Morgunblaðið - 12.11.1967, Síða 2

Morgunblaðið - 12.11.1967, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. NÓV. 1967 Frambúðar sjónvarpssendir tekinn í notkun í Eyjum Unnið að uppsefningu nokkurra éndur- varps- og bráðabirgðastöðva UPPSETNINGU frambúðar sjón- varpssendis í Vestmannaeyjum er nú lokið og var hann tekinn í notkun í gær. Vestmannaeyja- stöðin sendir út á rás fimm eins og áður, en nú með 250 watta styrk í stað 50 watta áðun Þessi stöð er ætluð lágsveitum Árnes- sýslu, Rartgárvallasýslu, Vest- mannaeyjum og hluta Mýrdals. Eftir þessa miklu orkuaukn- ingu gefur Vestmannaeyjastöðin nú góðan styrk á Selfossi og verður bráðabirgðastöðinni þar lokað 20. þessa mánaðar. Unnið er að uppsetningu end- urvarpsstöðvarinnar á Langholts fjalli i Hrunamannahreppi fyrir Biskupstungur, Laugardal, — S-Vietnam Framhald af bls. 1 hætta loftárásum, að því til- skildu, að N-Vietnamstjórn sýni einhvem hug á samningaviðræð um, en gaf í skyn að hann vildi helzt ekki hafa hátt um tilraun- ir sinar í þá átt. Thieu ræddi nokkuð aukna herskyldu í S-Vietnam, sem ætlað er að bæta muni 65.000 mönnum í her landsins á næsta ári. Hefur herskyldualdur verið færður niður í 18 ár úr 20 og hert á undanþáguákvæðum. Þá ræddi Hhieu og tilraunir stjórn arinnar til þess að brúa bilið milli lífskjara Saigonbúa og fólksins upp til sveita. Látnir lausir í Phnom Penh. í dag, laugardag, hélt „Þjóð- ferlsishreyfing" Viet Cong „lausnarhátíð" fyrir þrjá banda- ríska herfanga, sem látnir voru lausir með viðhöfn og afhent- ir fulltrúa bandaríska friðar- sinna í Phnom Penh, Tom Hay- den. Ekki er vitað hvar hefur orðið um Bandaríkjamennina þrjá síðan, en Hayden kvaðst aðeins hafa „tekið við‘‘ þeim á táknrænan hátt og sagði að sér hefðí alls ekki verið falín for- sjá þeirra og hann hefði ekki hugmynd um hvar þeir væru niður komnir, en taldi þó að þeir hefðu verið látnir lausir í alvöru og myndu vera á heim- leið til Bandaríkjanna. Banda- rísk yfirvöld telja mennina þrjá hafa verið heilaþvegna.. — Rauða stjarnan Framhald af bls. 1 mann til að stjórna banum. Frásögn blaðsins bendir til þess, að unnt sé að skjóta eld- flaug frá skotvagninum, aka vagninum síðan hratt á brott frá skotstað og skjóta annarri flaug langt frá fyrri skotstað. Væri því erfitt að finna skot- vagninn og eyðileggja hann. Hrunamannahrepp og nokkurn hluta Grímsness. Þetta er 50 watta stöð, sem mun senda út á rás 8 og munu útsendingar frá henni geta hafizt um næstu mán- aðamót. Einnig er unnið að uppsetn- ingu 50 watta endurvarpsstöðv- ar á Skáneyjarbungu í Borgar- firði fyrir uppsveitir Borgarfjarð ar og er búizt við, að útsending- ar geti hafizt frá henni fyrir lok þessa mánaðar. Skáneyjar- stöðin mun senda út á rás 4. Þá er unnið að uppsetningu endurvarpsstöðvar að Lambhaga í Leirársveit fyrir þá sveit, mest alla Hvalfjarðarströnd og Kjós. Það er einnig 50 watta stöð, og er búizt við, að útsendingar hefj- ist í desember. Lambhagastöðin mun senda út á rás 2. Ennfremur standa vonir til, að fyrir lok þessa árs ljúki upp- setningu bráðabirgðastöðvar á Skálafelli á Kjalarnesi og er hún Spilakvöld Sjálfstœðisfélags Gorðo- og Bessa staðahrepps NÆSTA spilakvöld Sjálfstæðis- félags Garða- og Bessastaða- hrepps verður n.k. mánudags- kvöld, 13. nóv., í Samkomuhús- inu á Garðaholti og hefst kL 20.30. Sjálfstæðisfólk Mætið stund- víslega og takið með ykkur gesti. ætluð nokkrum hluta Kjósar, Hvalfjarðarstrandar, Þingvalla- sveitar, svo og Mosfellsdal. Mun hún senda út á rás 4 með 3 watta styrk. Loks er unnið að uppsetningu bráðabirgðastöðvar að Háafelli í Mýrdal. Þetta verður þriggja watta stöð fyrst I stað, en bráð- lega verður styrkurinn aukinn upp í 100 wött. Hún mun senda út á rás 3. Ráðgert er, að þessi stöð hefji útsendingar um næstu mánaðamót og komi sjónvarps- myndinni austur í Álftaver og Meðalland. Síðar verða endurvarpsstöðvar settar upp í Landbroti, fyrir Landbrot og Síðu, og ennfremur .................... ........................................... í Höfn í Hornafirði, ef styrkur A myndinni sjást aðallagnir Hitaveitunnar, sem lagðar eru frá frá bráðabirgðastöðinni á Háa- Grensásvegi niður í Fossvogshverfið. Verkið hefur gengið sam- felli mælist nægilegur til endur- kvæmt áætiun, þrátt fyrir frost og kulda, og á því að ljúka fyrir varps. (Frá Ríkisútvarpi — Sjón áramót, sömuleiðis tengingu í öll hús, þar sem byggingarfram- varpi). kvæmdum hefur miðað nægilega áleiðis. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.) Læknabók handa sjómönn um komin út SAMGÖNGUMÁLARÁÐU- NEYTIÐ hefur nýlega gefið úr ofannefnda bók að tilhlutan landlæknis, sem skrifar eftirfar- andi formála: „Bók þessa hafa tekið saman læknarnir Benedikt Tómasson og Ólafur Jóhannsson, hinn síð- arnefndi VIII. og IX. kafla, eða um helming bókarinnar, en hinn fyrrnefndi aðra kafla hennar, á- samt efnisyfirliti og atriðaorða- skrá, en báðir höfundar lásu allt handritið rækilega. Eftir því sem tiltækilegt þótti, var stuðzt við Fermingarbörn í D A G birta prestar Reykja- víkurprófastsdæmis orðsending- ar til væntanlegra fermingar- barna á næsta ári og foreldra þeirra. Öll börn sem fermast eiga á árinu, hvort sem er haust eða vor, verða kölluð til prestanna næstu daga. Rétt til fermingar á næsta ári eiga öll börn, sem fædd eru á árinu 1954 eða fyrr, Aðalfundi F.U.S. Stefnis frestað AÐALFUNDI Stefnis félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafn- arfirði, er halda átti annað kvöld, mánudagskrvöld, er frestað til n.k. fimmtudags. Verður aðal- fundurinn haldinn í Sjálfstæðis- húsiny og hefst kl..20.30. en yngri börn ekki. Dómprófastur. Dómkirkjan. Börn sem eiga að fermast hjá séra Jóni Auðuns á næsta ári, komi til viðtals í kirkj una nk. fimmtudag kl. 6. Börn sem eiga að fermast hjá séra Óskari J. Þorlákssyni á næsta ári, komi til viðtals í kirkjuna nk. þriðjudag k. 6. Dr. Jakob Jónsson biður böm sem fermast eiga hjá honum á næsta ári að koma til viðtals í Hallgrímskirkju mánudaginn 13. nóvember kl. 6 og þriðjudaginn 14. nóvember á sama tíma. Farmannabók-Lækningakver fyr ir farmenn og aðra sjómenn, gefna út af landlækni árið 1938, með aðstoð Þórðar Þórðarsonar læknis. Heilir kaflar hafa þó ver- ið samdir algerlega að nýju (einkum VIII., IX. og XVI.), en öðrum breytt að minna eða meira leyti. Lýsingar á allmörg- um sjúkdómum em teknar upp úr þeirri bók lítt eða ekki breyttar, en meðferð þeirra vita- skuld alls staðar færð í nútíma- horf. Nokkrum sjúkdómum er sleppt, en aðrir teknir inn. Leit- azt hefur verið við, að hafa bók- ina eins stutta og unnt var, ón þess að sleppa nauðsynlegu efni. Um myndir skal þessa getið: Myndir nr. 1, 43 og 44 eru tekn- ar með leyfi útgefanda, úr Lege- Dýrbítui diap 5 kindui DÝRBÍTUR hefur gert nokkurn usla á Rauðasandi og á Barða- strönd og drepið einar fjórar fimm kindur, sem vitað er um. Bændur hafa að sjálfsögðu reynt að ráða niðurlögum hans og tekizt að vinna eina tófu, en ekki er vitað hvort það er sú sem skaðanum olli. ÞAÐ var djúp lægð yfir haf- inu milli íslands og Noregs í gærmorgun. Hún olli vaxandi norðanátt austur af landinu, og fór því veður versnandi á síldarmiðunum. Á landinu var stinnings- kaldi á norðan og fylgdi élja- gangur með frosti norðan og austan til, en á Suðvestur- landi og vestur um Breiða- fjörð var úrkomulaust. Búast má við r.orðlægri átt og frosti í dag. Hákon í Haga látinn BÆNDAHÖFÐINGINN Hákon Fálkaorðunni varð hann árið Jóhannes Kristófersson, í Haga á 1949. Eftirlifandi kona Hákonar Barðaströnd lézt í sjúkraskýlinu er Björg Jónsdóttir, ljósmóðir. á Patreksfirði, aðfaranótt síð- bok for sjöfolk (Kreyberg), Ósló 1964, myndir nr. 34, 35 og 37 úr Farmannabók og mynd nr. 17 úr enskri bók. Aðrar myndir eru teknar úr Hjálp í viðlögum eftir Jón Oddgeir Jónsson með góð- fúslegu leyfi hans. Sömuleiðis eru myndatextar teknir úr þeirri bók að kalla óbreyttir. Æskilegt er, að skipstjórar, sem eru í langsiglingum, kynni sér og hafi einnig við höndina t.d. hina dönsku sjómannalækn- ingabók, Lægebog for söfarnede (Gyldendal), þar sem sú bók er miklu lengri en hin íslenzka og því um margt rækilegri". Bókin er 150 bls. að stærð með fjölda mynda. Skrifstofa Skipa- skoðunar ríkisins sér um dreif- ingu bókarinnar, sem verður not uð um borð í skipum og við nám í sjómannaskólum. astliðins föstudags, eftir skamma legu. Hákon var fæddur 20. apríl 1877, einn af sautján börnum hjónanna Kristófers Sturlusonar, bónda á Brekkuvelli á Barða- strönd og Margrétar Hákonar- dóttur konu hans. Hákon vann að verzlunarstörf- um á Vatnseyri við Patreksfjörð frá 1901 til 1902, en stundaði svo jarðyrkju og ýmsa vinnu frá 1903 til 1907, er hann gerðist bóndi í Haga, þar sem hann var æ síðan, jafnframt því að vera umsjónarmaðtir Landsímahúss- ins í Reykjavík 1930-1940. Síð- ustu árin í Haga bjó hann ásamt Bjarna syni sínum. Hákon var alþingismaður Barðstrendinga frá 1913 til 1931, hreppstjóri frá 1905 til 1966 og átti sæti í sýslu- nefnd í fjölda ára. Riddari af Hákon J. Kristófersson - Síldin Framhald af bls. 32 Afli skipannia var sem hér segir: Brettingur NS. 30; Björg 150; Hel'ga RE 160; Keflvíkingur KE 40; JÖTundur II. RE 180; Birt- ingur NK 230; Gunnar SU 100; Barði NK 230; Gullberg NS 110; Hafdlís SU 80; Dagifari ÞH 210; Sigurbjörg OF 190; Krossames SU 150; Halkiorr VE 190; Snæ- fell EA 160; Guðbjartur Krist- ján ÍS 140; Bergur VE 140; Reykjaborg RE 250; Gísli Árni RE 250; Belga II. RE 170; Loft- ur Baldrvinss. EA 110; Snæfugl SU 26; Ólafur Friðberts ÍS 65; Jörundur III. RE 180; Skarðs- vík SH 100; Bára SU 40; Ljós- fari ÞH 60; Akraborg EA 40; Ol. Magnúss. EA 150; Hannes Hafstein EA 90; Árni Magnúss. GK 90; Magnús NK 120; Grótta RE 90; Örn RE 200; Hafrún ÍS 40; Kristján Valgeir NS 165; Guðbjörg GK 100; Guðbjörg ÍS 230; Ásberg RE 240; Júlíus Geir mundsson ÍS 160; Guðrún Þor- keilsd. SU 100; Lómur KE 100; Sæhrknnir KE 60; Guðim. Pét- uns ÍS 80; Björgvin EA 30; Börkur NK 70; Sig. Jónss. SU 60; Þórður Jónass. EA 170; Jón Kjartanss. SU 100; Siglfirðing- ur SI 60; Bj-artur NK 100; Eld- borg GK 70; Harpa RE 70. IMikil síld .4 FÖSTUDAG var saltað í 3343 tunnur í Seyðisfirði og í gær voru mörg skip á leiðinni þangað með ails um 2000 tonn. Var því gert ráð fyrir að saltað yrði framundir morgun. Síldin er mun stærri og fallegri en hún hefur verið. — Sv.G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.