Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 11
MORGUNBLAí>IÐ. LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967 11 Frönsk flugvél Nord 262 kynnt hér Norðurflug kaupir eina slíka SÍÐUSTU tvo daga hefir dvalizt hér á landi fulltrúi frá frönsku flugvélaverk- smiðjunum Nord Aviation, að nafni Georges Réinond, og hefir hann kynnt forystu- mönnum íslenzkra flugmála nýja flugvél, sem fyrirtæki hans hefir nú framleitt um nokkurt skeið og ber nafnið Nord 262. Umboðsmaður fyr- irtækisins hér á landi er Kon- ráð Axelsson, forstjóri. S.l. miðvikudag var forystumönn um flugfélaganna hér og full- trúum flugmálastjórnarinnar boðið að sjá kvikmynd af hinni nýju vél og var þar viðstaddur sendiherra Frakka hér á landi, hr. Strauss. Konráð Axelsson bauð gesti velkomna, en gaf síðan Rémond orðið og lýsti hann hinni nýju flugvél og svaraði fyrirspurn- um um hana. Síðan var kvik- mynd sýnd af framleiðslu og reynzluflugi vélarinnar. Og að henni lokinni svaraði franski fulltrúinn enn nokkrum spurn- ingum. Nord 262 er búin tveimur túr- bínuhreyflum af Turbomeca Bastan Vl-gerð, en það eru franskir hreyflar, sem gefa 1065 EHP við flugtak. Vélin er með sérlega vönduðum hjólabúna'ði, sem gerir það að verkum, að hsegt er að lenda henni á óslétt- um flugvöllum. Þá er hún með lágþrýstum hjólbörðum og svo- nefndum „anti-skid“ hemlum, sem varna því að hjólin springi við snögga hemlun. Vélin kemst af með minna en 1200 metra flug braut við flugtak með aðeins öðrum hreyflinum og fullnægir þar með reglum F.A.A. Vélin er með jafnþrýstiútbúnaði, þannig, að þegar hún flýgur í 16000 feta hæð er loftþrýstingur inni í vélinni sem í 8000 fetum. Vél- in getur flogið 1000 km vega- lengd með 2500 kg, hvort sem eru farþegar, eða flutningur og flughraði hennar er 375 km á klukkustund. Aðspurður um getu þessarar flugvélar í köldum löndum, sagði Rémond, að hún hefði verið reynd við 50 gráðu frost á cel- cius og gefið góða raun. Þegar eru seldar 54 vélar m.a. til ítalíu, Japan, Þýzkalands, þar sem Lufthansa mun nota einvörð- ungu þær á stuttum vegalengd- um, og til Svíþjóðar, en þar er vélin notúð tíl flugs í Norður- Sviþjóð, til hinna kaldari hér- aða. Þá hefir franski flotinn keypt 15 vélar af þessari gerð og mun alls kaupa 40. Einnig hefir vél þessi verið sérstaklega búin til loftljósmyndatöku við korta- gerð. Rémond gat þess, að þessi gerð véla væri af svipaðri stærð og DC 3, sem við íslendingar þekkjum svo vel, og kallaðir eru hér Þristarnir eða Doglasarn ir. Þessi vél, sagði Rémond, þjón- ar sama hlutverki og hinir gömlu góðu Doglasar, en hefir öll nýjustu tæki og útbúnað eins og eru í fullkomnustu þot- um. Nú þegar hefir einn íslenzkur aðili ákvéðið kaup á einni þess- ara véla. Vélin sjálf kostar 25 milljónir, og með hæfilegum birgðum af varahlutum, 30 millj- ónir. Það er Norðurflug h.f., sem Aðalfundur Vöku: Samstaða verði með stúdentum 1. des. AÐALFUNDUR Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, var haldinn á Hótel Sögu sl. mánu- dagskvöld. Friðrik Sophusson, stud. jur., flutti skýrslu um starf semi félagsins, sem var hin öfl- ugasta á árinu. Friðrik hefur verið formaður Vöku í tvö kjör- tímabil og lét nú af embætti. f hans stað var kjörinn formaður Júlíus Sæberg Ólafsson, stud. oecon. Að loknum aðalfundarstörfum flutti Jóhann H. Jóhannsson, formaður hagsmunamálanefndar S.H.I. erindi og svaraði fyrir- spurnum. í stjórn Vöku voru kjörnir aúk Júlíusar: Varaformaður Georg Ólafsson, stud. oecon og aðrir í stjórn, Baldur Guðlaugsson, stud. jur., Haraldur Blöndal, stud jur., Kristófer Þorleifsson, stud. med., Sævar B. Kolbeins- son, stud. jur., Þór Whitehead, stud. philol. Skýrsla fráfarandi gjaldkera Ingólfs Hjartarsonar sýndi, að hagur félagsins er nú góður, þrátt fyrir mikinn kostnað við fjölbreytt félagsstarf. Að loknum aðalfundi flutti Jóhann H. Jóhannsson, stud. med., fróðlegt erindi um málefni þau, sem efst eru á baugi í hags- munamálum stúdenta. Kom fram að Stúdentaráð leggur nú höfuð áherzlu á, að framkvæmdir geti hafizt við félagsheimilisbygg- ingu á háskólalóðinni. Næst Ókyrrð í Hong Kong og Knnfon Hong Kong, 16. nóv. AP. RÓSTUSAMT hefur verið í Hong Kong og nágrannaborginni Kanton upp á siíðkastið. S.l. mið- vikudag var opnuð mikil vöru- sýning í Kanton og kom þá til átaka milli hermanna úr Kína- her og um sjötíu andstæðinga Maós, sem fylkt höfðu sér með stór mótmælaspjöld við búðir sýningarinnar. Báru spjöldin áletranir eins og: „Við brennum sýninguna" og „Drepum forráða- menn sýningarinnar“. Ferðamenn, sem voru vitni að óeirðunum sögðu, að þessir Maó- andstæðingar hefðu komið frá héruðum fyrir utan Kanton, gagngert til að stofna til óeirða við sýningarlóðina. Tafizt hef- ur um mánuð að opna vörusýn- ingu þessa vegna baráttu milli stuðningsmanna Maos annars vegar og andstæðinga hins veg- ar, sem herjað hefur í Kanton og Kwantung síðustu vikur. í Hong Kong særðu tveir of- beldismenn kommúnista tvö kín- versk börn og fimm unglinga að- íaranótt fimmtudagsins. Ætluðu þeir að varpa sprengjum að Iög- reglu, en misreiknuðu sig á f jarlægðinni og hittu börnin. Lög regluþjónarnir höfðu verið ginnt Ir til íbúðargötu einnar undir því yfirskini, að sprengjum hefði verið komið fyrir á þeim slóðum. Meðan þeir voru við störf sín köstuðu ofbeldismenn- imir sprengjum ofan af húsþök- um í nokkurri fjarlægð og lentu sprengjurnar inni í miðjum hóp forvitinna vegfarenda með fyrr- greindum afleiðingum. Júlíus Sæberg Ólafsson, stud. oecon, hinn nýkjörni formað- ur Vöku. verður svo stefnt að byggingu hjónagarðs, sem lengi hefur ver- ið I deiglunni. Jóhann sagði að, engin náms- lán hefðu verið veitt í haust. Ástæðan væri sú, að nýja reglu- gerðin um námslán hefði ekki verið gengin í gildi, þegar út- hluta átti samkvæmt háskóla- ári. Gildistakan væri miðuð við almanaksár og hæfust lánveiting ar því á ári komanda og yrðu þá m.a. lán veitt fyrsta árs stúd- entum. Á eftir erindinu spunnust fjörugar umræður og bornar voru fram fyrirspurnir til frum- mælanda. f tilefni af fullveldisdeginum samþykkti aðalfundurinn ein- róma þau tilmæli til Stúdenta- félags háskólans, að það beiti sér fyrir einingu stúdenta um hátíðarhöldin 1. desember. Góð aðsókn hjd Engilbert Flugvélin franska, Nord 262. vélina kaupir, og gafst okkur tækifæri til að tala við Tryggva Helgason forstjóra þess fyrirtæk- is um vélina, en hann sagði nokkur orð á fundinum og lýsti ánægju sinni með þessa flug- vélategund og kvaðst vona að ein slík kæmi hingað á næsta vori. Norðurflug á nú þegar fimm flugvélar, þrjár tveggja hreyfla og tvær eins hreyfils, og verður þetta því sjötta vél félagsins. Tryggvi segir að þetta sé mjög skemmtileg vél og eins og hugur manns að fljúga henni. Hún er búin öllum fullkomnasta örygg- isbúnaði, auk þess með hitaðar framrúður, ísvarnarbúnað, fjar- skiptatæki öll af fullkomnustu, ameriskri gerð, þá eru hjól og hemlar einnig amerísk, en þeim er fyrr lýst. Tryggvi sagði, að þeir myadu fá mjög hagkvæm lán sambandi við kaup á þessari vél Hún hentaði mjög vel flugi á Norðurlandi, þar sem vellir eru misjafnir. Með 16 farþega getur hún notast við 750 m. flugbraut í litlum mótvindi. En þótt hún gæti komizt af með styttri braut- ir yrði notkun hennar ekki hag- kvæm á þeim. Flugvélinni er ætl að að þjóna á flugleiðunum frá Akureyri og Austur til Vopna- fjarðar og vestur til ísafjarðar. Hins vegar er ekki gert rá‘ð fyrir að hún fljúgi á leiðinni Akur- eyri-Reykjavík ög er vélinni skapaður rekstrargrundvöllur einungis fyrir norðan. Getur hún t. d. lent á Húsavík, Kópa- skeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopr.afirði og í Grímsey. Hún getur því lent á öllum flugvöll- um, þar sem DC 3 flugvélar haf a áður lent, þar sem hún kemst af með 20% minni velli, en sú gamla góða vél og flughraða hefir hún 40% meiri, og hún er ódýrari í rekstri. Flugvélin er svonefnd háþekja, þ. e. vængir eru yfir farþegarými, og útsýni úr henni gott, þar sem gluggar eru stórir. Að síðustu spurðum við Tryggva hve lengi tæki að fljúga þessari vél á hinni mjög svo kunnu flugleið Akureyri-Reykja vík. Sagði hann það taka 50 mín- útur í logni. Þá hefir vélin þann kost áð hægt er á nokkrum mín- útum að skipta um sæti og færa til skilrúm í henni, þannig að hún getur ýmist verið að hluta til flutningavél fyrir varning eða eingöngu, ef þurfa þykir en hún tekur 26—29 farþega í sæti. Þeg- ar vélin er opnuð falla út úr henni tröppur, þannig að hún þarf ekki sérstaka tröppu frá jörðu. Að Iokum kvað Tryggvi góðar vonir bundnar við hina nýju vél. Kvikmyndosýning Germnníu Á kvikmyndasýningu félags- ins Germanía, sem er í dag, laugardag, verða sýndar frétta- myndir frá sl. suimri, þii.m. frá ferð óperunnar í Haimborg tij heimssýningarinnar í Montreal og þýzkum degi, sem þar var haldinn. Þar eru einnig sýndar myndir frá árlegu móti sígauna sem nú var haldið skammt frá <Cöln. Fræðslumyndir, sem sýndar verða. eru að þessu sinni tvær. Báðar eiga það sammerkt að vera frá Rín og Mósel, þótt fátt annað sé þeim sameiginlegt. Er önnur frá borginni Tier við Mósel, einni elztu borg Þýzka- lands, er rekur sögu sína ailt til Rómverja hinna fornu. Sjást þar enn mannvirki frá þeim tíma og margt annað sögulegt, m.a. handrit frá því á dögum Karla-Magnúsar. En hin fræðslu myn.din er um þýzkt vín og vín- gerð. Þaðan koma nokkrar vin sælustu víntegundir, sem um getur. og koma þær einkum frá Rín og Mósel. Mun margan fýsa að sjá vínyrkju á þessum slóð- um. Kvikmyndasýningin verður í Nýja bíó og hefst kL 2 e.h. Öll- um er heimill aðgangur, böm- um þó einungis í fylgd með fuR orðnum. SÝNING Jóns Engilberts í Unu húsi við Veghúsaistíg hefur nú staðið í nærri viku. Aðsóikn hef ur verið mjög góð og gestir Ijúka upp einum rómi um það, að sýningin sé upplifandi og .skemmtileg. Jón Engilberts hef- ur að undanförnu lagt stund á að m.ála stór verk, og er eitt þeirra í afgreiðslusal Lands- bankaútibúsirus við Laugaveg. Á þessari sýningu hefur hann hins vegar safnað sarnan allmörgum smiámyndum, sem hann hefuir málað jafnframt hinum stærri verkum. Virðast þessar smærri myndir Jóns Engilberts hafa lík að mjög vel því nærri helm ingur myndanna er seldur. Það skal tekið fram, að hægt er að fá myndir Jóns með afborgunar skilmálum, meðan sýningin í Unuhúsi stendur yfir. Nýja borholan viö Reykhóla á Barðastr. — gefur um 20 sek. I. af 100 stiga heitu vatni BORHOLAN við Hlíðardals- skóla í Ölfnsi gýs enn, en ekki stöðugt. Úr henni koma um 4 til 5 lítrar á sekúndu af 100 stiga heitu vatni, þegar hún gýs, en meðalrennsiið er um 3 Iítrar á sekúndu. Nýlega hófust boran- ir við Reykhóla á Barðaströnd og hefur nú verið borað niður á 305 m dýpi. Úr þeirri holu koma um 20 sekúndulítrar af rúmlega 100 stiga heitu vatni. Gosin úr borholunni við Hlíð- ardalsskóla standa lengur yfir en áður, sagði ísleifur Jónsson hjá Jarðborunum ríkisins við Mbl. í gær. Eru dæmi þess, að holan hafi gosið í allt að tólf til þrettán tíma samfleytt. Hléin milli gos- anna hafa einnig lengzt nokkuð, þannig að magnið, sem úr hol- unni kemur, er svipað og áður, eSa undir 4 til 5 lítrar á sekúndu, að því er ísleifur taldi. Meðal- rennsli úr holunni taldi hann ekki vera undir þrem lítrum, en erfitt hefur verið um mælingar á því vegna slæmra aðstæðna. Fyrir um þrem vikum hófust jarðboranir við Reykhóla á Barðaströnd. Er sú borhola nú orðin 305 metrar á dýpt og gefur um 20 sekúndulítra af rúmlega 100 stiga heitu vatni. Hvort þar yrði um frekari boranir að ræða, sagðist ísleifur ekki vita. Hann sagði, að þaö væru jarðfræðing- arnir, sem tækju ákvörðun um það, en kvaðst ekkert hafa heyrt um það hvað gert yrði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.