Morgunblaðið - 11.11.1967, Side 20

Morgunblaðið - 11.11.1967, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓV. 1967 Tveir huldumenn í Tjarnargötu 10 MARGIR hafa spurt mig að því, hver Einar Hannesson sé, sá er nartar í mig í Morgunblaðinu í gær og reyndar fyrr í haust, í sambandi við skrif mín um fisk- ræktarmálin. Ég les að sjálfsögðu greinar þessa manns með sæmilegri at- hygli, gagnstætt því, sem veiði- málastjóri Þór Guðjónsson segist gera um mínar greinar, því að ég veit nokkur deili á nefndum Einari. Á heilli hæð í hinu stóra húsi Tjarnargötu 10 hér í bæ, er Veiðimálastofnunin til húsa. Þar situr veiðimálastjóri Þór Guðjónsson í einu herbergjanna — sá er þykist ekki lesa grein- arnar mínar og þegir „þunnu hljóði“ — en hinu megin við þilið — sennilega í næsta her- bergi, situr æðsti fulltrúi hans, Einar Hannesson, greinarhöfund urinn í Morgunblaðinu. Þetta er m.a. sá hinn sami Einar, sem á síðastliðnu vori átti að sætta hin tvö andstæðu framboðsöfl á lista Alþýðubandalagsins við alþingis kosningarnar í Reykjavík, en hafði að sjálfsögðu fátt til brunns að bera til þess, svo sem reynslan sýndi. Þeir, sem ekki vissu, hver Einar Hannesson er — og þeir eru býsna margir — geta nú hug leitt það, hvar greinar hans hafi orðið til, hvort veiðimálastjóri, húsbóndi hans, hafi ekki ef til vill rétt fulltrúa sínum svolitla hjálparhönd við ritsmíðar hans, eða a.m.k. vitað nokkuð vel um þær, þótt þeir sitji ekki við sama borðið í sama herberginu í Tjarnargötu 10. Mér finnst rétt, ekki sízt gagn- vart veiðimálastjóra og Einari Hannessyni, að seðja forvitni manna, varðandi vitneskjuna um hið nána samband þeirra, og þá geta menn líka spurt sjálfa sig hvort veiðimálastjóri hafi ekki sagt ósatt, þegar hann lýsti því hrokafullur yfir í Morgunblað- inu, að hann hvorki sæi, né læsi ritsmíðar mínar um fiskræktar- málin, enda telrifc hann þær ekki svaraverðar (sic). Þessir eru huldumennirnir í Tjarnargötu 10, húsbóndinn vegna þagnar- innar og þjónn hans vegna van- þekkingu flestra um starfs hans. Jakob V. Hafstein. - KLAK Framh. af bls. 21 kreistingar úr 4.5° heitu vatni stöðvarinnar en 1° heitu vatni Laxár sjálfrar og hrygnurnar gáfu betur af sér, en þegar kreisting fór fram við ána. Auk þess var öll aðstaða miklu betri og vanhöld því minni. 3. Stöðin gerir ráð fyrir því að bæta nú við sig 10—12 eldis- kerjum úr trefjaplasti, 4. Hrygnurnar, sem kreistar hafa verið í klaki í haust, ha£a gefið af sér til jafnaðar um 1.67 lítra af hrognum. Við frjóvgun voru notaðir 2—3 hængir fyrir hverja hrygnu, til öryggis, og hafa ófrjóvguð hrogn varla sézt. 5. Stöðin gerir ráð fyrir því — ef ekkert óhapp kemur fyrir, að hafa til umráða í júlí-mánuði n.k. um 120 þúsund sleppiseiði frá 4—6 cm. að stærð, og situr Laxá fyrir seiðum eftir ósk og getu veiðiréttareigenda og leigu- taka Laxár. Allt fyrirkomulag, umgengni og hreinlæti í stöðinni er með þeim ágætum, að á betra verður ekki kosið — og til fyrirmynd- ar, enda eru þetta grundvallar- atriði í góðum klak- og eldi- stöðvum. Og hverjar eru svo ályktanir mínar af því, sem ég hefi verið að flytja ykkur í þessu erindi mínu í dag, góðir félagar? Þær eru í stuttu máli þessar: 1. Klak- og eldistöðvar Húsa- víkur hefur óvéfengjanlega sann að réttmæti þingsályktunartil- lögurnar, sem ég gat um í upp- 'hafi máls míns um klak- og eldi- stöð við Laxá í Aðaldal. Rekstur stöðvarinnar hefur sannað, að framkvæmdir í þessum efnum voru meira en tímabærar. Þær voru og eru aðkallandi og bein- línis brýn nauðsyn. 2. Klak- og eldistöð Húsavík- ur hefur einnig sannað gildi þingsályktunartillögu Jónasar G. Rafnar og Björns Jónssonar um þýðingu þess að rannsaka og gera áætlanir um gerð og rekst- ur eldisstöðva. Þetta mál er einnig meira en tímabært Það er aðkallandi. 3. Klak- og eldistöð Húsavíkur hefur sannað, svo ekki verður um villst, gildi og verðmæti starfs áhugamannanna um fisk- ræktarmál og um leið það, að affarasælla er fyrir æðstu menn þessara mála í landinu að þakka fyrir góða samvinnu og sameig- inlegt átak við áhugamennina um framgang þessara mála, frem- ur en að hrinda þeim frá Aér, virða þá ekki viðta.s eða lítils- virða þá. 4. Og loks hefur Klak- og eldisstöð Húsavíkur tryggt það, ins jókst um 70% á sl. ári (9). Miklar ráðstafanir til verndunar dýralífi í sambandi við byggingu Kísiliðjunnar við Mývatn (9). Gísli Kristinsson vinnur 62 tóf- ur og 20 minka við ÍSafjarðardjúp (9). Skagfirðingar hafa hug á forða- búri innan héraðs (11). ftalska skemmtiferðaskipið Eug enio C í Reykjavík (11). Ný gerviefni geta stórlækkað veiðarfærakostnað (11). Fyrsta Sprengisandsferð á sumr- inu farin fyrst í júlí (11). Mikil laxveiði það sem af er sumri (12). Matsverð Viðeyjarstofu og lands þess, er ríkissjóður kaupir í Viðey, 9,75 millj. kr. (12). 17 krabbameinstilfelli fundust vegna starfsemi leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands (12). Guðmundur Marselíusson á ísa- firði kaupir togara á strandstað fyr ir 15 þús .kr. (13). Vegurinn um Auðkúluheiði til Hveravalla merktur (13). íslenzkra landnema minnst 1 af mælisbók Kanada (14). Brennuvargur úrskurðaður 1 15 daga varðhald (15). Rannsóknir til að kanna hugsan legt tjón af völdum álbræðslu (16). Byggðasafni Akraness berst ára- bátslíkan að gjöf (16). Enska skemmtisnekkjan Tyger kemur til Reykjavíkur (18). Maður situr fastur í kýrauga ögra RE-42 í 8 klukkustundir (18). Gömul beinagrind finnst í helli ikammt frá Grindavík (18, 19). Hópur íslendinga í 6 daga veiði- ferð til Grænlands (20). Reynt að ná togaranum Boston Wellvale á flot (21). Flugvél frá Flugþjónustunni verð ur á Egilsstöðum í sumar (21). Skólaskipið Matti Kurki í Reykja vík (21). Sláttur víðast hafinn í Kjósinni (21). Óhemju laxveiði í Elliðaánum (21). Seðlabankinn gefur út yfirgrips mikla bók um f sland á ensku (22). Skálholtssöfnunin nemur 2,2 millj. kr. (22). Heyskaparhorfur mjög slæmar um allt Norðurland (22). Gott útlit um heyskap á Suður- landi (23). Níu gróðurkort af hálendi íslands koma út (25). Landmælingar rikisins hafa tek- ið við útgáfu korta af íslandi (25). Framtíðarrannsóknir á vinnslu sjávarefna undirbúnar (26). Starrinn — nýr landnemi á ís- landi (26). Kort af vegarstæðinu við Reykja hlíð (27). Mál höfðað gegn eiganda Skeif- unnar fyrir stórfelld skattsvik (27). íslenzki flugflotinn getur flutt 1957 farþega í einu (27). Lögtak heimilað hjá útgerðar- manni vegna skuldar starfsmanns við Gjaldheimtuna (28). Allsnarpir jarðskjálftakippir finn ast á Suðurlandi (28, 29, 30). Hreindýraveiðar ekki leyfðar í ár (29). 540 talstöðvar í bílum (29). 23 þúsund íslendingar fóru utan 1966 (29). 550—570 unglingar starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur (29). Tilraunir gerðar á íslandi nýr á- fangi í eldfjallarannsóknum (29, 30) Vöruskiptajöfnuðurinn 6 fyrstu mánuði ársins óhagstæður um 1508 millj. kr. (30). Dönsk kvikmynd gerð um ís- lenzkt fuglalíf (30). Athugað hvort nauðsynlegt reyn ist að setja klór í drykkjarvatn Reykvíkinga (30). Greinar. Samtal við Sigríði J. Magnússon um Hallveigarstaði (1). Aldarafmæli fullveldis Kanada, eftir Egil Jónasson Stardal (1, 2, 4). Hvert er raunverulegt verðmæti íbúða í Reynimelsblokkinni, grein- argerð frá stjórn Meistarafélags húsasmiða (1). Rætt við nokkra skipstjóra á Austur-miðum (2). Framtíðarskipun Jerúsalemsborg ar. Leitað álits allmargra fslend- inga (2). Rætt við nokkra Vestur-íslend- inga, sem hér eru á ferð (2). Hafís, snjór, jöklar, eftir Jón Ey- þórsson (2). Svipast um á slóðum Laxdælu i fylgd Magnúsar Rögnvaldssonar, vegaverkstjóra í Búðardal (4). Norðmenn og efnahagsbandalag ið, Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni (4). Er laxeldisstöðin í Kollafirði ó- nothæf?, eftir Skúla Pálsson, Laxa- lóni (4). Hestamenn fjölmenna að Hellu (4). Sumarferð Varðar um landnám Ingólfs (5). Sólardagur 1 Kílarskurði, eftir Björn Jóhannsson (6). Rætt við dr. Kristján Eldjárn um helztu atriði í Árbók Fornleifafé- lagsins (6). Rætt við Roger Lines, einn af sér fræðingum brezku skógstjórnarinn ar (7). Vor yfir Vallanesi, eftir sr. Gísla Brynjólfsson (7). Rætt við fflvar Kvaran og nokkra nemendur á námskeiði 1 framsögn (7). Rekstur síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd, eftir Svein Benedikts son og Jóhann G. Mö.ller, formann og varaformann SR (8). Samtal við hjónin Þórhall Hálf dánarson og Guðmundu Halldórs- dóttur um vistheimilið 1 Breiðu- vík (8). Viðtal við Neil A. Armstrong, er stjórnaði Gemini 8, eftir Óla Tyn- es (8). Ferðaspjall, eftir Gísla Guð- mundsson (8, 26). Samtal við Jakob Jónasson, rit- höfund (8). Áliðjuverið f Straumsvík (9). Eyjafjöll, eftir Jón A. Gissurar- son (9). Mundi ekki tími að vakna, eftir Snæbjörn Jónsson (9). Um þjóðfélagsransóknir, eftir Pét ur Guðjónsson (9). Grasgarðurinn í Laugadal heim sóttur (11). Heimsókn á barnanámskeið í Reykjavik (12). Ein heiðarleg viðvörun, eftir Þor- geir Þorgeirsson, kvikmyndatöku- mann (12). Samtal við sr. Árna Sigurðsson, prest í Neskaupstað (13). Stiklað á stóru úr Noregsferð, eftir Björn V. Sigurpálsson (14). Árbæjarsafn heimsótt í fylgd Lár usar Sigurbjörnssonar (15). Fjölhæfur listamaður, eftir Stein grím Davíðsson (15). Umferðavandamálið, eftir Ásgeir L. Jónsson (15). Heimsókn á Hálandasýningu í Edinborg, eftir Stefán Aðalsteins- son (15. og 19). Varhugaverður málflutningur — athugasemd, eftir Loft Bjarnason (16). Arkitektar og byggingarkostnað ur húsa (16). Þrjár klukkustundir á Mallorca, eftir Óla Tynes (16). Rætt við Inga Þorsteinsson og Jóhannes Sigmundsson um ánægju legt samstarf um landgræðslu (16). Samtal við Emil Björnsson, dag- skrárstjóra hjá Sjónvarpinu (16). Samtal við Terkel M. Terkelsen, aðalritstjóra Berlingske Tidende (18). Rætt við Magnús Hafliðason á Hrauni við Grindavik (18). Biennalinn í Rostock, eftir Braga Ásgeirsson (19). Frá Mallorcka, eftir Gyðu Jó- hannsdóttur (19). Patreksfjörður og Rauðasands- herppur, eftir Magdalenu Thorodd- sen (20). Gæðakyn (20). Frá svifflugmótinu á Hellu (21). „Hvað dvelur Orminn langa?“ eftir Hákon Bjarnason (21). Varað við nýju vegalagningunni við Mývatn (22). Mýrarhyrna girt, eftir Emil Magn ússon (22). Dr. Jón Gíslason segir frá ráð- stefnum um verzlunarmenntun (22) 111 stjórn í Grikklandi (22, 23). Roðsáraveiki í laxi, eftir Þór Guðjónsson (22). Önnur umræða um reikninga Reykjavíkurborgar (23). Skálholt, eftir Þráin Bertelsson (23). Litazt um í Viðeyjarstofu og Við ey (23). Fjölmenni við Skálholtshátíð (25) Franskar tjaldbúðir sóttar heim (25). Með Haferninum 1 síldarflutning um (26). Húsmæður í orlofi, eftir Filippíu Kristjánsdóttur (27). Samtal við Tryggva Forberg 1 Detroit (28). Rabbað við Reyni Sigurþórsson, skipverja á Jóni Kjartanssyni (29). Greinargerð frá Náttúruvemdar ráði varðandi vegarstæði við Reykjahlíð við Mývatn (29). Veiðivötn, eftir Elsu G. Vilmund ardóttur (29). Náttúrugripasafnið 1 Vestmanna eyjum (30). Kvikmyndir í sjónvarpi, eftir Ól- af Sigurðsson (30). Drangeyjarsundið 31. júlí 1927, eftir Lárus Salómonsson (30). Mannalát. Friðbjörn Kristjánsson, Hauksstöðum, Vopnafirði. Ágúst Finnsson, Njörvasundi 19. Þórarinn Pétursson, útgerðar- maður, Grindavík. Sigríður Guðjónsdóttir, Svanhól, Vestmannaeyjum. Stefán Guðmundsson, járnsmiður, Mjóstræti 8B. Víglundur Pálsson, bóndi, Efra-Hvoli, Mosfelissveit. Anton Ólason frá Seyðisfirði, Stóragerði 32. Sigríður Þorvaldsdóttir, Smáratúni 1, Selfossi. Valdimar Kr. Árnason, pípulagningameistari. Ásgeir Halldórsson frá Fossi, Skipholti 53. Kristín Snorradóttir, Brekkustíg 25, Ytri-Njarðvík. Adolf Ásgrímsson frá Ási, ísafirði. Haraldur Jónsson, læknir, Bólstaðarhlíð 4. Friðleifur Jóhannsson, fyrrv. útgm. frá Siglufirði. Ágúst Finnsson, Njörvasundi 19. Albert Guðmundsson, kaupfélagsstjóri, Tálknafirði. Helgi Erlendsson, bóndi, Hlíðarenda í Fljótshlíð. Rigmor Ófeigsson, Hólavallagötu 3. Sveinn Sveinsson frá Siglufirði. Lára Pálsdóttir' frá Hermundarfelli. Steinarr Björnsson, lyfsali, Neskaupstað. Amalía Sigurðardóttir frá Víðivöllum. Kristín Anna Valgerður Björnsdóttir, Bárugötu 16. Ragnhildur S. Magnúsdóttir, Baldursgötu 29. Lára Pálsdóttir, Syðri-Rauðalæk. Ása Lárusdóttir Knudsen. Þorsteinn Jakobsson frá Húsafelli. Matthías Eyjólfsson, fyrrum verzlunarmaður frá Borg, Grimsn. Steinþór Matthías Stefánsson, múrarameistari, Sólvallagötu 47. Einar Sævar Antonsson, Faxatúni 2. Sigríður Þorsteinsdóttir, Hallskoti, Fljótshlíð. Jón Guðmann Jónsson, Hamri, Grindavík. Halldór H. Kristinsson, Innri-Njarðvík. Vigfús Einarsson frá Keldhólum. betur en áður var, að hinum stóra og sterka laxastofni í Lax- á í Aðaldal á að vera borgið og að í framtíðinni mun hann efl- ast og aukast þar og vonandi í ótalmörgum öðrum fögrum veiði ám okkar fagra og kæra lands. Ég vil svo að iokum aðeins segja við ykkur þetta: Sumarið í sumar hefur brotið blað í veiðimannsævi mína. Ég fór norður á bernskuslóðirnar 4 sinnum, oftast að Laxá en nú síðast í október til Húsavíkur. Þangað fór ég ekki til að veiða lax á stöng, heldur til að heilsa uppá gamla vini frá veiðistögn- inni minni, vini, sem fengu að lifa og fengu að gegna hlutverki sínu við Laxá og fá enn að sjikla strengi hennar, fossa, flúðir og hylji — allt á þann hátt, sem bezt gegnir. Ég vona að skuld mín til ár- innar sé að nokkru goldin með hrygnunum í klakinu heima. Samt sem áður mun ég ætíð koma til Laxár fyrst og fremst §em veiðimaður. Ég mun berjast við laxinn, ég mun bæð-i sigra hann og tapa honum, en hér- eftir mun ég gefa mörgum þeirra líf svo að þeir geti marg- faldað sjálfa sig og líf sitt í góðra manna höndum. Þetta er hinn nýi þáttur í veiðimannsævi minni, ekki sá veigaminnsti en vonandi sá þýðingarmesti. Ingileif Eyjólfsdóttir, Steinskoti, Eyrarbakka. Bergsveinn Sveinsson frá Aratungu í Staðardal. Þórunn Stefánsdóttir frá Neskaupstað. Vilborg Einarsdóttir, Ásvailagötu 17. Guðrún Jónsdóttir, Bergstaðastræti 17. Ólöf Jónsdóttir frá Möðruvöllum í Kjós. Þór O. Björnsson, Akureyri. Guðmundur Guðlaugsson, Vestmannaeyjum. María Guðmundsdóttir, Njálsgötu 34. Anna Bjarnadóttir, Kjartansgötu 5. Þorbjörg Holm-Andersen. Björgvin Helgason, Norðurbraut 1, Hafnarfirði. Sigurður Pálsson frá Hjálmsstöðum. Heiðveig Guðmundsdóttir frá Miðdal. Helgi Guðbrandsson frá Fossá. Þorsteinn Magnússon, trésmiður. Sigurlína Á. Gísladóttir frá Hofsósi. Guðbjartur S. B. Kristj ánsson, Ásgarði 127. Ingibjörg Friðriksdóttir frá Úlfagili í Laxárdal. Bjarni Sigfússon frá Staffelli. Albert Bjarnason, Túngötu 21, Keflavík. Ingibjörg Jónsdóttir, Garði, Stokkseyri. Ólöf Sigurðardóttir, Vesturgötu 26C. Þorsteinn Jónsson, áður Merkurgötu 14, Hafnarfirði. Einar Ólason frá Mjóafirði eystra. Ólafur Rósinantsson frá Syðra Brekkukoti. Sigurður Sveinbjarnarson, bifreiðastjóri, Garðastræti 49. Hermann Vilhjálmsson frá Seyðisfirði. Rannveig Gísladóttir, Urriðafossi. Bjarni Sigfússon frá Staffelli. Sveinfríður Jónsdóttir, Kambakoti. Sigurður Einarsson frá Ferjunesi. Guðrún Davíðsdóttir, Hömrum. Magnús Jónsson, járnsmiður, Kambsvegi 14. Sigurður Pétursson, Melabraut 50, SeltjarnarnesL Guðmar Tómasson, skipstjóri frá Vestmannaeyjum. Sigursteinn Þórðarson, stöðvarstjóri í Borgarnesi. Jón Þ. Árnason, Ook. Point., Man. Kanada. Eiríkur Vigfússon frá Grundarhóli á Fjöllum. Þorbjörg Bjarnadóttir, Litla-Hvammi, Goðheimum 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.