Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.1967, Blaðsíða 4
4 MORGrU NBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 12. NÓV. 1967 4. I 4 0 BÍLA m Li H1 'J I V j WÁ gf-; 11 i F9 ■ SIMI 1 mm 1-44-44 Hverfisgrðtu 103. Síœi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir íokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BILALEIGAN - VAKUR - Sundangaveg 12 - Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f~f=*B/iJUfr£rjur IrtsikeffÆr RAUOARARSTIG 31 SlMI 22022 mm^^mmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmma^m^m^mmt Riiskinnshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, simi 23337. AU-ÐVITAÐ ALLTAF ^ f X y yj t fj i Vestmannaeyjar og meginlandið „Kæri Velvakandi! Ég vil biðja þig fyrir eftir- farandi: í dálkum þínum s.l. miðviku- dag er einhver, sem kallar sig „Eyjarskeggja á meginland- inu“ með bollaleggingar um Álandseyjar, Færeyjar og Vest- mannaeyjar, og er vart hægt að skilja hann á annan veg en að hann myndi telja það hagkvæmt fyrir aðra lands- menn að slíta Vestmannaeyj- ar úr fjárhagslegum tengslum við ríkið. Ennfremur er þessi meginlands-„eyjarskeggi“ með kjánalegar og illkvittnislegar hugleiðingar um fjárhagslega þátttöku ríkisins í vatnsveitu- framkvæmdum okkar Vest- mannaeyinga og telur, að vfð í sambandi við þær séum að „rúlla prívatútgjöldum yfir á bök allra landsmanna", eins og hann orðar það. Þetta er misskilningur, sem ég tel, að þurfi að leiðrétta. Þjóðin er ein heild. Lands- menn allir standa með beinum og óbeinum sköttum og tollum undir útgjöldum ríkisins, hver og einn eftir þeim reglum, sem þar um gilda, hvort sem þeir búa í þéttbýli eða strjálbýli. Útgjöld ríkissjóðs falla hips vegar þannig til, að þau í einu tilfelli koma þéttbýlinu meira til góða, en strjálbýlinu aftur á móti í öðru. Hjá þessu verður ekki komizt. Lega Vestmanna- eyjar og sérstakar leiðir til þess, a'ð sum ríkisútgjöld koma okkur að mun minna gagni en öðrum landsmönnum, og greið- um við þó okkar hluta þeirra tekiia, sem aflað er, til að standa straum af þeim. Við þessu er ekkert að segja. Aftur á móti hlýtur að koma, að ef Vestmannaeyingar þurfa að leggja í framkvæmdir, sem sérstöðu þeirra vegna hljóta að verða dýrari en annars stað- ar, eins og til dæmis umrædd- ar vatnsveituframkvæmdir, hljóta þeir að eiga fullan rétt á framlagi úr ríkissjóði, eins og a'ðrir, eftir því sem lög leyfa og ráð er fyrir gert. Vatnsveitulög Til eru lög í landinu um þátt- töku ríkisins í vatnsveitufram- kvæmdum, og heimila þau allt að 50% þátttöku ríkissjóðs í stofnkostnaði vatnsveitna, þó ekki innanbæjarkerfis, eftir því sem stjómarvöld meta og fjárveitingavaldið leggur til, að tekið sé á fjárlög hverju sinni. Lög þessi hafa lengi ver- ið í gildi og eftir þeim unnið, og hafa ráðamenn byggðar- lagsins (Vestmannaeyja) sótt á með, að stjórnárvöld notuðu heimild vatnsveitulaganna og greiddu þann kostnaðarhluta þessara sérstæðu framkvaemda, sem umrædd lög heimila. Getur þetta að mínum dómi ekki á nokkurn hátt talizt óe'ðlilegt, miðað við allar að- stæður. 'fc- Yrði enginn hor- fellir? Hitt atriðið, hvort æskilegt sé eða ekki fvrir þjóðarheild- ina, að Vestmannaeyjar séu í fjárhagslegum tengslum við ríkið, er atriði, sem mjög hægt er að meta. Ár frá ári liggja fyrir opin- berar skýrslur um gjaldeyris- öflun Vestmannaeyinga og þær tekjur, sem þeir skila þjóðar- búinu. Ég hygg, að niðurstöð- ur þessara skýrslna sýni, að enginn horfellir yrði í Eyjum, þó a'ð íbúum þeirra yrði gert að lifa einir af því, sem þeir afla, og get ég fullvissað „Eyj- arskeggja á meginlandinu" um, að hann getur sofið rólega þess vegna. Ég hefi að lokum eina ósk fram að færa við þennan aðila, að ef hann vill skrifa um mál- efni Vestmannaeyinga,, að þá geri hann það undir nafni, en ekki sem huldumaður. Guðlaugur Gíslason". hr Flugtaksþungi Sigurður Jónsson skrifar: „Ég virðist eiga eftir að svara „Skugga-Sveini" mínum eða „Forvitnum um flugmál" enn einni spumingu hans Um lei'ð er þá bezt ég svari öðrum „Skagga-Sveini", nefnilega „Flugmanni", sem einhverra hluta vegna einnig vill vera huldumaður. Séu þessir, væntanlega ágætu menn, raunverulega svo áhuga- samir um flugmál, þá sé ég ekkert athugavert við það, að þeir leggi fram spurningar sín- ar undir fullu nafni. Geri þeir það ekki, ef um fleiri spurn- ingar er að ræða, sé ég ekki ástæðu til að svara þeim frek- ar í þessum dálkum. Flugtaksþungi B 727 af braut 02/20 má vera, í logni og 15° C, 148.500 lbs. Er þá tekið til- lit til halla brautarinnar, sem er annars vegar 0.5% og 0.6%. Flugbraut 02/20 er rúm 6000 fet, eins og áður hefur verið sagt. í NOTAM stendur „Take- off distance 1825 m“, sem raunar var mælt 1840 m eða rúm 6000 fet. „Flugmaður" veit einnig, að í NOTAM stendur, að brautin sé 45 metrar, en raunveruleg breidd á milli Ijósa er langum meiri. * Veðrið Það er fróðlegt að fletta í uoplýsingar Veðurstofunnar varðandi „heita sum£udaga“, og skal eftirfarandi upplýst sam- kvæmt „Veðráttunni" árið 1966: Meðalhiti í júní er -f-10.2°C — í júlí er -fll.l°C — ágúst er -fll,2°C Ég tek hér meðalhitann á þeim tímum dags, þegar flog- ið var í sumar, en þá voru tvær ferðir marga daga í viku til útlanda. Hér er um svo lítinn hita að ræða, að hann skiptir nánast litlu um afköst flugvéla, auk þess sem flug- vellir á íslandi eru allir við sjávarmál, sem einnig hefur sitt a'ð segja. Til fróðleiks má geta þess að meðalhiti ársins í Reykjavík er 4.2°C. Nú skal ég ennfremur upp- lýsa, að til eru þær flugvélar, sem t. d. alls ekki komast á loft frá þeim ágæta flugvelli í New York, fullhlaðnar, ef hiti er mikill, alveg sama hvað flugbrautin er löng. Þetta ger- ir auðvitað ekki flugvöllinn ónothæfan, heldur verður að haga flugtaksvigt í samræmi við það og þá t. d. lenda í Gander á Nýfundnalandi og taka eldsneyti, ef um Atlants- hafsflug er að ræða. ★ Sýnið framan í ykkur Að lokum þetta, kæru „Skugga-Sveinar": Snúið nú við spilunum og sýnið framan í ykkur, svo að hægt sé að sjá, hvaða árvökulu menn það eru, sem finnst þeir telji sig þurfa að vera á verði gagnvart vond- um mönnum sem mér, sem vísvitandi eru að halda fram röngum tölum um afköst flug véla og rangt mál á flugbraut- um og þar með stofna fluginu í hættu. Sigurður Jónsson". ★ Umgengni og hreinlæti „Jón í Ansturbænum skrifar: „Heiðraði Velvakandi! I dálkum þínum hafa stund- um birzt bréf þess efnis, hve okkur Islendingum sé ábóta- vant í almennum umgengnis- venjum og tillitssemi við ná- ungann. Þess vegna dettur mér í hug, að þér gæti þótt fróð- legt að heyra um athugun, sem ég gerði ásamt kunningja min- um fyrir skömmu. Við vinnum báðir í stóru húsi, þangað sem margir leggja leið sína. Þar eru bæði íbúðir, skrifstofur, lækningastofur, heildsöluafgreiðslur o. fl. Hús- i'ð er upp á margar hæðir. Margt af fólkinu, sem í hús- inu vinnur, drekkur kaffi í sameiginlegri kaffistofu. Ber Þá stundum á góma, hve frá- munalega sóðalega er gengið um húsið. Bæði anddyri húss- ins, stigar og gangar, eru eins og svínastia, þegar líða tekur á daginn. Varð því eitt sinn að ráði, a5 ég og kunningi minn framkvæmdum eftirfarandi at- hugun. ★ Vel gengið um motturnar a.m.k. I anddyrinu er stór motta fremst við útidyr. Önnur er fyrir neðan neðstu tröppuna, og framan á tröppuna er fest mjög áberandi skilti, sem allir hljóta að reka augun í, en á því stendur: Vinsamlegast not- ið mottuna. Nú athuguðuru við einn daginn, hve margir not- u'ðu mottumar. Sátum við inn- an við glerglugga í anddyrinu og merktum jafnóðum á blöð, þegar fólk gekk inn og aftur, þegar það st«ig upp í neðstu tröppuna. Við völdum dag til athugunar, þegar mjög blautt var á, svo að fólk var óhreint til fótanna. Niðurstöðurnar voru þessar (eftir 2 klst athugun á mesta annatíma dagsins): Notkun ytri mottunnar (við anddyrið): 6.5% þurrkuðu sér vel á henni. 10.0% struku skóna við hana mjög lauslega. 83.5% gerðu enga tilraun til þess að nota mottuna. Notkun mottunnar neðan við stigann (þar sem skiltið er): 14.0% þurrkuðu sér vel á henni. 31.5% notuðu hana lauslega. 54.5% notuðu hana alls ekki. ^ Unglingar og rosk- ið fólk mestu sóð- arnir? ' Þetta fannst okkur heldur betur léleg útkoma, en alveg í samræmi við útlit „samgöngu æða“ hússins. Þegar við opin- beruðum niðurstöður rann- sóknarinnar, vorum við þó rengdir, því að prósentutala þeirra, sem notuðu innri mott- una væri alltof há, og hlytum við að hafa fengið óvenjumargt þrifið fólk í húsið þennan tíma. Ég er heldur ekki frá því, að svo geti verið. Að öðm leyti kom þetta fram: Allir, sem þurrkuðu sér rækilega á fremri mottunni, þurrkuðu sér lika vel á þeirri innri. Hreinlegasta fólkið virt- ist fremur láta sér standa á sama um motturnar. Þetta er sent þér til gamans og fróðleiks, með beztu kveðj- um og þakklæti fyrir marga ánægjustund yfir morgunkaff- inu, Jón í Austurbænum". Já, betta er skemmtileg at- hugun á umgengnisvenjum okk ar, og sú eina, sem Velvak- andi minnist að hafa séð. ^ Öðru vísi skálda- tími hér en í Fær- eyjum? „Smáskáld skrifar- „Bezti herra Velvakandi! Nýlega er komin út ljóðabók í Færeyjum, sem heitir „Ramar risti hann rúnirnar“ (sbr. „Rammar sló hún rúnir“) eftir skáldi'ð Pól F. Ekki veit ég, hvort hann telur sig stórskáld eða smáskáld, en þetta segir hann í einu kvæðanna: Jú st0rri skald, jú minni ráð til konufólk ella ak’vitt, hann dpmdur at liva sum munkur er og einans at drekka spritt. Þetta er alveg öfugt við reynslu mína hér á íslandi. Stórskáldin hér eru alltaf á „rokna-sjans“ með tilheyrandi koníaki og whiskyi, meðan ég og mínir líkar þykjumst góð- ir að eiga fyrir ákavíti. Hvern- ig skyldi standa á þessu? Smáskáld". — Þessu getur Velvakandi ekki svarað, en kannske vildu fleiri skáld leggja hér orð í belg? Meðalhiti í júní kl. 08.00 +10.1°C kl. 14.00 +11.1°C — í júlí kl. 08.00 +10.9°C kl. 14.00 +12.6°C — ágúst kl. 08.00 + 10.4°C kl. 14.00 +13.0°C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.