Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967 5 Saltað í Eyjum SÆMILEG sildveiði hefur verið við Vestmannaeyjar síðustu dagana og brugðum við okkur til Eyja til að kanna málið. Lítið hefur verið um fiskvinnu í Eyjum siðustu vikur, en síldin skapar tals- verða vinnu. Við ræddum við Stefán Runólfsson, verkstjóra í Fisk- iðjunni, sl. mónudag, þar sem hann var að fylgjast með söltun. — Fyrir hvaða markað er þessi söltun, Stefán? — Þessi söltun er fyrir Pól- landsmarkað. — Hvernig nýtist aflinn í söltun? — Ég veit ektki bvernig nýt- ingin er, en hún virðist nokk- uð góð og ég myndi telja, að nýtingin gæti orðið um 70-80% í söltun. — Er ekki fryst einnig? — Jú, það er fryst og af- gangurinn fer I bræðslu, en það er sáralítið. í>að er saltað hérna niðri í fiskmóttöku- salnum og pakkað í frystingu uppi á næstu hæð í pökkunar- salnutm. — Er ekki sameiginleg síld- armóttaka hjá stöðvunum? — Það hefur verið sameig- inleg síldarmóttaka lijá öllum orðbragðið hj'á þeirri er bölv- aði, en allar voru konurnar kátar og hressar. Við tókum tali Kristínu Ólafsdóttir, þar sem hún var að slógdraga. — Ert þú vön síldarsöltun, Kristín? — Já, ég er alin upp á Siglu firði og fór snemma að vinna í síld. Keppst við að leggja niður síld. stöðvunum og sildinni er skipt bróðurlega á milli þeirra. Með þessu móti fá allar stöðv arnar eitthvað og síldarbát- arnir fá betri afgreiðslu. Það var mikíll handagang-' ur í öskjunni og síldarnar streymdu ofan í tunnurnar, ein bölvaðd tunnuskorti, önn- ur bað Guð að betrumibæta Halla Símonardóttir, kona Arnar Friðgeirssonar skip- stjóra á Ófeigi III, gaf augna- bliks bros eftir að ljósmynd- arinn hafði lagt sig allan fram. — Vinnur þú stöðugt hér í Fiskiðjunni? — Nei, nei, ég er rétt að halda því við að leggja niður síld, ég er húsmóðir og hef yfirleitt nóg að gera heima við. — Langaði þig í síldarvinnu þegar þú heyrðir að síld væri að koma? — Já, það er alltaf gaman að vinna í síld og svo gefur það smá aukapening. — Er þessi ungi piltur sem hjáipar þér, sonur þinn? — Já, hann er sonur minn. Hann kom eftir skólatíma til að hjálpa mér. Hann hefur gaman af þessu og er dugnað- arstrákur, — Hvað heitir hann? — Hann heitir Hörður Guð jónsson og er 12 ára gamall. — Átt þú mörg börn? — Ég á 5 krakka á aldrin- um 7-19 ára. — Þú ert þá ekki í vandræð um þó að þú skjótist í vinnu? — Nei, alls ekki, eldri krakkarnir eru duglegir að hjálpa til. Kristín er gift Guðjóni Kristinssyni, skipstjóra á Hrauney. Það er alltaf eitt- hvað um að vera við höfnina í Eyjum, bátarnir koma og fara, flutningaskipin lesta afurðir, menn ræða um dag- inn og veginn og allir gera sitt bezta til að bjarga sér. Það er vertíð árið um kring í þessari stærstu verstöð lands- ins og þegar mikill afli berst á land hjálpast allir, sem vett lingi geta valdið, við ,að vinna úr verðmætunum. A. J. Þó að mikið' sé að gera, þá er nú tími til að taka í nefið. Þarna eru þeir Kort Ingvarsson og Jóel Jónsson að fá sér vænan slurk úr tóbaksbauknum til að' hressa upp á skapið' og vera betur undir það búnir að brosa til stelpnanna, eins og Jóel orðaði það. Ljósmyndir. Mbl. Sigurgeir Jónasson. snittur smurt braud brauötertur LAUGALÆK 6 \opid frá kl. 9 - 23:30 JSIt' SÍMI 30941næg bílastædi\ Kristín Olafsdóttir, hú.'gnóðir, slógdregur síld og sonur henn- ar, Hörður Guðjónsson hjálpar henni við að leggja niður í tunnur. Sandgerði Morgunblaðið óskar eftir umboðsmanni til að annast dreifingu og innheimtu blaðsins í Sandgerði. Upplýsingar gefnar á skrifstofu blaðsins. « * /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.