Morgunblaðið - 18.11.1967, Síða 20

Morgunblaðið - 18.11.1967, Síða 20
20 MORGUNÐLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967 Sjötugur í dag: Lýður Guðmundsson bóndi, Sundvík LÝÐUR bóndi Guðmundsson í Sandvík er sjötugur í dag. Guð- mundur faðir hans var Þorvarð- arson Guðmundssonar Brynjólfs sonar vefara í Litlu-Sandvík Björnssonar og var hann kominn út af Sæmundi Gizurarsyni ann- álaritara á Ölfusvatni. Kona Þorvarðar var Svanhildur Þórð- ardóttir Guðimundssonar í Sviðu- görðum og voru þau hjónin því systkinabörn. Þau komu upp tólf börnum og er mikill ætt- bálkur af þeim hjónum. Þorvarður var mikill búhöld- ur og umbótamaður og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum. Hann varð sýslunefndarmaður 1875 og þá eða litlu síðar hrepp- stjóri og oddviti til dauðadags 1899. Þá varð Guðmundur son- ur hans sýslunefndarmaður og lengi síðan jafnframt oddviti og hreppstjóri, sem og Lýður eftir föður sinn. Þeir feðgar eiga því allir þá nafngift, er Magnús heit inn Torfason sagði einu sinni um Guðmund, er hann kallaði hann þrístjóra. Kona Guðmundar og móðir Lýðs var Sigríður dóttir hjón- anna Lýðs hreppstjóra í Hlíð í Gnúpverjahreppi Guðmundsson- ar og Aldísar Páisdóttur frá Brúnastöðum í Flóa. Lýður í Hlíð var ættaður úr Landssveit, góður smiður og jarðræktarmað ur og hneigður til reiknings og stjarnfræði. Um hann er sagt, að er honum var komið ungum í læri til prestsins í Hruna, hafi prestur komizt svo að orði, eftir að hafa prófað hann: „Þessum pilti get ég ekkert kennt“. Lýður í Sandvík kvæntist 1933 AJdísi Pálsdóttur, sonardó'ttur Lýðs og Aldísar í Hlíð, og koma því sömu nöfnin aftur strax í öðrum legg. Móðir Aldísar var Ragnheiður Einarsdóttir á Hæli, systir hinna þjóðkunnu gáfu- manna Gests og Eiríks. Þau Sandvíkurhjón eiga fjög- ur börn, Sigríði, gift Snorra Welding, starfsmanni hj,á Reykja víkurborg, Pál, kvæntan Elín- borgu Guðmundsdóttur frá Laugabrekku í Húnavatnssýslu, er býr sambýli við föður sinn, Ragn'hildi, er vinnur hjá Lands- símanum í Reykjavík og Guð- mund, rafvirkja. Lýður í Sandvík er eftirminni- legur gáfumaður, mætti e.t.v. segja sérkennilegur eins og hann á kyn til og varð ekki hvað sízt vart hjá afa hans og Nauðungariipplioð Eftir kröfu Hafþóns Guðmundssonar dr. jur., fer fram nauðungaruppboð á verkstæði Þungavinnuvéla h.f. við Vesturlandsveg, hér í borg, fimmtudaginn 23. nóveanber 1967, kl. 13.30 og verður þar seld Koehring vélskófla, talin eign Sandnáims Suðurnesja h.f. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Gæðavara Max harði/last Glæsilegir litir. Verð mjög hagstætt. LITAVER, Grensásvegi 22—24. Sími 30280, 32262. Ensk gólfteppi Verð kr. 350.— pr. ferm. og kr. 608.— pr. ferm. Fljót og góð afgreiðsla. LITAVER S.F. Grensásvegi 22—24, sími 30280, 32262. Bömur Nú er rétti tíminn að fá sér permanent fyrir jólin. Höfum úrvals permanentolíur. Hárgreiðslustofan SÓLEY, Reynimel 86 (Kaplaskjólsmegin) — Sími 18615. nafna. Auk þess sem hann hefur ávallt verið búhöldur góður í þess orðs fyl'lstu merkingu, hef- ur hann gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum og verið einn aðaldrifkrafturinn í sýslunefnd Árnessýslu mörg undanfarin ár. Þar hefur hann beitt sér fyrir mörgum velferðarmálum, á sæti í elliheimiilsnefnd Árnessýslu og vann að Byggðasafninu á Sel- fossi. Hann hefur verið formað- ur Flóaáveitufélagsins frá 1960 og formaður í stjórn Nautpripa- ræktunarsambands Árnessýslu frá stofnun þess 1943. Ég var svo lánsamur í æsku, að þau hjón, Lýður og Aldís, tóku við mér á sumrum svo ár- um skipti. Þótt ég stæði varla fram úr hnefa, þegar ég kom þangað fyrst, taldi ég sjálfan mig vel baggafæran áður en ég hætti þar kaupamennsku, svo að víst má segja, að Lýður hafi komið mér til manns. Ég hef lí'ka ávallt litið á Sandvík eins og mitt gamla heima. Þaðan á ég margar mlnningar og gott veganesti. Þegar ég nú skrifa þessar lín- ur, riifjast margt upp. Ég man eftir því, hve Ragga gamla var natin við kýrnar. Ég fékk þá virðingarstöðu að hjálpa henni að gera við básana. Umhyggja hennar fyrir kúnum var slík, að mér hefði aldrei dottið í hug að svíkjast um í þessu sérstaka verki, þótt ekki væri dæmalaust, að Lýður kæmi í flekkinn til mín, þegar ég var að raka dreif á Mýrinni, til þess að eitthvað gengi. Alltaf var hún í sama góða skapinu og alltaf streymdi frá henni ilurinn til manna og málleysingja, svo að ég finn hann enn þann dag í dag, ef mér kem- ur hún í hug. Villi gamli átti í Sandvík skjól í ellinni og vísaði mönn- um til vegar, ef svo bar undir. Einnig hann hafði sínum sér- stöku verkum að sinna. Og mér er sagt, að hann hafi ekki snú- izt reiðari en þegar Lýður lét af hendi hey. Hann vissi eflaust, hvað það þýddi að verða hey- laus. Ekki má heldur gleyma Varða, sem þar var um mörg ár og hef- ur svo sagt mér, að sér hafi hvergi liðið betur. JÖK - MMILIE glerullareinangrunin Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerullareinangrun- ina með álpappírnum Enda eitt bezta einangrunar- efnið og jafnframt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4” J-M glerull og 2í4” frauð- plasteinangrun og fáið auk þess álpappír með! Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Sendum um land allt — Jafnvel flugfragt borgar sig. Jón Loitsson hi. Hringbraut 121. - Sími 10600. Akureyri: Glerárgötu 26. Sími 21344. Og þannig rekúr hver minn- ingin aðra. Sigríður, móðir Lýðs, er mér einnig i barns- minni, og hjá henni lærði ég myllu. Þótt ég bæri meiri virð- ingu fyrir henni en öðru heim- ilisfólki, var mér ekki síður hlýtt til hennar og aldrei man ég til þess, að hún frekar en aðrir tæki ekki okkur börnun- um vel. Hún gaf siér tkna til að rabba við okkur og fræða okkur, ég held, hvenær sem okkur þóknaðist.. Siðast kom ég í Sandvík núna í s'umar. Að vísu er margt breytt, og ég er sjálfur breyttur. En Lýður óg Aldís voru eins. Það var líká skemmtilegt að gánga aftur um húsin og reka sig á eitt og annað; upp rifjað- ist atvik hér og atvik þar, — smávægileg atvik kannski, en þau minntu á góða daga. Þau hjón verða að heiman í dag. Halldór Blönðal. SVO SEM getið var í Mbl. í gær henti það óhapp tvo bif- reiðastjóra að þeir misstu vald yfir bílum sínum á hálku ví fyrrakvöld á mótum Múla- ýegar og Engjavegar. Fyrst rann Volvobifreið til og hent- ist út í skurð, en aðeins 20 mínútum síðar kom Volkswa- gen-bifreið og fór hina sömu leið. Lágu bifreiðarnar sam- an í skurðinum og sneru báð- ar stefni niður. (Ljósmynd: Sv. Þorm.) Samkomulag Bret- lands og Belgíu — um náið tœknisamstarf — Á að auðvelda aðgang Breta að EBE London, 15. nóvember NTB. BRETLAND og Bðlgía komust að samkomulagi í gær um að kattirta möguleikana á tæknilegu uam- starfi og á þetfca samstarf að vera þáttur í þeiirri viðlaitnl, að Bnetar fái tækifæri til þess að gnnga í Efniahagsbandalag Evrópu. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í London, að forsæt- isráðherra Belgíu, Paul van den Boeynants, hafi rætt mögu-leik- ana á þessu samstarfi nákvæm- lega við hinn brezka starfsbróð- ur sinn, Harold Wilson í loka- viðræðum þeirra á miðvikudag, en viðræður þeirra hófust á þriðjudag. Með þessu hafa þessi tvö lönd ekki skuldbundið sig til náins tæknilegs sams'tarfs, en árangurinn af viðræðum for- ætisráðherranna tveggja er' samt sem áður fyrsti raunveru- legi árangurinn af áætlun Wil- sons, sem er í sjö liðum, um vesturevrópskt tæknisamstarf í framtíðinni. Harold Wilson sagði, er hann bar tillögu sína fram á mánu- dag, að tilgangurinn með áætl- uninni væri að skapa mögu- leika, sem á sínum tíma myndi auðvelda viðleitni Breta til þess að gerast aðilar að Efnahags- bndalaginu. Wilson lgði áherzlu á, að hér væri á engan hátt um máil að ræða, sem komið gæfi í staðinn fyrir aðild Breta að bandalaginu. Van den Boeynants sagði á fundi með fréttamönnum í Lond on í dag, að stjórn Belgíu væri reiðuibúin til þess að hefja við- ræður við brezk stjórnarvöld um einstök verkefni, ef það kaemi skýrt í ljós, að tilganig- urinn með þessum viðræðum væri að hefja samstarf einnig við aðra aðila. í lokaviðræðum sínum, sem stóð á' annan klukkutíma, ræddu forsætisráðherrarnir tveir nánar um þetta atriði, en gert hafði verið ráð fyrir fram. Eink um ræddu þeir um áætiun um saimstarf varðandi kjarnorku til friðsamlegrar notkunar. Belgíski forsætisráðherrann lagði áherzlu á það á fundinum með fréttamönnum, að belgísk stjónavöld litu hina sjö liða á- ætlun Wilsons, sem sönnun þess, að mjög rík alvara væri að baki viðleitni Bretlands gagn- vart Efnahagsbandalaginu. Sagði hann, að Wilson hefði gert mjög góða grein fyrir sjónar- miðum sínum og væru Beligíu- menn þeirrar skoðuar, að þar ksemi fram enn ein sönnunin fyrir markmiðum brezku stjórn arinnar, sem Belgíumenn voru mjög ánægðir með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.