Morgunblaðið - 18.11.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.11.1967, Blaðsíða 1
28 SiÐUK Pundiðlækkarenn Lántaka brýn nauðsyn Brezka slíórnin neitar að stað- festa milljarða lántöku erlendis London, New York, Frank- furt, 17. nóv. (AP-NTB). ýý Brezka ríkisstjórnin hef- ur ekkert viljað segja opin- berlega um orðróm þann, sem gengið hefur í London og víða um heim í tvo daga, um að stjórnin sé að leita eftir stórláni erlendis til að tryggja gengi sterlingspunds- ins. ýý Haft hefur verið eftir „áreiðanlegum heimildum“ að Bretar væru að leita eftir láni erlendis, sem nemur ein- um milljarð dollara. í Frank- furt var það hinsvegar haft eftir heimildum, sem taldar eru ábyrgar um efnahagsmál, að vestur-þýzki ríkisbankinn hefði milligöngu um samn- inga um fimm milljarða doll- ara lán til Breta. Talsmaður vestur-þýzka bank- ans hefur neitað að staðfesta þessa frétt, og fulltrúar þriggja annarra stórbanka Vestur-Þýzka- lands segjast ekki hafa fengið neina staðfestingu á henni. Sam'kvæmt heimiidarmannin- ■um í Frankfurt, setja Vestur- Þjóðverjar „ákveðin skilyrði“ fyrir stórláni til Breta. Ekki vildi hamn skýra þau skilyrði nánar, en taldi það eðlilegt að skilyrði væru ströng þegar um svo háa upphæð væri að ræða. f fleiri borgum Evrópu eru sögur á kreiki sem enfitt er að 'henda reiður á meðan brezka rík- isstjómin neitar að skýra málið, en flestum ber saman um nauð- syn þess, að Bretar fái stórlán til að tryggja gengi pundsins. Telja sumir sérfræðingar, að málum sé svo langt komið, að tilkynning um lánið verði gefin út á næsta sólarhring. Segja þessir sérfræð- imgar að lánsupphæðin verði ef ti-1 vill rn-un hærri en sá milljarð- ur dollara, sem aðallega hefur heyrzt nefndur. í París hefur gengið orðrómur um að jafnhliða láninu hljóti Bretar að fella gengi sterlings- pundsins, en brezkir ráðherrar -hafa hvað eftir annað borið á móti því, að nokkur gengislækk- un sé í aðsigi. Chalfont lávarður, aðstoðar utanríkisráðherra Bret- la-nds, ítrekaði þessar fullyrðing- ar brezku stjórnarinnar í París í dag. Sagði hann þar í hádegis- verðarboði að tilgangur brezku stjórnarinnar væri að efla efna- hag Breta, og kvaðst sannfærður um að gengislækkun væri ekki leiðin til að leysa vandann. Þessi hugsanlega lántaka brezku stjórnarinnar hefur verið til umræðu í Neðri málstofu brezka þingsins í dag og í gær. Hefur það vakið gremju margra þingmanna. að ráðherrar í stjórn Harolds Wilsosn hafa algjörlega neitað að staðfesta orðróminn um lántökuna, eða mótmæla honum. Framhald á bls. 27. Málgagn sovéthersins,,, „Krasnaya Zvezda" eða Rauöa stjarnan, sikýrffi nýlega frá nýrri eld- flaug og skotvagni, sem aka má greitt yfir torfærur. Var slkýrt frá þessari eldflaug hér í blaðinu um síðustu helgi, og nú hefur borizt meðfylgjandi mynd af flauginnd og vagninum. Er myndin tekin á heræfingum og sýnir flaugina í skotstöðu (AP-TASS). Surveyor 6. fluttur úr staö á tunglinu Pasadena, 17. nóv. NTB-AP. ÞAÐ bar við í dag, í fyrsta sinn í sögunni, að geimfar hreyfði sjg úr stað á tunglinu. Var það bandaríska tunglfarið Surveyor 6. sem með stjórntækjum á jörðu var látið lyfta sér upp af yfir- borði tunglsins upp í þriggja metra hæð og lenda siðan í 2.4 rnetra fjarlægð frá upphaflega lendingarstaðnum, þa.r sem Surveyor lenti 9. nóvember sl. Vísindamenn á Pasadena kalla þessa hreyfingu geimfarsins „sögulegt stökk“ og segja, að það muni gera geimfarinu fært að taka fleiri og margbreytilegri myndir en ella. Verða þær m.yindir síðan bornar saman við þær 17.000 myndir, sem geimfar- ið hefur þegar tekið og sent til jarðar og sagðar eru þær beztu, sem nok'kru sinni hafa verið teknar á tuniglinu. Tilraun þessi er eins og fyrri Surveyor tilraunir lið'ur í undir- búningi ferða manna til tungls- ins. Krafa gríska saksóknarans: Filenis verði dæmdur í ævilangt fangelsi — þar sem hann sé „heili46 og helzti foringi samsærismanna Réttarhöldunum í Bóliviu lokið: Debray og Bustos dæmdir — í gær í 30 ára fangelsi Camiri, Boliviu, 17. nóv. AP-NTB. • HERDÓMSTóLL í Bolivíu kvað í dag upp dóm yfir franska marxistamun Regis Debray og argentínska málar- anum, Ciro Roberto Bustos, sem sakaðir voru um aff hafa starfað með skæruliðum í Boli viu og tekið þátt í uppreisn- um, morðum, vopnuðum rán- um og fleiri illverkum. Báðir hlutu þeir 30 ára fangelsi, en fjórlr bolivískir menn, sem talizt höfðu meðsdkir, voru sýknaðir og látnir lausir. Væntanlega munu þeir De- bray og Bustos áfrýja dómin- um, en haft er fyrir satt, að þeir verði fluttir i herfang- elsi í kastala í nágrenni landa- mæra Paraguay. Menr, þessir voru leiddir fyrir herrétt í Camairi, lítilli olíuborg, en hvað eftir ann- að hafði orðið dráttur á því, að réttarhöidin í máli þeirra hæifust. Tólf vitni voru leidd í málinu af háifu saksókn- arans og báru þau öll, að þeir Debray og Bustos hefðu starfað með skæruliðum, en engar beinar sannanir voru lagðar fram fyrir því, að svo hefði verið. Debray bar sjálfur — og stóð fast á þeim framburði sínurn — að hann hefði komið til Boliviu sem blaðamaður fyrir mexi- kanskt tímarit og hefði ætl- unin verið, að fá að dveljast um hríð með byltingarsveit Che Guevaras og skrifa um þá dvöil og viðtal við Gue- vara. Debray sagði, að Gue- vara hefði synjað bón sinni og eftir því sem fram kemur í dagbók Guevaras, sem bolivísk stjórnarvöld lögðu hald á, þegar hann var drep- inn á dögunum, hefur svo verið. Þar segir Guevara, að Framhald á bls. 27. Aþenu, 17. nóv. — AP-NTB SAKSÓKNARINN gríski, Solon Papadopoulos, hefur krafizt þess, að Konstantine Filenis — sem hann segir hinn raunveruiega leiðtoga þeirra 31 grisku manna og kvenna, sem nú eru fyrir rétti í Aþenu — verði dæmdur í lífs- tíðarfangelsi. „Ég krefst ekki dauðarefsingar yfir honum", sagði saksóknarinn, „enda þótt hann hafi unnið til slíkrar refs- ingar“. Saksóknarinn bætti því við, að Filenis væri sá, er lagt hefði á ráðin um samsærið gegn stjórn- inni, sem sakborningar eru tald- ir aðilar að, og hann væri hinn raunverulegi „heili“ þeirra, enda þótt tónskáldi’ð Mikis Theodorak is, væri að nafni til höfuð þeirra og herra. Theodorakis er nú sjúk ur, þjáist af sykursýki, að því er yfirvöldin segja, og getur ekki komið fyrir rétt. Haft er hins vegar eftir stuðningsmönnum hans, að hann sé fús að koma fyrir réttinn, en yfirvöldin banni það. Filenis bar vitni fyrir réttinum í gær og sagði, að öryggislögregl an hefði sýnt mikinn hrottaskap, þegar hann var handtekinn í ágúst sl. Einnig kvaðst hann hreykinn yfir því að vera með- limur gríska kommúnistaflokks- ins, sem lengi hefur verið bann- aður. Saksóknarinn sagði, a’ð helztu leiðtogar „þjóðernissinna-fylk- ingarinnar” væru auk Filenis, þeir Anthony Brillakis, Aristed- es Panolakos og Themistocles Banousis, en þeir eru allir ófundnir og verða dæmdir „in absentio" ásamt ellefu mönnum öðrum, sem lögreglan hefur ekki náð. Fyrrgreindir menn, sagði Papadopoulos, að væru launaðir umboðsmenn erlends stórveldis, sem ynni að því að koma Grikk- landi undir járnhæl panslavisma og kommúniskrar þrælkunar og koma á sósíalískri stjórn í land- inu. Framhald á bls. 27. Bo Bergmonn lólinn Stokkhólmi, 1. nóv. NTB. RITHÖFUNDURINN og gagn- rýnandinn Bo Bergmann lézt i sjúkrahúsi hér í nótt, 98 ára. Hann var félagi í sænsku Aka- demíunni frá 1925 og heiðurs- doktor við l’ppsalahásikóla. Eftir Bergmann liggja Ijóðasöfn. skáld sögur, leikrit og ritgerðir um fjölmörg mál. Síðasta verk hans var ritgerðasafn, sem f jallaði m.a. um Goethe, Kirkegárd og Strindberg og kom út árið 1960.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.