Morgunblaðið - 13.08.1967, Síða 11

Morgunblaðið - 13.08.1967, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. AGÚST 1967 llA » SIJIMNIJFERÐIR til sólarlanda [ Vinsœlar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjárum | Margra ára reynsla og ótvíræðar vlnsældlr tryggja farþegum okkar snurðulaust ferða- i lag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, i viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 1500 í ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Það sem af er þessu ári hafa yfir 1800 nýir j farþegar tekið þátt í hópferðum okkar til útlanda. 1 Við auglýsum sjaldan, þvi ánægðir viðskipt avinir komnir heim úr vel heppnuðum og í skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. Nú þegar er upppantað í i margíir ferðir og fá sæti laus í flestum hinna. Skemmtisiglingar suður til Miðjardarhafsins með ms. Völkerfreundschaft — áður Stockholm Að lokinni 16 daga skemmtisiglingu á vegum Sunnu til Norður Evrópu fer þetta glæsilega lúxusskip, til Miðjarðarhafsins til að sinna öðrum verkefnum. Við höfum fengið leyfi til að nota skipið í skemmtisiglingu suður til M iðjarðarhafsins og flytja með því tvo hópa, annan í 19 daga ferð til Mallorka og London en hinn í 12 daga fe-rð til Mallorka, frönsku Rivierunnar, Rínarlanda og Amsterdam. Þið siglið með þessu 12.500 smál. skemmtifer ðaskipi suður til Miðjarðarhafsins á fjórum dögum. Njótið sólar, hvíldar og skemmtunar um borð, þar sem þrjár hljómsveitir leika, í glæsilegum samkomusölum. Næturklúbbur op inn á hverju kvöldi. Tvær sundlaugar, gufu- baðstofa, sjúkrahús, hárgreiðslustofa og verzl anir með tollfrjálsum varningi. íslenzkir far- arstjórar. Mallorka og London 31. ágúst — 19. september, 19 dagar. Verð frá kr. 11.300.— í þessari ferð er siglt út með skemmtiferðask ipinu. Komið til Mallorka 5. september og dvalið þar til 18. septemiber. Flogið til London og stanzað þar í sólarhring og komið til ís- lands aftur um miðnætti 19. september. Mallorka — Franska Rivieran — Rínarlönd — Amsterdam 31. ágúst — 10. september. 12 dagar. Verð kr. 12.300.— Siglt til Mallorka og Suður Frakklands. Ekið til Nizza, Monte Carlo — Rínarlanda og Amst- erdam, og flogið þaðan heim. Brottför 8. september. — 21 dagur. — Verð kr. 21.300,00. Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Italíu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum: Feneyjum, hinni „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Umferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz, hin fagra höfuðborg listanna á miðöldum Ítalíu. Róm er u helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pom pei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ök uferðir um fegurstu byggðir Ítalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu gl æsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michel- angelo (63 þús. smál að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferða rinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. Ítalía og Portugal. Brottför 2. október 21. dagur. — Verð kr. 25.8 60. Þetta er luxusferð fyrir þá allra vandlátustu. Beztu fáanleg hótel og glæsilegasta hafekip ftala Raffaello, sem er 43. smálestir að stær ð. Ferðatilhögun: Flogið til London með þotu og þaðan til Lissabon. Dvalið þar í Lissabon, flogið þaðan til Madeira og síðan siglt með hinu glæsilega hafskipi í sjö daga til Kanaríeyj a, Gibraltar, Palma de Mallorca, Sikileyjar og Napoli. Þaðan ekið meðfram Napoliflóanum til hins undurfagr.a baðstrandarbæjar Sorrento og dvalið þar nokkra daga. Þaðan ekið til Napoli og Rómar og dvalið í Róm í fjóra daga. Flogið frá Róm til Feneyja og dvalið þar tvo daga og loks flogið til London og dvalið þar tvo daga, áður en flogið er heim. Hægt er að framlengja dvölina I London. Þegar hafa margir pantað í þessa fyrirhuguðu ferð þó auglýst sé nú í fyrsta sinn. Plássið er takmarkað og pantið þvi snemma. — Fararstjóri Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. — Verð kr. 23.700,00. Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austur- landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta i Austurlöndum nær. Heimsóttu persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusale m, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. Mallorka — London Brottfarardagar: 17. ágúst — 31. ágúst — 14. sept. — 17. sept 28. sept. — 12. okt. — Verð frá kr. 9.800.— Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- sældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanlegu kjör vegna þess að skrifstofan semur um fyrir rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frá miðri höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferða- mannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist, sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í London. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjór máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímum og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum í þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara til Kaupmannahafnar til að komst ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. íslenzkar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bezta. Fararstjóri: Njörður P. Njarðvik. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 27. ágúst — 3. sept — 17. sept. 12 dagar — Verð kr. 11.800.— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynn- ast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Milljónaborgin London, tilkomumikil og sögu- fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuihús. Amsterdam, heillandi og fögur með fljót sín og skurði blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn þar sem fslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð hefir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjörnsson og Gunnar Eyjólfsson. f SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið Iengstu leiðirnar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst og síðast en ekki sízt. — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hóte) okkar á Mallorca. Ferðaskritsfotan SUNNA Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.