Morgunblaðið - 27.10.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKT. 1967
13
Úrsmiðafélag Islands
minnist 40 ára afmœlis
Stjórn Úrsmiffafélags Islands blaðamannafundinum á miffviku-
dag, taliff frá vinstri: Magnús Baldvinsson, formaður, Magn-
ús Gufflaugsson, varaformaður, Ingimar Guffmundsson, gjald-
keri og Ólafur Tryggvason rltari. Myndin í baksýn er af Magn-
úsi Benjamínssyni, helzta forgöngumanni félagsstofnunarinnar.
(Jl,jósm. M'bl. Ól. K. M.)
ÚRSMIÐAFÉLAG íslands var
stofnaö 27. október 1927, og á
því um þessar mundir 40 ára af-
mæli. Af þessu tíiefni kallaffi
stjórn félagsins blaffamenn á
sinn fund og sagði þeim sitthvað
um sögu félagsins. Félagiff mun
minnast afmælisins meff hófi í
Tjarnarbúð n.k. laugardag. Það
hefur í fyrsta skipti látiff gera
merki félagsins og boðiff heim
formanni „Nordisk Urmager
forbund", J. Arthur Johnsson
frá Gautaborg, og mun hann
verða gestur félagsins í nokkra
daga.
Úrsmiðafélag íslands var
stofnað eins og áður segir í
í Reykjavík 27. október 1927, og
er því 40 ára. Aðalhvatamaður
að stofnun félagsins var Magnús
Benjamínsson úrsmíðameistari
ásamt Jóhanni Ármanni Jónas-
syni og Haraldi Hagan, auk
þeirra voru stofnendur félagsins
þeir Jóhannes Norðfjörð, Hall-
dór Sigurðsson, Þorkell Sigurðs-
son, Jón Hermannsson og Guðni
A. Jónsson, og er hann sá eini af
stofnendunum sem enn er á lífi.
Tilgangur félagsins er eins og
Hiff nýja merki Úrsmiffafélags
íslands, sem framvegis mun
prýða glugga úrsmíðaverkstæffa
og verzlana, til tryggingar góðri
þjónustu viff viffskiptamenn.
nafnið bendir til, að vinna að
samheldni og hagsmunamálum
stéttarinnar. í fyrstu voru nær
eingöngu úrsmiðir í Reykjavík í
félaginu, en nú eru flest allir
Gautaborg, gestur Úsmiðafélags
ins um nokkurra daga skeið.
Úrsmíðafélag íslands hefir
látið gera merki féiagsins, sem
nú verður tekið í notkun, merki
þetta, munu meðlimir Úrsmíða-
iélagsins hafa í gluggum á
verzlunum og vinnustofum sín-
um, og á merki þetta að vera
trygging viðskiptavina fyrir
vörugaeðum og góðri þjónustu,
enda vill félagið benda fólki á
að skipta við úrsmið með kaup
á úrum og klukkum.
óróahjólið 3 ár aff rúlla kringum
jörðina.
Merkið hefur teiknað Kristín
Þorkelsdóttir, og er það tákn-
rænt fyrir starfsemi úrsmiða.
Meginuppistaða þess er óróahjól-
ið ('balancehjólið). Ólafur
Tryggvason, ritari félagsins,
sagði 'blaðamönnum ýmislegt'
um þetta óróahjól, m.a., að í
venjulegu armbandsúri gerði
það 300 hreyfingar á mínútu
eða 442.000 slög á sólarhring eða
158 milljónir 680 þúsund á einu
ári, það myndi vera 3 ár að rúlla
í kringum jörðina með þessum
gangi.
Klukkan örlagavaldur
Ólafur 'benti á, að úrið eða
klukkan, væri örlagavaldur í
lífi manna. Menn vöknuðu við
klukku, þeir borðuðu eftir
klukku, og mætti þó bæta við,
eftir klukku, þótt fyrir kæmi,
að klukkan seinkaði sér á stund-
um, Og loksins háttuðu þeir eftir
klukku, og mætti þó bæta við,
að menn væru grafnir eftir
klukku.
Elektrónisk tóngaffalsúr.
Einnig fræddi Ólafur blaða-
menn um nýja gerð af úrum,
sem nú væri að ryðja sér til
rúms í heiminum, svokölluð
elektrónisk úr, sem gengu fyrir
nokkurskonar elektróniskum
tóngaffli með sveiflutóðninni
360 sveiflur á sekúndu, en
kvikasilfurs-ráfhlöður, 1,3 volt,
á stærð við 25 eyring, sæu um
strauminn og þessi úr væru
ennþá eingöngu fyrir herra. Úr
þessi voru fundin upp 1960.
Úrsmiffir gera viff stöðumæla.
Formaður félagsins upplýsti,.
að nú væru fjórir lærlingar við
úrsmíðanám, en námið tæki 4
ár í Iðnskóla, eins og annað iðn-
nám. Úrsmiðir gerðu við margt
fleira en úr og klukkur. Þeir
gerðu vi>ð margskonar fíngerðari
tæki, svo sem vísindatæki fyrir
Háskólann, og þá má ekki
gleyma stöðumælunum, sem úr-
smiður sæi um viðhald á.
Margt fleira skemmtilegt kom
fram á fundinum með úrsmið-
unum, og óhætt er að segja, að
þeir gegni merku hlutverki með
þjóðinni. — Fr. S.
Heiffursgestur félagsins á 40 ára ára afmælinu, formaður Nord-
isk Urmager Forbund, J. Arthur Johnsson frá Gautaborg. Við
hliff hans er er einn merkasti smíðisgripur hans, Almanaksúr-
iff, sem þykir meff þvi bezta, sem unniff hefur veriff á sviffi
úrsmíffi, og taliff til meistaraverka.
úrsmiðir landsins félagsmenn.
Formenn félagsins hafa verið
frá upphafi þessir: Fyrstur var
Haraldur Hagan, þá Jóhannes
Norðfjörð, Jóhann Árm. Jónas-
son, Hjörtur Björnsson, Gott-
sveinn Oddsson og frá 1956 og
til dagslns í dag hefir Magnús
E. Baldvinsson verið formaður
og með honum eru í stjórn fé-
lagsins í dag, Ólafur Tryggvason
ritari og Ingimar Guðmunds-
son gjaldkeri, en varaformaður
Magnús Guðlaugsson í Hafnar-
firði.
Úrsmiðafélag íslands hefir
verið í Norðurlandasambandi úr-
smiða síðan 1967, og nú í tilefni
40 ára afmælis félagsins, verður
forseti „Nordisk Urmager For-
bund“, J. Arthur Johnsson frá
Ibúð við Arnarhraun
4ra herb. efri hæð í nýlegu steinhúsi við Arnar-
hraun í Hafnarfirði. íbúðin er í mjög góðu standi.
Malbikuð gata, bilskúr fylgir. Útb. kr. 500 þúsund
sem má skipta.
EIGNASALAN, Reykjavík.
Þórður G. Halldórsson.
Sími 19450 og 19191, Ingólfsstræti 9.
Kvöldsími 51566 og 36191.
Félagsgarðar Kjós
Fögnum vetri með gömlu og nýju dönsvmum að
Félagsgarði n.k. laugardag.
U.M.F. DRENGUR.
Aðalfundur Stúdentafélags
Reykj a\íkur
verður haldinn í fyrstu kennslustofu Háskólans,
laugardaginn 28. október n.k. kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
L0GTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtökin látin fara fram
án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en
ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birt-
ingu bessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöld-
um.
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og
miðagjaldi, gjöidum af innlendum tolivörutegund-
um, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs
fatlaðra, almennum og sérstökum útflutningsgjöld-
um, af latryggingasj óðsgj öldum, tryggingaiðgjöld-
um af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, svo
og söluskatti 2. og 3. ársfjórðungs og hækkunum
vegna vanframtalins söluskatts eldri timabila.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
25. okt. 1967.
Nýkomið
bílaperur
og samlokur
í miklu úrvali
Varahlutaverzlun
JÓH. ÓLAFSSON & CO.
Brautarholti 2 — Sími 1-19-84.