Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 32
INNIHURÐIR ilandsins . mesta urvali4.M. SIGURÐUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI. SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1967. rn TVÖFALT J EINANGRUNARGLER 20ára rsynsla hérléndis T ilraunaf ramleiöslan við Mývatn gengur vel TILRAUNAFRAMLEEÐSLA er nú hafin í kísilgúrverksjniðj- unni við Mývatn og gengur vel. Morgunblaðið hafði samband við Véstein Guðmundsson, sem sagði: „Þetta gengur allt samkvæmt áætlun. Það er aðeins fyrri hluti verkunarinnar sem við erum að fást við núna, þ.e. að dæla leðju úr þrónni upp í verksmiðjuna, og sía hana og þurrka. Við ætl- um að safna að okkur dálítið áður en við byrjum að fullvinna, en ég býst við að það hefjist í næstu viku“. — Hefur veðrið ekki valdið ykkur neinum erfiðleikum? „Það er grenjandi stórhríð hér núna, en við vorum búnir að Soltoð ó Akronesi gera ráðstafanir í sambandi við það. Hins vegar voru slæm frost um daginn og það tafði okkur dálítið, ekki þó alvarlega, Og nú gengur allt vel“. Olíubíll og jeppi í órekstri Akureyri, 11. nóvember. OLÍUBÍLL á leið frá Akureyri og Bronco jeppi af Árskógsströnd rákust á á þjóðveginum hjá Hofi í Arnarneshreppi um kl. 9,30 í morgun. Blindhæð var og hálka á veginum. Bílarnir skemmdust báðir, jeppinn þó meira. Öku- maður var einn í jeppanum og tveir menn í olíubílnum, en eng- an þeirra sakaði. — Sv. P. Boranír meö stora bornunt eru nybyrjaðar innst í Blesugroiinm, a mots við gontlu Rafstoðina. Arangurs er þó ekki að vænta fyrr en ’i öndverð um næsta mánuði. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.) Fjallvegir teppast og færð varasöm víða um land — Skafrenningur á Hellisheiði TIL AKRANESS komu í gær þrjú skip, Sigurfari með 900 tunnur, Höfrungur II. með 200 tunnur og Skírnir með 200 tunn- ur, er þau höfðu fengið út af Jökli. Síldin var öll söltuð. Upp úr miðnætti á föstudags- kvöld var komin norðanbræla, svo að tvö síðarnefndu skipin urðu frá að hverfa af þeim sök- um, en Sigurfari hafði komið tveim stundum fyrr á miðin. 930 tonn nf söltunnrsíld til Eskifjorðor Saltað í 2697 tunnur á töstudag Eskifirði, 11. nóv. ÁTTA SKIP komu til Eskifjarðar á hádegi í dag, með 900 tonn af söltunarsíld. Álfta- nesið, er hæst þeirra skipa sem hingað koma, með 150 tonn af glæsilegri síld. I gær var saltað á eftirtöldum stöðvum, sem hér segir :Auðbjörgu 1075 tunnur, Báru 700, Öskju 430, Sigfúsi Bald vinssyni sf. 268, Eyri 224. I dag er norðaustan bylur og fimm stiga frost. Við slíkar aðstæður er síldarvinna að sjálfsögðu erf- ið og það kostar saltendur mikið umstang og aukapening að koma öllu í kynt hús þar sem það get- ur lagerast. — Regína. FJALLVEGIR á Vestfjörðum voru flestir ófærir í gær og að teppast á Norður- og Austur- landi. í Borgarfirði og víðar á Vesturlandi er mikill lausasnjór og hætt við að dragi í skafla, ef hvessir. Á Suðurlandi var færð yfirleitt ágæt, en mönnum ráð lagt að fara þrengslin vegna skafrennings á Hellisheiði. Samkvæmt upplýsingum frá vegamálaskrifstofunni voru veg irnir yfir Fróðárheiði og Bröttu- brekku hreinsaðir á föstudag, en farið var að draga aftur á þessa staði þegar um laagardagsnótt- ina og sömuleiðs í Kerlingar- skarði, en sennilega var hún þó fær stórum bílum og jeppum. í vetur verða bílar aðstoðaðir á þessum leiðum á þriðjudögum og föstudögum. Guðmundur Jónasson, vega- verkstjóri á Akureyri, tjáði Mbl. í gær, að á föstudag hefðu bíl- ar verið aðstoðaðir yfir Öxna- dalsheiði. Þá var komið leiðinda veður nyrðra og útlit fyrir að Öxnadalsheiði lokaðist; Múlaveg ur hafði þegar lokazt og oúast mátti við, og færð þyngdist á öðr um vegum, ef ekki brygði til betra veðurs. Egill Jónsson, vegaverkstjóri á Reyðarfirði, sagði Mbl. í gær, að þar væri komin hvöss aust- anátt og vonzkuveður á heiðum. Oddskarð var þó fært, en búast mátti við, að það lokaðist þá og þegar og sömuleiðis Fjarðar- GOTT VEÐUR var á síldarmið- unum þar til í gærmorgun, er það fór versnandi, og um há- degið í gær var komin bræla og 7—8 vindstig af norð-norð- vestam. heiði. Færí var frá Eskifirði að Egilsstöðum og um Héraðið og eins suður um Firði, um Fá- skrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Breiðdalsvík. Á fimmtudag var bílum hjálp að yfir Möðrudalsöræfi og gekk það sæmilega vel, en hægt. Segja mátti, að þá hafi orðið fært fyrir stóra bíla og jeppa, en var aftur orðið ófært í gær- morgun. 53 skip tilkynntu um afla, 6.475 lestir. Veáðisvæðið var frá 50—90 mílum aust-suð-austan frá Seley. Framhald á bls. 2 Piltur og stúlho tekin ú innbrotsstuð PILTUR og stúlka, fimmtán og sextán ára gömul, voru tekin á innbrotsstað um fimmleytið í fyrrinótt. Kristján Sigurðsson, hjá rannsóknarlögreglunni, sagði Morgunblaðinu að brotnar hefðu verið rúður í tveim verzlunum, Verðlistanum og Aski, við Suð- urlandsbraut. Farið hafði verið inn á báðum stöðunum, en ekki upplýst enn hvort einhverju hafði verið stolið. Málið er í rannsókn. Stórhríð í Fljótum Hofsós, 11. nóv. HÉR er komin norð-austan stór- hrið og voru því Siglfirðingar mátulega búnir að vígja gatið, en í gær var bezta veður. Fyrir nokkrum dögum kom hér bloti, en áður hafði verið jarð- laust í úthluta héraðsins, en snjó- lítið þegar kom inn í héraðið. í áhlaupaveðrinu, sem kom 27. okt., gerði mikinn snjó í Fljót- um, en þá var allt fé óhýst og á Hraunum í Fljótum vantaði enn þá 20 kindur, sem talið er víst að hafi fennt og litlar líkur til, að finnist úr þessu, því að alltaf bætir á þar. 53 síldarskip tilkynntu afla síöasta sólarhring Um hádegið í gœr var komin brœla Eindregin ósk ríkisstjórnarinnar: Verkfalli yfirmanna á farskipum verð/ frestað — Farmenn höfnuðu í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt frá ríkis- stjórninni segir að ríkis- stjórnin hafi sl. föstudag bor- ið fram þá eindregnu ósk við samninganefnd Farmanna- og fiskimannasambands ís- lands að boðuðu verkfalli sambandsins verði frestað. Skv áreiðanlegum upplýs- ingum sem Mbl. hefur aflað sér höfnuðu yfirnienn á far- skipum þessum tilmælum. Samningafundur átti að hefj ast síðdegis í gær og verk- fall að skella á um miðnætti sl. ef samningar tækjust ekki fyrir þann tíma. I gær ræddu Bjami Benedikts- son, forsætisráðherra, og Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegs- málaráðherra, við samninga- nefntí Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands. Báru þeir fram eindregna ósk ríkisstjórn- arinnar um frestun á boðuðu verkfalli sambandsins vegna hins alvarlega ástands í efna- hags- og atvinnumálum þjóðar- innar. Stórhríð hamlar bryggjuviðgerð MBL. hafði í gær samband við oddvitann í Hrísey, Þorstein Valdimarsson, og sagði hann, að dæluprammi frá Siglufirði, Björninn væri nýkominn þangað vegna skemmdanna á hafskipa- bryggjunni fyrir skömmu. Unnið var að því á föstudag- inn að aka smágrjóti um borð í prammann og var það sett með bryggjuþilinu að franverðu. Þessu verki er enn ekki lokið en nú brast á stórhríð, svo Björninn varð að fara frá eynni, þar se*m hann gat ekki verið við bryggj- una vegna sjógangs. Strax og slotar verður verkinu haldið áfram. Þorsteinn sagði að lokum, að ekki hefði komið til neinna út- skipana ennþá síðan bryggjan brotnaði og vonast hann til að hafa vinnufrið til að Ijúka við- gerðinni, svo að ekki komi til vandræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.