Morgunblaðið - 05.08.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1%7
Lausn Kýpurdeil-
unnar í vændum?
Lögreglumenn stöðva bíla á leið út úr borginni í nágrenni Lög-
bergs í gær.
Áfengisleit og eftirlit
— ytir helgina á þjóðvegunum
Aþenu, 4. ágúst, NTB.
HAFT var eftir áreiðanleg-
um heimildum í Aþenu í
kvöld að undanfarið hafi
staðið yfir leynilegar viðræð
ur um Kýpurmálið milli
stjórna Tyrklands og Grikk-
l’ands og svo vel miðað í
samningsátt, að hugsanlegt
sé að málið leysist áður en
langt um líður.
Washington, París, 4. ágúst NTB
SÉRFRÆÐINGAR í Washington
og París eru þeirrar skoðunar,
að Johnson, forseta, muni ekki
reynast ýkja auðvelt að fá þing
ið til þess að samþykkja frum-
varpið um aukna tekjuskatta til
þess að standa straum af kostn-
aði vegna styrjaldarinnar í Vi-
etnam.
í frétt frá Washington segir,
að hann muni þurfa ríflega að-
stoð frá republikönum til þess
að vega upp á móti þeim demo-
krötum, sem greiða muni at-
kvæði gegn frumvarpinu. Þeir
hinir sömu demokratar muni
sérstaklega draga inn í umræð-
urnar þá staðreynd, að fjárveit-
ingar til „barátunnar gegn fá-
tæktinni" hafa verið skornar
niður — en margir eru þeirr-
ar skoðunar, að slíkt sé stór-
hættulegt vegna ástandsins
irmanlands.
í frétt frá París segir, að Par-
ísarblaðið „Le Monde“ skrifi í
dag, að skattaaukningin muni
draga úr efnahagsvexti Banda-
ríkjanna — en margir sérfræð-
ingar telji það nauðsynlegt. Á
hinn bóginn sé vafasamt, að
frumvarpið fari gegnum þingið
óbreytt, með hliðsjón af ástand
inu í Bandaríkjunum um þess-
ar mundir. Ráðstafanir forsetans
RÍKISSJ6ÐUR íslands hefur
fest kaup á húsinu við Berg-
staðastræti númer 75, fyrir bisk
upsembættið og verður þar bisk
upssetur í framtíðinni. Húsið
var áður eign Guðmundar heit-
ins Vilhjálmssonar, forstjóra
Eimskips og er keypt
af ekkju hans. Ekki er endan-
lega ákveðið hvenær biskupinn
flyzt búferlum þar sem nauð-
Samninigaviðræðurnar fara
fram á þeim grundvelli, að
Kýpur sameinist Griikklandi, en
Tyrkland fái í staðinn einhver
landsvæði, jafnvel að þeir taki
yfir ein-hverjar af herstöðvum
Breta á Miðjarðarhafi. — Fylgir
fregninni að Bandaríkjastjórn
hafi tálið brezku stjórnina' á að
láta stöðvar þessár af hendi, ef
það mætti verða til þess að léysa
deiluna.
kunni að hafa í för með sér
aukið atvinnuleysi, sem harð-
ast muni koma niður á blökku-
mönnum og auka enn ólguna
þeirra á meðal. Þannig muni til
raunir Bandaríkjamanna til
þess að vinna styrjöldina í þús-
und kílómetra fjarlægð frá
heimahögunum, auka líkurnar á
styrjöld heima fyrir.
UM hádegisbilið í dag var skot-
ið á loft frá Woomera-tilrauna-
stöðinni í Ástralíu eldflauginni
Evrópa I., sem ýmis Evrópuríki
og Ástralía standa að i samein-
ingur og var ætlað að koma á
braut umhverfis jörðu gerfi-
hnetti búnum ýmsum rannsókn-
artækjum.
synlegt er að gera ýmsar smá-
vægilegar breytingar. Núverandi
bústaður biskups, við Tómasar-
haga 15 var frá upphafi aðeins
ætlaður til bráðabirgða og um
nokkurt árabii hefur veríð veitt
fé á fjárlögum til kaupa eða
byggingar á nýju húsi. Fjármála
ráðuneytið mun svo ráðstafa hús
inn við Tómasarhaga. '
Áströlsk stúlko
týndi veski
með miklum
pemngum o.fL
ÁSTRÖLSK stúlka, sem er
á ferðalagi hér á landi, varð fyr-
ir því óhappi að týna veski sínu
síðastliðinn fimmtudag. í því
voru allir þeir hlutir sem henni
eru nauðsynlegir, peningar,
bankabók, farmiði og vegabréf.
Stúlkan heitir Anne Graham
King.
Á fimmfcudagsmorgun klukkan
10 fyrir hádegi lagði hún af stað
austu-r í Fljótshlíð og ferðaðist
„á puttunum", eins og það er
kallað. Það var ekki fyrr en hún
var koimin austur, sem hún upp-
götvaði að hún hafði týnt vesk-
in.u, sem er grænt að lit. í því
voru m.a. 150 sterlingspund í
ferðatékkum, 30 sterlingspund í
reiðufé, 1600 krónur íslenzkar o.
fl. Anne féfck far með allmörg-
um bifreiðum þennan dag og lík-
ur til að hún hafi týnt veskinu í
elnihverri þeirra. Þeir sem
kynnu að geta gefið einhverjar
upplýsingar eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við lög-
regluna.
BRÁÐLEGA mun koma saman
í Kaupmannahöfn nefnd embætt
ismanna, að semja drög að nátt-
úrufriðunarlögum fyrir Græn-
land. Herma fregnir að fyrirhug
að sé að friða algerlega stór
svæði í landinu.
Fór eldflaugin vel af stað, en
fataðist flugið skömmu eftir að
hún hafði losað sig við þriðja
þrepið, brezku flaugina „Blue
Streak“ og kom niður í Simpson-
eyðimörkinni í sunnanverðri
Ástralíu. Það var annað þrep
eldflaugarinnar, franska flaugin
„Coralie", sem þessu olli.
Evrópska eldflaugarstofnunin,
ELDO, hefur lýst því yfir að ann
arri eldflaug af þessari sömu
gerð verði skotið á loft i nóvem-
ber nk. eins og fyrirhugað var
áður.
Frestað hafði verið tíu sinn-
um að skjóta á loft eldflauginni,
sem loksins lagði upp í enda-
sleppa ferð sína í dag og lustu
verkfræðingar og tæknimenn
aðarópi er hún hóf sig á loft
og þóttust nú heldur betur hafa
hlotið umbun erfiðis sín,s og erg-
elsis hin tíu skiptin sem ekki
varð af skotinu. Sú ánægja varð
þó skammvinn, því eins og áð-
ur sagði komst flaugin ekki á
leíðarenda og gerfihnötturinn
ekki á braut umihverfis jörðu
eins og ráð hafði verið fyrir
gert. Flaugin átti sjálf að koma
í haf niður norðan Vestur-Irian
(Nýju-Guineu).
Eins og frá var skýrt var eld-
flaug þessi gerð af evrópsku
eldflaugastofnuninni (ELDO) og
skotið á loft í samvinnu við
Ástralíu. Leggja ýmis Evrópu-
ríki til hluta hennar, Bretar
fyrsta þrepið „Blue strea!k“ og
Frakkar annað, „Coralie”, en
V-Þjóðverjar hið þriðja og þar
eiga elgar og Hollendingar einn
ig hlut að máli. Gervihnöttur-
inn er að mestu ítölsk smíði og
sömuleiðis rannsóknartæki hans,
en Ástralíumenn leggja til af-
not af stöðinni í Woomera og
ýmsa tækniaðstoð aðra, tæki og
mannafla.
SKAMMT fyrir neðan Lögbergs
brekkuna mátti í gær líta nokkra
lögregluþjóna og starfsmenn
Bifreiðaeftirlitsins. Erindi þeirra
þar var að hafa eftirlit með um
ferðinni út úr borginni. Bifreið-
ar voru stöðvaðar og skoðunar-
skírteini rannsökuð, og ef ungl-
ingar voru á ferð var áfengis
leitað.
Magnús Einarsson lögreglu-
varðstjóri var fyrir þessari
sveit og sagði hann blaðamanni
Mbl. að þetta eftirlit væri aðal-
lega í tvennum tilgangi. Að sjá
til þess að bifreiðir í óíullnægj-
andi ástandi væru ekki á þjóð-
vegunum um þessa mestu um-
ferðarhelgi ársins. Og einnig að
koma í veg fyrir að unglingar
undir tilskildum aldri kæmust
leiðar sinnar út úr borginni með
áfengi. Þá væri lögreglunni heim
ilt að gera upptækt óeðlilegt
magn áfengis sem menn hefðu
undir höndum. Er þar auðvitað
haift í huga að menn geti ekki
haldið á helztu samkomustaði
um helgina og selt þar áfengL
Magnús sagði að kl. 7 hefði
aðeins einum bíl verið snúið aft-
ur til borgarinnar vegna ófull-
nægjandi öryggisútbúnaðar.
Umferðin hefði verið miki] um
daginn en einkum hefði verið
þar á ferð einkabílar. Hópferðir
unglinganna hæfust ekki fyrir al
vöru fyrr en síðar um kvöldið
ÍSLENZKIR bifreiðaeigendur fá
nú að taka á sig nokkrar byrð-
ar af siglingabanni Egypta um
Súezskurð.
í gærmorgim hækkaði benzín
líterinn um 17 aura, og í júlí
sl. hækkaði fuel olía í verði.
Ástæðan til benzínhækkunarinn
ar er eingöngu vegna hækkun-
ar á farmgjöldum sem varð við
lokun Súezskurðarins.
Mbl. hafði samband við Ind-
riða Pálsson hjá Olíufélaginu
Skeljungi og spurðist fyrir um
verðhækkanirnar, Indriði sagði,
að samkvæmt samningi á olíu-
innflutningi frá Sovétríkjunum
sjá seljendurnir um flutning á
olíum og benzíni til íslands.
og svo á laugardag. Mikið hefði
verið um fjölskyldufólk, og það
sem hefði verið af unglingum
hefði komið í ljós að þeir væru
áfengislausir, það sem af væri
deginum. Nokkrar flöskur hefðu
fundizt á leið út úr bænum með
bíl, og hefði hann verið kyrr-
settur unz sannaðist um aldur
löglegra eigenda.
Annar flokkur lögregluþjóna
væri staðsettur í nágrenni Ála-
foss, sömu erinda.
Magnús bað ökumenn vinsam-
legast að hafa ökuskírteini og
skoðunarvottorð meðferðis, enda
mættu menn búast við að vera
krafðir þeirra á staðnum.
Aðspurður um hvert mesta
umferðin lægi, sagði Magnús að
sér virtist Laugarvatn, Þjórsár-
dalur og Landmannalaugar vera
staðir sem fólk héldi flest til.
Um það leyti sem blaðamaður
og Ijósmyndari héldu af staðn-
um stöðvuðu lögregluþjónar hóp
ferðabíl fullan af ungu fólki á
leið í Þórsmörk. Ekkert áfengi
kom í leitirnar og bíllinn hélt
áfram för sinni.
Eins og áður hefur komið fram
í blaðafregnum verða ökumenn
sem ekki hafa komið með bíla
sína til skoðunar á löglegum
tíma snúið aftur til borgarinn-
ar. Gæzlu verður haldið uppi á
nefndum stöðum yfir helgina.
Fyrir nokkru hefðu flutninga
gjöld á olíunni hækkað um
100%, og væri verðhækkunin á
benzíni afleiðing af þessari
hækkun.
Vegna siglingabannsins um
Súez væri nú mikil eftirspurn
eftir olíuákipum, og flutnings-
gjöldin farið stígandi. 11. júlí sl.
hefði orðið 140 króna hækkun
á fuel olíu, og í gær hækkaði
svo benzínið í verði.
Indriði sagði, að Skeljungur
h.f. hefði átt birgðir af gasolíu,
sem flutt hefði verið inn fyrir
hækkunina. Mætti búast við
hækkun á gasoliu seinni hluta
mánaðarins, þegar gömlu birgð
irnar væru þrotnar.
LÆGÐIN A ai Hvar i iór veður yrði sólríkt og gott uim
vaxandi í gær og sv . 'aði helgina um mestan hluta lands
regnbelti sínu allnærri land- ins. Varla var þó álitið, að
inu, en furða var þó hvað það Suðurland mundi sleppa alveg
nálgaðist lítið og var talið, að við skýjabeltið.
Eykur skattahækkunin
ófriöarhættuna í USA?
Nýtt biskupssetur
Endaslepp ferö
Evrópu I.
— Misheppnað geimskot Evrópuríkja
frá Woomera í Ástralíu
Benzín hækkar í veröi