Morgunblaðið - 13.08.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.08.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1967 3 Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: Syndin, sem aldrei verður fyrirgefin í EINU guðspjalla þessa sunnu- dags nefnir Jesús synd, sem mönnunum verði aldrei fyrirgef- in: „Sérhver synd og lastmæli munu verða fyrirgefin mönnum, en lastmæli gegn andanum mun eigi verða fyrirgefið. Og hver sem mælir orð gegn manns- syninum, honum mun verða fyr- irgefið. En hver sem mælir gegn heilögum anda, honum mun eigi verða fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né hinum kom- and“ (Matt. 12.) En hver er sú synd, sem Jesús dæmir svo ægilegum dómi, að hún verði aldrei fyrirgefin? Hann er að ljúka við að lækna blindan og mállausan mann. Farísearnir horfa á þetta und- ur samlega verk unnið og þeir vita, að hér er kraftur Guðs — heil. andi — að verki. Samt for- herða þeir hjarta satt og af hatri á Jesú segja þeir við undrun lostinn mannfjöldann, að með krafti Satans hafi Jesús læknað manninn. Taumlausu hatri myrkva þeir sál sína. Gegn betri vitund mæla þeir og eigna djöflinum Guðs máttarverk. Við slíkri synd segir Jesús að engin fyrirgefning fáist. Hver er refsingin? Svo hefir verið kennt, að hún sé fólgin í endalausum kvölum, eilífri fyrirdæmingu. í barnalær dómsbókinni, sem við lærðum flest undir fermingu á minni tíð, segir, að refsingin sé „ævinlegt kvalalif í sambúð við illa anda, endalaus angist og örvænting, án allrar vonar um frelsun“. í guðspjallinu segir Jesús ekki þetta. Samt er alvöruþunginn í orðum hans geigvænlegur: Það er ægilegt að drýgja svo hróp- lega synd, að án Guð-s náðar, án fyrirgefningar verði maðurinn að ganga einmana sinn yfirbótar veg og greiða skuldina stóru þannig. í öðrum, svipuðum ummæl- I um segir Jesús, að í skuldafang- elsi verði maðurinn að dvelja, unz skuldin sé greidd til síðasta eyris. En það felur í sér, að skuld ina sé þó unnt að greiða, og þá er sku'ldafangelsið ekki eilíft, dvölin þar ekki endalaus. En svo hefir verið kennt. Svo segir í Helgakveri og yfir hlið- um heljar segir Dante letruð þessi orð: „Þeir, sem ganga hér inn, sleppi allri von“. Jesús seg- ir ekki þetta, en dómur hans yf- ir þeim, sem lastmæla gegn heil. andá, er ægilegur og strangur. Um ómunaaldur hefir mönn- um boðið í grun, að tungan sé gædd mætti, ýmist dýrðlegum mæti til góðs eða ægilegum mætti til iíls. Hjátrú! segja menn, en hvað vita þeir um það? Vita vísind- in nokkuð um þau efni fram yf- ir það, sem feðurnir vissu á löngu liðinni öld? Veit atóm- fræðingurinn í dag nokkuð meira um orðsins mátt og áhrif þess á örlög manns og líf, en ómenntuð alþýðukonan veit? Þeir sem vilja hlusta eftir orð- um Jesú, ættu að hræðast að mæla af heiftarhug, hræðast það sjálfs sín vegna, fyrst og fremst. Efar þú, að kærleikshugsun og bæn sé blessun þeim, sem biður, og blessun einnig þeim, sem beð ið er fyrir? Og mun þá ekki ranghverfan einnig vera til? Á ekki allt hið góða einnig sína andstæðu, líka kærleikshugur- inn og fyrirbænin? Hugsar þú nógu oft um þetta? „Orð eru dýr, þessi andans fræ“, — dýr til góðs og ills. Text ar þessa sunnudags flytja mér og þér alvarlegt mál um synd, _ sem getur orðið svo geigvænleg, að hún verði ekki fyrirgefin. Gættu tungu þinnar, — segja við okkur textar þessa dags. Þótt þú ætlir þér í örvita bræði, að skaða annan mann, þá bindur heiftarhugur þinn og tunga sjálfum þér böl, sem fylg- ir þér langt, Guð einn veit hve langt inn í ókomna tíð. Fer&alögum frá Islandi til Marokko fjölgar HÉR á landi hefur verið staddur i Mohamed Bel Hadj frá Marokkó, en hann er forstjóri landkynn- ingarskrifstofu Marokkó í Stokk hólmi, sem hefur yfirumsjón með Iandkynningarstarfsemi landsins á Norðurlöndum. í för með Bel Hadj voru tveir for- stjórar fyrir skrifstofum bclgí- íska flugfélagsins Sabena á Norðurlöndum, C. Desbuleux og Torben E. Hartvig. Komu þeir hingað einkum til viðræðna við yfirmenn Flugfélags íslands og Ferðaskrifstofunnar Sögu um væntanleg ferðalög íslenzkra ferðamannahópa til Marokkó. Auk þess, sem þeir ræddu við forstjóra annarra ferðaskrif- stofa og sýndu kvikmyndir frá Marokkó. Blaðamaður hjá Morg- unblaðinu átti stutt rabb við þessa menn nýlega. Ferðaskrifistofan Saga hefur wi stutt skeið haldið uppi ferð- um til Marokkó, en nú er í ráði að aiuka .og enduirsikipulieggja Þær. Að sögn Njáls Símonarson- ar, forstjóra Sögu, og Birigis Þorgilsisonar, deildarstjór a hjá Flugfélagi íslands, munu ferða- mannahóparnir í náínni framtíð fljúga með Flugfélagi íslands til Kaupmannahafnar, en þaðan ril Casablanca með Sabena. Sextán daga dvöl í Marokkó áisamt ferð- um kostar urn 16 þús. krónur, saigði Njáll Simonarson. Hann sagðist nýlega hafa verið í Casa- blanea til að kynna sér aðstæður þar og kvaðst hann ekki efast um að íslendingum fyndist gam- an að heim.sækja Marokkú, siem er mjög frábrugðið íslandi og öðrum löndum, sem íslendingar ! þús. ferðamenn til Marokkó. hafa einkum heimsótt. Bel Hadj sagði, að sl. 12 ár, sða frá því að Marokkó hlaut sjálfstæði 2. ma-rz 1955, hefði ferðamannasbraumurinn til lands ims aukizt frá ári til árs, og Legði ríkið mikið fé í landkynn- ingarstarfsemina. Sl. ár komu 500 þús. ferðamenn til Marokkó, sagði hann, og 1967 reiknum við með 700 þús. Árið 1965 komu 16 „Svo af þessu má sjá að land- kynningarstarfsiemi okkar hefur borið árangur". Árið 1965, sagðd Bel Hadj ennfremur gerði ríkis- stjórnin sérstaka landkynningar- áætlun t.d. viðvíkjandi hótel- byggingum og auglýsingastarf- semi. Sl. ár hefðu hótelherbeirg- in i landinu aukizt um 10 þús., sem viissulaga væri mjög mikið. Til þessarar áætlunar hefði rík- ið varið 8 millj. dollunum á ári, en tekjur af ferðamönnum til landsins sl. tvö ár námu 10 millj. dollu-rum á ári, svo gróðinn var 2 millj. árlisga. Aðspurður sagði Bel Hadj, að í sambandi við Norðurlöndin væri um mun ódýrara að lifa í Marokkó, eða því sem svarar til 40%. Hann sagði að loftslagið þar væri mjög gott, sólskin a.llt árið og svalur blær. „Það er ekki nokkur vafi á því að ís- lendingum mun, eins og öðr-um Norðurla-ndabúum finnast at- ihyiglisvert að heimisækja Ma-r- okkó, en nú þegar fólk er búið að f-erðasf svo mikið um sömu löndin, fer það að hsim-sækja þessi lönd, sem fyrir einum tug ára til tveim voru nær óþekkt öllum þorra manna“, sagði Bel Hadj að loku-m. Talið frá vinstri: Birgir Þorgilsson, deildarstj., Torben E. Hartvig, forstj., Mohamed Bel Hadj, forstj., og C. Desbuleux, forstj. I Kveðja fró Hirschfeld HANS R. Hirschfeld fyrrum sendiherra Vestur Þýzkalands á íslandi kom hingað til lands í heiimsókn í sumar ásamt konu sinni. Dvöldust þau lengst af í Hveragerði en ferðuðust auk þess nokkuð um landið, heim- sóttu m.a. Borgarnes og Akra- nes. Hirschfield hefur beðið Morgunblaðið að flytja vin-um og kunningjum frá fyrri árum sínar beztu kvenjur „því miður gát-um við ekki að þe-ssu sihn-i dvalizt hér nógu lengi til þess að hitta þá alla, segir Hirsch- feld — við vorum hér um það bil fjórar vikur en mestan hluta þess tíma um kyrrt í Hvera- gerði, þar sem ágætt veður. sól skin og heitir hverir urðu mér mikil heilsubót. Áratuga- uppby^^-uig framundan 3§b FERDASKRIFSTOFA RÍKISIAS 7 doga skemmtiferð um ein fegursta héruð landsins 21.-27. dgúst fyrir aðeins kr. 3.950.OO Stutt ferðalýsing: 1. dagur (21. ágúst): Flogið frá Reykja vík til Egilsstaða um morguninn. Eftir hádegi skoðunarferð um Fljóts- dalshérað og Hallormsstaðaskóg. Gist á Eiðum. 2. dagur: Kynnisferð á Seyðisifjörð og víðar. Gist á Eiðum. 3. dagur: Ekið vestur yfir Möðrudals- öræfi, komið í Námaskarð og Dimmu- borgir skoðaðar. Gist við Mývatn. 4. dagur: Hringferð Dettifoss, Ásbyrgi, Axarfjörður, Tjörnes, Húsavík, Laug- ar. Gist við Mývatn. 5. dagur: Ekið frá Mývatni um Þing- eyjarsýslu. Goðafoss skoðaður. Síðan í Vaglaskóg og til Akureyrar, þar sem gist er. 6. dagur: Dvalizt um kyrrt á Akur- eyri. Bærinn skoðaður og söfn heim- sótt. Gist á Akureyri. 7. dagur: (27. ágúst). Ekið í Skaga- fjörð. Glau.mbær og Víðimýrarkirkja skoðuð. Haldið áfram um Húnavatns- sýslur, Holtavörðuheiði og Borgar- fjörð til Reykjavíkur. Innifalið í verðinu er: Öll fargjöld, 6 gistingar með morgunverði og fararstjórn reynds fararstjóra. Framlenging ferðar: Þeir, sem óska, geta gist eina nótt í viðbót að Varma- landi í Borgarfirði og ferðast mánu- daginn 28. ágúst um Kaldadal og Þing- velli til Reykjavíkur. Viðbótargjald kr. 450.— Óvenjulega hagstætt tækifæri til að kynnast landinu. Skráning farþega og nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SIMI 11540 Hannover, V-Þýzkalandi 12. ágúst — AP — V-ÞÝZKA dagblaðið Hannov- ersch Allgmeine Zeitung birtir í dag viðtal við Mahmoud Riad, utanríkisráðherra Egyptalands, þar sem haft er eftir ráðherr- anum, að áratugi muni taka að byggja egypzka herinn upp á nýjan leik eftir styrjöldina við ísrael. Riad sagði: „Við eigum engan her lengur, honum hefur verið ger- eytt og framundan er endur- reisnartímabil, sem mun 'taka áratugi. Hann sagði einnig að Egyptar myndu ekki setjast að samningaborði með ísraelsmönn um. Riad sagði að Egyptar hefðu tekið ísra-elsmenn kverkataki með því að loka mynni Araba flóa, og sagði að engin skip und ir fána ísraels hefðu siglt um skurðinn undanfarin tvö ár. Riad sagði: „Sannleikurinn er sá að AkabafUi var hvorki mik ilvægur okkur né ísraelsmönn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.