Morgunblaðið - 18.11.1967, Side 2

Morgunblaðið - 18.11.1967, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967 Batnandi veður á síldarmiðunum VEÐUR fór batnandi á síldar-1 miðunum út af Austfjörðum í gær og klukkan 20 voru 2 vind stig VSV og talsverð alda, en fyrri sólarhring var ekki veiði- veður á miðunum. Fá skip voru á miðunum í gær, en mestall- nr flotinn lét ór höfn, þegar veðrið batnaði og voru nokkur skipanna farin að kasta í gær- kvöldi. Þegar Mbl. hafði sam- band við Dalatanga í gærkvöldi var eitt skip búið að fá afla, en ekki var vitað hversu mik- ill hann var. Engin veiði var í Breiðamerkurdýpinu í gær. Fyrrí sólarhring tilkynntu 15 skip um afla frá sólarhringnum á undan, samtals 450 lestir. Dalatangi: Lestir Brimir KE, 30 Gísli Ámi RE, 70 Ólafur Friðbertss. ÍS, 20 Elliði GK, 20 Sveinn Sveinbjörnss. NK, 10 Lómur KE, 40 Jón Garðar GK, 50 Gullberg NS, 15 Örn RE, 70 Huginn II. VE, 40 Hannes Hafstein EA, 25 Ásgeir RE, 15 Fylkir RE, 15 SólrúníS, 10 Kristján við eitt málverkanna á sýningunni. Kristján Friðriksson sýnir í Bogasal Ók ölvaður KRISTJÁN Friðriksson, forstjóri í Últíma opnar málverkasýningu í Bogaaal Þjóðminjasafneáns U. 4 í dag, laugardag. Hann siýnir þar 29 olíumálverk, flest lands- lagsmyndir og víðs vegar að. Sýningin verður opin í nín daga frá kl. 2-10 eftir hádegi. I»etta er í fyrsta sinn, sem Kristján sýnir opinberlega, flest- SAMBAND ísl. kristniboðsfélaga gengst árlega fyrir samkomuviku hér í borg, þar sem kristniboðs- málefnið er kynnt og >á einkan- lega starf íslenzkra kristniboðs- ins í Konsó. Slík kynningarvika hefst í húsi KFUM og K annað kvöld, og verður síðan samkoma kl. 8,30 hvert kvöld til sunnu- dagsins 26. þ.m. Á samkomunum er fjölbreytt dagskrá, sem sex sambandsfélaganna hér í borg annast hvert sitt kvöld, en starfs menn Kristniboðssambandsins annast tvaer samkomumar. Lit- myndir frá Konsó og víðar frá Eþíópíu verða sýndar þrjú kvöld vikunnar. Auk þess verða Bindindisdapr f TILEFNI bindindisdagsins 1967, sem er á sunnudaginn kemiur, 19. nóvember, efnir Áfengisvarna- nefnd Reykjavíkur til kvik- myndasýningar í Austurbæjar- b»i á morgun laugardaginn 18. nóv. 1967 kl. hálf þrjú stundvís- lega. Allir þeir sem orðnir eru 16 ára eða eldri, eru velkomnir, meðan húsrúm leyfir, en að- göngumiðar eru afbentir ókeypis í Austurbæjarbíói frá kl. 4 e. h. í dag, föstudag og á morgun laugardag (sýningardaginn) frá kl. 2 e. h. Mynd sú, sem sýnd verður er hin áhrifamikla og ógleymanlega ameríska stórmynd, ,,Dagar víns og rósa“. Kvikmynd þessi er með ágæt- um snilldarbrag að allri gerð. Leikaramir túlka á stórfengleg- an hátt hínar hræðilegu afleið- ingar drykkjuskaparins. En mynd þessj er einn samfelldur sterkur áróður gegn áfengisneysl unni, og mun vafalaust hafa mik- il áhrif á jafnt unga sem gamla, er hana sjá, og opna augu þeirra fyrir viUimennsku áfengistízk- unnar og áfen gisneyzlu nnar, al- roennt séð. (Áfengisvarnanefnd Rvíkur). ar myndanna eru málaðar sið- ustu 6-7 árin. Fyrirmyndir eru víða að, margar frá Þingvöllum. Þá eru á sýningunni nokkrar mannamyndir. Kristján kvaðst hafa fengizt við að teikna og mála frá unga aldri. Tvær myndanna á sýning- unni eru frá árunum 1934, gerð- ar undir handleiðslu Jóns beitins frásagnir og fréttir frá kristni- boðsstarfinu, svo og hugleiðing. Fjölbreyttur söngur er á sam- komunum. fslenzka kristniboðið í Konsó hefur verið í jöfnum og góðum vexti, allt frá því að það hófst. Kristniboðssambandið hefur nú þrenn hjón á sínum vegum þar í landi, svo og tvær hjúkrunar- konur, en önnur þeirra dvelst nú heíma í hvíldarleyfi, en á að halda aftur til starfs síns eftir áramót. Kristiboðssambandið hef ur reist stórt og gott sjúkraskýli á stöð sinni, byggt skóla, sem í eru 180—200 nemendur. Auk þess hafa verið starfræktir lestr ar og reikningskennslu-skólar í um 20 þorpum, með alls nálægt 1500—1700 nemendum. Söfnuður hefur verið stofnaður með safn- aðarstjórn Konsómanna, og er hann meðlimur lúthersku kirkj- unnar í Eþíópíu. ísl. kristniboð- ið styrkir hann nokkuð fjárhags- lega ennþá. Um 20 innlendir starfsmenn eru á vegum kristni- boðsins. Safnaðarmeðlimir eru rúml. 600. Sjúklingar, sem leita aðstoðar í sjúkraskýlinu, hafa verið 16—20 þús. árlega. Allt þetta starf hefur verið kostað með frjálsum framlögum kristniboðsvina hér á landi. Venja er, að veita slíkum gjöf- um viðtöku í lok kristniboðs- viku. Allír eru velkomnir Bindindisdogur — kvikmyndasýning KVIKMYNDIN „Dagar víns og rósa“ verður sýnd á vegum nefndarinnar á morgun, laugar- daginn 18. nóv., kl. 2.30 e.h. f Austurbæjarbíói. Aðgöngumiðar verða afhentír í dag frá kl. 2 e.h. ef eitthvað verður eftír. Kvikmyndin er sýnd í tilefni af Bindindisdeginum 1967, sem er á sunnudaginn 19. nóv. n.k. Þorleifssonar, listmálara, en hjá honum nam Kristján um tíma. Auk þess hefði hann fengið sér einkatíma hjá ýmsum málurum, og skioðað söfn á ferðalögum er- lendis. Kristján tók fram, að sér vírðist myndlistaráhugi meðal fslendinga óvenju mikill, á fíest- um heiimilum, bæði í bæjum og sveiíum, prýddu málverk góðra listamanna veggi. Værí þetta al- mennara en í mörgum öðrum lönduim. Áður hefur annar hver íslendingur fengizt við að setja saman vísu, nú hefði áhuginn beinzt inn á aðrar brautír, þar sem málaralist væri. Sýning Kristjáns í Bogasaln- um verður opin til 26. nóvemiber. FTestar myndanna eru til sölu, „ef einhver vill kaupa þær“, eins og Kristján sagði. Vorboðafundui á mánu- dagskvöld SjálfstæðiskvennafélagiS- Vorboðinn í Hafnarfirði held- ur fund í Sjálfstæðishúsinu næstkomandi mánudagskvöld kl. 8,30. Þar flytur frú Ragn- heiður Guðmundsdóttir lækn- ir erindi nm blindu og helztu orsakir hennar, og svarar hún jofnframt fyrirspurnum. Þá verðnr sýnd handavinna Vor- boðakvenna. — Kaffi verðnr framreitt á fundimim. — Ern Vorboðakonur hvattar til að fjölmenna á fundinn. London, 17. nóv. (NTB) BREZKA ríkisstjómin fyrirskip- aði í dag, að öll húsdýr í Eng- landi og Wales skyldn vera í sótt kví fyrst um sinn, og er gripið til þessa ráðs í þeim tilgangi, að reyna að stöðva gin- og klanfa- veikifaraldur, sem þar herjar. Er þetta versti faraldur, sem gengið hefnr yfir húsdýra- stofn Breta í 45 ár, og hefnr til þessa verið siátrað 91.164 dýrnm efir að sýkínnar varð vart í 486 gripinn. Sóttvamarráðstafanimar taka gildi á miðnætti í nótt, og eftir þann thna er algjörlega bannað að flytja húsdýr mílli staða, eða efná til húsdýrasýninga hvar sem er i Englandi eða Wales. Hingað tíl hafa samskonar sótt- varnarráðstafanir náð yfir tak- markað landsvæði frá skozku landamærunum, um Mið-Eng- land og til hluta af Wales. Fréttamenn skýra frá mðrgum átakanlegum atvikum á búgörð- um á sýktu svæðunum, þegar bændur þurftu að horfa á misk- unnarlausa slátrun gripa sinna. Þarna er það fyrsta verk bænd- — ofli árekstri ÖLVABUR vömbílstjóri olh mjög hörðum árekstri á Vestnr- landsveginum, skammt fyrir vestan Leirvogsá, í gær. Jeppabíll var á leið til Reykja vikur, þegar ökumaður hans sá skyndilega, hvar stór vörubíll kom á móti á öfugum kanti. — Ökumaður jeppans hélt, að hinn mundi fara yfir á réttan kant, en dró þó úr ferðinni. Það skipti samt engum togum, að vörubíll- Panama City, 17. nóv. NTB-AP MAÐURINN, sein grunaður var um að vera hinn ill- ræmdi Gestapo-foringi, Hein- rich Miiller, verður nú látinn laus úr varðhaldi. Þykir sann að, að hér sé um að ræða aldr aðan saklcysingja, Francis William Keith. Yfirmaður leynilögreglu Pan- ama, Valdez, sagði, að gengið hefði verið úr skugga um, að maðurinn væri meinlaus götusali og hefðí komíð til Pan- ama sem innflytjandi árið 1942, en þá var Miiller á hápunkti anna að skoða dýrin á morgn- ana og kanna hvort nokkurt þeirra hafi sýkzt. Sé svo, koma fulltrúar landbúnaðaryfírvald- anna strax á vettvang og slátra öllum gripum viðkomandi bónda en síðan er bóndanum sjálfum falið að brenna hræin. Á stórbýlí einu hefur veikin útrýmt heimskunnri hjörð Lei- cester-svína, og á ö«ðru býli þar í grennd hefur 117 gripum af Friesland-kyni verið slátrað eftir 17 ára ræktun. Ekkí er fullvíst hvað olli veik- inni, eða hvert faraldurinn á ræt ur að rekja — hvort hér er um veiru að ræða, sem lcynst hefur frá fyrri og umfangsminni far- öldrum, eða hvort sóttkveikjan heíur borizt til landsins með inn fluttu, sýktu kjöti, eins og marg ir bændur telja. Meðal þeirra bænda er Rocksavage lávarður, sem misst hefur 53 nautgripi af Galloway-kyni. „Það er heimska og skammsýni", segir lávarður- inn, „að fórna öllum þessum hús- dýrum, sem bændur hafa varið lífi sínu til að rækta, vegna eins kjötbita frá Argentínu". inn ók beint á jeppann, sem lagð ist saman að framan við árekst- urinn og kastaðist tíl. Ökumaður jeppans hlaut ljótan skurð á hægri augabrún og var hann fluttur í Slysavarðstofuna, en lögreglan tók ökumann vörubíls- ins í sína vörzlu, þar sem hann var áberandi ölvaður. Hann slapp án meiðsla og skemmdist bíll bans lítið. veldis síns í Þýzkalandi nazista. Valdes sagði, að dómsmálaráð- herrann mundi taka ákvörðun um, hvenær Keith verður leyst- ur úr haldi. Hann lýsti Keith sem smágeggjuðum öldungi og væri um yfirborðslega útlítslik- ingu milli þeírra Miillers og hans a'ð ræða. Keith var tekinn til geð rannsóknar í gær, en niðurstðð- ur hafa ekki verið birtar. Valdez sagði, að Keith þessi væri fædd- ur 21. febrúar 1906 í Missouri í Bandaríkjunum. Hann sýndi blaðamönnum dagbók mannsins, er lýsir komu hans til Panama og síðan bjó hann sem kostgang- ari hjá frú einni, sem nú hefur staðfest, að um sama mann er að ræða. Eins og kunnugt er, var mað- urinn handtekinn samkvæmt beiðni vestur-þýzku stjómarinn- ar, eftir að fyrrverandi eigin- kona Mullers hafði séð myndir af Keith og þótzt viss um, a’ð þar væri kominn forn eiginmað- ur hennar. Lögreglan í Panama segir, að handtakan hafi komið svo flatt upp á gamla manninn, að hann hafi ekki haft rænu á að gera hreint fyrir sínum dyrum þegar í stað. Stúku-afmæli í Stykkishólmi í KVÖLD minnist Bamastúkan Bjönk Nr. 94 í Stykkishólmi 40 ára afmælis síns og fer afmælis fagnaðurinn í samkomuhúsi kaupstaðarins. Stúkan var stofn uð árið 1927 og var fyrsti gæzlu maður hennar Stefán Jónsson námsstjóri, sem stjórnaði henni í 15 ár, en þá tók við frú Sess- elía Konráðsdóttir, kennarL Sl. 16 ár hefur Árni Helgason ver- ið gæzlumaður. Barnastúkan hefur árvallt verið í tengshim við Barnaskólann og notið eindreg- íns stuðnings skólastjóra og kennara á hverjum tíma. Yfir 200 félagar eru nú í stúkunni. — Fréttarltari. Kynningarvika kristniboðsins í Konsó Rúmlega 91 þús. gripum slátrað Aldraður sakleysingi en ekki Gestapoforingi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.