sérlega trúaður. Hann er einn þessara manna, sem veit ekki, hvort guð er til eða ekki. — Trúleysingi, sagði Neil. — Já, einmitt. Eftir að hann giftist mömmu hætti ég að fara eins oft í kirkju. Hér í iandi erum við ekki sérlega trúuð og þegar ég fór að ganga í háskól • ann, fór ég að^ hafast ýmislegt óleyfilegt að. Ég á við, að ég svaf stundum hjá einhverjum stúdenlum. Ég trúi ekki, að það sé algjörlega rangt — ekki ef manni þykir vænt um þá. Hann leit snöggt á hana — hún var föl o.g furðulega alvöru gefin. Hún hélt áfram: — Stjúpi minn er í leynihernum. Hann tekur það mjög alvarlega. E.i þegar við fórum að drepa Arab- ana í fyrra, varð ég áhyggjufull. Mér var innanbrjósts eins og þér í morgun. Ég var slegin. Ég fór til prestsins oa hann sagði mér, að eínasta aðferðin til þess að verja okkur og kristna trú, væri að berjast við Arabana. Og hann hafði á réttu að standa, því að það sem við erum nú að gera, er ekki annað né merra en það, sem þeir eru að gera okkur. Það voru aldrei nein vand ræði hérna fyrr en þeir tóku að drepa Evrópumenn — eins og þeir gerðu í Casino í dag. Við byrjuðum ekki hermdarverkin, heldur þeir. — Og þetta sagði presturinn þér, eða hvað? sagði Neil. Hún kinkaði kolli. — Hann sagði vitanlega það sama sem stjúpi minn segir — það sem all- ir hér segja. Jafnvel erkibiskup- inn er Leynihersins megin. Glasið hennar var enn orðið tómt og hann hellti í það. — Ertu að reyna að fylia mig? — Þú sagðir, að þig langaði mest til að drekka þig fulla. — Ekki strax. Fyrst skulum við fá okkur að borða. Nú snert ust andlitin á þeim næstum. Hann sneri sér við, greip símann og pantaði súpu, og körfuhumar handa tveimur og flösku af Chablis. Meðan hann var að tala gi eip hún í handlegginn á hon- um. Augun í henni voru með ein hverjum þurrum gljáa. Allt í einu brosti hún. Hann laut fram og kyssti hana á ktnnina. Hör- und hennar var svalt og hún h: ..yfði sig ekki. Hann hallaði sér aftur og var I hálfgerðum vandræðum með sjáifan sig, þorði ekki að ganga of iangt, en girntist hana með þessari hikandi hjartsláttar- girnd unglingsins. Hann gerði sér ljóst, að honum þótti það heldur ískyg’gilegt ef hann færi út í ástarævintýri með konu úr Leynihernum. Hún sal álút við hliðina á hon um, og hélt báðum höndum um glasið. Hann hellti ofurlítilli lögg í glasið. — Til að gefa þér ma.arlyst, sagði hann. Hún kinkaði kolli og svo varð þögn. — Það var leiðinlegt með Hollendinginn, kunningja þinn, sagði hún. — Hann var góður náungi. Það hlýtur að vera hræði legt að horfa á einhvern, sem maður þekkir deyja svona. Þekkt irðu hann vel? Ekki sérlega. Við hittumst fyrir eitthvað tveimur vikum, þegar við vorum að heimsækja klaustrin í Grikklandi. Hann sagði þetta letilega, án þess að hugsa sig um, og sem snöggv- ast gerði hann sér ekki ljóst, hvaða áhrif orð hans höfðu á hana. Glasið stanzaði við varir hennar og allur likami hennar varð eins o.g stjarfur. Hann sneri sér tii og leit á hana. Svipurinn á henni var eins og hún hefði orðið fyrir einhverju áfalli. Bað sloppurinn féll frá henni og þá sá hann, að hún var nakin und- ir honum. Þau litu hvort á annað og Neil skellti í sig því, sem eftir var í glasimi. — Svo að þú varst á Athos- fjalli? sagði hún, næstum hvísl- andi. Neil svaraði engu en hallaði sér aftur á bak á koddana og horfði á boglínurnar í líkama hennar gegn um grisjuna. Hún setti glasið sitt á borðið, stóð svo upprétt fyrir framan hann og tók að sér baðsloppinn. ANSCOPAK ANSCOCHROME 126 12 MYNDA LITFILMA KR. 160 með framköllun lÆKJARðörv 6BIJKJ ANSCOPAN ANSCOPAK 12 MYNDA svart hvit filma KR. 36.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.