Morgunblaðið - 07.10.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 07.10.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKT. 1967 ÍVIAGNÚSAR SKIPHOLTl2l símar 21190 eftir lokun simi 40381 SIM11-44-44 muam Hverfisgötu 103. Síml eftfr IoKub 31160. LITLA BÍLALEIGAN fngólfwtrætt 11. Hagstaett leigugjald. Bensín innifaUO í leiffugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAM - VAKUR - Sundiaugaveg 1& Síml 36135. Efttr iokun 3493« og 33211. BAUOARARSTIG 31 SlMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki Útvarps- og sjónvarpstæki Hafmagnsvsrubúðin sf Suðurlandsbraut 12. Simi 81670 (naeg bílastaeði). AU-ÐVITAÐ ALLTAF Hvemig er það með hann Áma? „Blaðamaður“ spyr: „Hvernig er það með hann Árna Böðvarsson, sem talar um íslenzkt mál í ríkisátvarp- inu, — les hann blöðin í leit að villum, en hlustar aldrei á út- varpið? Málfar starfsmanna útvarps- ins er sízt vandaðra en málfar blaðamanna. T.d. heyrði ég einn daginn talað um borg „í umsát“, (þ. e. í umsátri), „að taka veður“ (þ. e. gera veður- athuganir) og spurning.una „hvenær haldið þið, að það komi upp?“, þegar átt var við það, hvenær tiltekið leikrit yrði tekið til sýningar. Sérstak- lega virðist einn starfsmaður óvandur að málfari sínu. Hann kann ekki að fallbeygja orðið „hönd“, og þótt hann hafi aðal- lega verið kenndur við fisk, heldur hann, að eignarfallið af ,,fiskvtr“ sé „fiskjar". Mætti ekki verja nolckrum þátttrm í að leiðrétta helztu ambögur útvarpsmannanna? Blaðamaður". ^ Bahaí-trú Bréf hafa Velvakanda borizt um bahaí-trú, en þar eð þau eru í langorðara lagi, hef- ur birting þeirra dregizt á langinn. Balðor Bragason skrifar: „Búrfelli, 22. ágúst 1967. „Ég vil gera hér nokkrar athugasemdir við skrif í Mbl. þann 18. þ.m. um Bahartrúar- flokkinn. í umræddum skríf- um er það haft eftír Jóhanni Hannessyni, prófessor, að Bahaítrúarbrögðin séu grein af Múhammeðstrú. Þetta tel ég ekki fullkomlega rétt. Að vísu eru trúarbrögðin upprunnin í Múhammeðstrúarlandi og byggja á spádómum biblíunnar og kóransins. En þar sem þau eiga sína sérstöku spámenn, hljóta þau að mínum dómi að teljast sjálfstæð trúarbrögð. Á sama hátt tel ég kristindómínn sjálfstæð trúarbrögð, en ekki greín af Gyðingatrú. Sam- kvæmt mínum skilningi er lúterstrú aftur á móti grein af kristindómi, þar sem höíundur hennar, Lúter, er ekki talínn hafa verið spámaður. í umræddum skritfum er sagt, að fólk hafi undrazt, að Bahaítrúflokkurinn hafí feng- ið að ákalla „sinn guð“ í krisL inni kirkju. Guð okkar Bahaía er hinn sami og guð krístinna manna, þvi að það er einungis til einn guð, guð allra manna. Við Bahaíar trúurn einnig á spámenn Gamla testamentisins á sama hátt og kristnir menn og trúum því sama um Kríst og þeir. Það er rétt, sem bisk- upinn, herra Sigurbjöm Ein- arsson segir, að við Bahíar höfum sagt skilið við kristna trú, en að okkar dómi er það hliðstætt því, að barnið segir skílið við barnaskólann, þegar það hefur nám í gagnfræða- skóla. Á sama hátt og Jesús Krist- ur nam úr gildi ýmsar erfi- kenningar Gamla testamentis- ins og kom með ný boðorð, vegna breyttra tírna, námu þeir Báh og Bahá’u’lláh úr gildi ýmsar erfikenningar gamia tímans og komu með ný boðorð fyrir nýja tímann. Hér vil ég drepa á nokkrar þessara nýju kenninga. Bahá’u’lláh boðaði, að heim- urinn væri einn heimur og fólkið í honum meðlimir sömu fjölskyldu. Hann segir, að sumt £ólk sé sofandi og að það þurfti að vekja. Sumir eru sjúkir, og þá þurfi að lækna. Sumir eru eins og börn, og þeim þarf að kenna, en allir njóta örlætis og gjafa guðs. Bahaítrúin segir, að þörf sé að rannsaka sannleikann. Það er að segja, enginn skyldi fylgja áum sínum og forfeðrum í blindni. Hver maður verður að sjá með eigin augum, heyra með eigin eyrum og rannsaka sannleikann á sínn hátf. Grundvöllur allra Guðs trú- arbragða er einn. Það ex aðeins einn guð. Þeas vegna getur að- eins verið um eina trú að ræða, guðstrú. Allir fyrri spámenn hafa kennt sama grundvallar- sannleikann, og allur kom hann frá sama guði. Trúin þarf að vera orsök ein- ingar, samræmís og samlyndis meðal manna. Ef trú verður or- sðk sundurlyndis og haturs, ef hún veídur aðskilnaði og stríði, þá væri 'betur engin trú í heim- inum. Bahaítrúín kennir einnig, að trúin verði að samræmast vís- indum og skynsemi. Ef hún gerir það ekki, er hún hjátrú. Bahá’u’lláh boðaði jöfnuð karla og kvenna. ÖIl önnur trú- arbrögð hafa sett karlmanninn ofar kcwiunni. Aíheimsfriði er lofað í Bahaí- kenningunum. Þessum alheims- friði verður náð, með því að taka í notkun kennisetningar Bahá’uTIáhs. Að síðustu má geta þess, að stjórnskipulag Bahaítrúaxinn- ar er þannig, að það er ómögu- legt fyrir nokkurn mann að skapa nýja sértrú byggða á eigin skilningi hinna guðlegu orða. Ef einhver vill fræðast frekar urn Bahaítrúna, fær hann áreiðanlegustu upplýsing- ar í bókum trúarinnar sjálfrar. Ein þeirra hefur verið þýdd á íslenzku og heitir Bahá’u’ulláh og Nýi Tíminn. í Guðs friði, Baldur Bragason". Vísindi Og vanþekking Deílu „Áhugasams" og Nýalssinna átti eiginlega að vera lokið í þessum dálkum, að sinni a. m. k. En þar eð .A-hugasan'ur” telur bréf sitt hafa verið misskilið eða rang- túlkað, er eftirfarandi bréf hans birt nú, en þar með er málið líka útrætt í þessum dálkum I bili. Rúmsins vegna er ekki hægt að halda deilunni uppi hér. „Áhugasamur" hefur valíð bréfí sinu fyrírsögnina „Þorstein gegn Einstein". „Kærí Velvakandí: í dálkum þínum 18. ágúst s.L er áskorun eða beiðni til ies- enda um að útskýra nífaldan Ijóshraða, sem gefið er í skyn að sé nýuppgötvað fyrirbærL Ég leitaðist við að svara þessu í smágrein þ. 25. ágúst, en gall- inn er sá, að dálkar þínir leyfa varla nógu langa skýringar- grein til þess að skýringarnar misskíijist e'cki. Ég nrundi vilja skrifa miklu meira um þetta. Svargrein Þorsteins Guð- jónssonar þ. 14. sept. ber vott misskilningi á grein minnL Orð ið fasa-hraðí var e.t.v. léleg þýðing hjá mér og nota ég því ekki það orð. Ég á gamla kennslubók frá árinu 1946 í fræðigrein minni, þar sem nákvæm grein er gerð fyrir phase velocity. Er ná- kvaErmlega útlistað, bæði stærð- fræðilega og í lesmáli, hvernig phase velocity er meiri en ljós- hraðinn, án þess að vera í mót- sögn við eðlisfræðilöigmál. Einsteinskan er því alls ekki fallin á þessu, því þótt phase volocity sé meiri en ljóshrað- inn, þá berst orkan eða boðin ekki hraðar en ljósið skv. eðlis- fræðilögmálum, sbr. dæmið um ölduna á vatni Tökum ann- að dæmi: Ef tvær beinar línur skerast í punkti og önnur er látin hreyfast hægt, getur skurðpunktur þeirra færzt með margföldum ijóshraða, eins og flestir hljóta að skilja. En skurðpunkturinn er ekki orku- eða efnisögn. Þótt skurð- punkurinn geti flutt boð milli staða, þá eru það boð frá lín- unni sem hreyfist, en alls ekki boð sem maður staddur í skurðpunktinum getur sent áleiðis í þá stefnu sem skurð- punkturinn . færist. Á hádegi mundi sólargeisli berast örlítið fyrr til Hainarf jarðar en Reykjavíkur, en með tímamis- mun sem svarar til meira en ljóskraða miðað við fjarlægð- ina milli staðanna. En boð milli borganna færu hægar. Phase velocity er þannig eingöngu fyrirbrigði sem lýsir afstæði atburða hvers til annars, þ. e. atburðaröð, sem auðvitað get- ur flutzt með meir en ljós- hraða. En í slikri atburðaröð getur einn atburður ekki orsak- að þann næsta í röðinni, held- ur eiga atburðirnar sér aðeins sameiginlega orsök, sem ekki getur borizt þaðan með meir en Ijóshraða, skv. eðlisfræði- l.ögmálum. Ef Einsteinskan félli, yrði þvi vafalaust slegið upp á forsíðum blaða um mest- allan heim. (Kannske þó ekki á íslandi?) Ýmsar rannsóknir (t.d. með particle accelerators) geta ekki staðizt nema með því að reikna með massaaukn- ingu á miklum hraða, sem er Einsteinska, og er i beinu sam- bandi við lögmálið um mestan hraða á orku eða efni. Þótt Rússar hafi átt sinn Lysenko, eða anti-Darwin, þá er mér ekki kunnugt um að þeir hafi mótmælt Einsteinskunni. Jafn- vel Hitler leyfði rit um Ein- steinskuna, ef nafn Einsteins var hvergi nefnt. Sá sem fann upp púðrið var helstefnumaður. Einnig sá sem fann upp bífreiðína með öll umferðaslysín. En það mun ekki hafa munað ýkjamiklu að Hibler fengi sítt mikla hefnd- arvopn, sem hann lofaði þjóð sinni undir stríðslokín, þ.e. atomsprengjuna. Þetta hefur Einsteín eflaust vitað manna bezt, er hann fyrir áeggjan manna, sem enga áheyrn fengu, ritaði Roosevelt hið fræga bréf sitt. Annars minnir mig nú, að Einstein hafi verið gagnrýnd- ur talsvert sem friðarsinni, og það helzt í sambandi við at- omvopn. Ég hélt að það væri almennt viðurkennt, að geysimikil starfsemi og hugsun fer fram í mannsheilanum, án þess að við- komandi sé þess meðvitandi, er það gerist. Aðeins mjög tak- markaður hluti af 3tarfsemi heilans snertir meðvitundina um leið og sú starfsemi er að gerast, en sumt gæti síðar birzt í draumum sem kynja- myndir. f dáleiðsilu muna menn hluiti, sem þeir geta ann- ars alls ekki munað, og trúa ekki að þeir muni (bls. 84, The Human Brain, John E. Pfeiffer, 1954). Sama kann að gerast í svefni. Einnig má benda á LSD-tílraunir o.fL sbr. bls. 166-167 í bók Almenna bóka- íélagsins „Mannshugurinn", sbr. geðklofasjúklinga, þar sem sumar heilastöðvar eru hamlaðar eða óvírkar. Sjá menn þá alls konar kynja- hluti, þótt ekki þurfi það að vera áhrif frá öðrum hnöttum. Sjá einnig bls. 155 og 1158 og miðja bis. 177 í sömu bók. Þeg- ar vissir hlutar heilans starfa ekkL en aðrir starfa, þá brenglasit oft hugsanir og skynjanir, sbr. ofsjónir o.fL Ferðalangur án svefns í marga daga sér e.t.v. fjölda fólks, þar sem aðeins eru steinar. Ég hef sjálfur orðið fyrir þessu, og rætt við aðra, sem hafa sömu sögu að segja, en áhrifin hverfa jafnskjótt og maður hrekkur upp tíl fulirar vöku. Einnig má minna á áhrif sumra heila'blæðinga, áhrif áfengis o.fl. Ég tel alls ekki óhugsandi að telepati geti átt sér stað, en tel það mjög ólíklegt. Um þetta langar mig til að fræðast, og tel ég mig ekki sýna vísindaleg- an veikleika með þvi Þau fjar-álhrif, sem ég átti við í grein minni að væri ólíklegt að til væru, eru að sjálfsögðu þau, sem gætu borið orku eða efni hraðar en ljósið. Mér hef- ur um nokkurt skeið verið ljóst, að til er útvarp. Ég spyr: Getur ekki verið eðlilegt í einstaka tilfellum, að telepati virðist geta átt sér stað, þótt aðeins sé um tilvilj- un að ræða? Bregzt telepati ekki otftast? Vill nokkur halda því fram, að telepati verki í hvert sinn, sem slíkt er reynt? En minnumst þess, að Ein- steinskan bregzt aldreL Þau lögmál hafa gilt í hvert einasta sínn þótt prófuð væru ótal sinnum, með tilraunum, (Var einhver að tala um vísinda- legan veikleika?) Ljósið beygir m.a. í aðdráttarafli, og gæti því vel farið í hring í vissum tilfellum. Ljósið dettur reynd- ar með sama hraða og aðrir hlutir, í þyngdarsviði. Ég er sammála um það, að á 3viði vanþekkingarinnar eru allar fjarstæður hugsanlegar. En að lokum þetta: Menn hafa hneykslazt á því, að sífellt færri íslendingar stundi æðra nám. En er ekki ástæðan ein- föld? Hvar annarsstaðar er mínna tekið til menntamanna en á íslandi- Og er ekki hvað minnst hlustað á vísinda- mennina? Áhugasamnr".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.