Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 54. árg. 258. tbl. SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1967. Prentsmiðja Morgunblaðsins. S-Vietnam: Boðað hlé á bardög- um um jól og nýár — 3 bandarískir herfangar Viet Cong látnir lausir í Phnom Penh, bandarísk yfirvöld telja þá hafa verið heilaþvegna Saigon, 11. nóvember -- AP — NGUYEN van Tliieu, íorseti S- Vietnam, sagði í dag, iaugardag, að S-Vietnam myndi gera hlé á hernaðaraðgerðum í styrjöld- inni við N-Vietnam á jólum, áramótum og nýári Viet- nama, sem er í febrúar. Vopnahlé þessi munu standa í sólarhring tvö hin fyrri, en tvo sólarhringa hið síðasta, er Vi- etnamar fagna nýju ári í febrú- ar. Vopnahlé hafa verið virt á þessum hátíðum öllum undan- farin ár. Thieu skýrði frá þessu á ferða lagi til Loc Nnih, 116 km. norð- an Saigon, þar sem gerðar voru í fyrri viku harðar ánásir á bæki stöð Bandaríkjamanna og her- liðs S-Vietnam þar í héraði. Ekki gat Thieu þess hvort vopna hléið, sem áður sagði myndi einnig taka til hlés á loftárás- um Bandaríkjamanna á N-Viet- nam eins og verið hefur undan- farin ár. Ekki minntist Thieu heldur á tillögu sína um að Framhald á bls. 2 SKAMMDEGISSOLIN leggur geilsabaug um höfuð Jóni Sigurðssyni þar sem hann , trónar á stalli sínum á Aust- urvellinum miðjum með al- þingishúsið sér á aðra hönd, 1 en á hina dómkirkjuna, sem um þessar mundir fyllir sjö- , unda tuginn. Myndina tók Ijósm. Mbl. Ó. K. Magnússon eitt síðkvöld fyrir skömmu. Sexburolæðing? Dacca, Austur-Pakistan, 11. nóv. (AP). ÓSTAÐFESTAR fregnir hafa borizt til Dacca í Austur- Pakistan um að kona ein í af- skekktu þorpi í Faridpur- héraði hafi fyrir nokkru alið sexbura, og að þeir séu allir á lífi. Fregn þessi birtist í blaðinu „Sangbad" og er höfð eftir fréttaritara blaðsins í bænum Coshi, skammt frá heimili sexburanna. Segir fréttaritar- inn, að seXburarnir hafi fæðzt 1. nóvember s.l. Móðirin og eiginmaður hennar, sem heit- ir Wahed Ali, áttu tvö börn fyrir. Reynt hefur verið að fá frétt þessa staðfesta, en ekki tekizt enn sem komið er. Béraðsstjóri Faridpur hefur sagt í símtali, að hann hafi sent menn á vettvang til að kanna málið, en það taki tíma að komast þangað og þaðan. ,Rauða stjarnan": Ekkert getur grandað sovézkum eldflaugum Moskvu, 11. nóv. (AP). ENGINN fjamdmaður Sovétríkj amna er fær um a@ verjast sovézkum eldflaugum, segir „Krasnaya Zvezda“ (Rauða stjarnan), málgagn sovéthersins í langrj gredn í dag, þatr sem verið er að lýsa nánar sex nýj- Mesta bankarán Danmerkur Hjón handtekin. Hafa játað ránið í Landma ndsbanken Kaupmannahöfn, 11. nóv. (NTB). LÖGREGLAN í Kaupmanna höfn handtók seint í gær- kvöldi hjón, sem játað hafa á sig mesta bankarán í sögu Danmerkur. Rán þetta var framið í útibúi Landmands- banken við Tagensvej í Kaupmannahöfn sl. þriðju- dag, og tókst ræningjunum að hafa á brott með sér 250 þvisund danskar krónur. Hjónin neituðu í fyrstu að hatfa átt nokkurn þátt í banka- ráninu, en etftir að lögreglan lagði fram sönnunargögn sdn játuðu þau. Emgir viðskiptavinir voru í bankanum þegar ránið var fram ið, rétt þegar átti að fara að lioka bankamum, klukkan sex á þriðjudagskvöld, aðeins tveir starfsmenn. Kom þá maður inn í bankann m.eð húfu ofan í augu, miðaði skammbyssu á gjaldkerann og krafðist pen- imga. Lét hann síðan gjaldker- an binda útibússtjórann með stáivir og síðan aðstoða siig við að satfma sarnan peningunum. Þegar því var lokið batt hann gjaidkerann við hlið útibús- stjórans. Skömmu etftir að ræminginn var hlaupinn á brott með ráms- femginn tókst útibússtjóranum að m.jaka sér að þjófabjöl’lu, og kom lögreglan fljótlega á vett- vang og leysti bankastarfsmemn ina. Fjölment lið rannsóknarlög- reglumanna hetfur unnið að þvi að upplýsa bankaránið, sem er það sjöunda, er fram.ið hefur verið í Danmörku undanfarið hálft ár. öll hin sex eru enn Framhald á bls. 31 um eldftaiugavopnum, sem siýnd voru á hersýningunni á Rauða- torginu byltinigarafmaelisdag- inn. Óvinurinn getur hvorki fund- ið eldflaugarnar né grandað þeim, segir blaðið. „Sovézkar eldflaugar geta flutt dauða- sprengjur sínar þúsundir kíló- metra. Það eru engin takmörk fyrir því hve langt flaugarnar geta flogið, og ekkert getur stöðvað þaeT“, segir Rauða stjarnan. Blaðið skýrir einnig frá nýj- um skotvagni fyrir eldflaugar, sem er fær um að aka greitt yfir torfærur, og kemst yfir skurði og fen. Skotvagn þessi var á hersýningunni á þriðju- dag, en engar upplýsingar hafa verið gefnar um hann fyrr en nú. Rauða stjarnan segir, að skotvagniinn fari hraðar en bíl- ar og skriðdrekar yfir vegleys- ur, og ekki þurfi nema einin Framhald á bls. 2 Fljúgandi diskar á ferðalagi - skemmta veizlugestum í Laos og stöðva umferð í S-Englandi Vientiane, Laos, 10. nóv- ember AP og New For- est, S-Englandi, 9. nóv. FLJÚGANDI diskar esru allt- af að gera vart við sig þessa dagana. Síðast sáu þessa ó- kemmilegu hluti gestir í veizlu einmi í Laos en þar áður bifreiðastjóri einn í S-Eng- lamdi og sagði sá að þeir hefðu hreinlega stöðvað hann á þjóðveginum. Á fim.mtudagskvöld hélt ísólski fu'lltrúinn í alþjóðlegu eftirld’tsnefndinn.i í Laos, Jan Vithek, veizlu í Vientiane þar sem það bar til tíðinda að veizlu.gestir sáu fljúgandi disk svokallaðan fara um himinhvolfið fyrir augum þeirra. Voru gestir sem næst á eitt sáttir um að ekki hefði getað verið um annað að ræða, en nærstaddur fulltrúi Kinaveldis gat þess þó til að um flugelda væri að ræða og Wiiliam Sullivan, sendi- herra Bandaríkjanna í Vient- iane ta.ldi ekki ólíklegt að þarna befði verið á ferð brak úr gieimfari. Fulltrúi Kanada í nefndinni, Stewart Cooper, Framhald á bls. 31 m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.