Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 32
HFIiliiS ri
IILIÍTIILIU TRYGGINO -Hjy-
ALMENNAR TRYGGINGAR P
PÓSTHÚSSTRÆTI9 SIMII7700
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1967.
-- .....- . ii .......... ........
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*SO
Banaslys í Skil-
mannahreppi
BANASLYS varS í gær í Skil-
mannahreppi í Borgarfirði í gær.
Bóndinn á Klafastöðum var að
aka dráttarvél eftir afleggjaran-
u.m heim að bænum, þegar vélin
lenti í ræsi með þeim afleið-
ingum að hún valt. Varð mað-
urinn undir dráttarvélinni, og
miun hafa beðið samstundis bana.
Hann hét Þórður Þorsteinsson,
rúmlega fimmtugur að aldri.
Utlit fyrir góöa síld-
veiði eystra í nótt
ÁGÆT veiði virtist ætla að
verða á síldarmiðunum fyrir
austan, þegar Mbl. hafði síðast
fregnir af þeim seint í gær-
kveldi. Höfðu margir bátar
fengið mörg góð köst, og einn
bátur hafði t. d. fengið svo stórt
kast, að áhöfnin óttaðist að hún
myndi ekki ráða við það.
Á hinn bóginn var fremur dauft
yfir síldveiðinni hér sunnan-
lands, og aðeins einn bátur hafði
tilkynnt um afla 60—70 tonn.
Síldarfréttum LíÚ um veiðina
fyrir austan á föstudag segir, að
veður hafi spillzt um miðnætti
og hamlað veiðum. Var veiði-
svæðið um 70—90 mílur A.S.A
af Dalatanga. Tilkynntu 30 skip
um afla, samtals 2.425 lestir.
Sæfaxi'II. NK. 110 —■
Gideon VE. 150 —
Harpa RE. 140 —
Júlíuis Geinmundss. IS. 70 —
Ingiber Ólafss. II. GK. 130 —
Sóley ÍS. 40 —
Framhald á bls. 31.
Dalatangi:
Helga II. RE. 80 lestir
Seley SU. 160 —
Ói. Friðbertss. IS. 60 —
Magnús Ólafss. GK. 100 —
Bára SU. 40 —
Ásgeir RE. 140 —
Helga Guðmundsd. BA. 60 —
Hoffell SU. 60 —
Óskar Halldórss. RE. 50 —
Sáttafund-
ur í dag
SATTASEMJARI hefur boðað
fund í farmannadeilunni kl. 4
í dag. Takist samningar þar ekki,
kemur boðað verkfall farmanna
til framvæmda á miðnætti.
Séð í gegnum Strákagöng.
Einangrun Siglufjarðar rofin
Strákagöng formlega opnuð í gœr
Siglufirði 10. nóvember, frá
blaðamanni Mbl. Freysteini
Jóhannessyni.
LENGSTU vegagöng á Islandi
— Strákagöng við Siglufjörð
voru formlega opnuð til umferð
ar í gær. Þar með er lokið ára-
langri einangrun Siglufjarðar á
landi og hann kominn í varan-
legt vegasamband við þjóðvega-
kerfi landsins. Mikill hátíðabrag
ur var á Siglufirði í tilefni dags-
ins, fánar blöktu víða við hún
og verzlunum og skrifstofum
var lokað meðan athöfnin fór
fram. í>á var einnig gefið frí
í skólum bæjarins. Siglfirðingar
fjölmenntu út að Strákagöngum
þegar þau voru opnuð og mikil
gleði ríkti í öllum bænum.
Hófst athöfnin kl. 1, en við-
staddir voru auk Ingólfs Jóns-
sonar, samgöngumálaráðherra,
flestir þingmenn kjördæmisins
og fjöldi annarra gesta.
Hinn nýi vegur frá Hraunum
í Fljótum, um Sauðanes og
Stráka til Siglufjarðar, er alls
<^19 km langur. Þar af eru jar’ð-
Strákagöng, lengstu vegagöng landsins opnuð til umferðar.
Ung telpa að nafni Margrét J ónsdóttir frá Stóradal í Austur-
Húnavatnssýslu klippir á snúruna, en hjá henni stendur Ing-
ólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra. (Ljósm.:)
göngin um Stráka 793 metrar að
lengd. Göngin eru 4,5 m á breidd
og 5,5 m á hæð. í göngunum er
ein steypt akbraut 3,2 m breið,
með steyptum kantsteinum
beggja vegna . Þá eru i þeim
fjögur útskot þar sem bílar geta
mætzt. Heildarkostnaður var um
70 milljónir króna, þar af kost-
uðu jarðgöngin 41 milljón.
Ingólfur Jónsson samgöngu-
málaráðherra, opnaði göngin
með ræðu og sagði m.a.: Lengi
hafa staðið yfir athuganir á því
hvernig koma mætti Siglufirði
í vegasamband. Árið 1954, var
samþykkt tillaga á Alþingi um,
að fela ríkisstjórninni a'ð láta
athuga með hverjum hætti Siglu
firði yrði komið í varanlegt
vegasamband við Skagafjörð.
Greinargerð um þær athuganir
sem fram fóru sendi þáverandi
vegamélastjóri Geir G. Zoega,
sarngöngumálaráðuneytinu, í árs
byrjun 1956. Samkvæmt laus-
legri kostnaðaráætlun er fylgdi
greinargerðinni var talið að veg
urinn frá Heljartröð um Mán-
árskriður og Stráka, til Siglu-
fjarðar mundi kosta um 10 millj
ónir króna og var þar ekki gert
ráð fyrir jar’ðgöngum um
Stráka.
Leiðin úr fjarðarbotni yfir í
Nautadal var áætluð 27 milljón
ir og var gert ráð fyrir 3,5 km
löngum jarðgöngum. Var ekki
talið að sú leið kæmi til greina
vegna kostnaðar.
Gerð var nánari athugun á
Strákum, af Tómasi Tryggva-
Framhald á bls. 31.
Rætt um stoð-
greiðslu skuttu
SAMTÖK sveitarfélaga í Reykja
neskjördæmi halda fulltrúafund
í Sjá] fstæðishúsin.u í Hafnarfirði
kl 14 í dag, laugardag.
Rikiisskattsbjóri flytur erindi
um staðgreiðslukerfi skatta.
Allir sveitarstjómarmenn í
umdæminu em velkoannir á
fundinn. Auk þe&s eru þing-
menn kjördæmisins boðnir á
fundinn.
Askorun LÍÚ til Alþingis og ríkisstjórnar:
Samningar um aðild að EFTA
— svo fljótt sem kostur er - athugun
á aðild að EBE - Sérhagsmunir
Islands verði tryggðir
SVO SEM fram hefur komið
í fréttum fól aukafundur
LIU, sem haldinn var 29.
sept. sl. stjórn samtakanna
að gera ályktun um hugsan-
lega aðild eða samninga ís-
lands við EFTA og EBE og
skyldi slík ályktun send rík-
isstjórninni ef hún yrði sam
þykkt af a.i«.k. % stjórnar-
manna.
Stjórn LÍÚ hefur nú sent
frá sér ályktun þar sem
skorað er á Alþingi og ríkis-
stjórnina að semja svo fljótt
sem við verður komið um
aðild íslands að Fríverzlun-
arbandalaginu (EFTA) og
láta jafnframt fara fram
athugun á aðild íslands að
Efnahagshandalagi Evrópu,
þar sem sérhagsmunir ís-
lands verði tryggðir. Sam-
þykkt þessi var gerð með
14. atkv. gegn 1. Fréttatil-
kvnning LÍÚ um þetta fer
hér á eftir:
Aukafundur LlÚ., sem hald-
inn var hinn 29. september sl.,
samþykkti að fela stjórn sam-
takanna, að taka afstöðu til og
gera ályktun um hugsanlega að
ild eða samninga íslands við Frí
verzlunarbandalagið og Efna-
hagsbandalag Evrópu Skyldi
ályktunin verða send áfram til
ríkisstjórnarinnar, ef hún yrði
samþykkt af a.m.k. % stjórnar-
manna.
I framhaldi af samþykkt auka
fundar LÍÚ., var eftirfarandi
ályktun samþykkt á stjórnar-
fundi LÍÚ. hinn 4. þ m. með 14
atkv. gegn 1.
,Þar sem sjávárútvegur Is-
lendinga á nú í vök að verjast
vegna aflabrests og gifurlegs
verðfalls afurðanna og Ísland er
eina ríkið í Vestur-Evrópu, sem
ekki hefur ennþá gerzt áðili að,
e'ða hafið viðræður um þátttöku
í EBE eða EFTA, og þeir sem
utan við þessi bandalög standa,
sæta stöðugt versnandi við-
skiptakjörum, miðað við aðildar
rikin, að bandalögunum, þá skor
ar LÍÚ. á Alþingi og rikisstjóm
að semja svo fljótt sem við verð
ur komið, um a’ðild að Fríverzl
unarbandalaginu (EFTA) til
þess að tryggja að útflutningur
íslenzkra sjávarafurða njóti ekki
lakari viðskiptakjara en gilda
um sjávarafurðir í viðskiptum
þessara landa.
Jafnfram: fari fram athugun
á aðild íslands að Efnahags-
bandalagi Evrópu (EBE), þar
sem sérhagsmunir íslands séu
tryggðir”.
ISAFJORÐUR
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á ísa-
firði halda bingó í Sjálfstæðis-
húsinu á sunnudagiskvöld og
hefst það kL 8.30. Glæsilegir
vinningar verða, svo og fram-
haktevinningar eftir vali.