Morgunblaðið - 19.09.1967, Síða 14
1 ":! -
14
■ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPT. 19«7
Perma-Dri — Ken-Dri
Þessi sérstaklega endingargóða utanhússmálning
er nú til á lager í nokkrum litum, sömuleiðis Ken-
Dri (olíuvatnsverji) sem borinn er á steinveggina
áður en málað er.
Athugið Perma-Dri er mjög heppilegt að nota á hús
sem ekki eru múrhúðuð að utan. Kenitex er mjög
auðvelt að nota til að fylla með loftholur og eins til
að jafna með misfellur á steypu- og pötusamskeyt-
um.
Sendi hvert á land sem er í póstkröfu
HEILDSALA:
Sigurður Pálssón, byggingameistari
Kambsveg 32 - Símar 34472, 38414
Iðnskófinn í Reykjavík
Skóli fyrir aðstoðarfólk á teiknistofum.
Teiknaráskólinn, tekur til starfa 9. október 1967,
er næg þátttaka fæst.
Ráðgert er að hafa tvær deildir starfandi við
skólann að þessu sinni, byrjunardeild og fram-
haldsdeild.
Inntökuskilyrði í byrjunardeild er að umsækjend-
ur séu fullra 16 ára og hafi lokið miðskólaprófi.
Kennt verður tvisvar í viku í 9 vikur. Kennslu-
gjald er kr. 600.—, er greiðist við innritun.
Framhaldsdeildin er eingöngu ætluð þeim nem-
endum er lokið hafa prófi úr 2. bekk teiknaraskól-
ans. Kennt verður að degi til, tvisvar í viku í 27
vikur. Kennslugjald er kr. 1800.— er greiðist við
innritun.
Innritun fer fram í skrifstofu Iðnskólans á venju-
legum skrifstofutíma, og verða þar veittar nánari
upplýsingar. Innritunin hefst þriðjudaginn 19. sept.
og lýkur 28. sept.
Keflavík Keflavík
DALE CARIMEGIE námskeiðið
Námskeið er að hefjast í Keflavík á mánudags-
kvöldum og stendur yfir í 14 vikur. Námskeiðið
mun hjálpa þér að:
ic Öðlast hugrekki og sjálfstraust.
ic Tala af öryggi á fundum.
★ Auka tekjur þínar, með hæfileikum þínum að
umgangast fólk. 85% af velgengni þinni, eru kom-
in undir því, hvernig þér tekst að umgangast
aðra.
ic Afla þér vinsælda og áhrifa.
ÍT Verða betri sölumaður, hugmynda þinna, þjón-
ustu eða vöru.
ic Verða áhrifameiri leiðtogi í fyrirtæki eða starfs-
grein þinni, vegna mælsku þinnar.
ic Bæta minni þitt á nöfn og andlit og staðreyndir.
ic Verða betri stjórnandi vegna þekkingar þinnar á
fólki.
Uppgötva ný áhugamál, ný markmið að stefna
að.
ic Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
Námskeiðið hófst í Bandaríkjunum átið 1912 og
hafa yfir 1.000,000 karla og kvenna tekið þátt í því,
um allan heim.
Innritun og upplýsingar í dag og næstu daga í síma
82930 og eftir kl. 17:00 í síma 30216.
KONKÁÐ ADOLPIISSON, viðskiptafræðingur.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Einars Viðar, hrl., verður efri hæð hús-
eignarinnar Nönnustígur 8, Hafnarfirði, þinglesin
eign Friðriks Ágústs Helgasonar, seld á nauðungar-
uppboði, sem háð verður á eigninni sjálfri föstu-
daginn 22. sept. 1967, kl. 2.00 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 31., 32. og 33. tölublaði
I,ögbirtingab)aðsins 1967.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðun^aruppboð
Eftir kröfu bæjargjaldkerans í Hafnarfirði verður
húseignin Birkihvammur við Garðaveg, talin eign
Sveins O. Sveinssonar seld á nauðungaruppboði,
sem háð verður á eigninni sjálfri fimmtudaginn
21. sept. 1967, kl. 2.00 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 14., 16. og 17. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1967.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
2ja ára ábyrgð.
olivetti Eigin viðserðarÞjónusta
Skóla- og ferða-
ritvélar.
G. Helgason og
Melsteð h.f.
Rauðarárstíg 1
Sími 11644.
Bólstrarar
Hið vinsæla leðurlíki
nieð jerseyundirlagi.
OG
komið aftur á lager
í miklu litaúrvali.
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson & Co hf.
sími 24-333.
Nýtt frá Moskvich
Uetum nú boðið sendiferðabifreið af hinni vinsælu
Moskvich gerð. Falleg og traust bifreið er hentar
vel fyrir alla smærri flutninga.
Verð kr. 131.000.00.
Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Bifreiðar & landbúnaðarvélar h.f.
Suðurlandsbraut 14 — Sími 38600.
Rhódesía
lýðveldi
næsta vor?
Glasgow, 13. sept. AP.
IAN Smifch, forsætisráðherra
Rhodesiu, hefur sagt í blaðavið-
tali, að nýlendan, sem sagt hef-
ur skilið við Bretland kunni að
lýsa yfir lýðveldisstofnun í land
inu næsta vor. Sagði Smith þetta
í viðtali við „The Glasgow Her-
ald“, sem birtist í blaðinu í dag
og sagði þar enn fremur, að
stjórnarskrárnéfnd um Rhodesiu
kynni að koma of seint fram
með skýrslu sýna til þess að
komast að málamiðlun við Bret-
land.
Sagði hann, að um það leyti,
sem skýrslan kæmi fram, kynni
spurningin um, hvort stofna ætti
lýðveldi í Rhodesiu að leysast
af sjál'fu sér. Smith, sem lýsti
yfir sjálfstæði Rhodesiu gagn-
vart Bretlandi í nóvember 1965,
bætti við: „Eins o,g ég sagði' áð-
ur, þá vill Bretland ekki veita
okkur viðurkenning'U og ekki
vill drottningin viðurkenna okk-
ur, svo að mér er spurn, hvað
annað eigum við að verða? Okk-
ar er valið.
Lðun hækka
á Spáni
San Seb'atian, 16. sept. •— AP —
SPÆNSKA stjórnin ákvað í dag
að grípa ekki til ráðstafana
gegn Gíbraltar eftir hinar al-
mennu kosningar þar á sunnu-
dag, en þá var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða, að varðveita tengslin við
Bretland. Hefur Spánarstjórn
ákveðið að hefja viðræður við
Bretland um framtíð Gíbraltar
eins fljótt og unnt væri.
Þá ákvað stjórnin á sama
fundi, að, hækka lágmarkskaup
á Spáni úr 84 pesetum (tæpar
60 kr. ísl.) í 96 peseta (rúmar
70 kr.) á dag. Verkalýðssam-
tökin á Spáni, sem ríkið stjórn-
ar, höfðu krafizt launahækkun-
ar upp í 125—160 peseta á dag.
Launahækkunin kemur til fram
kvæmda 1. okt. n.k.
Litla Aden lýst
hersvæði
Aden, 15. sept. NTB.
Stjórn Suður-Arabíusambands-
ins hefur iýst Litlu Aden her-
svæði og tilkynnt, að þjóðernis-
sinnum sé bannað að bera þar
vopn. Þeir hafa sterkan stuðning
meðal íbúanna í Litlu Aden, sem
er um 40 km frá Adenborg
sjálfri.
Sambandsherinn tók fyrír
nokkru á sig ábyrgð á því að
halda öryggi í Litlu Aden eftir að
brezkir hermenn höfðu farið það
an brott. Til þess að reyna að
nindra átök milli hinna tveggja
fylkinga þjóðernissinna, NLF cg
FLOSY, hefur herinn skorað á
samtökin áð láta vera að draga
fána sína að húni á opinberum
byggingum, eins og þeir hafa tíð-
um gert. Nýlega kom til harðra
bardaga milli þjóðernissinna-
fylkinganna í héruðunum Sheikh
Othman og Mansouna í nýlend-
unni.
Los Angeles, 12. sept. AP.
Ingrid Bergman var mjög vel
fagnað af áhorfendum, er hún
kom fyrst fram á leiksviði í
Bandaríkjunum að nýju eftir 21
ár í dag í Los Angeles. Það vakti
ennfremur mikla athygli, að leik
rit það, sem hún kom fram í,
var síðasta leikritið, sem hinn
látni Eugene O’Neill skrifaði,
„More Stately Mansions“, en það
var fyrst sett á svið í Stokk-
hólmi 1962 og þar fylgt fyrir-
mælum frá höfundinuim, að öll
leikrit hans, sem þá hef&u ekk;
verið sviðsett áður, yrðu frum*
sýnd í Stokkhólmi.