Morgunblaðið - 11.11.1967, Page 4

Morgunblaðið - 11.11.1967, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓV. 1967 MAGIMUSAR SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftir fokun slrrii Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundaugaveg 12 - Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022 Riískinnshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITAÐ ALLTAF ★ Síldarsöltun nyrðra og eystra Stefán S. Gunnarsson, staddur í Neskaupstað, gerir athugasemd við u'mmæli sölt- unarstjóra norður á Ólafsfirði, sem birtust í viðtali við hann hér í Morgunblaðinu um miðj- an október. Ummælin voru svona: „Ef bátarnir fá góða síld, hljóta þeir fremur að koma með hana hingað norður í salt en að láta hana í bræðslu fyr- ir austan. Það er miklu betri þjónusta hérna, vegna þess að söltunarstöðvarnar hafa sam- vinnu sín á milli. Við höfum líka nógan mannskap, sem ekki er til fyrir austan.“ Síðan er þess geti, að landað hafi verið 1285 tunnum úr báti á ellefu thnum, og segir Stefán í bréfi sínu, að söltunarstjóranum virðist þykja það gott, því að þetta sé tvítekið og bætt að lokum við :„Drengur minn, samvinnan borgar sig.“ Stefán segist fyrst hafa álit- ið þetta einhverja þvælu, en þar sem engar leiðréttingar hafi birzt, hljóti þetta að vera rétt eftir haft. „Vil ég því biðja þig, kæri Velvakandi, að birta eftirfarandi sikilaboð til saltandans á Ólafsfirði: 1) Samvinna milli plana er algeng hér eystra, — einkum milli minni plananna. 2) Það þætti léleg löndun hér, ef það tæki ellefu klukku stundir að landa 1300 tunnum, því að stærri plönin ná 1100 uppsöltuðum tunnum á tóif klukikustundum; þ.e. landa tve- til þreföldu því magni úr bót og það án samvinnu við aðra. Beztu handknatt- leiksmennirnir verði ríkisstarfs- menn „Háskólastúdent" skrif- ar: „Velvakandi sæll! Enn einu sinni hafa íslenzk- ir handknattleiksmemi sannað, að þeir eru keppnisfærir við aðrar þjóðir, þ.e.a.s. þeir eru á alþjóðamælikvarða. Þessi staðreynd gleður velflesta ís- lendinga, burtséð frá aknenn- um íþróttaáhuga; en hve lengi stendur þetta? Að vísu batnaði öll aðstaða við tilkomu hallarinnar í Laug ardal, en þó er ekki allt feng- ið enn. Hér á landi vinna flest ir 8—10 klst á dag og hafa því ekki mikinn tíma tiil íþrótta- æfinga, en æfingin er þó vissu lega undirstaða velgengni. Vit að er, að handknattleiksmenn margra þjóða viAna elfki nema takmarkaðan stundafjölda á degi hverjum og geta því æft mikið daglega. Þess vegna er ekki við þvi að búast, er til lengdar lætur, að íslendingar geti haldið í við þessar þjóðir. Er því um tvennt að gera; annað hvort að hjakika í sama farinu, er öðrum miðar áleið- is, eða gera handknattleik að þjóðardþrótt, þ.e.a.s. gefa af- reksmönnuim betri skilyrði en nú er. Einfaldasta leiðin væri sú. að beztu mennirnir væru ráðn ir til ríkisins og látnir æfa eins mikið og þönf krefði, undir handleiðslu ríkisráðsins þjálf- ara, og eitthvað gætu þeir unnið á milli æfinga. Auðvitað kostar þetta tölu- vert fé, en í nútímaþjóðfélög- um er ekki litið á íþróttir sem lúxus heldur félagslega nauð- syn, og án afreksmanna er íþróttagrein vart lífvænleg. Og verða ekki margir glað- ir, þegar við eignumst HEIMS- MEISTARA í HANDKNATT- LEIK, en það er vel mögu- leiki, ef í’étt er á máluim hald- ið. Háskólastúdent.“ + Tónlistin í útvarp- inu „Hafnfirðingur“ skrifar: „Kæri Velvakandi! Vinsamlega komið eftirfar- andi á framfæri: 1. Til Ríkisútvarpsins: Kærar þakikir fyrir batnandi músik. — Það hefir verið ósköp dapurlegt að heyra aldrei annað en gamla léttmet- ismúsik allan liðlangan daginn á vinnustað. — Hvernig er það annars með þessa ósikalaga- þætti: Er bókstaflega aldrei beðið um almennilega tónlist? Eða er slikum beiðnuim stung- ið undir stól? Ég neita að trúa því, að músikþroski almennt sé á því stigi sem óskirmar virðast benda til. — Það hljóta að fyrirfinna.st bæði sjúkling- ar og sjómenn, sem hafa snef- il af smekk. Kannski eru þeir bara otf værukærir til að koma óskum sínum á framfæri. Zebrabraut við Miklatorg 2. Til umferðarstjórn- enda. Góðfúslega setjið vel merkt- ar zebrabraut við Miklatorg, Hafnarfjarðarmegin, Það er bókstaflega óhugnanlegt að sjá vesalings farþegana úr Hafn- arfjarðar- og Kópavogsvögnun um sikjótast yfir Hafnamfjarðar veginn, iðulega tíu til tuttugu í einu. — En sem sagt ekkert slys enn. Með þökik fyrir birtinguna. Hafnfirðingur." Farmiðaskattur Guðmundur Þorláksson. Eikjuvogi 25, skrifar. „Kæri Velvakandi! Ég les ætíð dálka þína með ánægju. Þar fá menn að koma fram með ólík sjónarmið og ræða mál frá ýmsum hliðuma. Þökk sé þén. Jón Ármason, fyrrverandi bankastjóri, ræðir þar sunnu- daginn 5. nóv. uim farmiða- skattinn væntanlega, telur hann „sjálfsagðan og réttlát- an.“ Ég er sammála bankastjór- anum um það, að álag é fé, sem eytt er erlendis, getur ver ið réttlátt, en farmiðaskattur hlýtur að vera vanhugisuð til- laga oig tæplega hægt að taka hana alvarlega. Stutt dæmi: Unglingur fer í heimsóikn til ættingja eða vina erlendis í Færeyjuim, Noregi, Bretlandi. Farmiðaskattur, kr. 300, ná- lega tvöfaldar kostnað hans. Maður, sem býr 10 daga á hóteli í Kaliforníu eða við Svartahaf, greiðir einnig 3000 kr. en það eru tæp 10% af útlögðum kostnaði, stundum ekki einu sinni 5%. Þetta tel ég vamhuigsað, eða slælega unnið að þessum til- lögum. ★ Byggingalán Önnur hugmynd, sem skotið hefur upp í kollinum og einnig er vonandi aðeins van- hugsuð er, að kaupgjald skuU bundið, en vísitölur geti hækk að. Nú hafa margir ungir menn fengið byiggingarlán, sem bund in eru byggingavísitölu. Hvers vegna ætti að rýja þennan hóp manna öðrum fremw? Hafa þeir, sem láta sér detta þetta í hug, ekkert lært af þvi hvernig gengisfellingar hér á árunum léku aldrað fólk, sem eitthvað átti? Ég hef e’kki séð eða heyrt að stjórnmálamenn hafi bent á þessa augljósu vankanta. Með beztu kveðju, Guðmundur Þorláksson, (Eikjuvogi 25). Velvaikandi man ekki betur en rætt hafi verið um að sleppa farmiðaiskattinum, þeg- ar farið er til nálægustu landa, svo sem Færeyja og Græn- lands. ^ Byrjaði léttúðin með bíóunum? „Bíógestur" skrifaði hér um daginn og fékk svar. Nú sendir hann svarbréf, sem hér birtist (lítið eitt stytt): „Þann 4. nóv. sl. skrifaði ein hver í Velvakanda undir fyrir sögninni „Heilbrigt kynlíf og kvikmyndir.“ Hann hneyksl- ast stórlega á „tveimur ung- um mönnum", eins og hann orðar það. Hann segir þá hafa verið vonsvikna út af kvik- mynd í Hafnarfirði, sem úr hafði verið klippt mesta gam- anið. Hann kallar þetta sóða-kvik- mynd og skammar kvikmynda eftirlitið fyrir að leyfa sýningu myndarinnar. Hann virðist ekki gera sér grein fyrir þvi, að myndin var bönnuð innan vissra aldurs- takmarka. Mætti ég spyrja: Heldur þessi maður, að við, þessir eldri, förum að apa eft- ir þessari kvikmynd, eða hvað. En vel á minnst: Hvað var hann sjálfur að gera inn é þessa ósiðlsömu bíómynd? Varla hefuir hann villzt inn á myndina, hún var mikið aug lýst, svo skrifaði líka gagnrýn- andi um hana. Hann segir, að siðgæðið hjá okkur þoli ekki svona myndir og nefnir lausaleiksbörn því til sönnunar. Mætti ég bara benda þessum góða manni á, að það voru til lausaleiksbörn á ís- landi löngu áður en bíóin urðu til. Svo nefnir hann kennslu í kynferðismálum. Það er nú alveg út í h'ött í sambandi við þessa mynd sem aðeins er ætl- uð fullorðnu fólki, sem veit flest um þau mál. Að lokuim vil ég leyfa mér að þakka kvik myndaeftirlitinu fyrir að láta ekki fanatísk sjónarmið kom- ast að hjá sér. Bíógestur." Opið eftir hádegi í ilag Notið þetta tækifæri til þess að skoða glæsilegra húsgagnaúrval, en áður hefur sézt á einum stað hérlendis. r->e» öí t i t 111 M II11 M4-4 Sími-22900 Laugaveg 26 i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.