Morgunblaðið - 13.08.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
54. árg. — 180. tbl.
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kínverjar yfir "
til Hong Kong
Hong Kong, 12. ágúst
NTB—AP.
YFIRVÖLDIN í Hong Kong
skýrðu svo frá í dag, aS um tíu
leytið í morgun hefðu 100—150
Kínverjar farið yfir landamærin
'í þorpinu Sha Tay kok, en þau
íiggja með fram aðalgötu þorps-
ins. Höfðu Kínverjarnir með-
ferðis málningu og tóku að mála
J vígorð gegn Bretum á veggi, göt
’ ur og torg.
Hópurinn gerði síðan atlögu
að nokkrum stöðum í þorpinu
en var jafnharðan vísað burt
með táragasi.
í gær skuitu kínverskir landa- "
J mæraverðir inn yfir landamær-
in til Hong Kong og hafa brezk
j ir Ghunkahermenn, sem gæta
'þessa svæðis, sent út tilkynn- '
ingu um að gerist það aftur,
muni þeir skjóta á móti.
Fyrir um það bil mánuði fór
hópur Kínverja yfir landamær-
in í þessu sama þorpi, vopnaðir
rifflum og vélhyssum og féllu
þá fimm lögreglumenn í viður-
eign við Kínverjana.
Styrjöldin í
Nígeríu harðnar
Lagos, Nígeríu, 12 ágúst NTB
SAMBANDSSTJÓRNIN í Lag-
os hefur boðað algera styrjöld
'á hendur austurhluta Nígeríu
— Biafra — og beitir nú öllum
ráðum, hernðar í lofti jafnt sem
á láði, til þess að sporna við;
'frekari framgangi Biafra hers- j
ins. Að þvi er AFP-fréttastofan ;
segir undirbýr Lagos herinn
nú meiri háttar loftárásir á
svæðið umhverfis ósihólma ár-
innar Níger. Biafra herinn sendi
flugvélar sínar í átt til Lagos
1 morgun, en þær hurfu frá án
þess að sleppa sprengjum.
Lagos herinn hefur nú fengið
Framhald á bls. 31
Órótt í Aden
Aden, 12. ágúst NTB
í NÓTT og í morgun var mjög
'órótt í Aden, þar sem nú stend-
hr yfir tveggja sólarhringa alls-
(herjarverkfall. Arabískir
'skemmdaverkamenn gerðu að
'minnsta kosti 80 árásir á brezka
'hermenn og lögreglumenn sem
íeyna að halda uppi ró og reglu
1 borginni, en verðnr lít'ð á-
gengt.
Snemma í morgun vörpuðu
’hermdarverkamenn einnig
sprengjum að olíubirgðum Breta
í borginni, en hæfðu engan olíu-
tankanina, svo að þær aðgerðir
hötfðu engar alvarlegar afleiðing
Stærsti dráttar-
bátur heims
Shimonoseki, Japan 12. ágúst
— AP —
MITSUBISHI skipasmiðastöðin
hleypti í gær af sfokkunum
stærsta dráttarbáti í heimi. Var
honum gefið nafnið Koyo Maru.
Dráttarbátur þessi er 2250 lest-
ir að stærð knúinn tveimur 4500
hestafla vélum og mun geta
dregið 150000 lesta olíuskip frá
Persaflóa til Japan. Einnig verð
ur hægt að nota bátinn til björg
unarstarfa. Fullbúinn mun Koyo
Maru kiosta um 95 milljónir ísl.
kr., en gert er ráð fyrir að
hann fari í reynslusiglingu í
nóvember n.k.
S'bclkkhóimi, 10. ágúst, NTB.
Samtals 2150 manns úr sænska
hernum munu aðstoða sænsku
lögregluna daginn sem ’hægri
umferð kemst á í Sviþjóð, 3.
september nk. Flestir munu her-
mennirnir aðstoða lögregluna í
nágrenini berstöðva sinna.
Þessi mynd er tekin á Seyð
isfirði, sem verið hefur mesti
síldarbær landsins undanfar-
in ár og er svo enn skv.
skýrslu Fiskifélags íslands,
en Siglufjörður hið gamla
höfuðból síldariðnaðarins
fylgir fast á eftir. Á mynd-
inni hér sjást nokkur síldar-
plön og tunnustaflarnir við
þau. Engin síld hefur enn ver
ið söltuð á landinu, en nú
eru menn að vona að síldin
fari að lóna í átt til lands og
þá verða hendur látnar standa
fram úr ermum á söltunar-
stöðvum austanlands og von-
andi berst einnig síld á Norð-
urlandshafnir.
Ljósm. Mats Wibe Lund.
Lin Piao eftir-
maður Maos
Tókíó og Peking 12. ágúst
AP—NTB
DAGBLAÐ Þjóðernishersins í
Peking skýrði frá því opinber-
lega í dag, áð Lin Piao varnar-
málaráðherra hefði verið skip-
aður eftirmaður Mao Tse-tungs
fyrir ári síðan. Þetta er í fyrsta
skipti sem skýrt er frá þessu
opinberlega, en áður höfðu vegg
blöð rauðravarðliða í Peking
talað um Lin Piao sem eftir-
mann Maos.
Sumdsvall, 9. ágúst NTB.
SJÖ Svíar, sem saknað hefur
verið síðan á sunniudag eftir báts
ferð í skerjagarðinum, fuindust
heilir á hiúfi 15 sjómílur fyrir
utan strönd Finnlands í nótt. í
hópi hinna sjö voru þrjú börn.
Frá því var skýrt í Moskvu í
dag, að hópur rauðra varðliða
hefði ráðist um borð í sevézkt
flutningaskip í kínversku hafn-
arborginni Darien og brotið og
bramlað stjórntæki skipsins og
sært nokkra skipsmenn. Þá
hafði æstur skríllinn náð skip-
stjóranum á sitt vald og dregið
hann nauðugan eftir hafnarbakk
anum í háðungarskini, án þess
að skipverjar hans gætu komið
honum til hjálpar.Skipið, sem
heitir Svirsk kom til Darien sl.
þriðjudag til að lesta þar salt-
farm.
Sovétstjórnin hefur sent stjórn
inni í Peking harðorð mótmæli
vegna þessa atburðar og krafist
þess að skipstjórinn verði lá.tinn
laus, þegar í stað og skipinu
leyft að láfta úr hötfn.
Þessi mynd sýnir verksummerki eftir járnbrautarslysið mikla er varð í Danmörku sl. fimmtu
dag er 11 manns fórust og u m 100 slösuðust. Rannsókn hef ur leitt í ljós að allt bendir til
að um mannleg mistök hafi verjð að ræða.