Morgunblaðið - 18.11.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967
7
Kort krakkanna í Lyngási
Merkjasala
styrktarfélags
vangefinna
Sunnudaginn 19. nóvember
efnir Styrktarfélag vangefinna
til merkasöiu til ágóða fyrir
starfsemi sína. — Jafnhliða
merkjunum verða seld smekk-
Ieg jólakort, sem börnin á dag-
heimilinu Lyngási hafa sjálf
teiknað. Fást þau í bóka-
búðum. Litlu börnin, sem þar
dveljast, eru með þessum kort-
um að sýna landsmönnum, hvað
þau geta. Auðvitað hefur þetta
einnig mikið að segja fyrir að-
standendur þeseara barna. I'au
sjá á þessu, hvað þau geta, ef
vel er hjálpað.
Alltaf eru að koma fram
ný meðul og tæki til að hjálpa
þessum blessuðu börnum, og
því þörfin brýn að liðsinna í
þessu efni.
Styrktarfélag vangefinna leit-
ar nú til allra heilbrigðra barna
um aðstoð við að selja þessi
merki. Það ætti að vera
öllum til gleði. Börnin, sem
hjálpa til við að selja merk-
Sól skín í heiði á korti þessa barns.
in, finna það máski aldrei
betur en einmitt þá, hvað þau
mega vera þakklát og glöð yfir
að vera heilbrigð og hraust.
Börn og unglingar hafa löng-
um verið drjúgir liðsmenn við
safnanir til þjóðþrifa. Stundum
hefur þeim að ósekju verið leg-
Hti B
Hús og menn tróna á þessu korti.
ið á hálsi fyrir það, en hér ætti
ekki að verða um slíkt að ræða,
þar sem Styrktarfélag vangef-
inna stendur á bak við þau.
Ánægja þeirra á líka að vera
margföld, við að hjálpa með-
bræðrum sínum og systrum,
sem bágt eiga. Þá finna þau
bezt, hve þau eru rík, að geta
bæði lesið og skrifað að lyst
sinni, samanborið við hin börn-
in, sem einhverra orsaka vegna
hafa glatað þessum hæfileika.
Andstæðurnar eru svo miklar,
að flestir gera sér máski ekki
grein fyrir þeim. Á sunnudag-
inn geta börnin og þeir, sem
kaupa kortin og merkin, rétt
þessum börnum hjálparhönd,
látið börnin á Lyngási og öðrum
hælum finna það, að fólki stend
ur ekki á sama um þau, og veit,
að oft má með réttri meðferð
gera þau að nýtum þjóðfélags-
þegnum. — Sameinumst því á
sunnudaginn um það, að gera
söfnunina sem stærsta, með því
að kaupa merki. — Hin
smekklegu jólakort kosta aðeins
8 krónur stykkið, svo að eng-
inn vafi er á því að þau renna
út. — Fr. S.
Er flutt að Njálsgötu 36, .bakhús. — Sími 19891. Klara Kristien- sen, hárgreiðslukona. — (Geymið auglýsinguna). Byggingam., verktakar Járnamann vantar atvinnu. Vanur allri byggingar- vinnu. Tilboð merkt: „Járnavinna 499“.
Iðnaðarpláss Óska eftir iðnaðarplássi um 40—50 ferm. Helzt í Aust- urbænum. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudag merkt: „376“. Verzlunar- og húseig- endur Gerum gamlar harðviðar- hurðir sem nýjar. Endur- nýjum einnig allan harð- við utanhúss sem innan. — Vönduð vinna. Sími 15200.
Bazar
Systrafélags Njarðvíkurkirkju verður í Stapa
sunnud. 19. nóv. kl. 4 e.h. — Úrvals jólavarningur.
Bazarnefndin.
Súgíirðingafélagið
í Reykjavík
heldur skemmtikvöld í Átthagasal Hótel Sögu
laugardaginn 18. þ.m. kl. 20:30.
Til skemmtunar verður:
Félagsvist. — Dans.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
SKRIFSTOFUSTÚLKA
ÓSKAST
Upplýsingar í síma 82300.
FRETTIR
Hjálpræðisherinn.
Sunnud. kl. 2 e.h. Sunnudaga-
skóli. Laugard. kl. 8,30 e.h. Bæn-
arsamkoma. Sunnud. kl. 11 Helg-
unarsamkoma. Brigader Henny. E.
Driveklepp talar. Kl. 8,30 e.h.
Hjálpræðissamkoma. (Hermanna
vígsla). Majór Svava Gísladóttir
stjórnar. Kapt. Djurhuus talar. —
Hermennirnir taka þátt í samkom-
um dagsins. Mánud. kl. 4 e.h.
Heimilasamband. — Allir vel-
komnir.
Viðtalstími
séra Ólafs Skúlasonar verður
framvegis milli kl. 4 og 5 og eftir
samkomulagi.
Fíladelfía, Keflavík.
Guðsþjónusta kl. 4.30. Haraldur
Guðjónsson.
Hjúkrunarkonur.
Munið aðalfundinn í Domus
Medica miðvikudaginn 22. nóv. kl.
20.30. —
Dregið var á sunnudag
í happdrætti Kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnar. Þessi
númer komu upp: 68: Uppbúið
brúðuhús. 350: Kertastjakar 395:
Uandsaumaður kaffidúkur með
servíettum. 146: Brúða. 189: Brúða
í skautbúningi. 468: Harðangurs-
saumaður dúkur. 160: Uppsettur
klukkustrengur. Munanna má vitja
í Garðastræti 42.
Kirkjunefndin þakkar öllum
þeim, sem studdu að ágætum
árangri kaffisölunnar og bazarsins.
SJálfstæðiskvennafél. Vorboðl,
Hafnarfirði.
Sjálfstæðiskonur Hafnarfirði. —
Munið Vorboðafundinn í Sjálfstæð-
ishúsinu mánudaginn 20. nóv. kl.
8.30. Frú Ragnheiður Guðmunds-
dóttir læknir flytur erindi, sem
hún nefnir: Blinda og helztu or-
sakir hennar. Sýnd verður handa-
vinna kvenna frá námskeiðl Vor-
boðans. Kaffidrykkja. AUar Sjálf-
stæðiskonur velkomnar.
Kvenfélag Garðahrepps:
Bazar og kaffisala félagsins verð-
ur sunnud. 26. nóv. n.k. í Barna-
skóla Garðahrepps kl. 3,00 síðd. —
Skilið munum tímanlega. Tekið
á móti kökum frá miUi 10 og 12
á sunnudag. — Bazarnefndin.
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma að Hörgshlíð
12 sunnud. 19. nóv. kl. 8.00 síðd.
Skaftfellingafélagið
heldur skemmtifund í Brautar-
holti 4 laugard. 18. nóv. kl. 9 stund
víslega.
Bústaðakirkja.
Sjálfboðaliðar óskast eftir há-
degi á laugardag. Hjálpum sem
flest að við að gera kirkjuna fok-
helda fyrir veturinn.
Byggingarnefnd.
Húnvetningar.
Munið bazarinn í félagsheimil-
inu, Laufásvegi 25, sunnudaginn
19. nóv. kl. 2. Komið og kaupið
jólagjafirnar hjá okkur.
Vetrarhjálpin í Reykjavík,
Laufásveg 41 (Farfuglaheimili)
sími 10785. Skrifstofan er opin
frá kl. 14—18 fyrst um sinn. —
Styðjið og styrkið vetrarhjálp-
ina.
Styrktarfélag Iamaðra og fatlaðra
kvennadeildin. Basarinn verður í
Lindarbæ, laugardaginn 18. nóv. —
Konur, vinsamlegast skilið basar-
munum að Sjafnargötu 14.
Geðverndarfélag íslands.
Ráðgjafa- og upplýsingaþjónusta
að Veltusundi 3 alla mánudaga kl.
4—6 síðdegis. Þjónustan er jafnt
fyrir sjúklinga, sem aðstandendur
þeirra, — ókeypis og öllum heimil.
Kvenfélagið Fjólan, Vatnsleysu-
strönd. Hinn árlegi basar félagsins
verður haldinn sunnudaginn 19.
nóv. kl. 4 í Barnaskólanum. Fjöl-
breyttir munir til jólagjafa á boð-
stólum.
Kvenfélag Neskirkju.
Minnzt verður 25 ára afmælis
félagsins að Hótel Sögu fimmtud.
23. nóv. Miðar afhentir í félags-
heimili kirkjunnar fimmtudagiinn
16. nóv. milli 4—6.
Sjálfstæðiskvennafél. Sókn
í Keflavík heldur fund í Æsku-
lýðshúsinu þriðjudaginn 21. nóv.
kl. 8.30 e. h. Kaffidrykkja, spilað
verður Bingó, góðir vinningar.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur.
Félagskonur og aðrir velunnarar
félagsins. Tekið á móti gjöfum á
bazarinn fimmtudag og föstudag
kl. 2—5 í félagsheimilinu á Hall-
veigarstöðum.
Kvenfélag Ásprestakalls
heldur bazar í anddyri Lang-
holsskóla sunnud. 26. nóv. Félags-
konur og aðrir, sem vilja gefa
muni, vinsamlegast hafi samband
við: Guðrúnu 32195, Sigríði 33121,
Aðalheiði 33558, Þórdisi 34491 og
Guðríði 30953.
Akranesferðir Þ. I*. I*.
Frá Akranesi mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík kl. 6 alla daga
nema laugardaga kl. 2 og sunnu-
daga kl. 9.
HJ. Fimskipafélag fslands:
Bakkafoss fór frá Antwerpen
17. þ.m. til Hull og Rvíkur. Brú-
arfoss kom til Rvikur 16. þ.m. frá
New York. Dettifoss er í Riga, fer
þaðan til Ventspils, Gdynia, Gauta
borgar og Álaborgar, Fjallfoss er
væntanlegur til Norfolk 18. þ. m.
fer þaðan til New York. Goðafoss
er í Grímsby, fer þaðan til Rott-
er dam og Hamborgar. Gullfoss fór
frá Hamborg 17. þ. m. til Kaupm,-
hafnar, Kristiansand, Leith og
Rvíkur. Lagarfoss fór frá Seyðis-
firði 11. þ.m.'til Ventspils, Turku
og Kotka. Mánafoss kom til Rvik-
ur 16. þ.m. frá London. Reykja-
foss fer frá Rotterdam 22. þ.m. til
Rvíkur. Selfoss fer frá Norfolk 20.
þ.m. til New York og Rvíkur. —
Skógafoss er í Rotterdam. Tungu-
foss fór frá Kristiansand 17. þ.m.
til Gautaborgar, Kaupm.hafnar og
Rvíkur. Askja kom til Rvíkur 17.
þ.m. frá Hamborg. Rannö fór.frá
Kotka 16. þ.m. til Rvíkur. Seeadl-
er fór frá Hull 13. þ.m., er vænt-
anlegur til Rvíkur 18. þ.m. —
Coolangatta er í Vestmeyjum.
Skipadeild SÍS:
Arnarfell er í Ellesmere Port,
fer þaðan til Port Talbot, Avon-
mouth, Antwerpen og Rotterdam.
Jökulfell er í Rvík Dísarfell er í
Rvik. Litlafell losar á Austfjörð-
um. Helgafell er í Rvík. StapafeU
er í Rvík. Mælifell fór 15. þ.m.
frá Ventspils til Ravenna.
Loftleiðir h.f.:
Bjarni Herjólfsson er væntan-
legur frá New York kl. 0830. Held-
ur áfram til Luxemborgar kl. 0930.
Er væntanlegur til baka frá Lux-
emborg kl. 0100. Heldur áfram til
New York kl. 0200.
Eirikur rauði fer til Óslóar,
Gautaborgar og Kaupm.hafnar
kl. 0930.
Þorfinnur karlsefni er væntan-
legur frá Helsingfors, Kaupmanna
höfn og Osló kl. 0030.
Hverfitónar
Nýkomin vinsælasta hljómplata mánaðarins með
Bee Gee’s.
MASSACHUSETTS long playing með Bee Gee’s
og nýjasta Cream hljóplatan.
M. a. albúm fyrir sríúningaplötur.
Póstsendum um allt land.
HVEKFITÓNAR, Hverfisgötu 50.
Nauðuiiganippboð
sem augl. var í 44., 46. og 48. töluibl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á húseigninnsi nr. 7 við Garðsenda hér
í borg, þingL eign Guðjóns H. Hannessonar, fer fram
etftir kröfu Sigurðar Sigurðssonar, hrl. Bjarna Ben-
teinssomar, hdl, Axels Krstjánssonar, hrl. og Hákonar
H. Kristjánssonar, hdL á eigninni sjálfri þriðjudag-
nn 21. nóvember 1967 kl. 2 síðd.
Kr. Kristjánsson, setuuppboðshaldarL
••
Kristniboðsvika
Vikuna 19.—26. nóv. verða almermar kristniboðssaim-
komur í húsi K.F.U.M. og K. við Amtmannssitíg,
kl. 8,30 hvert kvöld. Sagt verður frá kristniboði, lit-
myndir sýndar, hugleiðing. Söngur og hljóðtfæra-
sláttur. Gjöfum tl kristniboðsinis í Konsó verður veitt
viðtaka í sambandi við samkonaurnar.
Fyrstu samkomuna, á sunnudagskvöld, annas,t
Krstniboðsflokikurinn ÁrgeislL Hugleiðingu hefur
Jónas Þórisson. Æsikulýðsikór KFUM og K syngur.
Starfsmenn Kristniboðssambandsins annast sam-
feomuna á mánudagskvöld. Nýjar litmyndir, sem
Símonetta Bruvik, hjúikrunankona, hefur tekið, verða
sýndar. Gunnar Sigurjómsson hefur hugleiðingu. Ein-
söngur og stúlknakór. AUir velkamnir á samkom-
urnar.
Samband ísl. kristniboðsfélaga.